Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
Merry Christmas Gleðileg Jól Feliz Navidad God Jul FroheWeihnachten
Gleðilega hátíð
F
rá þessu greinir Bjarni Þór
Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Naust Mar-
ine, í samtali við 200 mílur.
Naust hefur unnið að samn-
ingunum í gegnum markaðs-
fyrirtækið Knarr Maritime og hafa
viðræður staðið í nokkra mánuði.
„Þetta hefur gengið fram og aftur
undanfarna mánuði og núna eru all-
ar undirskriftir komnar. Það vantar
bara síðasta stimpilinn frá Rúss-
unum áður en allt fer af stað. Þegar
er byrjað að smíða skipin en það
verða margar vindur um borð, eða
41 vinda í hverju skipi,“ segir Bjarni
og bætir við að almennt sé mikið um
vindur í stórum rússneskum tog-
urum.
„Það eru farmvindur og alls konar
öðruvísi vindur sem við erum alla
jafna ekki með um borð í okkar skip-
um. Með þessu geta þeir skipað úti á
hafi.“
Sækja meira á Rússlandsmið
Í samningnum felst eins og áður
sagði gerð vindubúnaðar fyrir sex
togara, en einnig er ákvæði upp á
mögulega fjögur skip til viðbótar að
sögn Bjarna Þórs. Afhenda á bún-
aðinn í júlí á næsta ári. „Það er ekki
seinna vænna að fara að byrja,“ seg-
ir hann kíminn.
Íslensku tæknifyrirtækin í sjávar-
útvegi hafa að undanförnu sótt í
auknum mæli á Rússlandsmið, þar
sem ljóst er að þar í landi er hafin
vinna við að endurnýja úr sér geng-
inn fiskiskipaflota. Markaðurinn er
stór og útgerðirnar og skipin sömu-
leiðis, eins og Bjarni hefur reynt.
„Þessi útgerð sem við erum að
semja við núna er með eina 40 tog-
ara. Það segir ýmislegt. Þetta eru
gríðarlega stórar útgerðir og hafa
farið stækkandi.“
Til samanburðar voru 44 togarar
skráðir hérlendis við lok síðasta árs.
„Þetta eru alveg svakalegar stærðir
sem þarna er um að ræða,“ segir
Bjarni og bendir á að í Bandaríkj-
unum sé einnig í uppsiglingu bylgja
endurnýjunar.
Aragrúi tækifæra fram undan
„Bandaríkjamenn eru líka með
gamlan flota þannig að þar getum
við búist við endurnýjun á næstu ár-
um. Sama máli gegnir um Japan, en
þar eigum við í Nausti þegar allan
búnað um borð í nýjum togara, þeim
fyrsta vestræna þar í landi. Þá heyri
ég að Nýja-Sjáland sé líka að fara af
stað. Þetta er allt frekar langt í
burtu,“ segir hann og hlær við.
„En við sjáum bara aragrúa tæki-
færa ef við horfum fram á veginn.
Það gæti jafnvel reynst okkur erfitt
ef allt gengur eftir í tilboðum sem
við eigum útistandandi. En maður
fær nú aldrei allt og við hefðum
gjarnan viljað fá fleiri verkefni hér
heima. Maður vill vera sterkur á
heimamarkaði – það er það allra
besta. En samkeppnin er hörð og
maður getur ekki alltaf farið með
sigur af hólmi.“
Gengið framar vonum
Ásamt Skaganum 3X, Nautic, Kæl-
ismiðjunni Frosti, Brimrúnu og
verkfræðistofunni Skipatækni ýtti
Naust Marine úr vör nýju markaðs-
fyrirtæki á síðasta ári, Knarr Mari-
time. Bjarni Þór segir samstarfið
hafa gengið framar vonum og að
fjöldi verkefna sé í pípunum með að-
stoð Knarr.
„Það lofar góðu. Þarna eru fimm
íslensk fyrirtæki að vinna saman og
svo munum við náttúrlega aðstoða
fleiri íslensk fyrirtæki við að komast
að þessum mörkuðum í gegnum okk-
ur. Þetta hefur gengið afar vel og
menn hafa unnið gríðarlega gott
starf þarna,“ segir Bjarni Þór.
Í framhaldi stofnunar Knarr
Maritime stofnaði sami hópur fyr-
irtækið Knarr Rus, sérstaklega fyrir
Rússlandsmarkað. Þar eru nú þrír
starfsmenn og er Jónas Tryggvason
í forsvari. Bendir Bjarni Þór á að til-
koma þess hafi skipt sköpum fyrir
útrás fyrirtækjanna í Rússlandi.
