Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019
Veður víða um heim 2.1., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Hólar í Dýrafirði 8 alskýjað
Akureyri 8 alskýjað
Egilsstaðir 4 léttskýjað
Vatnsskarðshólar 7 súld
Nuuk -3 skýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló 0 heiðskírt
Kaupmannahöfn 1 heiðskírt
Stokkhólmur -3 heiðskírt
Helsinki -6 heiðskírt
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 5 heiðskírt
Dublin 6 skýjað
Glasgow -3 heiðskírt
London 5 skúrir
París 6 alskýjað
Amsterdam 6 léttskýjað
Hamborg 3 léttskýjað
Berlín 2 snjóél
Vín 2 snjóél
Moskva -3 snjókoma
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 11 heiðskírt
Mallorca 18 heiðskírt
Róm 10 léttskýjað
Aþena 6 léttskýjað
Winnipeg -15 snjókoma
Montreal -15 skýjað
New York 2 heiðskírt
Chicago 0 snjókoma
Orlando 23 alskýjað
3. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:18 15:48
ÍSAFJÖRÐUR 11:59 15:16
SIGLUFJÖRÐUR 11:43 14:58
DJÚPIVOGUR 10:55 15:09
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á föstudag Sunnan og suðvestan 5-13 og dálítil
rigning eða súld, úrkomulítið á N- og A-landi.
Á laugardag Sunnan 10-15 og víða rigning, en vest-
lægari síðdegis og snjókoma eða él. Kólnandi.
Hægur vindur austantil á landinu, lengst af suðvestan 8-15 m/s. Rigning eða súld með köflum og
hiti 4 til 10 stig, en þurrt norðaustan- og austanlands. Lægir í kvöld.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Aðeins einu sinni hafa fleiri ein-
staklingar fengið úrskurðaða 75%
örorku en árið 2018, en það var
fyrir tveimur árum, 2016.
Sé örorka metin 75% eða meiri
er greiddur fullur örorkulífeyrir
mánaðarlega, sem fer eftir tekjum
og lengd búsetutíma á Íslandi.
Alls fengu 1.619 einstaklingar
úrskurðaða 75% örorku á árinu
sem leið og hækkar þessi tala um
118 frá árinu 2017 þegar alls 1.501
einstaklingar fengu úrskurðaða
75% örorku. Þetta kemur fram í
upplýsingum frá Tryggingastofnun
sem Morgunblaðið hefur undir
höndum.
Hlutfallslega færri öryrkjar
Eins og sjá má af grafinu til
hliðar hefur nýgengi örorku aukist
jafnt og þétt sl. nokkur ár og hef-
ur raunar gert það lengra aftur í
tímann, samkvæmt eldri tölum.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Margrét Jónsdóttir hjá Trygg-
ingastofnun (TR) þessar tölur þó
ekki segja alla söguna þar sem
hlutfall öryrkja af Íslendingum á
aldrinum 18-66 ára hafi lækkað úr
8,2% árið 2017 í 8,1% árið 2018.
Samt sem áður má tala um
nokkuð stöðuga fjölgun Íslendinga
í hópi öryrkja en sem dæmi töldu
öryrkjar um 7% af fjölda Íslend-
inga á sama aldursbili árið 2009.
Spurð um þetta segir Margrét
nú einfaldlega vera fleiri umsóknir
um örorku en það sem áður var og
nefnir að úrskurðir um örorku
vegna geðraskana hafi aukist á
seinustu árum, en sem dæmi voru
þeir alls 501 á seinasta ári.
Fleiri eru í virkni
Margrét segir þó jákvætt að nú
séu fleiri sem nýti sér endurhæf-
ingarrúrræði heldur en áður. Hún
nefnir að árið 2018 hafi fleiri verið
með endurhæfingarlífeyri heldur
en nokkru sinni fyrr, og það sé já-
kvætt í ljósi þess að fleiri séu því í
virkni.
Hún telur að vinna TR við að
beina fólki frekar í endurhæfing-
arúrræði heldur en beint á ör-
orkubætur hafi valdið því að þrátt
fyrir að öryrkjum hafi fjölgað á
síðustu árum hafi nú hægt á fjölg-
uninni, en eins og áður segir voru
8,1% Íslendinga öryrkjar árið 2018
en 8,2% árið 2017.
„Flestir sem nú eru á örorku-
bótum hafa farið í gegnum ein-
hvers konar endurhæfingarferli,“
segir Margrét og bendir á að ein-
ungis þeir sem eru með alvarleg-
ustu sjúkdómana fari á örorkubæt-
ur.
Sem fyrr er hlutur kvenna
stærri en karla í hópi öryrkja, en
sem dæmi voru 10,2% kvenna á Ís-
landi öryrkjar í desember 2018, en
6,1% karla og er það svipað og
verið hefur seinustu ár. Margrét
segir að ekki liggi fyrir rannsóknir
eða greiningar á því hvers vegna
kynjaskipting er með þessu hætti.
Morgunblaðið/Valli
Landinn 8,1% landsmanna eru öryrkjar, samkvæmt nýjustu tölum.
Hægði á fjölgun
öryrkja í fyrra
Aðeins einu sinni hafa nýir öryrkjar verið fleiri en 2018
Nýgengi örorku* 2009 til 2018
2.000
1.500
1.000
500
0
2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Heimild: Tryggingastofnun
1.525
1.243
1.162
1.272 1.254 1.233
1.469
1.790
1.501
1.619
* Fjöldi einstaklinga sem úrskurðaðir
eru með 75% örorku
Öryrkjar á Íslandi
» Flestir sem fengu úr-
skurðaða 75% örorku í fyrra
þjáðust af geðröskun og næst-
flestir af stoðkerfissjúkdóm-
um.
