Fréttablaðið - 09.04.2019, Page 8

Fréttablaðið - 09.04.2019, Page 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@frettabladid.is Fimm hundruð ár eru liðin frá dauða Leonardos da Vinci. Einangrunar- sinnarnir sjá hér tækifæri til að stuðla að útgöngu Íslands úr EES, jafnvel EFTA. Stóri draumurinn er að skapa sérstakt ís-exit. Einokunarsinnar allra flokka hafa nú sam-einast og berjast gegn innleiðingu 3. orku-pakkans. Í fararbroddi eru gömlu valda- karlarnir sem færðu okkur einokunarkerfin í landbúnaði og sjávarútvegi og stóriðjustefnuna þar sem alþjóðlegir auðhringir fá orkuna úr fallvötnum okkar á gjafverði. Þetta eru ráða- mennirnir sem tala um samfélagið okkar sem „ógeðslegt þjóðfélag“ þar sem allt snúist um völd og ekki séu til neinar hugsjónir. Þeim finnst það jafngilda fullveldisafsali þegar þeir ráða ekki öllu sjálfir. Þeir kalla það landráð að hugsanleg ágreiningsmál í hugsanlegum viðskiptum milli landa séu útkljáð af alþjóðlegum stofnunum á borð við Mannréttindadómstólinn og EFTA- dómstólinn sem dæmdi Íslendingum í hag í Icesave-málinu. Álitamálin kringum 3. orkupakkann eru bundin því að einn góðan veðurdag komi til þess að íslensk orka verði hugsanlega einhvern tímann seld til útlanda gegnum hugsanlegan sæstreng – sem er með öllu óvíst. Og þyrfti sérstakt samþykki Alþingis til. Erfitt er hins vegar að átta sig á því hvers vegna viðskipti með orku eru svo miklu skelfilegri en til dæmis sala á lambakjöti: enginn talar um að við missum yfirráðin yfir íslenska lambakjötinu þegar við seljum það. Við verðum bara dauðfegin. Öllu skiptir að íslenska þjóðin eigi sjálf auð- lindir sínar og orkuveitur á borð við Lands- virkjun. Sé þetta tryggt í lögum – eins og nýja stjórnarskráin gerir: af hverju má þá ekki selja hæstbjóðanda (að uppfylltum grænum skil- yrðum) þær afurðir sem þessar auðlindir veita? Hér býr fleira undir en fölskvalaus ættjarðar- ást. Einangrunarsinnarnir sjá hér tækifæri til að stuðla að útgöngu Íslands úr EES, jafnvel EFTA. Stóri draumurinn er að skapa sérstakt ís-exit. Í samskiptum okkar við umheiminn eigum við að minnsta kosti aldrei að hafa að leiðarljósi tröllasögur og heimóttarskap. ÍSEXIT? 匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㄀㈀ ∠ ㄀㄀  刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㄀㔀㄀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀 Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Sam­ fylkingarinnar Fimm hundruð ár eru liðin frá dauða Leonardos da Vinci. Hann lést í Amboise í Mið-Frakklandi þann 2. maí árið 1519, þá 67 ára gamall. Dauða þessa mikla meistara endurreisnarinnar er eðlilega minnst víða um heim um þessar mundir, enda er arfleifð hans einstök og sannarlega án for- dæma í gjörvallri mannkynssögunni. Ógerningur er að tíunda afrek Leonardos, svo sómi sé að að minnsta kosti, í stuttum texta sem þessum og að líkindum er það óþarfi, enda þekkjum við flest helstu verk hans og afrek; ótrúlega tækni- lega getu hans og óþreytandi sköpunargleði. En ef það er eitthvað eitt sem ber að undirstrika um ævi Leonardos þá er það einstök, og jafnframt nokkuð framandi, sýn hans á lífið. Öfugt við það sem þekkjum í dag, á tímum sérhæfni og aðgreining- ar, þá virðist Leonardo hafa leitað að samræmi, eða samheldni, þeirra þátta sem við fyrstu sýn virðast