Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 21

Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 21
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 21 „Norsk og færeysk skip landa hérna stundum á loðnuvertíðinni, en það er misjafnt eftir því hvern- ig vertíðin þróast hversu oft þau koma,“ segir Jón Einar og bætir við að verkefnastaða fyrirtækisins sé góð og nóg sé af verkefnum fram undan. „Verkefnin munu svo aukast smám saman með nýjum mögu- leikum á nýja verkstæðinu. Við gerum ráð fyrir að starfsfólki muni fjölga samhliða því og getum við á nýja verkstæðinu boðið upp á allt annan vinnustað en áður og enn betri vinnuaaðstöðu.“ Eins og áður sagði er reiknað með að starfsemin flytjist í nýja húsið í mars á næsta ári. „Að okk- ar mati eru spennandi tímar fram undan og ég finn það að allir starfsmenn eru fullir tilhlökkunar að takast á við þau tækifæri og þær áskoranir sem því fylgja.“ Víðtæk og breið þjónusta Fjarðanet sinnir alhliða veiðar- færaþjónustu á þremur stöðum á landinu; Ísafirði, Akureyri og í Neskaupstað. Allt eru þetta mik- ilvægar hafnir þar sem miklum afla er landað á ári hverju. Á tveimur af starfsstöðvum Fjarða- nets, í Neskaupstað og Ísafirði, rekur fyrirtækið einnig skoð- unarstöðvar fyrir gúmmíbjörg- unarbáta og því til viðbótar heldur það úti þvottastöð fyrir fiskeldis- poka á Reyðarfirði. Vel á þriðja tug starfsmanna starfa hjá fyr- irtækinu, en þeir dreifast á þessar þrjár starfsstöðvar. Jón Einar segir styrk fyrirtækisins felast í víðtækri og breiðri þjónustu, bæði á land- fræðilegan máta en einnig hvað varðar fjölbreytileika þjónust- unnar. Fjarðanet sé með starfs- stöðvar í nokkrum af mikilvægustu höfnum landsins og þjónusti þar allar gerðir veiðarfæra. „Fjarðanet er dótturfyrirtæki Hampiðjunnar og saman veita þessi fyrirtæki öfluga veið- arfæraþjónustu í mikilvægum höfnum á Íslandi. Til viðbótar við starfsstöðvar Fjarðanets rekur Hampiðjan svo netaverkstæði í Reykjavík og Vestmannaeyjum.“ Verkefnin á netaverkstæðunum eru misjöfn. Fyrir norðan og vest- an er mest unnið í botntrollum og snurvoðum en fyrir austan er stærri hluti verkefnanna tengdur uppsjávarveiðum, bæði nótum og flottrollum,“ segir hann. „Fjarðanet leggur áherslu á þró- un nýrra og betri veiðarfæra í sam- vinnu við sjómenn og útgerð- armenn og við reynum stöðugt að finna lausnir á þeim vandamálum sem upp koma.“ Reist á gömlum grunni Eflaust er ekki á allra vitorði að Fjarðanet samanstendur af mörg- um litlum netaverkstæðum sem hafa sameinast í þetta öfluga fyr- irtæki. Undir núverandi nafni varð fyrirtækið til í ársbyrjun 2005, með samruna Netagerðar Friðriks Vil- hjálmssonar hf., Netagerðar Vest- fjarða hf., Gúmmíbátaþjónustu Austurlands ehf. og Gúmmíbáta- þjónustunnar ehf. á Ísafirði. Áður höfðu sameinast inn í Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar Neta- og veiðarfæragerðin á Siglufirði, sem einnig var með starfsemi á Seyð- isfirði og Fáskrúðsfirði, Netagerð Dalvíkur og Nótastöðin Oddi á Ak- ureyri. „Fjarðanet var á tímabili með starfsemi á öllum þessum stöðum, en við þurftum að laga okkur að breyttum aðstæðum og fækkun skipa í íslenskum sjávarútvegi. Þá þurftum við að loka starfsstöðvum og færa verkefni milli staða.“ Hvert og eitt þessara fyrirtækja var rótgróið á sínu svæði og átti sér jafnvel áratuga sögu. „Allt er þetta því reist á gömlum og góðum grunni,“ segir Jón Einar og bendir á að Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar, forveri Fjarðanets í Neskaupstað, hafi verið stofnuð árið 1957. „Alls eru þetta ein átta fyrirtæki sem sameinast í Fjarða- neti, sem er þeim mun sterkara.“ Risabygging Nýja verkstæðið rís óðfluga og er búist við að hægt verði að flytja starfsemina í heilu lagi í mars á nýju ári. Gamla verkstæðið „Húsið sem við notumst við í dag er orðið gamalt,“ segir Jón Einar, en það var byggt á 7. áratugnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.