Morgunblaðið - 02.01.2019, Side 4

Morgunblaðið - 02.01.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum Veður víða um heim 1.1., kl. 18.00 Reykjavík 2 snjókoma Hólar í Dýrafirði 3 alskýjað Akureyri -1 skýjað Egilsstaðir -3 heiðskírt Vatnsskarðshólar 4 rigning Nuuk -3 skýjað Þórshöfn 1 heiðskírt Ósló 5 heiðskírt Kaupmannahöfn 5 súld Stokkhólmur 2 skýjað Helsinki 2 skýjað Lúxemborg 5 súld Brussel 7 þoka Dublin 8 súld Glasgow 4 alskýjað London 9 alskýjað París 8 alskýjað Amsterdam 7 léttskýjað Hamborg 5 léttskýjað Berlín 6 skýjað Vín 7 rigning Moskva -3 snjókoma Algarve 16 heiðskírt Madríd 12 heiðskírt Barcelona 14 léttskýjað Mallorca 16 heiðskírt Róm 12 heiðskírt Aþena 7 skýjað Winnipeg -26 léttskýjað Montreal 0 léttskýjað New York 14 léttskýjað Chicago 0 snjókoma Orlando 23 heiðskírt  2. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:19 15:46 ÍSAFJÖRÐUR 12:01 15:14 SIGLUFJÖRÐUR 11:45 14:55 DJÚPIVOGUR 10:57 15:07 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á fimmtudag Sunnan 13-20 m/s og rigning, en úr- komulítið norðaustantil á landinu. Hiti 6 til 12 stig. Á föstudag S og SV 5-13 og rigning eða súld, en léttir til á N- og A-landi síðdegis. Hiti 4 til 10 stig. Hægur vindur og þurrt norðaustan- og austanlands. Hlýnandi veður á landinu, hiti 4 til 9 stig. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Ég held það sé óhætt að segja að það hafi verið nánast allt uppbókað um áramótin og mjög vel bókað um jólin í Reykjavík,“ segir Kristófer Oli- versson, framkvæmdastjóri Center hótel og formaður Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu. Hann segir aðsókn erlendra ferðamanna yfir há- tíðirnar aukast ár frá ári. „Það eru ekkert mjög mörg ár síðan nokkur hótel lokuðu yfir jólin. Fyrst héldum við bara einu opnu og svo fjölguðum við þeim smám saman, svo hefur allt verið opið undanfarin ár.“ Mikilvægt er að boðið sé upp á fjöl- breytta afþreyingu fyrir ferðamenn á þessum árstíma til þess að halda uppi aðsókn þeirra, að sögn Kristófers. „Það kemur enginn bara til þess að gista á hóteli. Það skiptir öllu máli að fólk geti haldið góð og skemmtileg jól,“ segir hann og bætir við að það séu engar blikur á lofti um að dragi úr áhuga erlendra ferðamanna á Ís- landi sem áfangastað á þessum árs- tíma. Fullir veitingastaðir „Það hefur verið sett talsverð vinna í að markaðssetja desember og smám saman hefur þetta tekist,“ segir Kristófer, sem bendir á að hót- elin reki einnig þrjá veitingastaði og að áramótin hafi heppnast vel fyrir ferðaþjónustutengda starfsemi. „Þetta var bara mjög fínt, það voru aðeins fleiri en í fyrra og meira opið. Þetta var mjög jákvætt, ekki bara hjá mér, hjá öllum,“ segir Nuno Alex- andre Bentim Servo um aðsókn á veitingastaði á gamlárskvöld, en hann rekur veitingastaðina Tapas barinn, Sushi Social, Apótekið og Sæta svínið í Reykjavík. „Það var mjög góð stemming alls staðar, gott veður og allir í góðu skapi, fólk fékk að njóta sín,“ segir hann. Allrahanda ehf. var með á annað þúsund erlenda ferðamenn í ferðum á gamlársdag, þar af voru rúmlega sex hundruð sem fóru í skipulagðar ára- mótaferðir á brennu og flugeldasýn- ingu, segir Þórir Garðarsson, stjórnarformaður fyrirtækisins. Um er að ræða svipaðan fjölda og undan- farin ár þrátt fyrir fjölgun ferða- manna til landsins. Takmarkað pláss „Við höfum þurft að setja smá bremsu á þetta, enda takmarkað hversu miklum fjölda við getum kom- ið fyrir á þessum stöðum,“ segir hann og bætir við að fyrirtækið hafi verið í samstarfi við Breiðablik um aðstöðu fyrir hópinn sem sækir brennu í Kópavogi og síðan sé farið þaðan á flugeldasýningu. Þórir segir fjöldann sem fyrirtækið sinnir ekki hátt hlutfall miðað við hversu margir erlendir ferðamenn séu í borginni á þessum árstíma, enda margir sem eru á eigin vegum. Þá getur markaðssetning á skipulögðum ferðum lokkað fleiri til landsins þó þeir velji ekki slíkar ferðir, að sögn Þóris. „Það sem drífur ferðamennina til Íslands er framboð af afþreyingu, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Mörg fyrirtæki sem eru bjóða upp á flotta vöru og standa sig vel vekja kannski helst athygli á Íslandi sem áfangastað.