Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
Marás ehf.
Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ
Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230
www.maras.is - postur@maras.is
Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta
Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað
SANDFELL SU 75BJÖRG EA 7 HAFBORG EA 152
KORSØR skiptiskrúfa
VULKAN ástengi
YANMAR aðalvél
MEKANORD niðurfærslugír
NORIS viðvörunarkerfi
SLEIPNER bógskrúfa
SEAMECH vélstýring
STAMFORD ásrafali
BERG skiptiskrúfa
REINTJES niðurfærslugír
YANMAR aðalvél
YANMAR hjálparvél SCANTROL autotroll
NORSAP skipstjórastólar
Allt fyrir nýsmíðina
YANMAR aðalvél
FLOSCAN eyðslumælir
PRESTOLITE alternator
TEIGNBRIDGE skrúfa
LASDROP öxulþétti
POLY FLEX vélapúðar
SEPAR forsíur
EUROPAFILTER smursía
8" hljóðkútur
SIDE-POWER hliðarskrúfur
CENTA ástengi
SIMRAD sjálfstýring
ZF stjórntæki
ZF niðurfærslugír
Mótorpúðar fyrir flestar vélar Alternatorar og DC rafalar
TOIMIL
Löndunarkranar
Sjókopar - sjóinntök - sjósíur - lokar -zink 12V og 24V lensidælur
R
R
Stjórntæki og gírarHliðarskrúfurAðalvélar í skip og báta Rafstöðvar og ljósavélar
Allar gerðir af legum Skrúfur
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
J
ón Einar segir skip og veið-
arfæri hafa stækkað mikið
á síðustu árum og tímabært
sé að bregðast við því með
byggingu þessa verkstæðis.
„Þetta er hreinlega gjörbylting á
starfsemi okkar,“ segir hann í sam-
tali við 200 mílur.
„Það er alveg ljóst að þetta er
mikil framkvæmd og stór fjárfest-
ing,“ bætir hann við en bendir á að
búast megi við að starfsemi Fjarða-
nets eflist mikið í kjölfarið. „Það
gerir okkur kleift að standa undir
þessari fjárfestingu.“
Nýja netaverkstæðið, sem stækk-
ar með hverjum deginum, verður
85 metra langt og grunnflötur þess
mun þekja 2.200 fermetra. Full-
smíðað mun húsið þó telja eina
2.600 fermetra, þar sem hluti þess
verður á tveimur hæðum.
Húsið þrisvar sinnum lengra
Unnið er að byggingu verkstæð-
isins á nýrri landfyllingu austan við
loðnubræðslu Síldarvinnslunnar, en
fyrst þurfti að ráðast í að búa til
landfyllinguna áður en fram-
kvæmdir við verkstæðið gátu hafist.
Framkvæmdirnar sjálfar hófust í
maí fyrr á þessu ári og samkvæmt
áætlun er stefnt að því að verk-
stæðið verði tilbúið til notkunar í
mars á næsta ári. Bygging verk-
stæðisins var boðin út, en verkið
annast byggingaverktakinn Nestak
ehf., í Neskaupstað.
„Húsið sem við notumst við í dag
er orðið gamalt,“ segir Jón Einar.
„Það var byggt á árunum 1964 til
1966 og var raunar nokkuð stór
bygging á mælikvarða þess tíma.
Nætur og veiðarfæri hafa einfald-
lega stækkað svo mikið á undan-
förnum árum að staðan núna er
orðin sú að húsið er alltof þröngt til
að við getum verið þar til fram-
búðar.“
Jón Einar bendir á að húsið verði
um það bil þrisvar sinnum lengra
en það hús sem hýsir starfsemina í
dag. „Vinnuaðstaða okkar stækkar
því til muna, sem gerir alla vinnu
einfaldari og hagkvæmari, og við-
skiptavinir okkar munu njóta góðs
af,“ segir hann. Einnig verði loft-
hæð miklum mun meiri og allar for-
færingar með næturnar muni því
ganga betur og verða einfaldari.
„Í dag notumst við mikið við
kranabíla til að spóla nótum inn og
út úr húsi og fylgir því mikill kostn-
aður. Það ferli mun einnig breytast
mikið með tilkomu nýja verkstæð-
isins,“ segir Jón Einar.
„Einnig er oft unnið í flottrollum
utan verkstæðins, þar sem flott-
rollin eru dregin út. Þetta mun
einnig breytast og færast inn á
verkstæðið, þar sem lengd vinnu-
svæðis og aðstæður verða allt aðr-
ar.“
Öll starfsemin yfir í nýja húsið
Hann tekur enn fremur fram að í
nýja húsinu felist sú stóra breyting
að þar verður nótageymsla. „Nú
verða allar næturnar geymdar inni,
en þær hafa hingað til verið geymd-
ar úti þar sem við höfum breitt yfir
þær. Þetta verður því gjörbreytt
vinnuaðstaða að öllu leyti og gefur
okkur miklu fleiri tækifæri í því
sem við erum að gera, þeim vörum
sem við getum framleitt og þeirri
þjónustu sem við getum veitt.“
Öll starfsemi Fjarðanets mun
flytjast úr gamla húsinu í það nýja.
Gúmbátaþjónusta fyrirtækisins
mun þar einnig fá að njóta stærri
og rúmbetri vinnuaðstöðu en áður.
Nóg af verkefnum fram undan
Aðspurður segir hann að þörfin fyr-
ir nýtt húsnæði hafi skapast smám
saman síðustu ár. „Eftir því sem
skipin hafa stækkað og næturnar
orðið stærri og sterkari hefur þró-
unin verið smám saman í þessa
átt.“
Fyrir austan er Síldarvinnslan og
tengd fyrirtæki, ásamt Loðnu-
vinnslunni, stærstu viðskiptavinir
Fjarðanets. Auk þess þjónar fyr-
irtækið önnur þau skip sem landa á
Austfjörðum og leitast eftir þjón-
ustu.
Nýtt netaverkstæði rís í Neskaupstað
Framkvæmdir standa
yfir við nýtt netaverk-
stæði Fjarðanets í Nes-
kaupstað. Er áætlað að
það verði tilbúið í mars
á næsta ári. Nýja verk-
stæðið verður mun
stærra en það gamla og
mun tilkoma þess leiða
til algjörrar byltingar í
starfsemi og þjónustu-
möguleikum Fjarðanets
á Austurlandi. Þetta
segir Jón Einar Mar-
teinsson, framkvæmda-
stjóri Fjarðanets.
Framkvæmdastjóri „Vinnuaðstaða okkar stækkar til muna, sem gerir alla vinnu einfaldari og hagkvæmari,“ segir Jón Einar.