Fréttablaðið - 09.04.2019, Síða 9
Opið bréf til forsætisráðherra
Katrín, ég vil byrja á því að óska þér til hamingju með þann frið á vinnumarkaði
sem hefur brostið á meðal annars
fyrir tilstilli ríkisstjórnarinnar. Hver
veit nema ég fylgi fordæmi þínu og
drullist til þess að gúgla hamingjuna
í þeirri von að þá fari hlutir að ganga
vel hjá mér líka. En það er annað
mál. Ég varð fyrir því að hlusta á
fréttir í útvarpi fyrir skömmu og
heyrði þá heilbrigðisráðherrann
þinn hana Svandísi lýsa því hvernig
hún ætlaði að sjá til þess að innan
árs væri komið á kerfi sem gerði það
að verkum að fangar í íslenskum
fangelsum ættu greiðan aðgang
að geðlæknishjálp ef þeir þyrftu
á henni að halda. Þetta yljaði mér
um hjartarætur vegna þess það er
svo margt sem gerir það að verkum
að fangar eiga geðheilsu sína undir
högg að sækja. Svandís á lof skilið
fyrir þetta framtak. Það er hins vegar
athyglisvert að ef Svandísi tekst að
koma þessu kerfi á þá væru fangar
að öðru óbreyttu eini samfélags-
hópurinn á Íslandi sem ætti greiðan
aðgang að geðlæknisþjónustu. Það
tekur um það bil hálft ár að komast
að hjá geðlækni á stofu og ég veit um
sjúklinga sem hafa lent í geðrofi og
verið lagðir inn á geðdeild Land-
spítalans sem hafa verið útskrifaðir
eftir nokkra daga með loforð um að
komast að á göngudeild eftir margar
vikur. Þetta er ekki bara vanræksla
og vond læknisfræði heldur glæfra-
leg hegðun sem setur sjúklinginn í
töluverða hættu, jafnvel lífshættu. Sá
möguleiki er því fyrir hendi að það
væri skynsamlegt af þeim sem þurfa
virkilega á geðlæknishjálp að halda
að játa á sig vondan glæp þannig að
þeim yrði stungið strax inn í gæslu-
varðhald.
Nokkru eftir að ég hlustaði á
Svandísi í útvarpi horfði ég á sjón-
varpsþátt á RUV sem fjallaði um
það hvernig geðdeild Landspítalans
hafi fallið á átta af þeim tólf öryggis-
prófum sem voru lögð fyrir hana.
Öryggis sjúklinga á geðdeild Land-
spítalans þótti alls ekki gætt sem
skyldi. Það má því leiða að því rök
að fangelsisvist myndi ekki bara
tryggja þeim sem á geðlæknisþjón-
ustu þyrftu að halda góðan aðgang
að henni og miklu betri en löghlýðn-
um borgurum heldur meira öryggi
meðan þeir nytu hennar.
Og nú víkur sögunni að einum
f lokki geðsjúkdóma, fíknisjúk-
dómum:
Undanfarna áratugi hefur bráða-
meðferð fíknisjúkdóma á Íslandi
að langmestu leyti verið á vegum
sjúkrahússins Vogs sem er rekið
af SÁÁ. Landspítalinn hefur hætt
henni utan að sinna þeim sem eru
tvígreindir, með annan geðsjúkdóm
í viðbót við fíknina. Það hefur hins
vegar myndast gott samstarf milli
Vogs og Landspítalans og stórum
hundraðshluta innlagna á Vog er
vísað þangað af Landspítalanum.
Læknar Landspítalans hafa því í
verki treyst Vogi fyrir vandanum.
SÁÁ eru áhugamannasamtök
og hafa beislað bæði hugsjónir og
fagmennsku til þess að sinna þeim
sem eiga undir högg að sækja vegna
fíknisjúkdóma. Það er ekki til betri
sósíalismi en þegar fólkið í landinu
rís upp og sinnir þörfum annarra til
þess eins að sinna þörfum annarra.
