Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 8

Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Skúli Halldórsson sh@mbl.is F yrr í vikunni var samþykkt á Alþingi frumvarp Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávar- útvegs- og landbúnaðar- ráðherra, til nýrra laga um veiðigjald. Með gildistöku frum- varpsins færist viðmið inn- heimtunnar nær sjálfri innheimtunni í tíma, og endurspeglar þannig betur afkomu í sjávarútvegi hverju sinni. „Of hátt veiðigjald skaðar öll fyr- irtæki. Fyrst um sinn mun það hugs- anlega koma verst niður á minnstu og meðalstóru útgerðunum, en til lengri tíma mun of há skattlagning hafa skaðleg áhrif á alla,“ segir Jens Garðar í samtali við 200 mílur. „Það liggur alveg ljóst fyrir að margar útgerðir munu ekki geta starfað við núverandi skattlagningu. Menn verða að gera sér grein fyrir því að ef enginn er afgangurinn til að fjárfesta í nýjum skipum eða tækjum í landi missum við fótfestu á alþjóð- legum markaði og þá er sjálfhætt í sjávarútvegi.“ Helsta áskorunin pólitísk óvissa Spurður um stöðu íslenskra sjávar- útvegsfyrirtækja um þessar mundir segir hann að þau hafi á und- anförnum árum starfað við mjög krefjandi rekstrarskilyrði. Sterkt gengi krónunnar, hækkanir á inn- lendum kostnaðarliðum og hátt veiðigjald, sem engan veginn hafi endurspeglað afkomu fyrirtækj- anna, ráði þar mestu. „Þeir sem starfa í sjávarútvegi eru vanir því að eiga við náttúruöflin og samkeppni á erlendum mörkuðum, en það er í raun ótrúlegt að okkar helsta áskorun sem atvinnugreinar sé pólitísk óvissa og óstöðugleiki. Nánast á hverju ári hefur greinin mátt sitja undir óvissu um hvernig ríkið ætlar að skattleggja greinina,“ segir Jens. „Það er alveg skýrt í mínum huga að ef Íslendingar vilja áfram vera í fremstu röð sjávarútvegsþjóða þarf að fjárfesta og auka nýsköpun. Fyr- irtækin hafa fyrir löngu áttað sig á þessu og það yrði traustvekjandi fyr- ir greinina, og alla sem á hana treysta, ef ráðamenn þjóðarinnar gerðu sér einnig grein fyrir þessu.“ Tengdi dómana við veiðigjald Rúm vika er liðin síðan Hæstiréttur dæmdi ríkið skaðabótaskylt gagn- vart tveimur útgerðum, en í dóm- unum tveimur segir að ráðherra hafi ekki verið heimilt að bregða út frá lögum um veiðireynslu við úthlutun makrílkvóta með reglugerð. Logi Einarsson, formaður Samfylking- arinnar, sagði á Alþingi fyrr í þessari viku að dómurinn endurspeglaði að Íslendingar ættu enn í deilum um fiskveiðistjórnunarkerfið og út- hlutun takmarkaðra gæða. Tengdi hann dómana við umræðu um frumvarp til nýrra laga um veiði- gjald, sem að lokum var þó sam- þykkt, og lét í ljós að eðlilegt væri að framlengja þágildandi lög „til að skoða úthlutunarreglur og veiðigjöld í samhengi“. Fyrr á þessu ári spurði Logi í ræðustól Alþingis hvort ekki væri „allt í lagi þó að eitthvað af út- gerðarfyrirtækjunum fari á hausinn og við leitum í hagkvæmasta rekst- urinn þannig að þjóðin fái á endanum afgjaldið?“ Spurður hvort honum finnist við- horf Loga endurspegla skoðun al- mennings gagnvart íslenskum út- gerðum segir Jens: „Ég ætla nú ekki meðal-Íslendingnum að hafa sömu afstöðu til sjávarútvegs og Logi Ein- arsson. Það að tengja nýfallna makr- íldóma við umræðu um veiðigjald ber þess vott að annaðhvort eru menn að gera sér upp skilningsleysi á dómunum, nú eða þá hitt, að Logi skilur þá hreinlega ekki.