Morgunblaðið - 02.01.2019, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.01.2019, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019 Hátíðarhljómar við áramót í Hallgrímskirkju Glaðar Sigrún Svavarsdóttir og Salvör Nordal í Hallgrímskirkju. Listvinir Una Steinsdóttir og Reynir Valbergs mættu á áramótatónleikana. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Halda mætti að Gísli Jóhann Grét- arsson hefði skyndilega sprottið fram; fullskapað tónskáld og stjórn- andi. Það hefur ekki farið mikið fyr- ir Gísla á íslensku listasenunni en hann hefur látið rækilega að sér kveða á undanförnum árum eftir að hafa menntað sig og starfað í Sví- þjóð og Noregi. Meðal nýlegra afreka Gísla má nefna Plastóperuna sem hann samdi í samvinnu við Árna Kristjánsson, verkið „Tröppurnar í París“ sem samið var fyrir Kristján Karl Braga- son og Hafdísi Vigfúsdóttur; og kór- verkið Voiceland sem kammerkór- inn Hymnodia frumflutti á Óperu- dögum fyrir skemmstu. Þá er Gísli um þessar mundir að leggja loka- hönd á verk fyrir sópran, píanó, slagverk og dansara við ljóðið „Du må ikke sove“ eftir Arnulf Øverland og verður það flutt í skólum vítt og breitt um Noreg. „Øverland er nokkurs konar Steinn Steinarr Norðmanna og þurfa öll skólabörn að læra ljóðið hans utan að enda boðskapurinn kröftugur og minnir á að við megum ekki sofna á verðinum gagnvart öllu því slæma sem gerist í heiminum,“ útskýrir Gísli. Í eðlisfræði til að læra eitthvað hagnýtt En áður en lengra er haldið er ágætt að gera grein fyrir því hvar Gísli hefur haldið sig og hvers vegna það er fyrst núna, orðinn hálf- fertugur, að hann þeysir fram á tón- listarsenuna með látum. Sagan hefst á Akureyri, þar sem Gísli byrjaði ungur í gítarnámi og æfði handbolta af kappi eins og flest öll börnin í bænum. „Þetta var gullöld KA,“ út- skýrir hann. „Svo þegar kom að því að fara í menntaskóla afréð ég að klára bæði við eðlisfræðibraut og tónlistarbraut hjá MA, sem er nokk- uð sem ég mæli ekki með að nokkur maður geri,“ segir Gísli, sem lauk burtfararprófi í gítarleik sama ár og hann útskrifaðist úr menntaskóla. „Ég ætlaði mér alltaf að halda áfram með sama hætti, og hugnaðist að vera samtímis í námi í tónlist hjá LHÍ og verkfræðinámi við HÍ, en einhver við Listaháskólann sagði mér að það myndi ekki ganga og væri allt of mikil vinna – svo úr varð að ég valdi Háskóla Íslands frekar og útskrifaðist á endanum með gráðu í eðlisfræði. Fólkið í kringum mig hafði jú brýnt fyrir mér að það væri gáfulegast að læra eitthvað hagnýtt.“ Nema hvað, að þegar liðið var á námið rann upp fyrir Gísla að köllun hans væri í tónlistinni. „Ég tók alla kúrsa í eðlisfræði sem í boði voru en komst svo að því að þetta svið væri einfaldlega ekki fyrir mig.“ Í gegnum frænda sinn, Eyþór Inga Jónsson organista á Akureyri, hafði Gísli heyrt góða hluti um LTU, Tækniháskólann í Luleå í Svíþjóð, og sækir þar um að komast nám í tónsmíðum. „Er skondið að segja frá því að LTU vildi ekki líta við eðl- isfræðigráðunni minni en tók mig inn vegna stúdentsprófsins,“ út- skýrir Gísli. Þegar hér er komið sögu er væntanlega farið að renna upp fyrir lesendum að Gísli á ekki í neinum vandræðum með nám. Hann gerði sér lítið fyrir og lauk 50% fleiri einingum en hann þurfti á hverri önn og kláraði á undraskömmum tíma bæði bachelor- og mast- ersgráðu. „Eftir því sem náminu vatt fram rann það betur upp fyrir mér að það var tónlistin sem hafði haldið mér á lífi í eðlisfræðinni, enda hafði ég verið á kafi í kórastarfi og öðrum tónlistarverkefnum á meðan,“ segir Gísli. Hættulega þægilegt starf á þjóðlagasetri Gísli útskrifaðist frá LTU árið 2012 og var í framhaldinu ráðinn til að stýra þjóðlagasetri í Noregi. „Ég einfaldlega sá starfið auglýst og þótti skemmtilega „absúrd“ að ég skyldi vera ráðinn enda sænsku- mælandi Íslendingur með sáralítið vit á norskum þjóðlögum. Það var samt óneitanlega mikið happ að fá þetta starf strax að náminu loknu og að hafa fastar tekjur. Ég notaði tækifærið til að ljúka ýmsum verk- efnum sem ég hafði byrjað á í há- skólanum en uppgötva síðan árið 2014 að ég átti ekkert eftir til að stússast í. Um þetta leyti rennur upp fyrir mér að það öryggi sem fylgir reglulegum tekjum getur ver- ið hættulega þægilegt og valdið því að maður fer að skapa minna. Ég af- réð því að hætta hjá þjóðlagasetr- inu, byrja að vinna meira sjálfstætt og einbeita mér að tónsmíðum og út- setningum svo ég myndi ekki festast í þægilegheitunum.“ Það var ástin – en ekki hvað – sem síðan leiddi Gísla heim til Íslands. Hann kynntist íslenskri konu í út- landinu og í janúar á þessu ári snéri Gísli aftur til fósturjarðarinnar eftir um það bil ellefu ára fjarveru. Eins og venjulega er Gísli með mörg járn í eldinum: hann er í 75% starfi sem deildarstjóri tónfræðideildar Tón- listarskóla í Reykjanesbæ, er stjórn- andi Árnesingakórsins í Reykjavík og Jórukórsins á Selfossi, og hefur í nógu að snúast við tónsmíðar. Vilja ný verk því allt þetta gamla er á Spotify  Ef til vill má rekja aukinn áhuga á nýjum verkum til þess að allir hafa aðgang að ótæmandi safni tónlistar á netinu  Gísli Jóhann Grétarsson gerði góða hluti erlendis en kemur núna eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf Einnota „Í Noregi eru tónskáld farin að reka sig á alveg nýtt vandamál: að þó svo að mikið sé af peningum til að kaupa ný verk þá virðist minna úr að spila þegar kemur að því að flytja verkin aftur,“ segir Gísli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.