„Alfreð Tulinius, framkvæmda-
stjóri Nautic, hefur einnig gert mjög
góða hluti fyrir okkur með því að
setja á laggirnar fyrirtækið Nautic
Rus. Það virðist vera mikil lyftistöng
að stofna fyrirtæki í Rússlandi og
komast þannig inn á markaðinn,“
segir Bjarni Þór.
Blikur eru þó á lofti.
„Þeir segja það, Rússarnir, að bú-
ast megi við að þessu ferli verði lok-
að meira og meira. Að þeir vilji
kaupa meira inn frá Rússlandi. Það
hjálpar því til að vera kominn þarna
með fótfestu. Í þessum töluðum orð-
um eru tveir starfsmenn okkar úti í
Rússlandi að reyna að fá tvö önnur
verkefni til viðbótar, en við erum
einn af þremur vinduframleiðendum
sem eru að kynna búnað fyrir vænt-
anlegum kaupendum.
Síðan verður tekin ákvörðun í
framhaldi af því. Það er mikið í
gangi í þessu landi, enda kominn
tími á þessa endurnýjun flotans fyrir
löngu og maður hefur vitað af því í
þó nokkur ár að þetta stæði til. Nú
er komið að þessu.“
Níu starfsmenn úti á Spáni
Fyrir tíu árum voru starfsmenn
Naust Marine níu talsins. Á síðasta
ári voru þeir 25 og um þessar mund-
ir eru þeir 32, að sögn Bjarna Þórs.
Fyrirtækið var lengi vel í samstarfi
við erlenda vinduframleiðendur, sem
framleiddu vindurnar á meðan
Naust einbeitti sér að hönnun og
smíði stjórnbúnaðar. Nú eru vind-
urnar hins vegar framleiddar að öllu
leyti undir merkjum Nausts. Fyr-
irtækið hefur enda vaxið töluvert og
er í dag með söluskrifstofu í Banda-
ríkjunum og starfsstöð á Spáni, þar
sem vindubúnaðurinn er smíðaður.
„Við höfum stofnað fyrirtæki á
Spáni sem sér algjörlega um hönnun
og framleiðslu á vindunum. Allt eru
þetta fyrrverandi starfsmenn keppi-
nauta, sem höfðu samband við mig í
október á síðasta ári og lýstu yfir
vilja til að ganga til liðs við okkur. Þá
var stokkið til og þetta fyrirtæki sett
á fót, og reksturinn er búinn að
ganga þar síðan í janúar á þessu ári.
Frá og með næstu viku verða þar
níu starfsmenn. Við vorum að bæta
við enda gengur framleiðslan og sal-
an mjög vel.“
Fyrirtækið hefur framleitt vindur
fyrir skip víða um heim en hefur
undanfarin ár horft til Bandaríkj-
anna annars vegar og Rússlands
hins vegar, eins og áður sagði. „Við
erum aðallega í útrás og erum komin
með mjög stóra markaðshlutdeild í
Bandaríkjunum. Þá höfum við í
nokkuð mörg ár verið að setja nýjan
stjórnbúnað frá okkur í gömul skip í
Rússlandi, þannig að við vorum
þekkt nafn þar í landi áður en endur-
nýjun flotans fór á flug.“
Framleiða vindur fyrir sex nýja togara
Íslenska sjávarútvegs-
tæknifyrirtækið Naust
Marine hefur gengið frá
samningi um fram-
leiðslu vindubúnaðar
fyrir sex nýja rússneska
togara. Um er að ræða
langstærsta verkefni
fyrirtækisins til þessa,
en samningurinn hljóðar
upp á um tvo milljarða
króna.
Helsta vara Naust Marine, ATW-
kerfið (e. Automatic Trawl
Winch), hefur verið í stöðugri þró-
un allt frá árinu 1979. ATW stýrir
togvindunum og heldur netinu
opnu svo að það fangi sem mest
af fiski.
Ef skipið beygir er búnaðurinn
hannaður til að grípa sjálfkrafa
inn í og stýra togvindunum til að
aðlaga staðsetningu netanna í
samræmi við stefnu skipsins.
Grípur sjálf-
krafa inn í
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Framkvæmdastjóri „Maður vill vera sterkur á heimamarkaði – það er það allra besta. En samkeppnin er hörð og maður getur ekki alltaf farið með sigur af hólmi.“