Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 32
Á Húsavík eru þrjú hvalaskoðunarfyrirtæki sem gera út fjölda báta, en í flota þeirra um þessar mundir eru ellefu gamlir eikarbátar sem smíðaðir voru á Íslandi. Þetta eru Norðursigling, sem reið á vaðið 1995 þegar Knörrinn hóf siglingar á Skjálfanda, Gentle Giants, sem hóf starfsemi árið 2001 og Sölkusiglingar, sem byrjuðu siglingar vorið 2013. Bátarnir sem um ræðir voru smíðaðir í Stykkishólmi, Hafnarfirði, Vest- mannaeyjum og Reykjavík, en flestir á Akureyri, þar sem sjö þeirra voru smíðaðir. Á Akureyri voru það fjórar bátasmiðjur sem smíðuðu bátana, Slippstöðin, Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta, Bátasmiðjan Vör og Skipasmíðastöð KEA. Elsti báturinn var smíðaður 1963 og sá yngsti 1977, enda var áttundi ára- tugurinn sannkallað blómaskeið innlendra bátasmíða. Bátarnir frá Akureyri voru allir nema einn upphaflega smíðaðir fyrir útgerðir við Eyjafjörð og á Húsavík, en hafa eins og hinir öðlast nýjan tilgang með sívaxandi vinsældum hvalaskoðunar. Rétt er að geta þess að Hafþór heldur úti vefsíðunni skipa- myndir.com, þar sem skipa- og bátamyndir eru í öndvegi.  34 Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Haukur Smíðaður í Skipasmíðastöð Jóns Jónassonar við Elliðaárvog í Reykjavík árið 1973 og hét upphaflega Sigurður Baldvin KE-22. Sama ár var hann seldur vestur á firði þar sem hann fékk núverandi nafn. Norðursigling keypti hann árið 1996 og sumarið á eftir hóf hann hvalaskoðunarsiglingar frá Húsavík. Árið 2002 var honum breytt í tveggja mastra skonnortu með bugspjóti. Haukur er 19 brúttólestir að stærð. Öðluðust nýjan tilgang með hvalaskoðun Bjössi Sör Smíðaður hjá Skipasmíðastöð KEA á Akureyri árið 1975. Báturinn hét upphaflega Sól- rún EA 151 og var gerður út frá Árskógssandi um árabil. Norðursigling festi kaup á bátnum sumarið 2002 og ári síðar hóf hann siglingar á Skjálfanda. Bjössi Sör er 28 brúttólestir að stærð. Faldur Hét upphaflega Votaberg ÞH-153 og var smíðaður hjá Skipaviðgerðum hf. í Vestmannaeyjum fyrir útgerðarmann á Þórshöfn árið 1973. Í lok sama árs var hann seldur innanbæjar á Þórshöfn og fékk nafnið Faldur ÞH-153. Sumarið 2001 var hann keyptur til Húsavíkur og veturinn þar á eftir var notaður til að breyta honum í hvalaskoðunarbát. Faldur hóf hvalaskoð- unarsiglingar á vegum Gentle Giants sumarið 2002 og er enn að. Faldur er 18 brúttólestir að stærð. Knörrinn Smíðaður í Slippstöðinni á Ak- ureyri árið 1963 og hét upphaflega Auðunn EA-157 með heimahöfn í Hrísey. Eftir að hafa verið gerður út til fiskveiða í rúm þrjá- tíu ár eignaðist Norðursigling ehf. á Húsavík bátinn og breytti honum í hva skoðunarbát. Knörrinn hóf siglingar vorið 1995 og siglir enn. Báturinn er 19 brúttólestir að stærð. 32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.