Fréttablaðið - 09.04.2019, Side 9

Fréttablaðið - 09.04.2019, Side 9
Opið bréf til forsætisráðherra Katrín, ég vil byrja á því að óska þér til hamingju með þann frið á vinnumarkaði sem hefur brostið á meðal annars fyrir tilstilli ríkisstjórnarinnar. Hver veit nema ég fylgi fordæmi þínu og drullist til þess að gúgla hamingjuna í þeirri von að þá fari hlutir að ganga vel hjá mér líka. En það er annað mál. Ég varð fyrir því að hlusta á fréttir í útvarpi fyrir skömmu og heyrði þá heilbrigðisráðherrann þinn hana Svandísi lýsa því hvernig hún ætlaði að sjá til þess að innan árs væri komið á kerfi sem gerði það að verkum að fangar í íslenskum fangelsum ættu greiðan aðgang að geðlæknishjálp ef þeir þyrftu á henni að halda. Þetta yljaði mér um hjartarætur vegna þess það er svo margt sem gerir það að verkum að fangar eiga geðheilsu sína undir högg að sækja. Svandís á lof skilið fyrir þetta framtak. Það er hins vegar athyglisvert að ef Svandísi tekst að koma þessu kerfi á þá væru fangar að öðru óbreyttu eini samfélags- hópurinn á Íslandi sem ætti greiðan aðgang að geðlæknisþjónustu. Það tekur um það bil hálft ár að komast að hjá geðlækni á stofu og ég veit um sjúklinga sem hafa lent í geðrofi og verið lagðir inn á geðdeild Land- spítalans sem hafa verið útskrifaðir eftir nokkra daga með loforð um að komast að á göngudeild eftir margar vikur. Þetta er ekki bara vanræksla og vond læknisfræði heldur glæfra- leg hegðun sem setur sjúklinginn í töluverða hættu, jafnvel lífshættu. Sá möguleiki er því fyrir hendi að það væri skynsamlegt af þeim sem þurfa virkilega á geðlæknishjálp að halda að játa á sig vondan glæp þannig að þeim yrði stungið strax inn í gæslu- varðhald. Nokkru eftir að ég hlustaði á Svandísi í útvarpi horfði ég á sjón- varpsþátt á RUV sem fjallaði um það hvernig geðdeild Landspítalans hafi fallið á átta af þeim tólf öryggis- prófum sem voru lögð fyrir hana. Öryggis sjúklinga á geðdeild Land- spítalans þótti alls ekki gætt sem skyldi. Það má því leiða að því rök að fangelsisvist myndi ekki bara tryggja þeim sem á geðlæknisþjón- ustu þyrftu að halda góðan aðgang að henni og miklu betri en löghlýðn- um borgurum heldur meira öryggi meðan þeir nytu hennar. Og nú víkur sögunni að einum f lokki geðsjúkdóma, fíknisjúk- dómum: Undanfarna áratugi hefur bráða- meðferð fíknisjúkdóma á Íslandi að langmestu leyti verið á vegum sjúkrahússins Vogs sem er rekið af SÁÁ. Landspítalinn hefur hætt henni utan að sinna þeim sem eru tvígreindir, með annan geðsjúkdóm í viðbót við fíknina. Það hefur hins vegar myndast gott samstarf milli Vogs og Landspítalans og stórum hundraðshluta innlagna á Vog er vísað þangað af Landspítalanum. Læknar Landspítalans hafa því í verki treyst Vogi fyrir vandanum. SÁÁ eru áhugamannasamtök og hafa beislað bæði hugsjónir og fagmennsku til þess að sinna þeim sem eiga undir högg að sækja vegna fíknisjúkdóma. Það er ekki til betri sósíalismi en þegar fólkið í landinu rís upp og sinnir þörfum annarra til þess eins að sinna þörfum annarra. Okkur ber að sýna SÁÁ þakklæti og virðingu fyrir fórnfýsi og gott starf og væri vel við hæfi að því fylgdi líka nokkur væntumþykja. Þau sáu um fíklana okkar þegar enginn annar sinnti þeim Það vill svo til að Svandís er um margt mjög góður heilbrigðismála- ráðherra. Hún hefur til dæmis tekið af skarið og byrjað að setja saman heildarstefnu í heilbrigðismálum sem hefur sárlega vantað í nokkra áratugi. Hún hefur hins vegar skrítna afstöðu til SÁÁ sem getur á engan máta talist falleg eða skynsamleg út frá hagsmunum íslensks samfélags. Sem dæmi um það má nefna að þegar vinkona hennar Kristín Páls- dóttir réðst að SÁÁ með heimsku- legum og ruddalegum aðdróttunum á fésbók tók Svandís undir þær (læk- aði). Það er með öllu fordæmalaus vitleysa að heilbrigðismálaráðherra skuli veitast opinberlega að áhuga- mannasamtökum sem hafa þjónað samfélagi sínu á þann máta sem SÁÁ hefur gert. Það fór heldur ekki fram- hjá neinum að þegar haldnir voru tónleikar í Háskólabíói á síðasta hausti til styrktar SÁÁ mættu fjár- málaráðherra og félagsmálaráðherra og fluttu ávarp en heilbrigðismála- ráðherra sá sér það ekki fært. SÁÁ sendi frá sér tilkynningu í apríl í fyrra um að þau yrðu að hætta að sinna bráðameðferð ungra fíkla á Vogi vegna þess að það væri ekki aðstaða til þess að skilja á milli þeirra og fullorðinna fíkla. Svandís brást við með því að taka þá ákvörð- un að flytja meðferðina upp á Land- spítala. Hún gerði það án þess að ráð- færa sig við SÁÁ um umfang málsins eða Landspítalann um getu hans til þess að höndla það. Hún gerði það án þess að kanna kostnað við húsnæði og annað sem fulltrúar Landspítal- ans segja mér að væri miklu meiri uppi á Landspítala en á Vogi. Hún gerði það án þess að kanna hvort hægt væri að ná í fagfólk til þess að sinna verkefninu á Landspítalanum með reynslu og getu sem jafnast á við það sem er til staðar á Vogi. Hún tók sem sagt þessa ákvörðun ein og út af fyrir sig og að öllum líkindum með eitthvað allt annað í huga en hags- muni unglinga með fíknivanda og samfélagsins almennt. Þegar Svandís sagði frá þeirri ákvörðun sinni að flytja bráðameð- ferð ungra fíkla upp á Landspítala fagnaði áðurnefnd vinkona hennar Kristín Pálsdóttir á fésbók og sagði að það væri gott að vita til þess að nú yrði tekið á vandanum af þeim sem væru meira fagfólk en það sem finnst á Vogi. Það er mín kenning að Svandís deili þeirri skoðun. Það er alveg ljóst af úttektinni sem var sagt frá í sjónvarpsþættinum sem ég minntist á hér að ofan og sögum sem hafa birst í fjölmiðlum upp á síðkastið að geðdeild Landspítal- ans á við ýmsan vanda að stríða sem bendir til þess að það sé erfitt að halda því fram að hún sé til fyrir- myndar og á nokkurn máta fremri Vogi í fagmennsku. Það er líka vert að geta þess að núna þegar búið er að fela Landspítalanum að taka við verkefninu eru starfsmenn hans að leita ráða hjá starfsmönnum Vogs um það hvernig væri best að standa að því. Það er líka dapurlegt að frétta af því að það sem er verið að útbúa uppi á Landspítala sé einungis afeitrunar- rými sem bendir til þess að metnað- urinn þeirra sem að flutningnum upp á Landspítala standa sé einungis að taka verkefnið af Vogi. Bráðameð- ferð fíknisjúklinga samanstendur af öðru en afeitrun og er mikilvægt að byrja að hlúa að einstaklingnum á ýmsan máta meðan hann er að afeitrast og strax að afeitrun lokinni í stað þess að senda hann fljótlega heim til sín eða inn á stofnun þar sem eru sjúklingar lengra komnir í sínum bata. Katrín, það