Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 30
Tilbúinn Óhætt er að segja að lengingin fari Hugin vel. Hér siglir skipið glæsilegt og nýmálað til hafnar. Lengingin hafði m.a. þau áhrif að gera skipið hraðskreiðara.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þ
ó að stutt sé í húmorinn
hjá Vestmannaeyingum
þá segir Páll Guðmunds-
son að aðstandendur
Hugins VE 55 hafi alveg
losnað við brandara og stríðni
þegar skipið var sent í lengingu til
Gdansk í Póllandi.
Lengingin var jú gerð til að
bæta rekstur skipsins og skila
betri afurð í
land. „Þegar
Huginn var
smíðaður á sín-
um tíma var
miðað við að fyr-
ir góða sjókæl-
ingu myndi
þurfa um 30% af
sjó á móti 70%
af afla í lestum
skipsins, og því
var hæfilegt að hafa 1.500 rúm-
metra lest og geta þá komið með
um 1.000 tonn af afla að landi hjá
Eskju þar sem vinnslugetan er
einmitt í kringum 1.000 tonn á sól-
arhring,“ útskýrir Páll. „Síðan þá
hafa viðmiðin breyst og núna þyk-
ir betra að hafa 50% af kældum
sjó á móti 50% af fiski. Með því að
lengja skipið um rúmlega sjö
metra eykst plássið í lestinni svo
að við höfum 2.000 rúmmetra til
að sjókæla, þar af 1.000 tonn af
fiski.“
Lenging og lagfæringar
Var Huginn lengdur um nákvæm-
lega 7,2 metra og í leiðinni var
skipið tekið nokkuð rækilega í
gegn. „Það var sandblásið alveg
frá A til Ö og skipt um klæðn-
ingar í lestum skipsins sem voru
farnar að láta á sjá og blóðvatn
farið að seytla í gegnum sprung-
ur,“ segir Páll en skipið er um 17
ára gamalt. „Allt sem tengist
stjórnkerfinu í kringum kælibún-
aðinn var uppfært, og vélin líka,
auk ýmissa annarra kerfa.“
Þó að lengingin og lagfæring-
arnar á skipinu hafi lukkast vel
dvaldi Huginn lengur í Gdansk en
upphaflega stóð til. „Framkvæmd-
ir töfðust og tóku nærri helmingi
lengri tíma en okkur var upphaf-
lega lofað. Kann skýringin að vera
að mjög heitt var í veðri og erfið-
lega gekk að fá fólk í logsuðuverk-
efnin, auk þess sem það hefur
örugglega ekki hjálpað að haldið
var stórmót í knattspyrnu um það
leyti sem vinnan átti að standa
hvað hæst.“
Páll segir að blessunarlega hafi
töfin ekki valdið miklu tjóni og
fékk áhöfnin að láni skipið Guð-
rúnu Þorkelsdóttur sem bættist í
skipaflota Eskju seint á síðasta
ári. „Við sköffuðum kvótann og
áhöfnina og þurftum því ekki að
sitja með auðar hendur á meðan
beðið var eftir Hugin.“
Botnfarvi sem dugar í aratug
Veiðar á lengdu skipi hafa gengið
vel og segir Páll að lengingin hafi
m.a. haft þau jákvæðu áhrif að
Huginn hefur núna meira særými,
situr ögn ofar í haffletinum og gat
siglt 1,5 mílum hraðar aftur heim
til Íslands. „Við prufuðum líka að
setja nýja gerð af botnfarva á
kjölinn en um er að ræða bylting-
arkennda nýja gerð málningar
sem aftrar því að sjávarlífverur
geti fest sig við botninn á skip-
inu.“
Eins og lesendur 200 mílna
þekkja getur verið verulegur ami
að lífverum sem festa sig við skip
og þarf að bera sérstaka málningu
á þann hluta kjalarins sem er í
stöðugri snertingu við hafið svo að
hrúðurkarlar og ýmis sjávar-
gróður geti ekki tekið sér þar ból-
festu. „Venjulega dugar botnfarvi
í tvö til þrjú ár hið mesta áður en
skip þurfa að fara aftur í slipp til
að vera máluð á ný, en þessi nýja
sílíkonmálning á að duga í a.m.k.
10 ár,“ útskýrir Páll en framleið-
andinn segir málninguna hafa
þann eiginleika að þegar ákveðn-
um siglingarhraða er náð missi
sjávarlífverurnar takið og losni frá
kilinum.
„Þetta er dýrari farvi en mun
skila okkur sparnaði til lengri
tíma litið enda kostar það marga
tugi milljóna að bara hugsa um að
fara með skip í slipp. Þá inniheld-
ur nýi botnfarvinn engin meng-
andi eða eitrandi efni og er hlut-
laus gagnvart náttúrunni.“
500 rúmmetrum bætt við lestina
Um leið og Huginn VE var lengdur um 7,2 metra
austur í Gdansk var skipið tekið í gegn jafnt að
innan sem utan. Ný tegund sílíkonmálningar var
notuð sem botnfarvi og á að verja kjölinn gegn
sjávarlífverum í a.m.k. áratug.
Klofinn Hér er Huginn í miðri lengingu og búið að hluta hann í sundur.
Viðbót Teikning sem sýnir hvernig skipið var lengt í miðjunni. Lengingin býður upp á betra hlutfall afla og sjós til kælingar.Páll
Guðmundsson
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum