Morgunblaðið - 02.01.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.01.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019 Vertu viðbúinn vetrinum LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Nøsted Kjetting as Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Ný hönnun Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skólamaður Hættum að velta okkur upp úr draugum fortíðarinnar, segir Steinn Jóhannsson, rektor MH. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Við eigum að draga framfleiri fréttir af því jákvæðasem er að gerast í sam-félaginu, til dæmis afrek ungs fólks á sem flestum sviðum mannlífsins. Jafnframt er mikilvægt að við lifum í núinu og hættum að velta okkur upp úr draugum for- tíðarinnar sem oft vill einkenna okk- ur Íslendinga,“ segir Steinn Jóhannsson, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð. Góð menntun er alþjóðlegt vegabréf Stjórnvöld og ekki síður al- menningur ættu, segir Steinn, að beina sjónum sínum að unga fólkinu sem eru framtíðin. Styðja sem allra best við unga fólkið í námi og ekki síður þegar það kemur út á vinnu- markaðinn þegar námi lýkur. „Góð menntun er eins og al- þjóðlegt vegabréf sem veitir fólki tækifæri hvar sem er í heiminum og ég hef á tilfinningunni að unga fólki sé að nýta sér það í auknum mæli. Ég hef haft á orði við nemendur að það sé erfitt hlutskipti að lifa í nú- tímasamfélagi án menntunar. Það er gott að hafa í huga fullyrðinguna að menntun er einn margra þátta sem eru lykillinn að árangri í lífinu,“ seg- ir rektor MH. En hvað er mikilvægast fyrir ís- lenskt samfélag á árinu 2019? Steinn Jóhannsson segir nauðsynlegt að sátt ríki á vinnumarkaði; samtök at- vinnulífsins og launþegahreyfingin nái sem fyrst saman í þeim kjara- viðræðum sem nú eru í gangi. Slík sátt hefði jákvæð áhrif á samfélagið og yki bjartsýni á öllum sviðum mannlífsins. „Einnig tel ég mikilvægt að hlúa vel að innviðum samfélagsins og stoðum velferðarinnar; það er heilbrigðis- og ekki síður mennta- kerfið. Tryggjum að allir landsmenn hafi aðgengi að heilbrigðisþjónustu og menntun sem er í fremstu röð. Um leið og ég segi þetta þá á ég við að stjórnvöld úthluti jafn miklu fjár- magni til þessara málaflokka og þekkist í þeim löndum sem við ber- um okkur saman við,“ segir Steinn og heldur áfram: Alþingi á fyrri stall „Mér finnst líka skipta máli að fundnar verði lausnir sem geri ungu fólki auðveldara að eignast eða leigja húsnæði. Ungt fólk býr æ lengur í foreldrahúsum vegna þess að það hefur ekki efni á að kaupa sér eða leigja húsnæði og það er ekki já- kvæð þróun. Einnig finnst mér skipta máli að Alþingi sýni vönduð og fáguð vinnubrögð og þeir sem veljast þangað inn tali af virðingu og ábyrgð. Þá fyrst mun Alþingi kom- ast á stall fyrri virðingar.“ Hvað er mikilvægast í íslensku samfélagi á nýju ári? Hvert eiga stjórnvöld og almenningur að beina sjónum sínum svo að þróunin verði jákvæð? Hverjar eru stefnur og straumar? Viðmælendur Morgunblaðsins nefndu menntun, stjórnmál, umræðuhefð og skemmri vinnutíma. Lykill að árangri í lífinu „Mikilvægasta verkefnið á kom- andi ári er að sátt náist á vinnu- markaði og að kjarasamningar takist fljótt og vel. Helst vildi ég sjá kjör hinna lægst launuðu batna og að launabil minnki,“ segir Katr- ín Sigurjónsdóttir, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð. Umhverfismál í víðum skilningi telur hún þurfa að vera í öndvegi. Vernda þurfi vin- sæla ferðamannastaði fyrir ágangi og grípa til aðgerða gegn upp- kaupum erlendra