Okkur ber að sýna SÁÁ þakklæti og
virðingu fyrir fórnfýsi og gott starf
og væri vel við hæfi að því fylgdi líka
nokkur væntumþykja. Þau sáu um
fíklana okkar þegar enginn annar
sinnti þeim
Það vill svo til að Svandís er um
margt mjög góður heilbrigðismála-
ráðherra. Hún hefur til dæmis tekið
af skarið og byrjað að setja saman
heildarstefnu í heilbrigðismálum
sem hefur sárlega vantað í nokkra
áratugi. Hún hefur hins vegar skrítna
afstöðu til SÁÁ sem getur á engan
máta talist falleg eða skynsamleg út
frá hagsmunum íslensks samfélags.
Sem dæmi um það má nefna að
þegar vinkona hennar Kristín Páls-
dóttir réðst að SÁÁ með heimsku-
legum og ruddalegum aðdróttunum
á fésbók tók Svandís undir þær (læk-
aði). Það er með öllu fordæmalaus
vitleysa að heilbrigðismálaráðherra
skuli veitast opinberlega að áhuga-
mannasamtökum sem hafa þjónað
samfélagi sínu á þann máta sem SÁÁ
hefur gert. Það fór heldur ekki fram-
hjá neinum að þegar haldnir voru
tónleikar í Háskólabíói á síðasta
hausti til styrktar SÁÁ mættu fjár-
málaráðherra og félagsmálaráðherra
og fluttu ávarp en heilbrigðismála-
ráðherra sá sér það ekki fært.
SÁÁ sendi frá sér tilkynningu
í apríl í fyrra um að þau yrðu að
hætta að sinna bráðameðferð ungra
fíkla á Vogi vegna þess að það væri
ekki aðstaða til þess að skilja á milli
þeirra og fullorðinna fíkla. Svandís
brást við með því að taka þá ákvörð-
un að flytja meðferðina upp á Land-
spítala. Hún gerði það án þess að ráð-
færa sig við SÁÁ um umfang málsins
eða Landspítalann um getu hans til
þess að höndla það. Hún gerði það án
þess að kanna kostnað við húsnæði
og annað sem fulltrúar Landspítal-
ans segja mér að væri miklu meiri
uppi á Landspítala en á Vogi. Hún
gerði það án þess að kanna hvort
hægt væri að ná í fagfólk til þess að
sinna verkefninu á Landspítalanum
með reynslu og getu sem jafnast á við
það sem er til staðar á Vogi. Hún tók
sem sagt þessa ákvörðun ein og út af
fyrir sig og að öllum líkindum með
eitthvað allt annað í huga en hags-
muni unglinga með fíknivanda og
samfélagsins almennt.
Þegar Svandís sagði frá þeirri
ákvörðun sinni að flytja bráðameð-
ferð ungra fíkla upp á Landspítala
fagnaði áðurnefnd vinkona hennar
Kristín Pálsdóttir á fésbók og sagði
að það væri gott að vita til þess að
nú yrði tekið á vandanum af þeim
sem væru meira fagfólk en það sem
finnst á Vogi. Það er mín kenning
að Svandís deili þeirri skoðun. Það
er alveg ljóst af úttektinni sem var
sagt frá í sjónvarpsþættinum sem
ég minntist á hér að ofan og sögum
sem hafa birst í fjölmiðlum upp á
síðkastið að geðdeild Landspítal-
ans á við ýmsan vanda að stríða
sem bendir til þess að það sé erfitt
að halda því fram að hún sé til fyrir-
myndar og á nokkurn máta fremri
Vogi í fagmennsku. Það er líka vert
að geta þess að núna þegar búið er
að fela Landspítalanum að taka við
verkefninu eru starfsmenn hans að
leita ráða hjá starfsmönnum Vogs
um það hvernig væri best að standa
að því.
Það er líka dapurlegt að frétta af
því að það sem er verið að útbúa uppi
á Landspítala sé einungis afeitrunar-
rými sem bendir til þess að metnað-
urinn þeirra sem að flutningnum
upp á Landspítala standa sé einungis
að taka verkefnið af Vogi. Bráðameð-
ferð fíknisjúklinga samanstendur af
öðru en afeitrun og er mikilvægt að
byrja að hlúa að einstaklingnum
á ýmsan máta meðan hann er að
afeitrast og strax að afeitrun lokinni
í stað þess að senda hann fljótlega
heim til sín eða inn á stofnun þar
sem eru sjúklingar lengra komnir í
sínum bata.
