Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 16
Trollið Eftir gott hal eru veiðarfærin dregin um borð, sneisafull af verðmætum.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Þ
okkaleg aflabrögð hafa verið
undanfarið hjá skipverjum
á Hrafni Sveinbjarnarsyni
GK 255, en farið er að síga
á seinni hlutann í eins mánaðar
langri veiðiferð. Áformað er að
koma í land 22. desember, þá með
hlaðið skip af frystum afurðum.
Síðustu daga hefur togarinn verið á
Halamiðum út af Vestfjörðum í
sæmilegu veðri, þótt brælur gangi
stundum yfir. Raunar hafa margir
af stóru frystitogurum flotans verið
á þessum miðum síðustu dægur,
enda er þarna á vísan að róa!
Baader er fyrirmynd
Alls 26 menn eru í áhöfn á Hrafni
Sveinbjarnarsyni og sér Valur Pét-
ursson skipstjóri
til þess að valinn
maður sé í
hverju rúmi.
Myndasmiðurinn
í áhöfninni er
Friðrik Gígja
Baader-maður,
en hefð er fyrir
því að nefna starf
og hlutverk
þeirra sem stýra
fiskvinnsluvélunum eftir þessum
víðfrægu tækjum.
„Baader-vélarnar sem eru fram-
leiddar í Þýskalandi hafa reynst vel
og verið allsráðandi. Það fer varla
milli mála hvert framleiðendur ann-
ara sambærilegra tækja hafa sótt
fyrirmyndirnar,“ segir Friðrik
Gígja sem hefur verið til sjós í ára-
raðir. Var til dæmis lengi á Júlíusi
Geirmundssyni ÍS og svo um hríð á
Þerney RE. Eftir að HB Grandi
seldi þann togara úr skipastól sín-
um munstraðist Friðrik Gígja á
Hrafn Sveinbjarnarson og kann því
vel að vera í þeirri áhöfn.
Mórall er góður
„Andinn um borð er frábær, fullt af
skemmtilegum strákum sem geta
sagt sögur og hafa gaman af lífinu.
Það skiptir líka alveg óendanlega
miklu máli að mórallinn sé góður,
því á togara sem er mánuð í senn
úti á sjó er návígið milli manna
mikið og gleðin þarf að vera ráð-
andi. Svo er líka fínt að vera hjá
Þorbirninum; fyrirtækið gerir vel
við sitt fólk og komi upp einhver
vandamál eru þau leyst í einum
grænum,“ segir Friðrik og heldur
áfram:
„Annars hefur margt breyst til
sjós á seinni árum sem hefur gert
allar aðstæður miklu bærilegri en
var. Hvar sem við siglum erum við
í fínu netsambandi og síminn virk-
ar, svo einangrunin og fjarlægðin
við fjölskylduna sem áður var er úr
sögunni. Þetta gerir 26 til 28 daga
úthald miklu auðveldara en áður,
þegar maður leyfði sér að hringja
heim til konu og barna kannski
einu sinni í viku.“
Í áhöfn Hrafns Sveinbjarnar-
sonar GK ganga menn átta tíma
vaktir og þar af eru tíu menn á
hvorri vinnsluvakt, þá ýmis á troll-
dekki eða í vinnslurými.
Hlakka til jólafrísins
„Jú, oft er þetta talsvert púl og
vinnan er stundum erfið. Hins veg-
ar þekkir maður þennan veruleika
og ekkert í starfinu kemur manni í
sjálfu sér á óvart. En nú þegar far-
ið er að síga á seinni hlutann í þess-
um túr fer maður óneitanlega að
hugsa heim. Væntanlega verður
konan mín þá búin að mestu með
jólaundirbúninginn en auðvitað
leggur maður sitt af mörkum í því
sem er óklárt á Þorláksmessu. En
best er þó að eiga góða daga í fríi
með fjölskyldunni sinni og til þeirra
hlakka ég mikið,“ segir Friðrik
Gígja að síðustu.
Togari Hrafn Sveinbjarnarson GK sem áður var Snæfell EA var smíðaður í Noregi árið 1998 og er um 1.500 brúttótonn. Hefur borið mikil verðmæti að landi í tímans rás.
Hásetar Jóhann Fossberg og Arnbjörn Kristjánsson líta á skilaboð í símanum.
Ljósm/Friðrik Gígja
Stýrimenn Brynjar Friðbergsson yfirstýrimaður, fjær, og Brynjólfur Stefánsson.
Meðafli Á djúpslóðinni getur sitthvað slæðst með í trollið, svo sem hákarl.
Hrafninn er á Halanum
Friðrik Gígja
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum