Fréttablaðið - 09.04.2019, Side 2

Fréttablaðið - 09.04.2019, Side 2
Hátíð fram undan RÚSSLAND Guðni Th. Jóhannes son, for seti Ís lands, mun hitta Vla d ímír Pútín, for seta Rúss lands, er hann sækir norður slóða ráð stefnu, Inter­ national Arctic Forum, í Péturs borg í Rúss landi dagana 9. og 10. apríl. Á ráð stefnunni munu þeir meðal annars taka þátt í pall borðs um­ ræðum en þar verða einnig Sauli Niini stö, for set i Finn lands, Erna Sol berg, for sætis ráð herra Noregs, og Stefan Löfven, for sætis ráð herra Sví þjóðar. Mál stof an fer fram á þriðjudag og ber yf ir skrift ina Norður slóðir – haf sjór tæki færa. Þá munu Guðni og Pútín eiga fund á mið viku dag. Fundinn situr einnig Kristján Þór Júlíus son, sjávar útvegs­ og land búnaðar ráð­ herra. Auk þess mun Guðni heim­ sækja Ríkis háskólann í Péturs borg í ferð sinni og hitta for ystu fólk á sviði við skipta milli Ís lands og Rúss­ lands. – dfb Hitta Pútín í Pétursborg Veður A-átt 3-8 m/s, en 10-15 syðst á landinu. Víða þurrt og bjart, en skýjað og stöku skúrir eða él SA. Hiti 3 til 8, frost 0 til 6 stig. SJÁ SÍÐU 16 SKEMMTANIR Hálfu ári eftir að árs­ hátíð Stjórnarráðsins var frestað að undirlagi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Lilju Alfreðs­ dóttur, mennta­ og menningarmála­ ráðherra, gerði starfsfólk ráðuneyt­ anna sér loks glaðan dag um helgina. Leikarar stýrðu veislunni og vinsælir tónlistarmenn komu fram. Árshátíð starfsfólks ráðuneytanna fór fram á veitinga­ og veisluhúsinu Gullhömrum í Grafarholti og var samkvæmt heimildum mikið fjör. Fréttablaðið greindi frá því í sept­ ember síðastliðnum að ákveðið hefði verið að blása hátíðina af vegna þess að tímasetning hennar þótti með eindæmum óheppileg. Til stóð að halda árshátíðina þann 6. október, á tíu ára afmæli íslenska efnahagshrunsins og frægrar Guð blessi Ísland­ ræðu Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráð­ herra. Ráðuneytin, auk skrifstofu forseta Íslands, skiptast á um að skipuleggja árshátíð Stjórnarráðsins og að þessu sinni var það mennta­ og menningar­ málaráðuneytið og starfsmannafélag þess sem sá um hana. Líkt og Frétta­ blaðið fjallaði um síðasta haust þá lýsti Lilja Alfreðsdóttir áhyggjum af dagsetningu veislunnar við Katrínu Jakobsdóttur sem tók undir þær og úr varð að hátíðarhöldin voru blásin af. Hermdu heimildir að nokkurrar óánægju hefði gætt meðal starfs­ manna vegna þessarar afskipta­ semi. Aðrir tóku undir þær áhyggjur að partístand æðstu ráðamanna þjóðarinnar á þessum tímamótadegi myndi lýsa ákveðnu skeytingarleysi. Nú, rúmlega hálfu ári eftir að árs­ hátíðin var blásin af, gat hún farið fram á þægilega hlut­ lausum degi sem engan stuðar, laugardeginum 6. apríl. Samkvæmt upplýsingum frá mennta­ og menningarmálaráðu­ neytinu sóttu 550 gestir árshátíðina. Leikararnir Jóhanna Vigdís Arnar­ dóttir og Valur Freyr Einarsson sáu um veislustjórn en meðal skemmti­ atriða voru söngkonan Emilíana Torrini og rapparinn Emmsjé Gauti. Dj Margeir sá síðan um að þeyta skífum og skemmta fólki fram eftir. Áætlaður kostnaður starfs­ mannafélags ráðuneytisins vegna skipulagningarinnar er 1,6 milljónir króna. Heildarkostnaður vegna árs­ hátíðarinnar, sem skiptast mun milli ráðuneytanna tíu, liggur ekki fyrir samkvæmt svari ráðuneytisins. mikael@frettabladid.is Ráðuneytin fengu loks sitt árshátíðardjamm  Árshátíð Stjórnarráðsins fór fram á laugardagskvöldið, hálfu ári á eftir áætlun. Ráðherrar blésu hátíðina af í haust þar sem ekki þótti viðeigandi að hún færi fram á tíu ára afmæli íslenska efnahagshrunsins. Stjörnum prýdd skemmtiatriði. Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is Lyklalaust aðgengi á hurðir. Bluetooth tenging við snjallsíma, kort og lyklabólu. Hægt að hafa marga notendur. Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is Lyklalaust aðgengi á hurðir. Bluetooth tenging við snjallsíma, kort og lyklabólu. Hægt að hafa marga notendur. Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is Lyklalaust aðgengi á hurðir. Bluetooth tenging við snjallsíma, kort og lyklabólu. Hægt að hafa marga notendur. Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is Lyklalaust aðgengi á hurðir. Bluetooth tenging við snjallsíma, kort og lyklabólu. Hægt að hafa marga notendur. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er í Rússlandi.FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Arkadí Dvorkovítsj, forseti FIDE, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra léku fyrstu leikina í viðureign Ludwigs Deglmann frá Þýskalandi og Gawains C.B. Jones frá Englandi á Reykjavíkurskákmótinu 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Fleiri myndir frá skákmótinu er að finna á +Plús- síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta- blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS LÍBÝA Það er óásættanlegt að heil­ brigðisstarfsmenn séu skotmörk í átökunum sem nú eru í Trípólí, höfuðborg Líbýu. Þetta sagði Ahmed al­Mandhari, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, í gær. Stofnunin fordæmir morð á tveimur læknum. Svokallaður þjóðarher, upp­ reisnarher hershöfðingjans Khalifa Haftar, reynir nú að taka borgina af stjórnarliðum. Að sögn Sameinuðu þjóðanna (SÞ) þurftu 2.800 almenn­ ir borgarar að flýja heimili sín. Ákalli SÞ um vopnahlé var enn ósvarað er þessi frétt var skrifuð. Þá hafði árás sömuleiðis verið gerð á eina nothæfa flugvöll borgarinnar. Leiða má líkur að því að það hindri hjálparstarf. – þea Læknar drepnir í Trípólíorustu 9 . A P R Í L 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :4 2 F B 0 3 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C 5 -1 A 2 C 2 2 C 5 -1 8 F 0 2 2 C 5 -1 7 B 4 2 2 C 5 -1 6 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 3 2 s _ 8 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.