Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 41
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 41 www.valka.is VIÐ ÓSKUM VIÐSKIPTAVINUM & LANDSMÖNNUMÖLLUM OG FARSÆLDAR Á KOMANDI ÁRI MEÐ ÞÖKKUM FYRIR ÁRIÐ SEM ER AÐ LÍÐA GLEÐILEGRA JÓLA meiri leki er í afturlestinni, sem er full af fiski. Líklegt er þó að aflinn tefji eitthvað fyrir því að sjórinn fossi þar inn. Þegar Auðunn kemur aftur upp í brú sér hann að stjórnborðs- lunningin er komin á kaf. Skip hans er greinilega að sökkva. Ekki bætir úr skák að það er haugasjór og afar erfitt að athafna sig með björg- unarbáta. Ragnar Zophoníasson hitti stýri- manninn sem hafði verið úti á þilfari þegar sprengingin varð: „Ég sá Valdimar annan stýrimann uppi á keisnum þegar ég kom þangað. Hann hafði raknað úr rotinu en stóð uppi við skorsteininn, greinilega vankaður og nánast blár í framan, að reyna að jafna sig eftir höfuðhöggið. Við Frið- þjófur fórum aftur á bátadekk. Þá var verið að koma björgunarflek- anum út. Menn röðuðu sér á hann og ýttu honum út fyrir með bakinu.“ Áhöfninni tekst með naumindum að sjósetja stjórnborðsbjörgunar- bátinn. Einn af hásetunum stekkur út í bátinn og fleiri stökkva á eftir honum. Talsverður sjór er kominn í bátinn og illa gengur að finna negl- una (botntappann) til að stöðva inn- streymi í hann. Eitthvað hefur brostið svo að Fylkir sekkur nú hraðar en áður. Það er því lítill tími til stefnu. Auðunn skipstjóri gefur nú þau fyrirmæli að allir skuli yfirgefa skipið og skipar loftskeytamanninum að koma sér strax frá borði. Á leiðinni úr brúnni aftur á bátaþilfar kemur Auðunn að Gunnari Eiríkssyni, sem er miður sín og illa haldinn eftir að hafa lent undir netinu og í sjónum. Auðunn tekur hann með sér og þeim tekst að komast í björgunarbátinn, sem er orðinn þéttsetinn. Mönnum hefur með harðfylgi tek- ist að tosa björgunarflekann undan bakborðsbátnum og sjósetja hann. Hásetarnir Kristmundur A. Þor- steinsson og Ragnar Zophoníasson eru komnir á flekann og halda hon- um við skipið. Fylkir er nú nánast kominn á hlið- ina. Jörundur loftskeytamaður fikr- ar sig niður skipssíðuna eftir kaðli og kemst á flekann. En nú sjá menn að flekinn hefur laskast og að hann flýtur illa. Allt hefur gerst mjög snögglega og í látunum hafa vatns- þétt hólf skemmst svo að flekinn er lekur og flýtur með naumindum, rétt marar í hálfu kafi. Ragnar hugsar um það eitt að komast frá skipinu: „Við vorum sex á flekanum, höfðum verið með þeim síðustu til að yfirgefa skipið og kom- umst ekki í björgunarbátinn. Við gengum því niður með hallandi síð- unni og komumst þannig á flekann, sem var bundinn við síðuna. Með mér voru Jörundur loftskeytamað- ur, hásetarnir Indriði Indriðason, Kristmundur A. Þorsteinsson, Frið- þjófur Strandberg og einn annar. Flekinn var lekur, maður rak fæt- urna niður í gegnum botninn. Hann flaut varla.“ er að sökkva!“ Ljósmynd/Jón Aðalbjörn Bjarnason Ljósmynd/Jón Aðalbjörn Bjarnason 1955 Hluti áhafnar af Agli rauða. Bókin fjallar um þrjá hildarleiki á árunum 1955, 1956 og 1957, sem allir tengjast.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.