Fréttablaðið - 14.05.2019, Page 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
13. til 19. maí
Allir 12 tommu bátar af
matseðli og miðstærð af gosi á
Stjörnu-
dagar
1099kr.
Hauks Arnar
Birgissonar
BAKÞANKAR
Við lifum á tímum stafrænna samskipta. Það er frábært að mörgu leyti en hefur
aukaverkanir, eins og margt annað.
Í viðskiptum getur fólk fundað,
skrifast á og jafnvel undirritað
samninga í gegnum tölvubúnað.
Þeir námfúsu geta nælt sér í heilu
háskólagráðurnar án þess að stíga
fæti inn í skólabyggingu og ástvinir
geta viðhaldið tengslum þrátt fyrir
að búa í sitthvoru heimshorninu.
En á sama tíma og við nýtum
okkur kosti stafrænna samskipta
þá fer okkur aftur í mannlegum
samskiptum. Við erum hætt að
hittast jafn mikið og við gerðum.
Tala saman. Tjáningin fer nú
fram með þumlum, fýluköllum,
hlægiköllum og emoji-táknum.
Merking raunverulegra orða tapast
í stafrænni þýðingu og svipbrigðin
eru falin á bak við svarta spegla
snjallsímanna.
Við glötum smátt og smátt hæfi-
leikanum til þess að eiga spjall um
ekki neitt, sem eru oft skemmti-
legustu spjöllin. Þeir sem stunda
heitu pottana eru reyndar öruggir
með að halda í hæfileikann.
Ég hitti prófessor á þessu sviði í
gær, þegar ég ferðaðist með leigubíl
að Keflavíkurflugvelli. Bílstjórinn
kunni spjalllistina betur en flestir
og það var augljóst að samfélags-
miðlunum hefur ekki tekist að
eyðileggja hann. Á hálftíma ferða-
lagi ræddi hann við mig um allt
frá gagnaverum á Suðurnesjum til
barnanna minna. Frá Íslendingasög-
unum til lélegrar lögfræðiþjónustu.
Þar sem ég bý stærstan hluta
ársins í hinum stafræna heimi þá
bar hann samræðurnar uppi. Ég
svaraði bara. Það kom aldrei dauð
stund þar sem þögnin réði ríkjum.
Þetta var yndisleg bílferð og nær-
andi. Hann Egill ætti að halda nám-
skeið í spjalli fyrir okkur hin og
námskeiðið ætti að vera skyldufag,
sem því miður endar líklegast á því
að vera kennt í fjarnámi.
Spjall
1
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
C
-2
F
A
C
2
2
F
C
-2
E
7
0
2
2
F
C
-2
D
3
4
2
2
F
C
-2
B
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K