Fréttablaðið - 09.04.2019, Síða 28

Fréttablaðið - 09.04.2019, Síða 28
Drög að tillögu að matsáætlun allt að 9,9 MW virkjunar í Geitdalsá á Fljótsdalshéraði Hafið er mat á umhverfisáhrifum allt að 9,9 MW virkjunar í Geitdalsá á Fljótsdalshéraði. Geitdalsárvirkjun ehf. er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum er unnið af Mannviti hf. Á vefsíðu Mannvits (www.mannvit.is) eru nú til kynningar drög að tillögu að matsáætlun framkvæmdarinnar. Óskað er eftir athugasemdum og ábendingum almennings og er frestur til 1. maí 2019. Athugasemdir og ábendingar skulu sendar á netfangið haukur@mannvit.is Hin norska girl in red nýtur gríðarlegra vinsælda í nettónlistarheiminum og er greini- lega rétt að byrja. Hún verður meðal erlendra gesta á Iceland Airwaves í nóvember. Seabear snýr aftur á Airwaves. Úkraínski rapparinn og leikskólakennarinn Alyona Alyona rappar á móðurmáli sínu en þykir þó sérlega aðgengileg og mikill happafengur. Iceland Airwaves-hátíðin verður haldin í 21. skipti í nóvember og listinn yfir þær hljómsveitir og tónlistarfólk sem munu þá láta til sín taka er að verða býsna langur og áhugaverður. Will Larnach-Jones, rekstrar- stjóri hátíðarinnar, segir að nú verði farið enn nær rótum og hjarta hátíðarinnar en á liðnum árum með blöndu þess sem er mest spennandi á íslensku tónlistarsenunni og rís- andi stjarna í útlöndum. Ein þeirra er hin norska Marie Ulven sem hefur heldur betur slegið í gegn sem girl in red. „Við erum mjög spennt fyrir því að hún sé að koma,“ segir Jones við Fréttablaðið og bætir við að það sé magnað að sjá hversu vel lögum hennar hefur verið tekið út um allan heim. Sú rauða tryllir lýðinn Þótt hún eigi aðeins tíu lög á Spotify enn sem komið er hlusta yfir milljón manns á þau mánaðarlega. „Hún er rétt að byrja feril sinn en það er uppselt á alla tón- leika hennar og ásamt frá- bæru heimafólki á borð við GDRN, Hildi og JFDR komum við sterk inn með ferskum, hæfileikaríkum, ungum konum úr öllum áttum,“ segir Jones. Við erum alltaf spennt fyrir því að kynna ykkur fyrir tilvonandi uppáhalds hljómsveitunum ykkar í bland við nöfnin sem þið þekkið og elskið að sjá á Airwaves,“ segir Jones og bætir við að hátíðinni hafi í gegnum tíðina gengið ákaflega vel að kynna nýjar stjörnur til leiks. Og lengi er von á einum þar sem „við eigum eftir að tilkynna fleiri mjög spennandi nöfn til leiks, bæði stór og smá, á næstu mánuðum“. Vaknað af dvala Hljómsveitin Seabear hefur legið í dvala í tæpan áratug en mun koma saman aftur á þessu ári og spila á Iceland Airwaves á sínum fyrstu tónleikum eftir þetta langa hlé. Hljómsveitin náði talsverðum vin- sældum í kring um 2007 og margir hafa saknað hennar síðan þá. Ólöf Arnalds hefur heldur ekki látið mikið fyrir sér fara síðan hún gaf út plötu 2013 en snýr nú aftur á Airwaves. Sama má segja um það sem Jones kallar „óskabörn Air- waves“, Mammút, en þau vinna nú að sinni fimmtu plötu og munu spila á hátíðinni. toti@frettabladid.is Spútnikstjarnan girl in red er í hópi þeirra sem bætast við á Airwaves Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves kynnir í dag til leiks fjölda íslenskra og erlendra tónlistarmanna sem munu troða upp á hátíðinni í nóvember. Meðal annars þykir mikill fengur að hinni rísandi stjörnu girl in red sem fer nú með himinskautum og endurkoma Seabear eftir tæplega tíu ára dvala telst til talsverðra tíðinda. Íslenskir flytjendur: Aron Can, Auðn, Auður, Bernd­ sen, Between Mountains, Ceasetone, Elín Sif, Gabriel Ólafs , GDRN, Grísalappalísa, Hatari, Hildur, Hrím , Hugar, JFDR, IamHelgi, Kælan Mikla , Mammút, Matthildur, Moses Hightower, Ólöf Arnalds, Seabear , Svavar Knútur , Une Misère, Vök, Warmland. Erlendir flytjendur: Alexandra Stréliski, Alyona Alyona, Amanda Tenfjord, Anna of the North, Bessie Turner, Blanco White, Boy Azooga, Free Love, The Garrys, Georgia, girl in red, Glass Museum, The Howl & The Hum, Mac DeMarco, Murk­ age Dave, Niklas Passchburg, Pavvla, Penelope Isles, Pip Blom, Pottery, Shame, Siv Jak- obssen, Sons, Warmduscher, Whitney. *Nýjustu viðbæturnar eru feit­ letraðar. Penelope Isles eru frá Brighton, þeirri annáluðu ensku gleðiborg. 9 . A P R Í L 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 0 9 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :4 2 F B 0 3 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C 5 -2 D E C 2 2 C 5 -2 C B 0 2 2 C 5 -2 B 7 4 2 2 C 5 -2 A 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 3 2 s _ 8 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.