Fréttablaðið - 14.05.2019, Qupperneq 22
Kate Miller-
Heidke sem syng-
ur fyrir Ástralíu í
Eurovison-keppn-
inni, settist niður
með útsendurum
Fréttablaðsins í
Tel Avív og fór yfir
hugmyndina að
lagi hennar sem
fjallar um að sigr-
ast á fæðingar-
þunglyndi.
Kate Miller-Heidke frá Ástr-alíu er einlægur aðdáandi Hatara. Hún stígur á sviðið í
Tel Avív á undan þeim. Kate hefur
fylgst vel með liðsmönnum Hatara
og er mikill aðdáandi. „Þau eru öll
frábær. Atriðið sjálft er stórsnjallt
og mér finnst frábært að sjá þau í
viðtölum. Það er eins og þau séu öll
með bakgrunn í leiklist – þau gera
þetta allt alveg upp á tíu,“ segir
hún.
Lagið hennar og atriðið hefur
einnig vakið töluverða athygli en
lagið fjallar um hvernig hún reis
upp úr fæðingarþunglyndi. „Ég
man að ég vaknaði einn daginn
eins og krafturinn væri að koma
aftur og ég hafði stjórn á lífi mínu.
Ég gat tengt við allt og alla og ég
man svo vel hvað það var mikill
léttir þegar það gerðist. Það var
mikil gleði að þetta væri búið og
lagið reynir að fanga þá gleði á
þessum þremur mínútum.“
Miller-Heidke samdi lagið með
manninum sínum en þau hafa
unnið lengi saman að tónlist.
„Hann hefur glímt við þunglyndi
og við erum opin með það. Ég
settist samt ekki niður og ákvað að
semja lag um tilfinningar mínar og
líðan. Mér finnst samt ég verða að
semja og skrifa um eitthvað sem
er raunverulegt og tengist mér.
Annars er það bara leiðinlegt.“
Kate segir að alveg frá því að
Ástralía fékk keppnisleyfi hafi
hana dreymt um að keppa. Það
sé því ákveðinn draumur að vera
stödd í Tel Avív þótt dagskrá kepp-
enda sé löng og ströng. „Þegar ég
samdi lagið var ég ekki alveg viss
hvort þetta væri Eurovision-lag en
mig langaði að semja lag sem gæti
lifnað við á Eurovision-sviðinu,“
segir hún. „Allt í kringum Euro-
vision er svolítið klikkað en mér
finnst ég mjög heppin að vera hér.
Ég kvarta ekki.“
Atriðið er nokkuð sérstakt en
það er listgjörningur frá hóp sem
kallar sig Strange Fruit sem sér um
það. „Það var eitthvað sem kallaði
á mig þegar ég sá þau og mér fannst
þetta passa við lagið. Eitthvað
passaði, söngurinn og atriðið
verða eitt.“
Ástralía tók fyrst þátt í Euro-
vison-keppninni árið 2015. Þá sem
sérstakur gestur í tilefni af sextíu
ára afmæli keppninnar. Ástralar
hafa verið með síðan en mikill
áhugi er á keppninni þar í landi.
Atriði Hatara stórsnjallt
Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem heilsubótarfæði og notuð til bóta við hinum ýmsu meinum.
Kínverjar kalla sæbjúgu gjarnan
„ginseng hafsins“ og til eru sagnir
um notkun sæbjúgna þar fyrir
meira en þúsund árum. Arctic
Star sæbjúgnahylkin innihalda
yfir fimmtíu tegundir af nær-
ingarefnum sem geta haft jákvæð
áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans, til dæmis er
mikið kollagen í þeim en það er
eitt helsta uppbyggingarprótein
líkamans.
Finnur mikinn mun á sér
Á síðustu árum hefur Arctic
Star sérhæft sig í þróun á fæðu-
bótarefnum, svo sem fram-
leiðslu, markaðssetningu og sölu
á hágæða sæbjúgnahylkjum.
Hylkin eru framleidd úr íslensk-
um, hágæða, villtum sæbjúgum
sem eru veidd í Atlantshafinu.
Magnús Friðbergsson, verk-
efnastjóri hjá Landspítala, hefur
tekið sæbjúgnahylkin frá Arctic
Star undanfarin tvö ár. „Vinur
minn kynnti mig fyrir sæbjúgna-
hylkjunum og þar sem ég hafði
lengi verið slæmur í hnjám, með
liðverki og lítið getað beitt mér,
ákvað ég að prófa. Tveimur til
þremur vikum seinna fann ég
mikinn mun. Nú hef ég tekið
sæbjúgnahylkin í tvö ár og fer
allra minna ferða án óþæginda.
Það er algjör bylting frá því sem
áður var. Nú get ég gert hluti eins
og að fara í langar gönguferðir,
sem ég gat varla gert áður. Að
minnsta kosti gerði ég það ekki
með bros á vör og það tók mig
langan tíma að jafna mig eftir
álag,“ útskýrir hann.
Magnús, sem er 69 ára gamall
í dag, hafði fengið að heyra frá
lækni að mikið slit væri í hnjám
hans og ekki væri von á að það
gengi til baka. „Hann sagði mér
að kíkja á fæðingardaginn minn
og að ég gæti ekki búist við að
fara aftur í tíma. Mér fannst vont
að heyra þetta og var því tilbúinn
að prófa ýmislegt sem gæti
mögulega lagað þetta. Sæbjúgna-
hylkin frá Arctic Star virka mjög
vel á mig og ég mæli með að fólk
prófi þau.“
Framleiðandi sæbjúgna er
Arctic Star ehf. Allar nánari upp-
lýsingar fást á arcticstar.is. Arctic
Star sæbjúgnahylki fást í f lestum
apótekum og heilsubúðum og í
Hagkaupum.
Sæbjúgnahylkin eru bylting
Magnús Friðbergsson mælir með sæbjúgnahylkjum frá Arctic Star en hann finnur mun á sér eftir
að hann fór að nota þau. Sæbjúgu innihalda fimmtíu tegundir af næringarefnum.
Magnús er betri í hnjám og finnur
minna fyrir liðverkjum eftir að
hann fór að taka sæbjúgnahylkin.
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
Kate Miller-Heidke var glæsileg á rauða dreglinum á laugardag en hún mun stíga á svið á undan Hatara í kvöld. MYND/ THOMAS HANSES
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . M A Í 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
C
-5
2
3
C
2
2
F
C
-5
1
0
0
2
2
F
C
-4
F
C
4
2
2
F
C
-4
E
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K