Morgunblaðið - 02.01.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
Eins og við var búist fór lítið fyr-ir braggamálinu í áramóta-
skaupi Ríkissjónvarpsins, enda mál-
ið erfitt samfylkingarflokkunum.
Þetta breytir því þó ekki að málið
er óuppgert og að
enn á eftir að skýra
hlut borgarstjóra og
annarra helstu for-
svarsmanna borgar-
innar. Dugar þar
engan veginn að
einn fyrrverandi
starfsmaður borg-
arinnar, fyrrver-
andi undirmaður borgarstjóra, taki
á sig alla sök.
Í þessum mánuði mun einn sam-fylkingarflokkanna, Píratar,
funda í grasrótinni og taka afstöðu
til málsins. Fróðlegt verður að sjá
með hvaða rökum þessi flokkur
sem jafnan þykist tala fyrir bættum
vinnubrögðum hyggst rökstyðja
áframhaldandi stuðning við borg-
arstjóra.
Samfylkingarflokkurinn Við-reisn hefur reynt að fara huldu
höfði í braggamálinu en gerir sig
ekki líklegan til annars en áfram-
haldandi stuðnings við borgar-
stjóra, sem hlýtur að vera umhugs-
unarvert fyrir þá sem töldu að
flokkurinn gæti, sem ný viðbót, í
það minnsta lagt eitthvað jákvætt
til mála í meirihlutanum.
Braggamálið heldur sem sagtáfram og mun þar engu breyta
þó að borgarstjóri hafi verið settur
í rýnihóp yfir eigin verk og muni
þar leggja hlutlaust og faglegt sam-
fylkingarmat á þau.
Það eina sem sú ráðstöfun skilarútsvarsgreiðendum í Reykja-
vík er að hún er frekari staðfesting
á þeirri yfirgengilegu óráðsíu,
stjórnleysi og feluleik sem við-
gengst í borginni.
Dagur B.
Eggertsson
Feluleikur
um braggamál
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það er fundur hjá Starfsgreina-
sambandinu, SGS, á föstudaginn.
Ég á von á því að Húsvíkingar
skýri afstöðu sína á þeim fundi og
þeir muni greina frá því hvað þeir
eru ósáttir við,“ segir Björn Snæ-
björnsson, formaður SGS. Hann
segir að SGS muni fylgja þeirri
áætlun sem ákveðin hafi verið og
ef félög telji að
þau geti náð
betri árangri
með því að fara í
samstarf með
öðrum þá eigi
þau að gera það.
Björn segir að
fréttatilkynning
samninganefnd-
ar stéttarfélags-
ins Framsýnar
frá 28. desember um að félagið
hafi veitt formanni sínum fullt
umboð til þess að draga samnings-
umboðið til baka frá SGS hafi ekki
komið á óvart.
Fara í annan farveg
eftir vísun
Björn segir ákvörðun Framsýn-
ar engin áhrif hafa á það hvenær
kjaradeilu SGS og SA verði vísað
til sáttasemjara.
„Við vitum ekki á hvaða tíma-
punkti við munum vísa deilunni til
sáttasemjara. En á meðan við get-
um náð árangri með því að halda
fundi með SA þá gerum við það.
Málin fara í annan farveg þegar
búið er að vísa til sáttasemjara.
Vísunin er ekki aðalatriðið heldur
það hvort við getum náð einhverj-
um árangri og á meðan menn
ræða saman er alltaf von á samn-
ingi.“
Fundað meðan hægt er að ná árangri
Formaður SGS reiknar með að Framsýn greini frá óánægju sinni á föstudaginn
Björn
Snæbjörnsson
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Björgunarsveitirnar, eða um 50 til 60
liðsmenn þeirra, aðstoðuðu um 30 til
40 ferðamenn á gamlársdag vegna
þess að þeir óku inn á lokaða vegi.
Fóru þeir inn á umrædda vegi þar
sem þeir vissu ekki betur, annað
hvort vegna þess að lokunarhliðin
voru ófullnægjandi og ná aðeins inn á
hálfan veginn eða þá að þau hafa ekki
verið sett fyrir, segir Jónas Guð-
mundsson hjá Landsbjörg.
Hann segir að stórum aðgerðum
vegna ferða erlendra ferðamanna hafi
þó fækkað og verið fáar árið 2018.
Jónas segir forvarnastarf og upplýs-
ingagjöf hafa skilað töluverðum ár-
angri. „Ef okkur myndi takast enn
betur í sambandi við lokanir á vegum,
þá myndu óþarfa útköll vegna þess
nánast hverfa.“
Tíðarfar
Nákvæmar tölur yfir fjölda útkalla
björgunarsveita fyrir árið 2018 liggja
ekki fyrir. Tölur yfir útköll segja þó
ekki alla söguna útskýrir Guðbrandur
Örn Arnarson hjá Landsbjörg, og
bendir á að það geti verið stök útköll
sem kalla á mikinn mannskap, en
mörg útköll sem krefjist færri við-
bragðsaðila.
Eðli og fjöldi útkalla eru að miklu
leyti háð veðurfari hverju sinni, segir
Guðbrandur og bætir við að „við höf-
um verið mjög heppin undanfarin tvö
til þrjú ár hvað varðar tíðarfar, bæði
að veturlagi og sumarlagi“.
Hann segir slæmt veður yfir sum-
armánuðina 2018 hafa dregið úr ferð-
um um hálendið sem líklega fækkaði
útköllum á þeim árstíma.
Erfiður samanburður
Spurður um atburði á afskekktum
stöðum segir hann eðli þeirra útkalla
mjög misjafnt og vísar til tveggja at-
vika sem gerðust milli jóla og nýárs.
Þá hafi bílslysið við Núpsvötn þar
sem þrír létust og fjórir slösuðust
krafist stórs hluta mannskaps nær-
liggjandi björgunarsveita, en það hafi
þó ekki verið fjölmennt lið.
„Aftur á móti er útkallið sem varð
við Grenivík þar sem stór hluti björg-
unarsveita á Eyjafjarðarsvæðinu var
kallaður til. Þar þurfti rúmlega
hundrað björgunarsveitamenn til
þess að aðstoða tvær konur sem féllu í
bröttu fjalli og slösuðust illa. Þannig
að þetta verður afstætt og erfitt að
bera saman,“ segir Guðbrandur.
Óku um lokaða
vegi á gamlársdag
Útköll björgunarsveita misjöfn