Morgunblaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 Ánýju ári er algengt aðfólk setji sér markmið ogoft tengjast þessi mark-mið heilsu og líðan – þ.e. áætlun um að bæta heilsu sína. Regluleg hreyfing er einn af mikil- vægustu áhrifaþáttum heilbrigðis og með því að stunda hreyfingu sem hentar er bæði hægt að koma draga úr líkum á vissum sjúkdóm- um. Einnig er hægt að stemma stigu við áframhaldandi þróun sjúkdóma eða sjúkdómseinkenna. Lífsstílssjúkdómar valda flestum dauðsföllum Talað hefur verið um faraldur lífsstílssjúkdóma á Vesturlöndum en slíkir sjúkdómar valda nú þegar 86% allra dauðsfalla í Evrópu. Hreyfingarleysi er einmitt einn af áhættuþáttum algengra sjúk- dóma. Því er hreyfingin nauðsyn- leg sem meðferð eða hluti með- ferðar við þessum sjúkdómum. Þróaðar hafa verið ýmsar aðferðir til að beita hreyfingu sem meðferð hjá þeim sem á því þurfa að halda. Er hreyfiseðillinn eitt af þeim meðferðarúrræðum sem heilbrigð- isstarfsmenn nota til að meðhöndla hina ýmsu sjúkdóma. Takast á við bætt heilbrigði og líðan Frá því um áramótin 2016-2017 hefur hreyfiseðill verið í boði á öll- um heilbrigðisstofnunum landsins og á nánast öllum heilsugæslum á höfuðborgarsvæðinu. Ef heilbrigðisstarfsmaður telur að hreyfing ætti að vera hluti af meðferð við sjúkdómsástandi þá er hreyfiseðill eitt af þeim úrræðum sem einstaklingurinn ætti að nýta, til að bæta heilbrigði sitt og líðan. Heilbrigðisstarfsmaðurinn skrifar út hreyfiseðil og bókar viðtalstíma hjá hreyfistjóra, sem er sjúkra- þjálfari og starfar á heilsugæsl- unni. Í þessu viðtali er farið yfir ástand einstaklingsins og bæði möguleikar og geta til hreyfingar metin og rædd í sameiningu. Í flestum tilfellum er framkvæmt 6 mínútna göngupróf. Einnig setur einstaklingurinn sér markmið og hreyfiáætlun er útbúin, yfirleitt til þriggja eða sex mánaða. Hreyfiáætlunin byggist á áhuga, getu og bestu þekkingu um magn, ákefð og tímalengd þeirrar hreyf- ingar sem mælt er með sem með- ferð við einkennum og/eða sjúk- dómi viðkomandi. Sem dæmi má nefna að ráðlögð hreyfing við til dæmis þunglyndi er alls ekki sú sama og fyrir einstaklinga með hækkaðan blóðþrýsting. Viðkomandi skráir síðan hreyf- ingu sína rafrænt, en einnig er hægt að hringja í ákveðið síma- númer og þá skráist hreyfingin inn á hreyfiáætlun einstaklings- ins. Með þessu fyrirkomulagi á skráningu hreyfingarinnar gefst tækifæri til að fylgjast með hvernig gengur miðað við mark- miðin sem sett voru. Hreyfi- stjórinn fylgist þannig með fram- vindu og gangi mála, veitir aðhald og hvatningu með símtölum og tölvupóstum. Lífsstíll skapar sjúkdóma Við lok meðferðar tekur hreyfi- stjóri saman greinargerð þar sem lagt er mat á árangur meðferðar- innar og greinargerðinni er komið til annarra meðferðaraðila. Hver ávísun hreyfiseðils getur varað í allt að eitt ár en auðvitað er hægt að fá hreyfiseðil úthlutaðan oftar en einu sinni. Við hvetjum þig sem ert að glíma við sjúkdóms- ástand þar sem regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif að ræða við þinn lækni, hjúkrunar- fræðing, sálfræðing eða sjúkra- þjálfara um möguleika hreyfiseðils fyrir þig. Dæmi um slíkt sjúk- dómsástand er hár blóðþrýstingur, fullorðinssykursýki, ofþyngd, lang- vinnir verkir, depurð, kvíði og streita. Ábyrgð á heilsu með eigin atorku Morgunblaðið/Ásdís Sundlaug Að vera í vatni skapar vellíðan og sundtökin eru góð alhliða hreyfing sem reynir á flesta vöðva líkamans. Hreyfing Misjafnt er hvað hverjum og einum hentar þegar kemur að því að stunda útivist og hreyfingu. Sumir vilja hjóla en aðrir kjósa að hlaupa. Hér mætast rauður og gulur á Seltjarnarnesinu, en hvert leiðin liggur er óljóst. Heilsuráð Auður Ólafsdóttir verkefnisstjóri Hreyfiseðils í þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Sara Rós Jakobsdóttir, dansari úr Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar, er íþróttakona Hafnarfjarðar 2018 og Axel Bóasson, kylfingur frá Golf- klúbbnum Keili, íþróttakarl Hafnar- fjarðar. Afrekslið Hafnarfjarðar 2018 er meistaraflokkur karla og kvenna í frjálsum íþróttum hjá FH. Val á þessu var kynnt rétt fyrir áramót þegar fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar afhentu viðurkenningar til íþróttafólks í bæn- um. Hátt í 500 manns var veitt viður- kenning á hátíðinni. Þar var jafnframt úthlutað 20 milljónum króna úr sjóði sem Rio Tinto á Íslandi, ÍBH og Hafnarfjarðarbær standa að til efl- ingar íþróttastarfi 18 ára og yngri. Meðal þessa hóps er góð þátttaka í íþróttastarfi, það er í Haukum, FH og Björk. Fleiri félög mætti tiltaka. Íþróttamenn í Hafnarfirði Dansari og kylfingur best Afreksfólk Sara Rós Jakobsdóttir og Axel Bóasson eru í fremstu röð. Bjarki Baldvinsson knattspyrnumað- ur og Dagbjört Ingvarsdóttir knatt- spyrnukona voru kjörin íþróttamaður og -kona Völsungs á Húsavík fyrir ár- ið 2018 á samkomu sem félagið stóð fyrir á dögunum. Bjarki var fyrirliði meistaraflokks Völsungs og fór fyrir sínu liði með góðri spilamennsku en Völsungur stóð sig vel í 2. deildinni sl. sumar. Bjarki lagði upp mörk fyrir félaga sína ásamt því að skora 5 sjálfur í 23 leikjum sínum í deild og bikarkeppni. Dagbjört er 22 ára og hefur spilað með Völsungi allan sinn feril. Hún hefur spilað 94 leiki með meistara- flokki og skorað 13 mörk. Dagbjört þykir vera kraftmikill leikmaður, með góðan góðan leikskilning og vera metnaðarfull. Hún er lykilmaður í Völ- sungsliðinu. Öflugir Völsungar á Húsavík Bæði í boltanum Völsungar Bjarki Baldvinsson og Dagbjört Ingvarsdóttir eru sigursæl. Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.