Morgunblaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 43
43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019
Klæðlitlar gínur Fólk skundar nú áfram í Kringlunni og á fleiri stöðum þar sem hinar svokölluðu janúarútsölur eru farnar af stað, í von um að ná sér í flík eða annað á góðu verði.
Hari
Áramótaávarp
António Guterres,
aðalframkvæmda-
stjóra Sameinuðu
þjóðanna:
Kæru íbúar
heimsins.
Ég óska ykkur öll-
um gæfuríks, frið-
sæls og happasæls
nýs árs.
Um síðustu ára-
mót gaf ég út alvarlega viðvörun
og þær hættur sem ég nefndi eru
enn til staðar. Við lifum á tímum
þegar margir fyllast angist og
heimurinn okkar undirgengst nú
álagspróf.
Loftslagsbreytingar færast í
aukana og við höldum ekki í við
þær.
Gjá hefur myndast í heims-
málum, og örðugara er að leysa
deilur. Sífellt fleiri taka sig upp í
leit að öryggi og vernd. Ójöfn-
uður fer vaxandi. Og fólk spyr
sig hvernig það megi vera að
örfáir einstaklingar eigi jafn mik-
ið og helmingur mannkyns. Um-
burðarleysi eykst. Traust minnk-
ar.
En það er líka vonarglæta.
Friðarviðræður í Jemen hafa
greitt götu friðar. Samkomulag
sem Eþíópía og Erítrea undirrit-
uðu í Riyadh í september batt
enda á langvinna spennu og boð-
ar betri tíma í heilum heims-
hluta. Og samkomulag á milli
deilenda í Suður-Súdan hefur
aukið líkur á friði. Þar hafa orðið
meiri framfarir á fjórum mán-
uðum en á undanförnum fjórum
árum.
Sameinuðu þjóðunum tókst að
fylkja ríkjum í Katowice sem
samþykktu vinnuáætlun um að
hrinda Parísarsamningnum um
loftslagsbreytingar í fram-
kvæmd. Nú er brýnt að herða
róðurinn til þess að vinna bug á
þessari ógn við tilvist
okkar.
Það er kominn
tími til að nýta síð-
asta besta tækifæri
okkar. Það er kom-
inn tími til að stöðva
stjórnlausa hringiðu
loftslagsbreytinga.
Á undanförnum
vikum hafa Samein-
uðu þjóðirnar haft
umsjón með tíma-
mótasamningum um
málefni farenda og
flóttamanna, sem munu bjarga
mannslífum og eyða skaðlegum
flökkusögum. Og hvarvetna mun
fólk sameinast að baki Heims-
markmiðunum um sjálfbæra þró-
un – vegvísi fyrir frið, réttlæti og
velmegun á heilbrigðri plánetu.
Þegar alþjóðleg samvinna virkar,
er það vatn á myllu alls heimsins.
Sameinuðu þjóðirnar munu
halda áfram árið 2019 að sam-
eina fólk í því skyni að byggja
brýr og hlúa að lausnum. Við
munum halda áfram að beita
þrýstingi. Og við munum ekki
gefast upp.
Nú þegar nýtt ár er í sjónmáli,
skulum við heita því að standa
gegn hættum, verja mannlega
reisn og byggja upp betri fram-
tíð – í sameiningu.
Ég óska ykkur og fjölskyldum
ykkar friðar og góðrar heilsu á
nýju ári.
Eftir António
Guterres
» Það er kominn tími
til að nýta síðasta
besta tækifæri okkar.
Það er kominn tími til
að stöðva stjórnlausa
hringiðu loftslags-
breytinga.
António Guterres
Höfundur er aðalframkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna.
Brýnt að herða
róðurinn gegn lofts-
lagsbreytingumÁ fyrri hluta árs 2014
heimsótti ég Diyarbakir
í suðaustanverðu Tyrk-
landi, borg sem almennt
er litið á sem höfuðborg
tyrkneska Kúrdistan og
er hún kölluð Amed á
kúrdísku. Til skamms
tíma var hvorugt þó til,
hvorki Kúrdistan né
tungumál Kúrda, sam-
kvæmt skilningi yfir-
valda í Tyrklandi.
Svo er enn hvað landfræðiheitið
Kúrdistan áhrærir en hvað tungumálið
snertir þá eru menn ekki lengur fang-
elsaðir fyrir að tala kúrdísku en örfá ár
eru liðin frá því að málið var við-
urkennt þótt ekki njóti það jafnræðis á
við tyrknesku og mönnum leyfist alls
ekki að tala málið á tyrkneska þinginu.