Katrín, það er fráleitt að nýta
sér ekki þá þekkingu, reynslu og
aðstöðu sem er til staðar í SÁÁ til
þess að hlúa að ungum fíklum. Það
eina sem vantaði á var fé til þess að
breyta húsnæði á Vogi lítillega sem
er miklu ódýrara en að útbúa afeitr-
unarrýmið uppi á Landspítala.
Það er ekkert leyndarmál að það
mætti ýmislegt betur fara á Vogi, til
dæmis væri að því mikil bót ef það
væri skilið milli kvenna og karla í
meðferðinni. Það er hins vegar líka
vandamál á geðdeild Landspítalans.
Þetta og ýmislegt annað mætti auð-
veldlega bæta. Staðreyndin er sú að
Vogur er mjög góð stofnun og í henni
beislast brennandi áhugi góðs fólks
sem við viljum ekki hrekja frá verk-
efninu. Það sem meira er, fíklarnir
ungu sem þjást af þeim sjúkdómi
sem deyðir f leiri á þeirra aldri en
nokkuð annað eiga það skilið að fá
að njóta þeirrar reynslu og þekk-
ingar sem hefur byggst upp á Vogi.
Afstaða Svandísar til SÁÁ er fráleit
og hættuleg því unga fólki sem við
viljum hjálpa í glímunni við óvægna
djöfla. Hún virðist sækja þar leið-
sögn til fólks sem hefur ekki aðra
reynslu af málaflokknum en þá að
hafa sjálft farið í meðferð á Vogi og
líkað það illa. Það er engin launung
að það reynist mörgum manninum
erfitt fara í gegnum meðferð og
leiðin um hana er gjarnan vörðuð
sársaukafullri lífsreynslu. Ég lít svo
á að afstaðan til SÁÁ sé villa í annars
góðum texta hjá heilbrigðismálaráð-
herranum þínum. Þér ber skylda til
þess að draga upp rauða pennann og
leiðrétta.
Ef Svandísi tekst að koma
þessu kerfi á þá væru fangar
að öðru óbreyttu eini sam-
félagshópurinn á Íslandi
sem ætti greiðan aðgang að
geðlæknisþjónustu
Rauður penni
Kári
Stefánsson
forstjóri
Íslenskrar erfða-
greiningar
Ford Kuga Vignale er sérstök útfærsla af Ford Kuga.
Ford Kuga Vignale er sérlega vel búinn bíll með fjórhjóladrifi,
180 hestafla dísilvél, 2.100 kg dráttargetu og rafdrifnum
afturhlera með skynjara.
Í Kuga Vignale er sérvalið leðuráklæði á sætum og mælaborði,
rafdrifið ökumannssæti með minni, veglínuskynjari,
árekstrarvörn, ökumannsvaki, bakkmyndavél og bíla-
stæðaaðstoð. Í Ford Kuga Vignale eru 9 Sony hátalarar,
Apple CarPlay og Android Auto ásamt leiðsögukerfi með
Íslandskorti. Útlit Ford Kuga Vignale er rennilegt með
Bi-Xenon aðalljósunum, krómlistum á hliðum og hann
kemur á glæsilegum 18” Vignale álfelgum.
Aukabúnaður í tilboðsbílum umfram ríkulegan staðalbúnað:
Málmlitur og varadekk á stálfelgu.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
FORD KUGA VIGNALE AWD
LÚXUSÚTGÁFA
Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford EcoSport
ford.is
6.190.000KR.
FORD KUGA VIGNALE AWD
2,0 DÍSEL, 180 HESTÖFL, 5 DYRA OG SJÁLFSKIPTUR
TILBOÐ:VERÐ MEÐ AUKABÚNAÐI: 6.710.000 KR.
AFSLÁTTUR
-520.000 KR.
Ford_Kuga Vignale_5x15_20190404_END.indd 1 08/04/2019 10:26
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9Þ R I Ð J U D A G U R 9 . A P R Í L 2 0 1 9
0
9
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:4
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
5
-1
F
1
C
2
2
C
5
-1
D
E
0
2
2
C
5
-1
C
A
4
2
2
C
5
-1
B
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
3
2
s
_
8
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K