Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
F
yrr í vikunni var samþykkt á
Alþingi frumvarp Kristjáns
Þórs Júlíussonar, sjávar-
útvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, til nýrra laga um
veiðigjald. Með gildistöku frum-
varpsins færist viðmið inn-
heimtunnar nær sjálfri innheimtunni
í tíma, og endurspeglar þannig betur
afkomu í sjávarútvegi hverju sinni.
„Of hátt veiðigjald skaðar öll fyr-
irtæki. Fyrst um sinn mun það hugs-
anlega koma verst niður á minnstu
og meðalstóru útgerðunum, en til
lengri tíma mun of há skattlagning
hafa skaðleg áhrif á alla,“ segir Jens
Garðar í samtali við 200 mílur.
„Það liggur alveg ljóst fyrir að
margar útgerðir munu ekki geta
starfað við núverandi skattlagningu.
Menn verða að gera sér grein fyrir
því að ef enginn er afgangurinn til að
fjárfesta í nýjum skipum eða tækjum
í landi missum við fótfestu á alþjóð-
legum markaði og þá er sjálfhætt í
sjávarútvegi.“
Helsta áskorunin pólitísk óvissa
Spurður um stöðu íslenskra sjávar-
útvegsfyrirtækja um þessar mundir
segir hann að þau hafi á und-
anförnum árum starfað við mjög
krefjandi rekstrarskilyrði. Sterkt
gengi krónunnar, hækkanir á inn-
lendum kostnaðarliðum og hátt
veiðigjald, sem engan veginn hafi
endurspeglað afkomu fyrirtækj-
anna, ráði þar mestu.
„Þeir sem starfa í sjávarútvegi eru
vanir því að eiga við náttúruöflin og
samkeppni á erlendum mörkuðum,
en það er í raun ótrúlegt að okkar
helsta áskorun sem atvinnugreinar
sé pólitísk óvissa og óstöðugleiki.
Nánast á hverju ári hefur greinin
mátt sitja undir óvissu um hvernig
ríkið ætlar að skattleggja greinina,“
segir Jens.
„Það er alveg skýrt í mínum huga
að ef Íslendingar vilja áfram vera í
fremstu röð sjávarútvegsþjóða þarf
að fjárfesta og auka nýsköpun. Fyr-
irtækin hafa fyrir löngu áttað sig á
þessu og það yrði traustvekjandi fyr-
ir greinina, og alla sem á hana
treysta, ef ráðamenn þjóðarinnar
gerðu sér einnig grein fyrir þessu.“
Tengdi dómana við veiðigjald
Rúm vika er liðin síðan Hæstiréttur
dæmdi ríkið skaðabótaskylt gagn-
vart tveimur útgerðum, en í dóm-
unum tveimur segir að ráðherra hafi
ekki verið heimilt að bregða út frá
lögum um veiðireynslu við úthlutun
makrílkvóta með reglugerð. Logi
Einarsson, formaður Samfylking-
arinnar, sagði á Alþingi fyrr í þessari
viku að dómurinn endurspeglaði að
Íslendingar ættu enn í deilum um
fiskveiðistjórnunarkerfið og út-
hlutun takmarkaðra gæða.
Tengdi hann dómana við umræðu
um frumvarp til nýrra laga um veiði-
gjald, sem að lokum var þó sam-
þykkt, og lét í ljós að eðlilegt væri að
framlengja þágildandi lög „til að
skoða úthlutunarreglur og veiðigjöld
í samhengi“. Fyrr á þessu ári spurði
Logi í ræðustól Alþingis hvort ekki
væri „allt í lagi þó að eitthvað af út-
gerðarfyrirtækjunum fari á hausinn
og við leitum í hagkvæmasta rekst-
urinn þannig að þjóðin fái á endanum
afgjaldið?“
Spurður hvort honum finnist við-
horf Loga endurspegla skoðun al-
mennings gagnvart íslenskum út-
gerðum segir Jens: „Ég ætla nú ekki
meðal-Íslendingnum að hafa sömu
afstöðu til sjávarútvegs og Logi Ein-
arsson. Það að tengja nýfallna makr-
íldóma við umræðu um veiðigjald
ber þess vott að annaðhvort eru
menn að gera sér upp skilningsleysi
á dómunum, nú eða þá hitt, að Logi
skilur þá hreinlega ekki.“
Umræddir dómar Hæstaréttar
segir Jens að fjalli einfaldlega um að
þáverandi sjávarútvegsráðherra hafi
gerst brotlegur við lög og íslenska
ríkið sé því bótaskylt gagnvart þeim
sem brotið hafi verið á.
„Árið 2015 benti umboðsmaður Al-
þingis á að ríkið væri að brjóta lög
við úthlutun á markílkvóta, þannig
að þetta er ekkert nýtt. Að blanda
þessu saman við umræðu um veiði-
gjald er mér fyrirmunað að skilja.
