Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Plokk er að mestu voríþrótt en tíðin
hefur að undanförnu verið mjög góð
og því er mikill gangur í mönnum og
margir að tína rusl,“ segir Einar
Bárðarson, stofnandi Facebook-
hópsins Plokk á Íslandi.
Víða má nú á opnum svæðum sjá
rusl eftir nýliðin áramót, s.s. umbúð-
ir af skoteldum og skottertum, og
hvetur meðal annars Reykjavíkur-
borg íbúa til að taka til hendinni í
sínu nánasta umhverfi. Starfsmenn
hverfastöðvanna verða á ferðinni í
einhverja daga og sjá þeir um að
hirða skoteldarusl á þeim svæðum
sem auglýst voru sérstaklega sem
skotsvæði í borgarlandinu. Þeir
munu hins vegar ekki fara inn í
íbúðagötur eða á einkalóðir. „Mikil-
vægt er að allir leggist á eitt og íbúar
hreinsi upp sjálfir leifar af skoteld-
um í sínu nánasta umhverfi,“ segir í
tilkynningu sem birt er á heimasíðu
Reykjavíkurborgar.
Óskiljanlegt viðhorf hjá fólki
Á áðurnefndri síðu plokkara er að
finna ljósmyndir sem sýna afrakstur
plokkferða fólks og eru margir
plokkarar að fylla fjölmarga stóra
ruslapoka af drasli eftir eina ferð.
„Það er í raun óskiljanlegt að fólki
finnist eðlilegt að skilja þetta drasl
eftir á víðavangi. Skoteldarusl fýkur
vanalega ekki, því það safnar svo
miklum raka, svo það fer ekki úr
augsýn. En það er auðvitað ekkert
betra að láta þetta fjúka,“ segir Ein-
ar og bendir á að skoteldarusl þurfi
sérmeðferð og því má t.a.m. ekki
henda skoteldatertum í tunnur fyrir
pappír og pappa.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sorpu eiga leifar skotelda að fara í
gám fyrir blandaðan úrgang á
endurvinnslustöð. Ónotaðir skot-
eldar og skottertur flokkast aftur á
móti sem spilliefni og fara í tilheyr-
andi spilliefnagáma, en ekki í ruslið.
Þá eiga stjörnuljós að fá sömu með-
höndlun og aðrir málmar. Nánari
upplýsingar um flokkun á jólarusli,
allt frá mandarínukössum yfir í jóla-
seríur og lítt eftirsóttar jólagjafir,
má finna á heimasíðu Sorpu.
Stór plokkdagur í apríl
Dagur jarðar verður haldinn 22.
apríl næstkomandi og í fyrra stóðu
plokkarar fyrir hreinsunarátaki á
þeim degi. Í ár segir Einar stefnt að
því að halda eins konar plokkdag
jarðar þann 25. apríl, á sumardaginn
fyrsta. „Þá ætlum við að halda stór-
an plokkdag, það veitir ekkert af
slíku. Sorpblinda er hættulegur
sjúkdómur sem þarf að fá meiri at-
hygli í sínu ráðuneyti,“ segir hann.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt
í plokkdeginum stóra í apríl geta
fundið nánari upplýsingar um þann
viðburð á Facebook-síðunni „Plokk á
Íslandi“.
Fólk verður sjálft að koma
leifum skotelda í tunnuna
Plokkarar hafa verið iðnir við tínslu undanfarið Borgin hreinsar ekki hverfin
Morgunblaðið/Hari
Sóðaskapur Á Eskitorgi í Hlíðahverfi má sjá stóran haug skotelda og eiga kaupendur þeirra að sjá um förgun.
„Á heildina litið
var salan eitthvað
minni nú en í
fyrra. En þetta er
svo sem ekkert
öðruvísi sveifla en
við höfum áður
séð; sala fer upp
hjá einni sveit en
niður hjá ann-
arri,“ segir Jón
Svanberg Hjart-
arson, framkvæmdastjóri Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar, og
vísar í máli sínu til sölu skotelda fyr-
ir nýliðin áramót. Landsmenn munu
áfram geta keypt skotelda um
helgina fyrir þrettándann. „Hann
gefur auðvitað vel líka en ekkert í
líkingu við hitt,“ segir Jón.
Björgunarsveitirnar buðu nú í
fyrsta skipti upp á nýjan valkost um
áramótin; svokallað rótarskot sem
gefur af sér tré sem plantað er með
stuðningi Skógræktarfélags Íslands.
Jón segir 15.000 gjafaöskjur með
rótarskoti hafa verið búnar til fyrir
áramótin og seldust þær vel.
„Það var mjög vel tekið í þetta, í
raun mun betur en ég átti fyrst von
á. Við létum búa til 15.000 umslög
með táknrænu tré í og fóru þau
næstum öll af lagernum okkar. Við
höfum samt ekki fengið endanlega
sölutölu, en það seldust mörg þús-
und rótarskot,“ segir hann.
Þá eru um 10 manns sagðir hafa
leitað á slysadeild eftir skotelda-
óhapp um áramótin, en að sögn Jóns
var ekki tilkynnt neitt alvarlegt flug-
eldaslys. khj@mbl.is
Mörg rótar-
skot seldust
um áramót
Jón Svanberg
Hjartarson
Aðeins minni skot-
eldasala í ár en í fyrra
Lögreglan hefur tekið skýrslu af
ökumanni jeppans sem fór í gegn-
um vegrið á brúnni á Núpsvötnum
á milli og jóla og nýárs með þeim
afleiðingum að tvær konur og ungt
barn létust. Áður hafði verið tekin
skýrsla af farþeganum sem lifði en
hann er bróðir ökumannsins.
„Það tókst ekki í fyrstu tilraun að
tala við ökumanninn,“ sagði Oddur
Árnason, yfirlögregluþjónn lögregl-
unnar á Suðurlandi. Oddur segir
það ekki tímabært að segja til um
hvernig framburður ökumannsins
var eða hvað kom fram í honum.
„Það er svo sem bara innlegg í
rannsóknina.“
Ástand ökumannsins er talið vera
stöðugt. Fregnir sem mbl.is bárust
herma að ökumaðurinn sé ekki á
gjörgæsludeild heldur sé kominn á
legudeild heila-, tauga- og bækl-
unarskurðdeildar. Það hefur þó
ekki fengist staðfest.
Eiginkonur bræðranna létust í
slysinu sem og 11 mánaða gömul
stúlka. Þá slösuðust tvö börn, sjö
ára og níu ára.
Skýrsla hefur verið
tekin af ökumanni
„Innlegg í rannsóknina“ segir lögregla
Str.
38-58
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
ÚTSALAN ER HAFIN
30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum
30-50%afsláttur
ÚTSALA
Ein sú magnaðasta
Jakkaföt
Stakir jakkar
Kakí- og flauelsbuxur
Stakar buxur
Skyrtur
Frakkar
Yfirhafnir