Morgunblaðið - 03.01.2019, Page 34

Morgunblaðið - 03.01.2019, Page 34
BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Fréttirnar voru óljósar í fyrstu en urðu smám saman skýrari: tvær ungar stúlkur á ferðalagi í Mar- okkó höfðu verið myrtar á hrotta- fenginn hátt. Ekki leið á löngu þar til upptökur af glæpnum tóku að birtast á samfélagsmiðlum. Morð- ingjarnir höfðu nefnilega myndað verknaðinn og dreift á netinu. Viðbrögðin voru misjöfn og net- heimar skiptust í tvær fylkingar: annars vegar voru þeir sem töldu mikilvægt að deila efninu og sýna heiminn eins og hann er, sykur- húða ekki hlutina og vekja athygli sem flestra á skelfilegum glæp. Öðrum þótti í hæsta máta óviðeig- andi að dreifa upptökum morðingj- anna sem vildu jú einmitt að flestir sæju glæp þeirra. Atvikið í Marokkó er ekki það fyrsta og alls ekki það síðasta af þessari sort og ekki seinna vænna að reyna að finna svar við spurn- ingunni: á að deila svona efni eða ekki? Hvaða tilgangi þjónar birtingin? Valgerður Jóhannsdóttir, að- júnkt í blaða- og fréttamennsku við stjórnmálafræðideild HÍ, segir samfélagsmiðla hafa breytt því hvernig myndum og upptökum er dreift. Áður hafi hefðbundnir fjöl- miðlar stýrt því hvað væri sýnt og hvað ekki, og kannski gagnlegt að almenningur setji sig í spor rit- stjórnar þegar vega þarf og meta hvort ýta megi á „deila“-takkann. „Því er ekki alltaf auðsvarað hvort rétt sé að sýna eitthvað sem er andstyggilegt. Blaðamaður myndi hugsa sem svo að það megi ekki fegra raunveruleikann og leyna því ef eitthvað er ljótt eða rangt, en það verður líka að huga að hagsmunum fórnarlambanna og aðstandendum þeirra, og hvort myndbirtingin sé líkleg til að hafa einhver áhrif til góðs.“ Í tilviki árásarinnar í Marokkó á Valgerður erfitt með að sjá að dreifing upptökunnar hafi nokkur jákvæð áhrif. Öðru máli gegndi hins vegar um myndina af litla piltinum Alan Kurdi sem drukkn- aði ásamt öðrum flótamönnum á leið sinni yfir Miðjarðarhafið og fannst látinn í flæðarmálinu hjá borginni Bodrum í Tyrklandi. „Sú mynd sýndi hörmungar flóttafólks, hreyfði við allri heimsbyggðinni og hvatti stjórnvöld til aðgerða. Aftur á móti er erfitt að sjá að það breyti nokkru að dreifa myndum og upptökum af morði stúlknanna í Marokkó og virðist slík myndbirt- ing aðallega svala einhverri for- vitni mannskepnunnar eða þörf sumra fyrir að láta ganga fram af sér.“ Valgerður minnir líka á að not- endur samfélagsmiðla eru á marg- an hátt í erfiðari stöðu en blaða- menn og ritstjórar sem geta leitað ráða og stuðnings hjá kollegum sínum, og fá ráðrúm til að vega og meta hvað á erindi við almenning. „Það sem við sjáum á samfélags- miðlum getur jafnvel komið okkur í mikið uppnám svo að okkur líður eins og við verðum að bregðast við þar og þá og deila sem víðast á meðan nánari skoðun gæti leitt okkur að þeirri niðurstöðu að betra væri að láta kyrrt liggja.“ Ofbeldismenn sem sækjast eftir sýnileika Halldóra Þorsteinsdóttir tekur í megindráttum í sama streng og Valgerður. Halldóra er lektor við lagadeild HR og sérfræðingur í fjölmiðlarétti. „Tilgangurinn helg- ar meðalið: ef myndbirting getur varðað almenning miklu með því að koma í veg fyrir frekari brot af þessum toga má færa fyrir því rök að birting og dreifing sé réttlætan- leg. Í tilviki morðanna í Marokkó virðist hins vegar um afmarkað at- vik að ræða, búið að handsama meinta gerendur, og myndbirting virðist aðallega til þess fallin að svala forvitni almennings.