Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
Guðbjörg Heiða Guðmunds-
dóttir, framkvæmdastjóri
Marels á Íslandi, segist finna
að erlendur sjávarútvegur
horfi til Íslands þegar kemur
að tæknivæðingu í vinnslu.
10
14.12.2018
14 | 12 | 2018
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Blaðamenn
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Hafþór Hreiðarsson
korri@internet.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Auglýsingar
Valur smári Heimisson
valursmari@mbl.is
Forsíðumyndina tók Eggert
Jóhannesson eggert@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Fyrr í þessari viku var samþykkt á Alþingi frumvarp Kristjáns
Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, til
nýrra laga um veiðigjald. Með gildistöku frumvarpsins færist
viðmið innheimtunnar nær sjálfri innheimtunni í tíma, og end-
urspeglar þannig betur afkomu í sjávarútvegi hverju sinni.
Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjáv-
arútvegi, segir í samtali við 200 mílur í dag að í raun sé ótrú-
legt að helsta áskorun sjávarútvegs sem atvinnugreinar sé póli-
tísk óvissa og óstöðugleiki. Vonandi er að frumvarpið
nýsamþykkta slái að einhverju leyti á þá óvissu sem Jens Garð-
ar nefnir.
Annars staðar ríkir þó líka óvissa, eins og Þorsteinn Másson,
svæðisstjóri Arnarlax í Bolungarvík, minnist á hér aftar í
blaðinu. Hann segir að brýnt sé fyrir stjórnvöld að setja skýran
ramma utan um fiskeldi sem atvinnugrein.
„Þannig að fyrirtækin viti inni í hvaða ramma þau eigi að
starfa, hvar mörkin séu og við hverju megi búast. Þessi óvissa
varðandi leyfin og framleiðsluheimildir – henni þarf að eyða.“
Ljósmynd/Borgar Björgvinsson
Eilífa baráttan við óvissuna
Þorsteinn Másson, svæðisstjóri
Arnarlax í Bolungarvík, bendir á
þau tækifæri sem aukið laxeldi feli í
sér fyrir hvítfiskframleiðendur.
24
Birkir Bárðarson, fiskifræðingur hjá
Hafrannsóknastofnun, segir að
breytinga megi vænta í loðnustofn-
inum á komandi misserum. Svo
virðist sem sjórinn fari kólnandi.
14
Halldór B. Nellett, skipherra Land-
helgisgæslunnar, greinir frá því þeg-
ar áhöfn Týs bjargaði flóttamönnum
um borð í stjórnlausu skipi.
42-46
Sjávarútvegstæknifyrirtækið Naust
Marine hefur gengið frá tveggja
milljarða króna samningi við rúss-
neska útgerð, um framleiðslu á
vindum fyrir sex togara.
12