“ Hótelin uppbókuð um áramótin  Ferðamönnum fjölgar ár frá ári um jól og áramót  Hótel og veitingastaðir full á gamlárskvöld  Takmarka hefur þurft vöxt í skipulögðum ferðum á brennur  Gott veður og allir í góðu skapi Morgunblaðið/Árni Sæberg Áramót í Reykjavík Víða um höfuðborgarsvæðið hópaðist fólk saman til þess að fagna nýju ári, meðal annars við Landakotskirkju. Mikill fjöldi var við Hallgrímskirkju og Hörpu, þar sem niðurtalningu var varpað á vegg hennar. breytt að stundum væri eins og 19. öldin hefði aldrei verið til. Katrín tel- ur að fullveldið hefði verið sá aflgjafi sem byggði upp núverandi hagsæld og velferð sem ríkir á Íslandi auk fjölbreyttara samfélags. Ungt fólk í vanlíðan og fíkn Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, og Agnes M. Sigurðardóttir biskup lýstu bæði áhyggjum af ungu fólki. Agnes sagði ungt fólk í heljar- Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Forsætisráðherra, biskup og forseti Íslands lögðu öll áherslu á loftslags- mál, tæknibreytingar, hraðann í nú- tímanum, fullveldið og hjálpar- og björgunarstörf í nýársávörpum sín- um auk þess sem þau lögðu öll áherslu á að fólk bæri virðingu fyrir hvað öðru og léti gott af sér leiða í samfélaginu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra sagði í ávarpi sínu á gamlárs- dagskvöld að risastór viðfangsefni væru fram undan. Þau fælust í því að byggja upp nýtt félagslegt hús- næðiskerfi, lengja fæðingarorlof, endurskoða skatta- og bótakerfi og bæta lífskjör tækjulægri hópa. Auk þess sem bæta þurfi samfélagslega innviði. Katrín sagði að 100 ára full- veldissaga Íslands væri saga fram- fara og í raun væri allt svo gjör- greipum fíknar og ástvini þess vanmáttuga. Hún sagði hvert líf vera mikils virði og hafa tilgang. Guðni sagði samfélag á Ís- landi miklu líf- vænlegra frá vöggu til grafar en það hefði verið fyrir 100 árum. Hann varaði við því að gleyma því sem miður fór og minnti á að fátæktar og misréttis gætti enn á Íslandi. Hann benti einn- ig á að í landi velmegunar væru sjálfsvíg helsta dánaorsök ungra karlmanna og of mörg börn yrðu háð fíkniefnum og ávanalyfjum. Orðrétt sagði Guðni „Við megum ekki bara leyfa þeim að falla, æskufólki sem á skilið aðstoð og von.“ Guðni velti upp þeirri spurningu í ávarpinu á nýárs- dag hvort þjóðin hefði misst sjónar á góðum gildum í ys og þys nútímans og benti á að kulnun, kvíði, streita og stress hefði laskað líf of margra. Hann sagði það ekki lengur æðsta allra dyggða á Íslandi að vinna myrka á milli og „skaffa vel“. Virða á ólík sjónarmið Guðni benti á það að þrátt fyrir blikur á lofti og dökkt útlit farnaðist mannkyninu í heild betur nú en nokkru sinni fyrr. Guðni telur fram- tíðina farsæla ef þjóðin hrekist ekki af braut manngæsku, hugvits, vís- inda og rökhyggju. Lokaorð Guðna til þjóðarinnar voru þau að allir væru mannlegir og ættu að reyna að hlúa að því sem mestu skiptir, heill fólks og vellíðan. Í nýárspredikun sinni sagði Agnes þörf á því að fólk vand- aði sig, hlustaði á og virti ólík sjónar- mið og að almenningur legði sitt af mörkum og tæki þátt í umræðunni. Hraðinn ógnar samfélaginu  Forsætisráðherra, forseti og biskup samhljóma í áramótaávörpum  Ekki leng- ur dyggð að vinna myrkranna á milli  Segja virðingu og samhjálp nauðsynlega Guðni Th. Jóhannesson Katrín Jakobsdóttir Agnes M. Sigurðardóttir Það var í nógu að snúast hjá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu um ára- mótin og komu 110 mál inn á borð lögreglu frá klukkan hálfsex á gaml- árskvöld til klukkan ellefu á nýárs- dag. Þá urðu fangageymslur lög- reglustöðvarinnar við Hverfisgötu og við Flatahraun fullar, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Lögregla var meðal annars kölluð til vegna hópslagsmála í Árbæ og voru þrír karlmenn handteknir. Leigubílstjóri óskaði eftir aðstoð lögreglu þar sem honum tókst ekki að vekja farþega. Lögreglan vakti viðkomandi sem hélt leiðar sinnar eftir viðræður við lögreglu. Kona veifaði lögreglu eins og hún væri í vanda stödd. Ljóst var að hún var undir áhrifum og fór hún fram á að lögreglumennirnir skutluðu henni heim. Þegar henni var vísað á leigu- bíla æstist hún og hóf að sparka í lögreglubifreiðina. Konan var því handtekin. Ofbeldi og ölvun í borginni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.