Fréttablaðið - 14.05.2019, Blaðsíða 32
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Þriðjudagur
hvar@frettabladid.is
14. MAÍ 2019
Fundir
Hvað? Svansráðstefna
Hvenær? 08.30
Hvar? Grand Hótel
Fjallað verður um varasamt
efnaumhverfi með áherslu á
fyrstu 1.000 dagana í lífi barnanna
okkar. Fundarstjóri verður Salvör
Nordal, umboðsmaður barna.
EUROVISION UNDAN ÚRSLIT #1
Einstök upplifun á stóra tjaldinu!!!
Bein útsending hefst kl.19:00 í sal 1
Glæsilegur Hatara varningur til sölu
FRÍTT INN á meðan húsrúm leyfir!!!
The Wild Pear Tree (eng sub) ... 17:30
Girl (eng sub) ........................................... 17:45
Að sjá hið ósýnilega (icelandic) .. 20:00
The House That Jack Built (ice sub) 21:00
BlacKkKlansman (english nO sub) . 22:00
Yuli-Carlos Acosta Story(eng sub) 22:00
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
Pólitík eða ekki pólitík? Það er spurning sem rædd verður í Lögbergi.
Hvað? Eurovision og stjórnmál
Hvenær? 12.00-13.00
Hvar? Lögberg, stofa 101 í HÍ
Hádegisfundur Félags stjórnmála-
fræðinga og Stofnunar stjórn-
sýslufræða og stjórnmála veltir
upp spurningum um hversu mikil
pólitík er í Eurovision, hvaða
tilgangi keppnin þjóni í sam-
skiptum þjóða, hvort kosningin
sé pólitísk og hvort hægt sé að
gera kröfu til keppenda um að
boðskapur tónlistaratriða þeirra
sé innan ákveðins skilgreinds
ramma.
Hvað? Öflug forysta á viðsjár-
verðum tímum
Hvenær? 12.15 – 13.15
Hvar? Oddi, HÍ, stofa 201
Opinn fundur á vegum Höfða
friðarseturs og Háskóla Íslands.
Hvað? Fundur um Sjómannaskóla-
reit
Hvenær? 17.00
Hvar? Vindheimar, Borgartúni 14,
R. 7. hæð
Opinn kynningarfundur um drög
að deiliskipulagi fyrir Sjómanna-
skólareit. Einnig verða kynnt
drög að breytingu á aðalskipulagi
vegna þess sama reitar, ásamt
Veðurstofuhæð. Allir velkomnir.
Jóna Hlíf Halldórsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Gerðarsafns. Hún hefur formlega störf 1. ágúst og er að leggja línur og hitta starfs-fólk. Hún segir að nýja starfið
leggist mjög vel í sig. „Ég er
afar þakklát fyrir þetta tæki-
færi. Gerðarsafn er að mínu mati eitt
fallegasta listasafn landsins og reisn
yfir því. Gerður Helgadóttir hefur
sem listamaður verið mér fyrir-
mynd. Hún var frábær listamaður
sem var á undan sinni samtíð og
afrekaði ákaflega mikið á stuttum
tíma í þeim harða heimi sem lista-
heimurinn er. Skúlptúrarnir hennar
standast tímans tönn og eru mikil-
fenglegir. Það er alltaf hægt að vinna
með þá og auðvelt að verða fyrir
hughrifum af þeim.“
Safn fyrir alla
Um áherslur í nýju starfi segir Jóna
Hlíf: „Seinustu árin hefur verið
unnið mjög gott starf í Gerðarsafni.
Ég mun leggja áherslu á að byggja
ofan á það. Safnið á að vera lifandi
vettvangur fyrir listir. Safnið þarf að
fylgjast með straumum og stefnum í
samfélaginu og vinna úr þeim. Listin
hreyfir við hlutlausum huga.
