Fréttablaðið - 14.05.2019, Síða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Darren Mark Donguiz Trinidad lauk námi í fatahönnun frá Lista-háskóla Íslands árið 2017. Hann hefur vakið
athygli undanfarið fyrir hönnun sína
og persónulegan stíl. Darren hannar
mest fyrir karla en hefur einnig hann-
að uni-sex fatnað, flíkur sem ganga
upp fyrir bæði kyn. Hann lýsir eigin
smekk og stíl sem blöndu af götustíl,
nýklassík, fútúrisma og stílhreinum
fatnaði þar sem áhersla er lögð á form
og lögun f líkurinnar. Við fengum
að spyrja hann nokkra spurninga
um hönnun hans, eigið klæðaval og
hvaðan hann fær innblástur.
Hvaðan færð þú innblástur?
Það er ekkert eitthvað eitt sér-
stakt, það er alltaf mismunandi og
kemur til manns á óvæntan hátt. En
kannski er rauði þráðurinn f læði
fatnaðarins. Það veitir mér inn-
blástur að taka eftir hvað fólk getur
borið fatnaðinn á mismunandi
hátt eða sett saman alklæðnað á
mismunandi hátt. Mér finnst svo
áhugavert þegar karaktereinkenni
einstaklingsins birtast í fatavalinu.
Uppáhalds íslenski fatahönnuð-
urinn og af hverju?
Ég er búinn að vera að fylgjast
mikið með Andra Hrafni og Kar-
enu Briem, en þau eru búin að vera
að hanna útlit og fatnað Hatara
núna í kringum Eurovision. Ég er
líka hrifinn af því sem vöruhönn-
uðurinn Valdís Steinarsdóttir hefur
verið að gera og það sem textíl- og
fatahönnuðurinn Tanja Huld Levý
hefur verið að gera finnst mér margt
mjög flott. Svo veit ég að Gréta Þor-
kelsdóttir, grafískur hönnuður,
er með verkefni í bígerð sem mér
finnst mjög áhugavert. Hún er mjög
hæfileikarík.
Áttu einhvern uppáhalds fata-
hönnuð?
Í augnablikinu held ég mikið
upp á Thom Brown. Hann vinnur
mikið með súrrealisma og húmor.
Mér finnst heimurinn sem hann
skapar og bara allt sem hann er að
gera alveg ótrúlega áhugavert.
Finnst þér rauði þráðurinn í þinni
eigin hönnun hafa breyst mikið, til
að mynda eftir að náminu lauk?
Hann hefur ekki endilega breyst,
en hann hefur fínpússast.
Hver eru þín uppáhalds tískuhús
eða fatamerki?
Það er skómerkið Syro sem gerir
einstaklega f lott hæla, líka í karl-
mannsstærðum. Mér finnst áhuga-
vert að leika sér með hvar línan er
dregin með hvað sé karlmanns- og
hvað sé kvenmannsfatnaður.
Hvar verslar þú mest?
Ég kaupi mest notuð föt, sem sagt
vintage. Þá finnst mér Rauðakross-
búðin oft f lott og líka ný búð í Ing-
ólfsstræti sem heitir Wasteland.
Hannar þú mesta hlutann af
þínum eigin fötum eða því sem þú
gengur í hversdags?
Já, ég klæðist bæði eigin hönnun
eða breyti því sem ég hef keypt. Þá
kannski breyti ég lítillega vintage
flík eftir mínu eigin höfði.
Langaði þig alltaf til að verða fata-
hönnuður?
Ég hef alltaf teiknað mikið en
ég var samt ekki alltaf á því að ég
myndi enda í fatahönnun. Þetta
þróaðist svolítið með því að ég var
að teikna upp teiknimyndapersón-
ur. Boltinn byrjaði svolítið að rúlla
þegar ég fór að velta meira fyrir mér
smáatriðum fígúranna sem ég var
að teikna.
Hvað finnst þér óspennandi við
tískuna í dag?
Mér finnst bara mikilvægt að það
skíni eitthvað persónulegt í gegn í
klæðavali fólk. Mér finnst óspenn-
andi að allir séu eins. Ég vil sjá eitt-
hvert sjálfstæði í stíl fólks, þannig að
það skíni einhver þarna í gegn.
Safnar þú einhverju þegar það
kemur að fötum?
Ég gerði það einu sinni en er núna
meira einbeittur í að vinna í minni
eigin hönnun og skapa.
Hvaða stjarna finnst þér hafa
f lottan eða áhugaverðan stíl?
Solange. Stíllinn hennar, söng-
urinn, framkoma og allt við hana
finnst mér áhugavert.
steingerdur@frettabladid.is
Sjálfstæður og
persónulegur stíll
Darren Mark er fatahönnuður. Hann hannar mest karlmanns-
fatnað, en er líka hrifinn af flíkum sem ganga upp fyrir bæði
kyn. Honum finnst sjálfstæði skipta mestu í fatavali.
Darren blandar fútúrisma og götustíl inn í eigin klæðaburð. Hann segist kaupa mest vintage fatnað hérna á Íslandi.
Darren útskrifaðist árið 2017 úr fatahönnun frá Listaháskóla Íslands og
sinnir hönnuninni í stúdíói sínu úti á Granda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
1 4 . M A Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
okkar allra
fyrri undanúrslit
í kvöld kl. 19
Bein útsending frá Eurovision í Tel Aviv. Hatari stígur
á svið fyrir Íslands hönd. Þulur er Gísli Marteinn
Baldursson. Einnig á RÚV 2 með ensku tali og íslenskri
táknmálstúlkun. Enskur þulur er Alex Elliott.
1
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
C
-4
3
6
C
2
2
F
C
-4
2
3
0
2
2
F
C
-4
0
F
4
2
2
F
C
-3
F
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K