Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 43
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 43
Hafnarbraut 25 | 200 Kópavogi | Sími 554 0000 | www.klaki.is
HVOLFARARKARA
Handhægir ryðfríir karahvolfarar
í ýmsum gerðum.
Tjakkur vökvadrifinn með
lyftigetu frá 900 kg.
Halli að 110 gráðum.
Vinsælt verkfæri í matvælavinnslum
fiski – kjöti – grænmeti
Seint um kvöldið fengum við upp-
lýsingar um hið grunsamlega skip,
að AIS-sendingar með staðsetn-
ingum hefðu hætt að berast frá skip-
inu þegar það fjarlægðist strendur
Grikklands.
Fimmtudaginn 1. janúar 2015 var
áfram lónað á svæðinu og svipast
um eftir umræddu skipi.Veðrið hafði
heldur gengið niður en enn var
hvasst af norðaustri, eða eins og
dæmigert íslenskt vetrarveður.
Fengum áfram upplýsingar frá
Níelsi í Róm um að allar líkur væru
á að skipið hefði haldið áfram vest-
lægri stefnu og til stæði að ítalska
strandgæslan sendi flugvél til leitar
að skipinu upp úr hádegi.
Seinnipartinn sama dag bárust
skilaboð frá Níelsi um að skipið væri
á vestlægri stefnu og átta sjómílna
hraða, engin staðsetning barst.
Flutningaskipið finnst
Rétt fyrir kl. 17.00 heyrðist að ítölsk
flugvél frá strandgæslunni væri í
samskiptum við nauðstatt skip á ör-
bylgjustöðinni rás 16 og skömmu
síðar náðist samband við eftirlits-
flugvélina sem sagði okkur að skipið
væri um 20 sjómílur suður af okkar
stað, skipverjar hefðu lýst yfir neyð
og um það bil 400 manns væru um
borð, að talið væri.
Nafn skipsins var EZADEEN,
um 50 ára gamalt gripaflutn-
ingaskip frá Síerra Leóne og var
óskað eftir því að varðskipið héldi
þegar á staðinn á fullri ferð. Einnig
var upplýst að engin áhöfn væri á
skipinu, einungis flóttamenn.
Á þessum tíma vorum við staddir
tæpar 30 sjómílur suður af „hæln-
um“ á Ítalíuskaganum og var haldið
á staðinn á fullri ferð.
Allur mannskapur var umsvifa-
laust ræstur út og skipið gert klárt
með tilliti til fyrirhugaðs verkefnis
eins og verklagsreglur sögðu til um
og margbúið var að æfa.
Þarna var nokkuð ljóst að aftur
urðum við að fresta áramótunum,
brytinn var tilbúinn með dýrindis
veislu þarna á þessu nýárskvöldi,
nautasteikin beið í ofninum og ilm-
urinn var farinn að berast um allt
skip en enginn tími gafst til að
snæða hana í rólegheitum og í raun
enginn matartími, menn gleyptu
bara í sig á hlaupum.
Meðan varðskipið öslaði öldur
Miðjarðarhafsins á fullri ferð í átt að
EZADEEN skipaði Björgunar-
stjórnstöðin í Róm varðskipið sem
vettvangsstjóra í fyrirhuguðum
björgunaraðgerðum. Uppfærðar
upplýsingar frá Róm sögðu að um
borð væru um 400-450 manns, þar af
60 börn og þrjár ófrískar konur.
Þyrftu þau nauðsynlega að fá mat
og vatn sem fyrst.
Svartamyrkur var skollið á og um
kl. 19.15 komum við að EZADEEN
á stað: 39°04,4́N –
018°35,5́A. eða um 43 sjómílur
suður af „hælnum“ á Ítalíuskaga.
EZADEEN var þarna á NV-lægri
stefnu eða með stefnu beint á Ítalíu
og átta hnúta ferð.
Þegar við nálguðumst skipið var
það lýst upp með ljóskösturum Týs
og sást þá mikill fjöldi flóttafólks úti
á þilförum skipsins. Strax var reynt
að ná sambandi við skipið á neyð-
arrásinni 16 og beðið um að slegið
yrði af ferð skipsins svo við gætum
sent mannskap um borð.
Kona varð fyrir svörum og sagði
okkur að ekki væri hægt að minnka
hraða skipsins þar sem búið væri að
vinna skemmdir á stjórntækjum
fyrir aðalvélina í brúnni.
Engin áhöfn væri á skipinu - ein-
ungis flóttamenn.
Konan sagði aðspurð að þau gætu
hugsanlega drepið á vélinni en var
hún beðin um að láta það ógert.
Að fengnum þessum upplýsingum
var Róm upplýst um stöðu mála og
tjáð að útilokað væri að fara um
borð vegna sjógangs meðan skipið
væri á þessum hraða, það væri of
mikil áhætta við þær veðuraðstæður
sem þarna væru.
Ljósmynd/Hilmar Snorrason
Í brúnni Halldór B. Nellett skipherra í brú Týs. „Keðjan er aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn,“ segir hann um áhöfnina.