Fréttablaðið - 14.05.2019, Síða 13
Í Fréttablaðinu 7. mars sl. birtist grein eftir Björgu Þorleifsdóttur. Björg er titluð lífeðlisfræðingur
og mun vera lektor við Læknadeild
Háskóla Íslands. Björg fer mikinn í
áróðri sínum fyrir seinkun klukk-
unnar. Að miklu leyti er greinin
dylgjur og skætingur í garð Gunn-
laugs Björnssonar, stjarneðlisfræð-
ings, sem leyfði sér, í grein í Frétta-
blaðinu 18. jan. sl., að véfengja þá
kenningu að seinkun klukkunnar
skipti sköpum fyrir velferð lands-
manna. Björg telur sig lífvísinda-
mann og finnst ófært að raunvís-
indamenn séu að krukka í „svið
dægurklukku og svefns“. Hélt ég
þó að lífeðlisfræði teldist til raun-
vísinda.
Björg segir: „Íslendingar fara seint
að sofa, seinna en ýmsar þjóðir
sem við berum okkur saman við.
Íslenskir unglingar höfðu t.a.m.
algera sérstöðu í samanburði við
unglinga 12 annarra þjóða víða um
heim, fóru langtum seinna að sofa
en jafnaldrar þeirra.“ Björg telur
„ranga staðarklukku“ mögulega
skýringu á þessu og vísar í vísinda-
grein því til stuðnings (1). Það er
reyndar yfirlitsgrein (review) yfir
41 vísindagrein og yfirlit (surveys)
sem birt voru á árabilinu 1999 til
2010.
Þegar þessi yfirlitsgrein er skoð-
uð, kemur í ljós að þar eru ekki
bornar saman 13 þjóðir, heldur 10
(með Íslandi) í 13 rannsóknum. Þar
sést vissulega að íslenskir unglingar
fara að jafnaði seint að sofa en þó er
vart hægt að segja að þeir hafi algera
sérstöðu miðað við aðrar þjóðir. Í
einu landi fara t.d. 17 ára unglingar
að sofa einni klukkustund seinna
en þeir íslensku. Ekki sjást neinar
vísbendingar um að „röng“ stilling
klukkunnar valdi því að íslensk
ungmenni fari seinna að sofa en
jafnaldrar þeirra í samanburðar-
þjóðunum.
Í yfirlitsgreininni má einnig sjá
niðurstöður 14 rannsókna á meðal
svefntíma unglinga í ýmsum lönd-
um, en engin gögn frá Íslandi eru
þar á meðal. Af línuriti á bls. 114 má
lesa, að aðeins í 4 löndum af 13 eru
unglingar á bilinu 14–18 ára taldir
fá nægilegan (sufficient) svefn virka
daga. Í hinum löndunum 9 telst
svefninn ónógur (insufficient).
Enginn unglingur telst fá æski-
legan (optimal) svefn. Höfundarnir
álykta:
„Um er að ræða alþjóðlegt svefn-
venju-vandamál sem leiðir til seink-
aðar svefnfasatruflunar – SSFT sem
kann að eflast af menningarlegum
þáttum“ (þýðing mín).
Sem sagt, alþjóðlegt vandamál.
Ekkert um áhrif „rangrar“ klukku.
Höfundar yfirlitsgreinarinnar
velta fyrir sér orsökum þess að
Íslendingar fari að jafnaði seinna að
sofa en aðrar þjóðir, en finna enga
haldbæra. Þeim kemur í hug skortur
á morgunbirtu, en hafna því á þeim
forsendum að rannsóknin hafi farið
fram að vori þegar sólarljós er ríku-
legt! Samt gerist Björg svo djörf að
vitna í þessa grein í áróðri sínum
fyrir seinkun klukkunnar og meiri
morgunbirtu.
Líklega eru engar rannsóknir til
um svefnvenjur Íslendinga þegar
þeir voru á „réttri“ staðarklukku
(á veturna), þ.e.a.s. áður en tekinn
var upp sumartími allt árið, 1968.
En í grein, þar sem lýst er rannsókn
sem gerð var á árunum 1985–1986
(2), má sjá eftirfarandi:
„Svefnvenjur Íslendinga virð-
ast nokkuð frábrugðnar því sem
gerist með öðrum þjóðum. Þetta á
einkum við um svefnmál og rismál
Um (líf)vísindi og stillingu klukkunnar
sem eru seinna á sólarhringnum en
gerist annars staðar. Meðalsvefn-
tími hér virðist svipaður og gerist
með öðrum þjóðum (leturbr. mín).
Erfitt er að segja hvað veldur þess-
um seina háttatíma þjóðarinnar,
en ein skýring gæti verið sú, að
klukkan á Íslandi er skekkt um eina
klukkustund, miðað við sólargang
og Greenwich meðaltíma. Reyndar
er það mál manna að háttatími hafi
verið svipaður áður en klukkunni
var breytt“ (leturbr. mín).
Að öllu þessu athuguðu verður
ekki séð að íslenskir unglingar
sofi að jafnaði minna en unglingar
annarra þjóða, þrátt fyrir „ranga
klukku“. Þeir fara þó að jafnaði
seinna að sofa, en líklega er sú staða
óbreytt frá því sem var áður en
klukkunni var flýtt. Ekki er að finna
neinar vísbendingar um að seinn
háttatími stafi af „rangri“ klukku-
stillingu.
Björg segir: „Það er raunar
merkilegt hvað ýmsum raun-
vísindamönnum er í mun að
halda í vitlausa staðarklukku.“
Ég leyfi mér að segja á móti: Það
er dapurlegt að sjá vísindamenn
við Háskóla Íslands vera haldna
þeirri þráhyggju, að það hvort
klukkan sé stillt 12 eða 13 þegar
sól er hæst á lofti skipti sköpum
um velferð manna. Og óskiljan-
legt hvernig þeir hafa fengið þá
grillu í höfuðið. Skirrast síðan
ekki við að mistúlka og rangfæra
niðurstöður vísindagreina „mál-
staðnum“ til framdráttar. Kannski
skiljanlegt að þeir vilji ekki að
aðrir rýni um of í þessi fræði.
Tilvísanir:
1) Gradisar et al.: Recent worldwide
sleep patterns and problems during
adolescence: A review and metaana-
lysis of age, region and sleep. Sleep
Medicine 12 (2011) 110-118.
2) Helgi Kristbjarnarson et al.:
Könnun á svefnvenjum Íslendinga.
Læknablaðið 71 (1985) 193-198.
Eysteinn
Pétursson
fyrrum yfir-
eðlisfræðingur
á Ísótópastofu
Landspítalans
EYJAFJALLAJÖKULL
Góðar hugmyndir á gottimatinn.is
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13Þ R I Ð J U D A G U R 1 4 . M A Í 2 0 1 9
1
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
C
-4
D
4
C
2
2
F
C
-4
C
1
0
2
2
F
C
-4
A
D
4
2
2
F
C
-4
9
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K