er fráleitt að nýta sér ekki þá þekkingu, reynslu og aðstöðu sem er til staðar í SÁÁ til þess að hlúa að ungum fíklum. Það eina sem vantaði á var fé til þess að breyta húsnæði á Vogi lítillega sem er miklu ódýrara en að útbúa afeitr- unarrýmið uppi á Landspítala. Það er ekkert leyndarmál að það mætti ýmislegt betur fara á Vogi, til dæmis væri að því mikil bót ef það væri skilið milli kvenna og karla í meðferðinni. Það er hins vegar líka vandamál á geðdeild Landspítalans. Þetta og ýmislegt annað mætti auð- veldlega bæta. Staðreyndin er sú að Vogur er mjög góð stofnun og í henni beislast brennandi áhugi góðs fólks sem við viljum ekki hrekja frá verk- efninu. Það sem meira er, fíklarnir ungu sem þjást af þeim sjúkdómi sem deyðir f leiri á þeirra aldri en nokkuð annað eiga það skilið að fá að njóta þeirrar reynslu og þekk- ingar sem hefur byggst upp á Vogi. Afstaða Svandísar til SÁÁ er fráleit og hættuleg því unga fólki sem við viljum hjálpa í glímunni við óvægna djöfla. Hún virðist sækja þar leið- sögn til fólks sem hefur ekki aðra reynslu af málaflokknum en þá að hafa sjálft farið í meðferð á Vogi og líkað það illa. Það er engin launung að það reynist mörgum manninum erfitt fara í gegnum meðferð og leiðin um hana er gjarnan vörðuð sársaukafullri lífsreynslu. Ég lít svo á að afstaðan til SÁÁ sé villa í annars góðum texta hjá heilbrigðismálaráð- herranum þínum. Þér ber skylda til þess að draga upp rauða pennann og leiðrétta. Ef Svandísi tekst að koma þessu kerfi á þá væru fangar að öðru óbreyttu eini sam- félagshópurinn á Íslandi sem ætti greiðan aðgang að geðlæknisþjónustu Rauður penni Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfða- greiningar Ford Kuga Vignale er sérstök útfærsla af Ford Kuga. Ford Kuga Vignale er sérlega vel búinn bíll með fjórhjóladrifi, 180 hestafla dísilvél, 2.100 kg dráttargetu og rafdrifnum afturhlera með skynjara. Í Kuga Vignale er sérvalið leðuráklæði á sætum og mælaborði, rafdrifið ökumannssæti með minni, veglínuskynjari, árekstrarvörn, ökumannsvaki, bakkmyndavél og bíla- stæðaaðstoð. Í Ford Kuga Vignale eru 9 Sony hátalarar, Apple CarPlay og Android Auto ásamt leiðsögukerfi með Íslandskorti. Útlit Ford Kuga Vignale er rennilegt með Bi-Xenon aðalljósunum, krómlistum á hliðum og hann kemur á glæsilegum 18” Vignale álfelgum. Aukabúnaður í tilboðsbílum umfram ríkulegan staðalbúnað: Málmlitur og varadekk á stálfelgu. Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 Sími 515 7000 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 FORD KUGA VIGNALE AWD LÚXUSÚTGÁFA Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford EcoSport ford.is 6.190.000KR. FORD KUGA VIGNALE AWD 2,0 DÍSEL, 180 HESTÖFL, 5 DYRA OG SJÁLFSKIPTUR TILBOÐ:VERÐ MEÐ AUKABÚNAÐI: 6.710.000 KR. AFSLÁTTUR -520.000 KR. Ford_Kuga Vignale_5x15_20190404_END.indd 1 08/04/2019 10:26 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9Þ R I Ð J U D A G U R 9 . A P R Í L 2 0 1 9 0 9 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :4 2 F B 0 3 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C 5 -1 F 1 C 2 2 C 5 -1 D E 0 2 2 C 5 -1 C A 4 2 2 C 5 -1 B 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 3 2 s _ 8 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.