“ Umræddir dómar Hæstaréttar segir Jens að fjalli einfaldlega um að þáverandi sjávarútvegsráðherra hafi gerst brotlegur við lög og íslenska ríkið sé því bótaskylt gagnvart þeim sem brotið hafi verið á. „Árið 2015 benti umboðsmaður Al- þingis á að ríkið væri að brjóta lög við úthlutun á markílkvóta, þannig að þetta er ekkert nýtt. Að blanda þessu saman við umræðu um veiði- gjald er mér fyrirmunað að skilja. En Logi, ásamt sínum flokki, Við- reisn og Pírötum, hefur talað fyrir þjóðnýtingarleið þar sem atvinnu- réttur er tekinn af einum og boðinn öðrum. Í fyrstu hét þetta fyrningar- leið en nú er nýjasta orðið „markaðs- leið“. Hvernig þessir ágætu flokkar tengja þetta við eitthvað sem á skylt við markað er mér algjörlega ómögulegt að skilja, því þetta er ekk- ert annað en þjóðnýting,“ segir Jens. Fer ekki saman hljóð og mynd „En þar sem Loga finnst í lagi að einhver útgerðarfyrirtæki fari á hausinn þá er það að sjálfsögðu sárs- aukalaust fyrir hann að taka af mönnum atvinnurétt og bjóða hann öðrum. Þarna fer ekki saman hljóð og mynd. Stjórnmálamenn tala í einu orðinu um að þeir vilji halda landinu í byggð en á hinn bóginn tala þeir um að skattleggja greinina með þeim hætti að hún stendur ekki undir álögunum, og svo toppa menn allt saman með því að ætla að taka af þeim atvinnuréttinn. Ég hygg að al- menningur, einkum á landsbyggð- inni, leggi ekki trúnað á svona mál- flutning.“ Hann bendir á að allar útgerðir, hvort sem þær eru stórar eða smáar, séu þýðingarmiklar. „Hver og ein er mikilvægur burðarás í sínu sam- félagi og fyrir þjóðina alla. Fjöl- breytileiki í íslenskum sjávarútvegi hefur verið og mun vonandi verða áfram eitt okkar helsta aðalsmerki.“ Spurður hvernig hann meti sam- keppnishæfni íslensks sjávarútvegs á alþjóðavísu segir Jens að hann sé í fremstu röð í heiminum og standist hvaða samanburð sem er. „Nýsköpun er hvergi meiri en á Íslandi og margar þjóðir horfa til okkar sem fyrirmyndar þegar kem- ur að nýtingu sjávarafurða. En það er ekki sjálfgefið að vera í fremstu röð. Um 98% af íslenskum sjávar- afurðum fara á erlenda markaði og samkeppnin er hörð. Ekki einungis erum við að keppa við aðrar fisk- veiðiþjóðir heldur einnig ódýran eld- ishvítfisk frá t.d. Asíu. Hátt veiði- gjald, síhækkandi kolefnisgjald og hár launakostnaður eru íþyngjandi,“ segir Jens. Fiskveiðiþjóðir horfi til Íslands „Fyrirtækin hafa reynt að bregðast við þessum aðstæðum með því að auka sjálfvirkni í vinnslum og smíða ný og betri skip. Ég hef fulla trú á að íslenskur sjávarútvegur geti haldið stöðu sinni á erlendum mörkuðum en til að það sé mögulegt getur ríkið ekki endalaust aukið álögur og gjöld á greinina. Á því munu allir tapa.“ Margar fiskveiðiþjóðir, sem og er- lendir fræðimenn, horfi til Íslands sem fyrirmyndar að því hvernig byggja eigi upp fiskveiðikerfi sem stuðli að ábyrgum og sjálfbærum veiðum og styðji á sama tíma við ný- sköpun og hugvitsiðnað tengdan greininni. „Í mínum huga er mikilvægt að stjórnvöld á hverjum tíma og at- vinnugreinin gangi í takt. Það er langtímahagur þjóðarinnar að at- vinnugreinin haldi áfram að þróast og eflast,“ segir Jens. „Hvað varðar fyrirtækin þá erum við að takast á við áskoranir á hverj- um degi, hvort sem það er baráttan við Ægi, hörð samkeppni á erlendum mörkuðum eða að vinna skilning stjórnvalda á stöðu greinarinnar og skynsemi í gjaldheimtu. Áskorun okkar er nú, eins og áður, að halda okkur áfram í fremstu röð. Þeirri vakt íslensks sjávarútvegs lýkur aldrei.“ Ekki sjálfgefið að vera í fremstu röð Veiðigjald undanfarinna ára hefur á engan hátt endurspeglað það ár- ferði sem greinin býr við. Mörg fyrirtæki hafa átt mjög erfitt upp- dráttar sökum þessa og skattlagning ríkisins hef- ur dregið þrótt og fjár- festingargetu úr mörg- um þeirra. Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrir- tækja í sjávarútvegi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Formaður Jens bendir á að allar útgerðir, hvort sem þær eru stórar eða smáar, séu þýðingarmiklar. „Hver og ein er mikilvægur burðarás í sínu samfélagi.“ Ljósmynd/Borgar Björgvinsson Veiðar „Það liggur alveg ljóst fyrir að margar útgerðir munu ekki geta starfað við núverandi skattlagningu,“ segir Jens.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.