Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 Andvari Smíðaður á Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri 1975 og hét upphaflega Vinur SH-140. Norðursigling eignaðist bátinn árið 2012 en hann hafði sokkið eftir að siglt var á hann við bryggju í Sandgerði haustið 2011. Bátnum var náð á flot og upp í slipp þar sem allt var rifið af honum ofan þilfars og ekkert beið hans nema förgun. Vorið 2012 dró Knörrinn Sölku norður til Húsavíkur og rúmum fjórum árum síðar hóf hann siglingar á Skjálfanda eftir að hafa verið endurbyggður sem rafknúinn hvalaskoðunarbátur. Andvari er 30 brúttólestir að stærð. Fanney Smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri árið 1976 fyrir Húsvíkinga en þaðan var báturinn gerður út til ársins 1997. Sölku- siglingar ehf. keyptu bátinn aftur til Húsavíkur síðla árs 2012 en þá hafði honum verið breytt til farþegaflutninga. Hann fékk aftur sitt gamla nafn, Fanney, og hóf siglingar með ferðamenn á Skjálfanda vorið 2013. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Náttfari Smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1965 og hét upphaflega Þróttur SH-4. Þrótt- ur, sem var fyrsti báturinn sem Skipavík smíðaði, hét ýmsum nöfnum í gegnum tíðina en Norðursigling keypti bátinn árið 1998. Þá hafði hann legið um árabil í reiðu- leysi austur á fjörð- um. Náttfari hóf síðan hvalaskoð- unarsiglingar sumarið 1999. Náttfari er 60 brúttólestir að stærð. Salka Smíðuð í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið 1976 og hét upp- haflega Hafsúlan SH-7. Sölkusiglingar ehf. á Húsavík eignuðust bátinn haustið 2016 og var hann gerður upp í Skipavík í Stykkishólmi um veturinn. Salka hóf hvalaskoðunarsiglingar frá Húsavík í sumarbyrjun á síðasta ári. Sylvía Smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1976 fyrir Grenvíkinga og hét upphaflega Sigrún ÞH-169. Í sumarbyrjun 2007 keypti hvalaskoðunarfyrirtækið Gentle Giants á Húsavík bátinn frá Þingeyri og eftir breytingar í Slippstöðinni á Akureyri hóf hann hvalaskoðunarsiglingar um sumarið á Skjálfanda og gerir það enn. Sylvía er 29 brúttólestir að stærð. Hildur Byggð á Akureyri árið 1974 á Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta. Hét upphaflega Múli ÓF-5. Norðursigling keypti bátinn síðla sumars 2009 og um haustið var henni siglt til Engernsund í Danmörku. Þar var henni breytt í tveggja mastra skonnortu með bugspjóti. Hildur kom aftur til Húsavíkur um mitt sumar 2010 og hóf siglingar. Hún hefur síðan siglt með farþega við Íslands-, Grænlands- og Noregsstrendur. Hildur er 36 brúttólestir að stærð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.