Morgunblaðið - 14.12.2018, Síða 42

Morgunblaðið - 14.12.2018, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 R étt fyrir miðnætti sunnu- daginn 28. desember 2014 lentum við 12 áhafn- armeðlimir á varðskipinu Tý á flugvellinum í Va- lettu á Möltu í Miðjarðarhafi. Týr var í höfn þar og voru áhafn- arskipti fyrirhuguð eða að skipta út 12 af 18 manna áhöfn varðskipsins. Landhelgisgæslan hafði sinnt landamæravörslu fyrir landamæra- stofnun Evrópu eða Frontex frá árinu 2010 bæði með flugvél Gæsl- unnar og varðskipunum Týr og Ægi, mislengi eftir atvikum fyrst undan ströndum Senegal í Afríku og síðan á Miðjarðarhafi. Þegar þarna var komið sögu var Týr úti við eftirlitsstörf en flugvélin og Ægir heima á Íslandi. Týsmenn voru búnir að standa í stórræðum undanfarnar vikur og höfðu komið að björgun um 2.000 flóttamanna en skipið hafði farið út í lok nóvember. Á þessum tíma virtist það fara vaxandi að skipulögð glæpasamtök tækju stór skip, fylltu þau af flótta- fólki sem borgaði aleiguna fyrir, eða allt að sex til átta þúsund dollara, og síðan voru skipin send af stað án áhafnar. Flutningaskip hafði strand- að við Ítalíustrendur skömmu áður, það var fullt af flóttafólki og talið hafa komið frá Tyrklandi. Fyrirhugað var að sigla úr höfn á Möltu þriðjudaginn 30. desember og átti því að vera nægur tími fyrir nýja áhafnarmeðlimi að kynnast að- stæðum um borð fyrir brottför. Flestir voru reyndar búnir að vera á skipinu áður, en einhverjir voru að koma þarna í fyrsta skipti eins og einn háseti og brytinn. Ég var búinn að segja Kristófer, brytanum okkar, að nægur tími gæfist fyrir hann til að komast inn í málin, ganga frá kostinum o.fl. en það átti eftir að breytast. Mánudagsmorgunninn 29. des. hófst með því að tekinn var kostur og skipið undirbúið fyrir brottför sem fyrirhuguð var daginn eftir. Það var ekki langt liðið á morguninn þegar okkur bárust fréttir af því frá fulltrúa Landhelgisgæslunnar, Níelsi Finsen í björgunarmiðstöð- inni í Róm, að fréttir hefðu borist um að grunsamlegt skip væri á vest- urleið djúpt austur af Möltu, fullt af flóttamönnum og allar líkur á því að flýta yrði brottför Týs. Skipið var talið koma alla leið frá Tyrklandi eða jafnvel Kýpur. Nokkru síðar kom fyrirspurn um það hvort skipið gæti lagt úr höfn sem fyrst og var ákveðið að verða við því og hafðar hraðar hendur við að ganga frá öll- um birgðum og gera skipið sjóklárt. Haldið út til eftirlits Haldið var úr höfn upp úr hádegi sama dag og haldið með aukinni ferð austur á bóginn eða á svæðið austur af Sikiley á Ítalíu. Miðvikudaginn 31. desember var varðskipið komið á svæðið djúpt austur af Sikiley. Um kl.16.00 að staðartíma hafði fulltrúi LHG í Róm samband við okkur og vildi að varðskipið kannaði svæðið sem það var komið á og sagði að grunur væri um að flutn- ingaskipið EZADEEN væri þar með fjölda flóttamanna um borð. Einnig var upplýst að skipið væri að öllum líkindum með AIS opið, eða svokallað auðkenningarkerfi skipa, en þá sjást nöfn skipa ásamt stað- setningum. Seinnipart dags var varðskipið við eftirlit á svæðinu um 130 sjómílur austur af Sikiley og var stefnan sett til norðaustur og síðar í norður. Veður var afleitt eða norðaustan bræla um 15-20 metrar á sek, tals- verður sjór og ausandi rigning. Haldið var áfram leit að skipinu á umræddu svæði og um kvöldið versnaði veðrið enn og bætti í vind sem fór upp í 25 m/sek með hauga- sjó, áfram var úrhellisrigning og himinninn leiftraði af eldingum og miklar þrumur heyrðust. Kristófer bryti gerði sitt besta í að hafa hátíðarkvöldverð en boðið var upp á kalkún á þessu gamlárs- kvöldi. Skiljanlega gekk það illa, það sjá allir að erfitt var að matast við slíkar aðstæður, skipið lét illa í þess- um sjógangi sem þarna var. Ég sagði við brytann eitthvað á þá leið að við bara frestuðum áramót- unum til næsta kvölds. Þá yrði von- andi komið betra veður til almenni- legs borðhalds. Engar flugeldasýningar voru þetta kvöld, enda bannað á sjó en þó fengum við að sjá himininn með leiftrandi eldingum. Þetta var stór- kostlegt sjónarspil og eftirminnilegt gamlárskvöld. Flestir sem ekki voru á vakt fóru í káetur sínar og hugsuðu eflaust heim á kvöldi sem þessu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Varðskipið Týr Á siglingu í Eyjafirði. Björguðu hundruðum flótta- manna af stjórnlausu skipi Neyðarástand Um borð í Ezadeen var fjöldi flóttamanna. Engin var áhöfnin og skipið sigldi stjórnlaust um Miðjarðarhafið. Halldór B. Nellett, skip- herra Landhelgisgæsl- unnar, greinir hér frá merkilegum dögum á Miðjarðarhafi, þegar áhöfn Týs bjargaði fjölda flóttamanna sem um borð voru í stjórn- lausu skipi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.