Kópavogur er að vinna mjög
áhugavert starf með heimsmark-
mið Sameinuðu þjóðanna, eins
og menntun fyrir alla, jafnrétti
kynjanna, nýsköpun og uppbygg-
ingu og aukinn jöfnuð. Ég er mjög
spennt að leiða safnið í vinnu með
þessi markmið.
Mér finnst líka skipta miklu máli
að vera með gott og öflugt fræðslu-
starf. Safnið á að vera fyrir alla og ég
mun leggja áherslu á að allir aldurs-
hópar séu velkomnir og gestum líði
vel í safninu. Listin er máttarstólpi
tjáningarfrelsisins og birtingar-
mynd þess hvernig Íslendingar hafa
lagt rækt við skapandi hugsun,
frumkvæði og menningararf leifð
sína. Listin sækir orku í sköpunar-
kraftinn sem tengir allt fólk. Þegar
söfn ná því markmiði að verða lif-
andi vettvangur með hugrekki og
hugsjónum þá getur listin ræktað
lífið.
Gerðarsafn er listasafn sem er
hannað utan um skúlptúra og á að
mínu mati að vera leiðandi í sýningu
á samtímalist í skúlptúr. Í framtíð-
inni gæti verið áhugavert að vera
með metnaðarfullt sýningarhald,
þar sem straumar í samtímalist
erlendis verða í forgrunni og í bland
við íslenska strauma.
Að lokum má nefna að ég legg
áherslu á góð samskipti, stöðug-
leika og mikilvægi samstarfs á öllum
stigum.“
Betra starfsumhverfi
Jóna Hlíf útskrifaðist frá fagurlista-
deild Myndlistaskólans á Akur-
eyri, lauk MFA-gráðu frá Glasgow
School of Art í Skotlandi og MA í
listkennslu frá Listaháskólanum.
Hún hefur haldið fjölda einkasýn-
inga og samsýninga og verk hennar
eru í eigu helstu listasafna á Íslandi.
Hún var formaður Myndhöggvara-
félagsins í Reykjavík frá 2011 til 2013
og formaður Sambands íslenskra
myndlistarmanna á árunum 2014
til 2018.
Hún segist nú ætla að leggja eigin
listsköpun til hliðar og segir að það
sé ekki endanleg fórn. „Ég vil setja
allan minn sköpunarkraft í nýja
starfið. Ég get alltaf snúið aftur til
listarinnar, hún fer hvergi og er
hluti af mér. Ég held að ég sé komin á
mjög góðan stað þar sem ég get nýtt
þekkingu mína og sköpunarkraft.“
Jóna Hlíf segir það vera einstak-
lega gaman að vinna í myndlistar-
umhverfinu. „Starfsumhverfið er að
verða svo miklu betra. Kópavogur er
búinn að samþykkja verklagsreglur
um greiðslur til listamanna og það
er gríðarlega mikið fagnaðarefni.
Sem formaður Sambands íslenskra
myndlistarmanna var ég einmitt að
berjast fyrir því í fjögur ár. Nú eru
flest öll listasöfnin byrjuð að borga
myndlistarmönnum og fyrir vikið
verður til gróskumeira starfsum-
hverfi og betri myndlist. Það eru
mjög spennandi og bjartir tímar
fram undan.“
Listin hreyfir við hlutlausum huga
Gerðarsafn er að mínu mati eitt fallegasta listasafn landsins og reisn yfir því, segir Jóna Hlíf. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Jóna Hlíf Hall-
dórsdóttir er nýr
forstöðumaður
Gerðarsafns. Hún
segir safnið þurfa
að fylgjast með
straumum og
stefnum í samfélag-
inu og vinna úr
þeim.
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Frettabladid.is færir
þér nýjustu fréttir
dagsins og ítarlega
umöllun um málefni
líðandi stundar.
Fylgstu með á
frettabladid.is
1 4 . M A Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
C
-4
8
5
C
2
2
F
C
-4
7
2
0
2
2
F
C
-4
5
E
4
2
2
F
C
-4
4
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K