“ Mætti jafnvel ganga svo langt að segja að netverjar væru að ger- ast samverkamenn ofbeldisfólks með því að dreifa upptökum af árásum eins og þeim sem stúlk- urnar urðu fyrir í Marokkó. „Ger- endurnir tóku morðin upp af ásetningi og vildu að sem flestir sæju. Þeir sem deila upptökunni eru því orðnir einn lítill hlekkur í keðju sem misindismenn komu viljandi af stað,“ segir Halldóra og minnir á að í mörgum tilvikum sé það einmitt helsti tilgangur fólks sem fremur hörmulega glæpi að öðlast einhverja frægð fyrir verkn- aðinn. „Þetta á við um sum hryðju- verk og fjöldamorð; að gerend- urnir ganga alls ekki heilir til skógar og vilja miklu frekar fá at- hygli og verða alræmdir fyrir fólskuverk sín en vera óþekktir og ósýnilegir.“ Ekki aðeins getur myndbirting veitt illvirkjum þá frægð sem þeir sækjast eftir heldur aukið á skað- ann af verknaðinum. Segir Hall- dóra að fólk verði að muna að sýna aðstandendum nærgætni og fórna ekki reisn fórnarlambsins. „Sem samfélag hljótum við að vilja reyna að draga úr þeim harmi og miska sem svona atvik valda, og hluti af því er að sýna ekki verkn- aðinn ef hjá því verður komist. Ég hugsa að við myndum flest taka undir það að ef við yrðum fórnar- lömb skelfilegs glæps myndum við ekki vilja að upptaka af því væri sýnd um allan heim, nema hugsan- lega ef það gæti komið í veg fyrir fleiri slík tilvik.“ Má lýsa án þess að sýna Þar með er ekki sagt að fólk eigi að þegja og minnir Halldóra á að hægt sé að ræða hlutina og lýsa þeim án þess að þurfa að draga fram innsta kjarna brotsins. Gott dæmi um þetta er morðið á blaða- maninum Jamal Khashogghi í sendiráði Sádi-Arabíu í Istanbúl snemma í október. Þar nægðu lýs- ingar á morðinu til að engum dyld- ist hver konar voðaverk var þar framið. „Við þurfum ekki endilega að sjá upptöku af morðinu eiga sér stað til þess að gera okkur grein fyrir alvöru málsins og eftir atvik- um hvetja til aðgerða. Ég held jafnvel að ef við einmitt horfum ekki á verknaðinn getum við ein- beitt okkur betur að því að rýna í glæpinn og gefið okkur betra ráð- rúm til að bregðast skynsamlega við í stað þess að dvelja of mikið við upptöku eða dreifingu hennar.“ Loks bendir Halldóra á að fólk sem dreifir efni sem sýnir árásir eða slys gæti verið að brjóta lög og þeir sem t.d. aka fram á umferðarslys ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir láta mynd- ir af slysstað út á netið. „Að segja frá slysi getur varðað almanna- hagsmuni en það verður þá að gera það af virðingu og tillitssemi. Að sýna t.d. alvarlega slasaðan eða jafnvel látinn einstakling gæti varðað við lög um persónuvernd enda er verið að birta myndir af einkamálefni sem sá slasaði á rétt á að verði ekki birt,“ segir hún. „Jafnvel þótt slysið sem slíkt telj- ist fréttaefni er ekki þar með sagt að megi birta hvað sem er í frétt- um eða á samfélagsmiðlum. Hér erum við síðan komin á svið nýrra áskorana og vandamála eftir til- komu samfélagsmiðla. Slys sem fyrir nokkrum árum hefði ekki ratað á borð almennings nema vegna fjölmiðla, og þá eftir mat blaðamanns og ritstjórnar á því hvort birta ætti efnið, er núna mögulega sýnilegt öllum nokkrum mínútum eftir að slysið varð, af því að einstaklingur með síma kom á vettvang.“ Hvort á að deila eða ekki deila?  Á tímum samfélagsmiðla er mikilvægt að fara varlega þegar kemur að því að dreifa myndum af slysum, ofbeldi og hryðjuverkum  Sýnileikinn er iðulega það sem hryðjuverkamenn sækjast eftir AFP Halldóra Þorsteinsdóttir Valgerður Jóhannsdóttir Samúð Ungur mað- ur krýpur við blóm- vendi og kerti fyrir utan danska sendi- ráðið í Rabat. Voða- verk var framið í Marokkó og berg- málaði um sam- félagsmiðla. 34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 KIEL/ - OG FRYSTITJEKI ., '*-�-��,�rKu�, æli- & frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla K Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.