auðmanna á jörðum og landsvæðinu. Sömuleið- is þurfi að vinna gegn sóun sem kalli á gagnrýna sjálfsskoðun neyt- enda. „Stjórnvöld þurfa að vera trú- verðug og heiðarleg og á Alþingi þarf að skapast traust og vinnu- friður,“ segir Katrín sem vill sömu- leiðis að netmenningin breytist til hins betra. „Þeir sem fara hvað hæst og mest á samfélagsmiðlum eiga frábær sóknarfæri fyrir sinn málstað. Þeir gætu sett sér mark- mið um að rita ekkert á netið sem þeir myndu ekki segja augliti til auglitis við viðkomandi. Það myndi stórbæta samfélagið því aðgát skal höfð í nærveru sálar. Í heild væri þarft fyrir hvern og einn að líta í eigin barm, skoða hvernig hægt er að bæta sig og verða besta útgáfan af sjálfum sér. Ég held að árið 2019 verði frábært.“ Netmenningin þarf að breytast Morgunblaðið/Sigurður Bogi Dalvík Stjórnvöld séu trúverðug, segir Katrín Sigurjónsdóttir. „Ævisaga Michelle Obama, áður forsetafrúar í Bandaríkjunum, sem ber yfirskriftina Becoming situr í mér og skilur eftir sig margar spurningar. Hvernig getum við sem samfélag tryggt öllum sömu mögu- leika og tækifæri?“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. „Sem betur fer er íslenskt samfélag ólíkt því bandaríska, svo sem í heil- brigðis- og mennamálum. Engu að síður búum við í samfélagi þar sem við getum gert betur í því að stuðla að jöfnuði og valdefla minnihluta- hópa. Þessar vangaveltur tek ég með mér inn í nýja árið og ásamt hugmyndum að verkefnum sem finna þarf farveg.“ Í byrjun apríl losna kjarasamn- ingar nær allra aðildarfélaga BSRB og því eru stór verkefni fyrir hönd- um hjá Sonju. Samhliða gerð samn- inga segir hún að ná þurfi sam- komulagi við stjórnvöld um ýmis mál, til að snúa við þróun sem leitt hafi til sífellt aukinnar misskipting- ar. Þar leggi BSRB höfuðáherslu á breytingar á skattkerfinu, jöfnun launa milli almenna og opinbera markaðarins, launaþróun, úrbætur á húsnæðismarkaði og styttingu vinnuvikunnar. „Mikilvægasta verkefnið er að bæta stöðu fólks með lágar og með- altekjur. Tryggja verður að fólk geti lifað af á laununum sínum. Þar hafa ekki bara launahækkanir áhrif heldur ekki síður opinber stuðningur í átt að auknum jöfnuði í samfélaginu,“ segir Sonja og bendir á að á sama tíma og laun þeirra tekjuhæstu hafi hækkað mikið hafi skattbyrðunum hafi ver- ið velt yfir á lágtekju- og milli- tekjuhópana. Skattkerfið sé mikil- vægt jöfnunartæki því eigi ekki að beita eins og framan lýst. Ójöfn- uður ýti undir óstöðugleika, ekki réttlátar kröfur þeirra sem verst hafa kjörin. Stjórnvöld verði á nýju ári að taka skref til friðar og meiri hagsældar. „Stytting vinnuvikunnar hefur verið eitt af meginverkefnum okk- ar hjá BSRB og við erum á því að 2019 verði þar uppskeruár. Með til- raunaverkefnum okkar með ríkinu og Reykjavíkurborg höfum við sýnt fram á kosti þess að stytta vinnu- vikuna í 35 eða 36 stundir. Stytting- in veitir starfsmönnum betri lífs- gæði,“ segir Sonja og heldur áfram. „Á tímum aukningar á sjúklegri streitu, kulnun og nýgengi örorku er til mikils að vinna. Undirstaða góðrar heilsu er að borða hollan mat, sofa nóg og á réttum tíma og hreyfa sig reglulega. Stytting vinnuvikunnar stuðlar að þessu öllu og vonandi getum við sem flest fljótlega farið að hugsa um hvernig við ætlum að nota meiri frítíma.“ Morgunblaðið/Hari Samfélag Hvernig ætlum við að nota meiri frítíma? spyr Sonja Ýr Þor- bergsdóttir, sem á haustdögum var kjörin nýr formaður BSRB. Styttri vinnuvika og meiri jöfnuður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.