Fréttablaðið - 14.05.2019, Qupperneq 2
Klemens var allan
daginn í gær uppi í
höll og verður líka í dag.
þannig að við hittumst nú
lítið þó að ég sé komin á
staðinn.
Ronja Mogensen
Veður
Suðaustan 8-15 og rigning, einkum
S- og V-lands. Hægari sunnanátt
og dregur úr úrkomu seinnipartinn
og styttir víða upp í kvöld og
nótt. Suðaustan strekkingur við
SV-ströndina, en annars hægari.
Skýjað en úrkomulítið og víða bjart
veður fyrir norðan. SJÁ SÍÐU 20
Mikið undir í Ísrael
Hljómsveitin Hatari hélt af stað í gærmorgun til að taka sína síðustu æfingu og dómararennslið svokallaða sem vegur þungt í möguleikum Íslands
á að komast áfram í Eurovision. Það var létt yfir hópnum þótt einn hafi vantað. Hatara-hópurinn negldi rennslið. Sjá síðu 28 FRÉTTABLAÐIÐ/INGÓLFUR
Erum með mikið úrval af allskonar
bílaverkfærum á frábæru verði!
ViAir 12V loftdælur
í miklu úvali.
Hleðslutæki
12V 6A
6T Búkkar
605mm Par
Jeppatjakkur
2.25t 52cm.
Omega
Viðgerðarkollur
4.995
9.999
17.995
7.495
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæralagerinn
Ronja Mogensen, kærasta Klemens
Hannigan, er komin út til Tel Avív
til að styðja sinn mann og atriðið.
Ronja er kasólétt, komin nánast á
steypirinn, en þau eiga von á öðru
barni sínu eftir rúman mánuð.
„Hingað til hef ég ekki náð að
vera í miklu sambandi því það er
búið að vera svo brjálað að gera hjá
þeim. Við höfum varla geta spjallað
í gegnum Facetime eða neitt slíkt
því það er svo mikið að fara yfir eftir
hvern dag,“ segir hún.
Ronja bendir á að þrátt fyrir að
vera komin til Tel Avív þá nái hún
ekki mikið að hitta Klemens eða
fólkið á bak við atriðið. „Klemens
var allan daginn í gær uppi í höll
og verður líka í dag. þannig að við
hittumst nú lítið þó að ég sé komin
á staðinn.
En hann fær frí á morgun og þá
fæ ég smá að njóta hans,“ segir hún
og ekki laust við að það færist örlítil
tilhlökkun yfir hana.
Athyglin á Hatara er mikil og
heimspressan fylgist vel með hverju
skref i listamannanna. Í dag er
áætlað að þeir tali við CNN en það
er ekki algengt að sú ágæta stórstöð
fjalli um Eurovision.
Ronja segir að Klemens hafi alltaf
verið mikill páfugl og ráði vel við
þessa athygli sem er á þeim þessa
stundina. „Hann hefur líka verið að
koma fram mjög lengi, alveg síðan
hann var krakki. En auðvitað er
þetta mikið álag og ég hef kannski
meiri áhyggjur þegar við komum
heim í litlu Reykjavík. Þá er þetta
bara búið. Það verður spennandi
að sjá.“
Kasólétt en komin
út til að styðja Hatara
Hatari á rauða dreglinum. Klemens og hans lið fær frí á morgun og þá er
stefnan að verja tímanum með fjölskyldu og vinum. NORDICPHOTOS/GETTY
SKRIFA FRÁ TEL AVIV
Eurovision
Benedikt Bóas
benediktboas@frettabladid.is
Ingólfur Grétarsson
ingolfurg@frettabladid.is
Ronja Mogensen, kær-
asta Klemens Hannigan,
er komin út til Tel Avív
til að sjá undanúrslitin
í dag. Hún á að eiga
annað barn þeirra eftir
rúman mánuð og hlakk-
ar til að eyða frídegi
Klemens með honum.
SAMFÉLAG Þann 1. maí voru tæp-
lega 46 þúsund erlendir ríkisborg-
arar búsettir á Íslandi. Hafði þeim
fjölgað um rúmlega 1.500 frá því 1.
desember í fyrra samkvæmt upp-
lýsingum frá Þjóðskrá.
Flestir koma frá Póllandi, eða um
19.600, og hafði þeim fjölgað um
rúmlega 400 frá 1. desember.
Frá 1. desember 2017 til 1. maí
síðastliðins jókst hlutfall erlendra
borgara af íbúafjölda landsins úr
10,9 prósentum í 12,7 prósent. Á því
tímabili fjölgaði erlendum borgur-
um um 20,9 prósent en Íslendingum
aðeins um 0,9 prósent. – sar
Tæp 46 þúsund
erlendir íbúar
Erlendum ríkisborgurum fjölgar
hlutfallslega meira en íslenskum.
FÉLAGSMÁL Á aðalfundi Blindra-
félagsins sem haldinn var um síðast-
liðna helgi var hugmyndum um að
Hljóðbókasafn Íslands verði lagt
niður og fært undir Landsbókasafn
mótmælt.
„Hljóðbókasafnið gegnir lykil-
hlutverki við að tryggja blindum og
sjónskertum þau sjálfsögðu mann-
réttindi að fá notið bókmennta til
jafns við aðra,“ segir í ályktun fund-
arins. Þar kemur fram að ítrekaðar
kannanir meðal félagsmanna sýni
fram á mikla ánægju með þjónustu
safnsins.
Fer Blindrafélagið þess á leit við
menntamálaráðherra að efnt verði
til viðræðna um að félagið taki að
sér rekstur Hljóðbókasafnsins.
Þá voru samþykktar ályktanir
um að stjórnvöld innleiði tafar-
laust tilskipun ESB um vefaðgengi
og að fjögurra vikna sóttkví fyrir
leiðsöguhunda verði afnumin.
Sóttkvíin sé ónauðsynleg sam-
kvæmt nýju áhættumati og skerði
ferðafrelsi þeirra sem notast við
leiðsöguhunda. – sar
Vilja ræða um
Hljóðbókasafn
ÍRLAND Dómsmálaráðherra Írlands,
Charlie Flanagan, skrifaði í síðustu
viku undir tilskipun sem bannar
komu bandaríska prestsins Stevens
Anderson til landsins.
Anderson, sem rekur sjálfstæða
kirkju skírara í Arizona, er mjög
umdeildur og hefur margoft tjáð
sig opinberlega um hatur sitt á
gyðingum og samkynhneigðum.
Þá hefur hann beðið fyrir dauða
Baracks Obama og hrósað haturs-
glæpamönnum. Ríf lega 30 lönd
vilja ekki sjá Anderson en þetta er í
fyrsta skipti sem ráðherra Íra nýtir
þessa heimild. Anderson hugðist
predika í Dublin 26. maí. – smj
Írar banna prest
1 4 . M A Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
C
-3
4
9
C
2
2
F
C
-3
3
6
0
2
2
F
C
-3
2
2
4
2
2
F
C
-3
0
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K