Morgunblaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Í fyrra bárust lögreglunni 285 leitarbeiðnir vegna týndra barna. Árið á undan voru beiðnirnar 249 og árið þar á undan 190 svo aukn- ingin er umtalsverð. Tuttugu ein- staklingar eru með fjórar leitar- beiðnir eða fleiri á árinu en Guðmundur Fylkisson, aðalvarð- stjóri hjá lögreglunni á höfuðborg- arsvæðinu, segir hópinn hafa tekið vaxtarkipp í fyrra. „Í þrjú ár hefur þetta verið nokk- uð stöðugt. Þótt fjöldi leitarbeiðn- anna hafi verið svolítið misjafn þá var hópurinn, einstaklingarnir, sá sami, þeir voru bara rétt um átta- tíu. Nú er hópurinn orðinn stærri, um hundrað einstaklingar.“ Þrjú dauðsföll ástæðan Fyrsta nóvember 2014 hófst verkefni hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu sem miðaði að því að halda betur utan um leit að týnd- um börnum. Guðmundur hefur sinnt verkefninu frá upphafi og er það hans aðalstarf. Starf hans varð til af sorglegri ástæðu. „Árið 2014 dóu þrjár stúlkur og það varð til þess að kerfið fór af stað því eitthvað þurfti að gera. Ein af þessum stúlkum dó þremur dög- um fyrir sextán ára afmælið sitt.“ Guðmundur er ekki með neitt sérstakt teymi með sér við að leita týndra barna svo verkefninu sinnir hann mestmegnis upp á eigin spýt- ur. Spurður að því hvers vegna hann kjósi að vinna starf sem hljóti að taka mikið á segir Guðmundur: „Þetta er ótrúlega gefandi og það er í raun heila málið.“ Hann segir einnig að það sé sérstaklega gaman að hitta krakka sem hafi náð sér á strik. „En ég hef líka séð krakka sem hafa náð sér á strik en síðan fallið aftur. Það er mjög sárt. En mörg hver komast sem betur fer út og það er það sem gerir þetta starf vinnandi, skemmtilegt og gleðilegt, það er í raun og veru sú endurgjöf sem heldur mér í þessu.“ Af leitar- beiðnunum 285 sem bárust í fyrra voru 111 börn send á meðferðar- stöðina á Stuðlum eftir að þau fund- ust. Árið 2017 voru 84 börn í sömu stöðu. Það gefur til kynna að málin séu ekki einungis að verða fleiri heldur einnig erfiðari. Guðmundur segir að í fyrra hafi verið áberandi að yngri hópur ein- staklinga en áður hafi verið byrj- aður að sprauta sig með fíkniefnum. Þrátt fyrir að svo mörg börn hafi verið vistuð á Stuðlum eftir að þau fundust þá var átján sinnum ekki laust pláss á neyðarvistun Stuðla þegar á þurfti að halda. Ef börn geta ekki farið á Stuðla og geta ekki farið heim eru í raun engin önnur úrræði í boði að sögn Guðmundar. „Ef það er ekki laust þá fara þau heim. Í fyrra gerðist það að stúlka var ekki velkomin heim og ekkert pláss var á neyðarvistun. Þá þurfti ég að láta þessa stelpu labba út eft- ir að ég var búinn að finna hana vegna þess að það voru engin úr- ræði til staðar og það var ekki hægt að skjóta yfir hana neinu skjóls- húsi.“ Guðmundur hefur engar sér- stakar skýringar á því hvers vegna hópurinn fer stækkandi en biðlar til fræðasamfélagsins að rannsaka málið. „Ég er eiginlega byrjaður að kalla svolítið á það að einhver í aka- demíska samfélaginu, einhver í meistara- eða doktorsnámi, fari nú að taka sig til, fái aðgang að gögn- unum okkar og skoði þennan hóp, reyni að skilja hvað er að gerast.“ Umræða um fíkniefni of jákvæð Aðspurður segir Guðmundur að samfélagið geti tekið á þessum vax- andi vanda. „Mér finnst við þurfa að bakka aðeins í þessu samþykki á neyslu, hvort sem um ræðir áfengi eða fíkniefni. Umræðan er of jákvæð um hvort tveggja. Svo er það er þessi hraði í samfélaginu; ég held að fólk mætti gefa sér aðeins meiri tíma hvað fyrir annað. Samveran er oft nóg, að þegja saman. Það þarf ekkert endilega að vera einhver of- boðsleg athafnasemi í kringum það. En það er orðinn svolítill hraði í öllu,“ segir Guðmundur og bætir við að snjalltækjavæðing hjálpi ekki til. „Mér finnst sumir foreldrar taka ranga ákvörðun þegar þau eru að keppast við að börnin þeirra séu með nýjasta og fullkomnasta bún- aðinn. Og foreldrarnir hafa svo ekki hugmynd um hvað unglingarnir eru að gera í símunum sínum.“ Hafa aldrei leitað fleiri barna  285 leitarbeiðnir bárust vegna týndra barna í fyrra  18 sinnum var ekki pláss fyrir börn sem leit- að var að í neyðarvistun Stuðla  Yngri börn en áður farin að sprauta sig með fíkniefnum Morgunblaðið/Árni Sæberg Leitar að týndum börnum Guðmundur Fylkisson segir að börnin sýni honum virðingu og hafi aldrei beitt hann ofbeldi. Leitarbeiðnir vegna barna Fjöldi leitarbeiðna á höfuðborgarsvæðinu árið 2018 Fjöldi leitarbeiðna eftir árum Höfuðborgarsvæð 2015-2018 Fjöldi leitarbeiðna eftir kyni árið 2018 Heimild: LRH 40 30 20 10 0 300 250 200 150 100 50 0 2015 2016 2017 2018 187 190 249 285 121 vegna pilta 164 vegna stúlkna 102 einstaklingar voru á bak við leitarbeiðnir árið 2018 eða 54 piltar og 48 stúlkur Alls 285 jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. Þegar verkefni Guðmundar hófst fyrir fjórum árum var ákveðið að draga verulega úr því að lýsa eftir týndum börnum opinberlega, en mikið var um það áður fyrr. Guðmundur segir að til að byrja með hafi einhverjir krakkanna sem týndust orðið svekktir yfir því. „Þegar við byrjuðum á þessu þá voru krakkar sem kvörtuðu yfir því að ekki hefði verið lýst eftir þeim. Þetta truflaði þau í sínu klifri upp stallana innan unglingahópsins. En ég hef alltaf sagt að þessir krakkar eiga í nægum vanda fyrir og við eig- um að gera allt sem við getum til að leggja ekki meira á þau.“ Börnin hafi þó áttað sig þegar Guðmundur út- skýrði málið en eins og áður hefur komið fram nýtir fólk í misjöfnum erindagjörðum sér slíkar auglýsing- ar gjarnan. Nú er svo komið að sum barnanna gefa sig fram ef þau vita að það verði hugsanlega lýst eftir þeim. „Þau vita alveg hvernig þetta end- ar. Þó þau séu í talsvert mikilli neyslu þá kjósa þau frekar að koma heim eða gefa sig fram, vitandi það að þau verði vistuð uppi á neyðar- vistun, heldur en að fá nafnið sitt og mynd í blöðin.“ Morgunblaðið/Hari Auglýsingar Lögreglan hefur markvisst forðast að lýsa eftir börnum opinberlega síðan verkefnið hófst fyrir fjórum árum. Vildu áður fyrr láta lýsa eftir sér  Horfa á annan hátt á málið í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.