» 729 örorkulífeyrisþegar fóru
í fyrra yfir á ellilífeyri og 181 í
hópnum lést.
» 18.220 fengu greiðslu vegna
örorkulífeyris í desember.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ungmenni á aldrinum 13-19 ára sem
vinna mikið með skóla eru líklegri til
að finna stundum eða oft fyrir til-
teknum tegundum stoðkerfisverkja,
þ.e. verkjum í vöðvum og liðum, í
hálsi og herðum og í baki auk vöðva-
bólgu, en þeir sem ekki vinna með
skóla. Þetta er meðal þess sem fram
kemur í rannsókn Margrétar Ein-
arsdóttur, ný-
doktors í félags-
fræði við Háskóla
Íslands, en niður-
stöðurnar eru
hluti nýdoktors-
rannsóknar henn-
ar. Stoðkerfis-
verkir á unglings-
árum geta verið
fyrirboði stoð-
kerfisvandamála
á fullorðinsárum
og eru meðal algengra orsakaþátta
örorku, sérstaklega meðal kvenna.
„Ég skoðaði þetta aðeins í dokt-
orsritgerðinni minni og er nú að fá
sömu niðurstöður. Það styrkir fyrri
niðurstöðuna, en sú rannsókn var
lögð fyrir rétt fyrir hrun,“ segir Mar-
grét, en niðurstaðan verður kynnt á
líf- og heilbrigðisvísindaráðstefnu
Heilbrigðisvísindasviðs HÍ sem fram
fer í dag og á morgun.
„Í millitíðinni hafa orðið breyt-
ingar á vinnumarkaði og breytingar á
því hvað þau vinna við, þessir krakk-
ar, og niðurstaðan bendir til þess að
þessi tengsl séu nokkuð stöðug,“ seg-
ir hún.
„Það sem niðurstaðan leiðir
einnig í ljós er að það er þörf á frekari
rannsóknum, þ.e.a.s. það þarf að
kanna betur hvað skýrir þessi
tengsl,“ segir hún.
Rúm 50% unnu með skóla
Í rannsókn Margrétar kom fram
að 51,3% svarenda unnu með skóla
veturinn 2017-2018 og hlutfall þeirra
sem unnu í meira en tólf klukku-
stundir á viku að jafnaði var 40,6%.
Þrír fjórðu voru í fastri vinnu en
fjórðungur vann af og til. 80,1% svar-
enda var í vinnu sumarið 2017. Mar-
grét segir að til að byrja með sé t.d.
blaðburður algeng atvinna hjá
strákum og barnapössun hjá stelpum
þótt dregið hafi úr þessu, en síðar
starfi ungmenni t.d. á veitingahúsum,
skyndibitastöðum og í stórmörk-
uðum. Tæplega fimmtungur svar-
enda vann við fleira en eitt starf með
skóla og verslunarstarf var algeng-
asta aðalstarfið, eða í 42,7% tilvika.
Tæpur þriðjungur svarenda
hafði fengið vinnuverndarfræðslu í
skóla og 14,6% þeirra sem unnu með
skóla fengið öryggisþjálfun í vinnu
sinni. Um 40% ungmennanna báru
kennsl á einhverja slysaógn í aðal-
vinnunni með skóla, 25,9% eina teg-
und og 14,9% tvær eða fleiri tegundir.
Sjötta hvert ungmenni hafði lent í
vinnuslysi samkvæmt rannsókninni
og 7,4% þeirra voru svo alvarleg að
ungmennið var frá vinnu lengur en í
eina viku.
Þörf fyrir fræðslu og þjálfun
Af niðurstöðunni eru dregnar
þær ályktanir að bæta þurfi vinnuað-
stæður íslenskra ungmenna þannig
að þær ýti ekki undir stoðkerfisverki
og sérstaklega þurfi að huga að
vinnuaðstæðum stúlkna og þáttum
sem ýti undir bakverki. Margrét seg-
ir að margt megi gera til að bæta úr,
t.d. þurfi að bæta fræðslu og þjálfun.
„Niðurstöðurnar sýna að bakverkir
tengjast mikilli vinnu, bæði hjá stelp-
um og strákum. Það er mjög auðvelt
að koma í veg fyrir álag á bak í vinnu,
t.d. með því að kenna vinnustellingar
og vera með hjálpartæki þannig að
fólk sé ekki að lyfta og bera þunga
hluti. Þetta kostar lítið sem ekkert.
Rannsóknir mínar sýna líka að það
vanti meiri fræðslu og meiri þjálfun.
Atvinnurekendur bera mikla ábyrgð
á því að starfsfólk þeirra komi heilt
heim, en við sem samfélag berum líka
mikla ábyrgð á ungu fólki. Við viljum
ekki að börnin okkar tapi heilsunni í
vinnu,“ segir hún.
„Við viljum ekki
að börnin okkar
tapi heilsunni“
Ný rannsókn varpar ljósi á tengsl
vinnu með skóla og stoðkerfisverkja
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vinna Rúm 50% svarenda unnu
með skóla síðasta vetur.
Margrét
Einarsdóttir
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
NÝR
BÆ
KLINGUR