óskyldir. Þannig kaus Leonardo að einblína á það hvernig vísindi og list bæta hvort annað og mynda þannig eina heild innan hinnar mannlegu reynslu. Þetta merkilega lífsviðhorf er að finna víða í verkum hans og á hinum ýmsu sviðum sem hann lagði fyrir sig, eins og fósturfræði, arkitektúr, verkfræði, læknis- fræði og auðvitað í fögrum listum endurreisnar- tímabilsins. Frægasta dæmið um þessa nálgun er vafalaust vitr úvíski maðurinn þar sem Leonardo freistaði þess að sýna hlutföll mannslíkans í samhengi við grunnform byggingarlistarinnar. „Vitrúvíski maður Leonardos er holdgervingur þess augnabliks þegar list og vísindi sameinast og veita með því manneskjunni tækifæri til að leita svara við tímalausum spurningum um það hver við erum og hvert hlutskipti okkar er í stórbrotinni skipan alheimsins,“ ritaði Walter Isaacson í ævisögu Leonardos. Nú sem aldrei fyrr, á tímum stafrænnar byltingar og sameiningar ólíkra fræðasviða, er þörf fyrir þá sem horfa á lífið með augum Leonardos. Fyrir þá sem kjósa að horfa á tækifæri sem leynast handan tilbúinna veggja fræðasviða og kenningakerfa. Þar með er ekki sagt að hver og einn þurfi að gerast fjölfræðingur, eða vera haldinn nær sjúklegri forvitni eins og Leonardo blessaður var. Í raun var hann sjálfur mikill talsmaður letingja og trassara. Stóra áskorunin í visku Leonardos er að sjá heiminn ekki sem summu ólíkra og aðskilinna þátta, heldur sem eina heild. Svo gripið sé aftur niður í orð Walters Isaacson um vitrúvíska manninn: „Myndin táknar þá hugsjón mannhyggjunnar sem hampar reisn, gildi og rök- legri getu mannskepnunnar sem einstaklings. Inni í ferningnum og hringnum sjáum við innsta kjarna Leonardos, og okkar, þar sem hann stendur nakinn á krossgötum hins jarðneska og hins kosmíska.“ Leonardo Frjáls og óháð Þann 23. júní, fyrir tæpum þremur árum síðan, gengu Bret- ar að kjörborðinu. Kosningar þann dag sneru um veru Breta í ESB. Meirihluti þeirra kaus gegn áframhaldandi aðild að ESB. Í aðdraganda kosninganna í Bretlandi heyrðist hátt í mis- vitrum „fræðingum“ um hvað Bretar myndu hafa það mun betra utan Evrópusambands- ins, frjálsir og óháðir. Síðan þá hefur mikið vatn til sjávar runnið og almennt viðurkennt nú að upplognar „staðreyndir“ og gífuryrði pólitíkusa um vonda Evrópu, lýðræðishalla ESB og fullveldisframsal hafi verið tóm tjara. UKIP er víða Hvert einasta þjóðþing virðist þurfa að eiga sinn Farage og á hinu háa Alþingi virðist ekki þverfótað fyrir þeim þessi dægrin. Nú er enn og aftur trommað upp með mál sem enginn skilur og það smættað niður í vonda Evrópu, fullveld- isframsal og að orkan okkar verði tekin yfir af ósýnilegum óvini. Íslendingum er skipað á tvo garða, annars vegar lið- leskjur vilhallar erlendum yfir- ráðum eða sanna þjóðarvini sem vilja berjast fyrir fullveld- ið. Rétt eins og í Bretlandi fyrir um þremur árum er hins vegar engin innistæða fyrir slíkum sleggjum fullveldispopúlista. sveinn@frettabladid.is 9 . A P R Í L 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 9 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :4 2 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C 5 -1 5 3 C 2 2 C 5 -1 4 0 0 2 2 C 5 -1 2 C 4 2 2 C 5 -1 1 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 8 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.