En Logi, ásamt sínum flokki, Við-
reisn og Pírötum, hefur talað fyrir
þjóðnýtingarleið þar sem atvinnu-
réttur er tekinn af einum og boðinn
öðrum. Í fyrstu hét þetta fyrningar-
leið en nú er nýjasta orðið „markaðs-
leið“. Hvernig þessir ágætu flokkar
tengja þetta við eitthvað sem á skylt
við markað er mér algjörlega
ómögulegt að skilja, því þetta er ekk-
ert annað en þjóðnýting,“ segir Jens.
Fer ekki saman hljóð og mynd
„En þar sem Loga finnst í lagi að
einhver útgerðarfyrirtæki fari á
hausinn þá er það að sjálfsögðu sárs-
aukalaust fyrir hann að taka af
mönnum atvinnurétt og bjóða hann
öðrum. Þarna fer ekki saman hljóð
og mynd. Stjórnmálamenn tala í einu
orðinu um að þeir vilji halda landinu í
byggð en á hinn bóginn tala þeir um
að skattleggja greinina með þeim
hætti að hún stendur ekki undir
álögunum, og svo toppa menn allt
saman með því að ætla að taka af
þeim atvinnuréttinn. Ég hygg að al-
menningur, einkum á landsbyggð-
inni, leggi ekki trúnað á svona mál-
flutning.“
Hann bendir á að allar útgerðir,
hvort sem þær eru stórar eða smáar,
séu þýðingarmiklar. „Hver og ein er
mikilvægur burðarás í sínu sam-
félagi og fyrir þjóðina alla. Fjöl-
breytileiki í íslenskum sjávarútvegi
hefur verið og mun vonandi verða
áfram eitt okkar helsta aðalsmerki.“
Spurður hvernig hann meti sam-
keppnishæfni íslensks sjávarútvegs
á alþjóðavísu segir Jens að hann sé í
fremstu röð í heiminum og standist
hvaða samanburð sem er.
„Nýsköpun er hvergi meiri en á
Íslandi og margar þjóðir horfa til
okkar sem fyrirmyndar þegar kem-
ur að nýtingu sjávarafurða. En það
er ekki sjálfgefið að vera í fremstu
röð. Um 98% af íslenskum sjávar-
afurðum fara á erlenda markaði og
samkeppnin er hörð. Ekki einungis
erum við að keppa við aðrar fisk-
veiðiþjóðir heldur einnig ódýran eld-
ishvítfisk frá t.d. Asíu. Hátt veiði-
gjald, síhækkandi kolefnisgjald og
hár launakostnaður eru íþyngjandi,“
segir Jens.
Fiskveiðiþjóðir horfi til Íslands
„Fyrirtækin hafa reynt að bregðast
við þessum aðstæðum með því að
auka sjálfvirkni í vinnslum og smíða
ný og betri skip. Ég hef fulla trú á að
íslenskur sjávarútvegur geti haldið
stöðu sinni á erlendum mörkuðum
en til að það sé mögulegt getur ríkið
ekki endalaust aukið álögur og gjöld
á greinina. Á því munu allir tapa.“
Margar fiskveiðiþjóðir, sem og er-
lendir fræðimenn, horfi til Íslands
sem fyrirmyndar að því hvernig
byggja eigi upp fiskveiðikerfi sem
stuðli að ábyrgum og sjálfbærum
veiðum og styðji á sama tíma við ný-
sköpun og hugvitsiðnað tengdan
greininni.
„Í mínum huga er mikilvægt að
stjórnvöld á hverjum tíma og at-
vinnugreinin gangi í takt. Það er
langtímahagur þjóðarinnar að at-
vinnugreinin haldi áfram að þróast
og eflast,“ segir Jens.
„Hvað varðar fyrirtækin þá erum
við að takast á við áskoranir á hverj-
um degi, hvort sem það er baráttan
við Ægi, hörð samkeppni á erlendum
mörkuðum eða að vinna skilning
stjórnvalda á stöðu greinarinnar og
skynsemi í gjaldheimtu. Áskorun
okkar er nú, eins og áður, að halda
okkur áfram í fremstu röð. Þeirri
vakt íslensks sjávarútvegs lýkur
aldrei.“
Ekki sjálfgefið að vera í fremstu röð
Veiðigjald undanfarinna
ára hefur á engan hátt
endurspeglað það ár-
ferði sem greinin býr
við. Mörg fyrirtæki hafa
átt mjög erfitt upp-
dráttar sökum þessa og
skattlagning ríkisins hef-
ur dregið þrótt og fjár-
festingargetu úr mörg-
um þeirra. Þetta segir
Jens Garðar Helgason,
formaður Samtaka fyrir-
tækja í sjávarútvegi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Formaður Jens bendir á að allar útgerðir, hvort sem þær eru stórar eða smáar, séu þýðingarmiklar. „Hver og ein er mikilvægur burðarás í sínu samfélagi.“
Ljósmynd/Borgar Björgvinsson
Veiðar „Það liggur alveg ljóst fyrir að margar útgerðir munu ekki geta starfað við núverandi skattlagningu,“ segir Jens.