Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.05.2019, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 14.05.2019, Qupperneq 6
Azar fær yfir þrjár og hálfa milljón fyrir störf sín. Mosfellsprestakall Aðalsafnaðarfundur Lágafellssóknar Aðalsafnaðarfundur Lágafellssóknar sem auglýstur var þann 14. maí er frestað. Fundurinn verður haldinn í Safnaðarheimili Mosfellsprestakalls Þverholti 3, Mosfellsbæ þann 21. maí kl. 20 Dagskrá: Venjuleg aðalsafnaðarfundarstörf. Verið velkomin, Sóknarnefnd Lágafellssóknar D Ó M S M Á L Lagaprófessor v ið Óslóarháskóla, Mads Andenæs, lýsti meintu vanhæfi Páls Hreins- sonar, forseta EFTA-dómstólsins, í umdeildu norsku máli, svokölluðu Fosen-máli, sem er til meðferðar hjá dómstólnum, í færslu á samfélags- miðlinum Linkedin fyrir helgi. Andenæs segir í færslu sinni að Páll Hreinsson hafi sem forseti EFTA-dómstólsins tjáð sig um málið í fréttabréfi sem dómarar allra aðildarríkja EFTA fengu sent og að athugasemd forsetans um málið megi skilja sem svo að hann sé á öndverðum meiði við fyrri niður- stöðu EFTA-dómstólsins. Eins og Fréttablaðið greindi frá upplýsti forseti hæstaréttar Noregs fyrir helgi að norski dómarinn við EFTA-dómstólinn, Per Cristiansen, hefði hvatt sig til að vísa málinu aftur til EFTA-dómstólsins en hefur þegar kveðið upp dóm í málinu um skaðabótaskyldu norska ríkisins gagnvart fyrirtæki vegna brota á reglum um opinber innkaup. Norskur áfrýjunardómstóll, sem fékk málið til meðferðar, sýknaði norska ríkið hins vegar og fór með því gegn dómi EFTA-dómstólsins í fyrsta skipti í sögu dómstólsins. Dómi þessum var áfrýjað til hæsta- réttar Noregs sem hefur nú vísað málinu aftur til EFTA-dómstólsins með ósk um ráðgefandi álit. Það var svo núna fyrir helgi sem uppvíst varð um samskipti norska dómarans við hæstarétt Noregs og af umræðunni í Noregi að dæma er málið litið alvarlegum augum og staða dómarans sögð mjög erfið. Lögfræðingar sem Fréttablaðið ræddi við segja dómarann í raun- inni vera að grafa undan þeirri stofnun sem hann vinnur fyrir og ljóst sé að Fosen-málið verði ákveð- inn prófsteinn á hvort EFTA-dóm- stóllinn standi undir væntingum um að vera sjálfstæður gagnvart norska ríkinu. Í fyrrnefndu fréttabréfi segir Páll að spurning hæstaréttar Noregs til EFTA-dómstólsins varði þrösk- uld skaðabótaskyldu ríkisins og það skilyrði skaðabótaskyldu að brot þurfi að vera nægilega alvar- legt. Andenæs er ekki einn um þá skoðun að Páll hafi með þessu lýst viðhorfi til málsins sem geri hann vanhæfan sem dómara, en í svari til Andenæs á Linkedin segir fyrr- verandi forseti EFTA-dómstólsins, Carl Bauden bacher: „Þetta er skólabókardæmi um hlutdrægni dómaranna frá Íslandi og Noregi, því miður.“ Fyrirtaka var í Fosen-málinu hjá EFTA-dómstólnum í gær. Páll Hreinsson er dómformaður í málinu, en norski dómarinn, Per Cristiansen, veiktist skyndilega um helgina og því þurfti að kalla inn varadómara með stuttum fyrirvara til að setjast í dóminn. Fréttablaðið óskaði eftir við- brögðum EFTA-dómstólsins við fyrrgreindum ummælum um van- hæfi Páls Hreinssonar í umræddu máli. Viðbrögð höfuð ekki borist þegar blaðið fór í prentun. adalheidur@frettabladid.is Efast um hlutleysi hins íslenska EFTA-dómara Fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins segir norska og íslenska dómara réttar- ins hlutdræga við meðferð mála hjá réttinum. Norski dómarinn liggur undir ámæli í Noregi. Efasemdum hefur verið hreyft um hlutleysi Páls Hreinssonar. Páll Hreinsson er í leyfi frá Hæstarétti á meðan hann gegnir dómstörfum hjá EFTA. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þetta er skólabókar- dæmi hlutdrægni dómaranna frá Íslandi og Noregi, því miður. Carl Baudenbacer, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins LANDBÚNAÐUR Félag atvinnurek- enda (FA) gagnrýnir málf lutning „Hóps um örugg matvæli“ en hópur- inn hefur í auglýsingum varað við innf lutningi á kjöti til landsins. Í tilkynningu frá FA er bent á þá stað- reynd að nokkrir af aðstandendum auglýsingaherferðarinnar séu einn- ig stórtækir kjötinnflytjendur. Er þar um að ræða Sláturfélag Suðurlands, Reykjagarð, Síld og fisk, Matfugl og Kjarnafæði. Þessi fyrirtæki fengu úthlutað um þriðj- ungi af tollfrjálsum innf lutnings- kvóta fyrir kjötvörur sem úthlutað var á fyrri hluta ársins, samkvæmt tollasamningi við ESB. Var þessi tollkvóti upp á tæp 470 tonn af kjötvörum. Óla f u r St ephen s en , f r a m- kvæmdastjóri FA, segir að sam- kvæmt málflutningi þessara fyrir- tækja sé innflutt kjöt stórhættulegt og beri í sér bakteríur sem ógna lýð- heilsu á Íslandi. „Í verki eru þau hins vegar stórtækir kjötinnflytjendur og sýna þannig að þau hafa engar áhyggjur af því að innf lutningur ógni heilsu fólks,“ segir Ólafur. Hann segir að þessi fyrirtæki verði að fara að gera upp hug sinn. „Tvískinnungur af þessu tagi er alls ekki trúverðugur.“ Frumvarp sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra sem heimilar innflutning á fersku kjöti er nú til meðferðar hjá atvinnuveganefnd Alþingis. Markmið frumvarpsins er að Ísland standi við alþjóðlegar skuldbindingar samkvæmt EES- samningnum. Bændasamtök Íslands sendu frá sér tilkynningu í gær þar sem farið er fram á þriggja ára aðlögunartíma vegna breytinganna. Það sé nauð- synlegt þar sem nú stefni í að málið verði afgreitt. Það sé óraunhæft að boðuð aðgerðaáætlun ráðherra sem ef la eigi matvælaöryggi hafi ein- hver áhrif fyrir gildistöku laganna í haust. – sar Félag atvinnurekenda sakar kjötframleiðendur um tvískinnung Hópur um örugg matvæli varar við innflutningi á kjöti. NORDICPHOTOS/GETTY EUROVISION Assi Azar, einn kynna Eurovison- keppninnar, hyggst gefa laun sín til hinsegin samfélagsins í Ísrael. Azar fær rúmlega þrjár og hálfa milljón fyrir að kynna keppn- ina og mun gefa alla upphæð- ina til IGY- samtakanna. Samtökin eru góðgerðar- samtök sem v i n n a að rét t indu m h i n s e g i n fólks í Ísrael. Azar er þekktur sjón- varpsmaður í Ísrael og komst á lista Out tíma- ritsins yfir 100 áhrifa- mestu hinsegin ein- staklinga heimsins árið 2009. Hann mun kynna keppn- ina ásamt Íslands- vinkonunni Bar Refaeli, Lucy Ayoub og Erez Tal. –bdj Eurovison-kynnir gefur laun sín til hinsegin fólks FERÐAÞJÓNUSTA Far þegum á Kefla- víkur flug velli fækkaði um rúm lega fjórðung í apríl miðað við apríl í fyrra en um er að ræða fyrsta heila mánuðinn eftir fall f lug fé lagsins WOW air. Sem kunnugt er varð félagið gjaldþrota í lok mars. Þá fækkaði jafn framt skiptifar þegum um helming að því er fram kemur í skýrslu Isavia um mánaðar lega um- ferð far þega um völlinn. Þannig fóru 474.519 far þegar um völlinn í apríl en þeir voru 659.973 í apríl í fyrra. Er fækkunin rakin til færri skiptifar þega, sem voru 119 þúsund í apríl en þeir voru 253 þúsund á sama tíma í fyrra og er fækkunin 52 prósent. Þá fækkaði komu- og brott far ar far þegum um 10,4 prósent. Far þegum sem fóru um völlinn á fyrstu fjórum mánuðum ársins fækkaði sömu leiðis um 300 þúsund frá sama tíma bili í fyrra. Eru helstu á stæður fækkunar far þega meðal annars raktar til þess að meiri hluti far þega með WOW air hafi verið skiptifar þegar. – oæg Farþegum fækkaði um fjórðung eftir fall WOW Fyrsti mánuður eftir WOW sýnir farþegafækkun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 1 4 . M A Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 4 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F C -5 C 1 C 2 2 F C -5 A E 0 2 2 F C -5 9 A 4 2 2 F C -5 8 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 3 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.