Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
S
tefnt er að því að starfsemi
í nýrri fiskvinnslu G.RUN
í Grundarfirði hefjist strax
í byrjun janúar. Fram-
kvæmdir við nýja húsið
þykja hafa gengið einstaklega vel og
á hér um bil einu ári hefur tekist að
reisa rúmlega 2.700 fermetra við-
byggingu við
gamla vinnslu-
húsnæðið sem er
um 1.400 fer-
metrar á stærð.
„Það hefur geng-
ið ótrúlega vel
miðað við hvað
veðurfarið hefur
verið slæmt, og
að baki einhver
versti vetur í
manna minnum,“
segir Guðmundur Smári Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins. Hann bætir við að núna sé allt
á útopnu við lokafráganginn: „Mark-
miðið er að byrja að vinna fisk hinn
9. janúar, þó að það geti vel verið að
9. janúar verði eitthvað seinna í
mánuðinum en venjulega.“
Skoðuðu í sýndarveruleika
Nýja fiskvinnslan er merkileg fyrir
margra hluta sakir og er hún t.d. sú
fyrsta, svo vitað sé, sem hönnuð var
í þrívídd. Var notast við svokallað
BIM-líkan við hönnunina en með því
má bæði betur koma auga á ýmis
vandamál og árekstra – t.d. ef vatns-
lögn hefur verið teiknuð þannig að
hún fer í gegnum burðarbita – og
einnig leyfa stjórnendum og starfs-
fólki að skoða fiskvinnsluna í sýnd-
arveruleika. „Löngu áður en fyrsta
skóflustungan var tekin vorum við
búin að ganga fram og til baka um
fiskvinnsluna,“ segir Smári en með-
al þess sem lögð var sérstök áhersla
á við hönnunina var að létta þrif eins
og frekast væri unnt:
„Það kostar tugi milljóna á ári að
halda svona verksmiðju hreinni og
til að einfalda þrifin fórum við þá
leið að hafa allar lagnir uppi í lofti
frekar en í veggjum, og koma lagn-
irnar aðeins niður úr loftinu einmitt
þar sem þær þurfa að tengjast vél-
unum.“
Þá eru tvær vinnslulínur í nýja
húsinu, og báðar með vatnsskurð-
arvél frá Marel en með þessu móti
getur fiskvinnslan unnið ólíkar fisk-
tegundir á sama tíma. Segir Smári
að megi t.d. vinna þorsk, ýsu og ufsa
á sömu línunni enda skyldar teg-
undir en karfi sé svo ólíkur öðrum
fiski að hann kalli á sína eigin
vinnslulínu.
Hvolft, skolað og staflað
„Gangi allt eftir ættum við að geta
unnið meira en 50 tonn af afla á dag
með sama fjölda starfsmanna,“ segir
smári og bendir t.d. á hvernig einn
starfsmaður getur séð um að mata
báðar vinnslulínurnar. „Gaman er að
sjá þær framfarir sem tæknin hefur
haft í för með sér, en hér í gamla
daga, fyrir tíma lyftaratækninnar,
hefði væntanlega þurft 8-12 fíleflda
karla til að færa fiskinn að vélunum.
En í dag sér einn starfsmaður um að
keyra fiskinn í kerjum í n.k. magasín
sem matar fiski í flökunarvélarnar
með sjálfvirkum hætti. Karahvolf-
arinn skammtar fiskinn og sendir
kerið áfram í þvottavél. Staflast ker-
in upp í lok þessa ferlis, tandurhrein
og tilbúin til notkunar.“
Smári segir ástæðuna fyrir því að
ráðist var í þessa miklu framkvæmd
að laga þurfti starfsemi G.RUN að
breyttum aðstæðum á mörkuðum.
„Þökk sé æ betri tengingum við um-
heiminn, bæði með flugi og á sjó,
hafa skapast ný tækifæri fyrir sölu á
ferskum fiski og þurftum við að efla
starfsemina með hliðsjón af því. Þá
var gamla fiskvinnslan okkar orðin
úrelt og of smá til að við gætum unn-
ið þar allan þann kvóta sem við höf-
um yfir að ráða,“ segir hann en með
aukinni vinnslugetu sér G.RUN
fram á að þurfa að kaupa viðbót-
arhráefni á markaði svo að hægt
verði að vinna á fullum afköstum.
„Það mun ráðast af hráefn-
isframboðinu en við vonumst til að í
framtíðinni getum við verið með
starfsemi á tveimur vöktum til að
nýta fjárfestinguna enn betur, með
tilheyrandi fjölgun starfa.“
Nýja fiskvinnsla G.RUN í Grundarfirði er nærri því fullkláruð aðeins ári eftir að framkvæmdir hófust.
Við hönnunina var m.a. reynt að einfalda þrifin til muna og draga þar með úr rekstrarkostnaði.
Ljósmynd/Tómas Freyr Kristjánsson
Sókn Prýði er af nýju viðbyggingunni en hún er töluvert stærri en gamla vinnsluhúsið og verða afköstin eftir því. Reikna má með að hlutfall ferskra sjávarafurða muni fara vaxandi hjá G.RUN á komandi misserum.
Lokametrarnir Eins og sést á þessum myndum sem teknar voru fyrr í vikunni
vantar bara herslumuninn til að starfsemi geti hafist í nýja húsinu.
Munu auka afköstin með
sama fjölda starfsmanna
Guðmundur Smári
Guðmundsson