Þíðuskeið 2013-15
Takmarkaðri viðurkenningu á
tungumálinu fylgdi tveggja og hálfs
árs tilraun til sátta á milli tyrkneskra
stjórnvalda og baráttusveita Kúrda á
árunum 2013 til 2015. Þetta þíðuskeið í
samskiptum leiddi til þess að pólitísk
barátta Kúrda fékk á sig friðsamlega
mynd sem leiddi til kosningasigra
þeirra en þá jafnframt ósigurs fylgis-
manna Erdogans, forseta landsins.
Kúrdar fengu 13,12% í þingkosningum
í júní árið 2015 en forsætisráðherrann
missti þá meirihluta sinn. Í borgum og
bæjum var framgangur lýðræðisfylk-
ingar Kúrda, HDP-flokksins, mikill og
komst flokkurinn til valda í fjölda
borga og bæja í suðausturhluta Tyrk-
lands, og vel að merkja, trúir stefnu
sinni um jafnrétti kynjanna voru borg-
arstjórarnir þar sem flokkurinn réð
alltaf tveir, karl og kona.
Svo hófst ofbeldið fyrir alvöru
Við svo búið sleit Erdogan friðar-
ferlinu og hóf að nýju vopnaða baráttu
gegn Kúrdum. Við það vænkaðist hans
hagur á nýjan leik. Harðlínuöflum á
báða bóga óx þá fiskur um hrygg.
Í marsmánuði árið 2014, þegar ég
kom til Diyarbakir, hafði blasað við
mér falleg borg, einkum hinn sögu-
frægi hluti borgarinnar, Sur, sem
Sameinuðu þjóðirnar höfðu mælt fyrir
um að skyldi vera verndað minjasvæði.
Þegar ég hins vegar
kom á sama stað í febrúar
2017 gat að líta aðra og
óhugnanlegri mynd.
Gamli borgarhlutinn hafði
nú verið jafnaður við jörðu
í orðsins fyllstu merkingu.
Með jarðýtum hafði verið
séð til þess að engar minj-
ar um sögufræga fortíð
voru lengur til staðar.
Fólkið sem verið hafði
fullt bjartsýni þremur ár-
um áður var nú dapurt og
beygt en þó ekki bugað.
Í för með mannréttindafólki
Að þessu sinni kom ég til Diyarbakir
í óþökk tyrkneskra stjórnvalda.
Ég var þá í alþjóðlegri sendinefnd
stjórnmálamanna, blaðamanna, rithöf-
unda og mannréttindabaráttufólks og
vorum við að kynna okkur stöðu mann-
réttinda á þessum slóðum. Við vorum
vöruð við því að við gætum komist í
hættu og vestræn tryggingafélög neit-
uðu að tryggja okkur. Einu skiptin
sem við urðum vör við einhverja ógn
var frá hendi tyrkneska hersins og
vopnaðara sveita á hans vegum!
Í þessari ferð hittum við fjöldann all-
an af fólki sem greindi frá grimmileg-
um mannréttindabrotum, drápum,
limlestingum og nauðgunum og rímaði
það vel við það sem við áður höfðum
lesið í skýrslum mannréttindasamtaka
á borð við Amnesty International svo
og í skýrslum Evrópuráðsins sem á
þessum tíma sýndu fram á að hálf
milljón manna væri á faraldsfæti á
flótta undan ofbeldi hersins og víga-
sveita á hans vegum.
Parísardómstóllinn
Í mars á síðasta ári sótti ég síðan
þinghald mannréttindadómstólsins í
París sem starfað hefur frá sjöunda
áratug síðustu aldar og hefur verið
kenndur við heimspekingana Bertrand
Russel og Jean-Paul Sartre. Þessi
mannréttindadómstóll, sem stendur
utan hins alþjóðlega stofnanakerfis, er
engu að síður rekinn á strangfaglegum
forsendum með vitnaleiðslum og síðan
dómurum úr fremstu röð. Að þessu
sinni var dómstólnum ætlað að rann-
saka hvort fyrir því væru óyggjandi
sannanir að tyrknesk stjórnvöld hefðu
gerst sek um stríðsglæpi og mannrétt-
indabrot gagnvart Kúrdum.
Það var áhrifaríkt að fylgjast með
vitnaleiðslunum og síðar sjálfri dóms-
uppkvaðningunni í þingsal Evrópu-
sambandsins í Brussel tveimur mán-
uðum síðar þar sem enginn vafi þótti
leika á að sök væri sönnuð með óyggj-
andi hætti.
Segja frá reynslu sinni
Ég hét sjálfum mér því að fá einhver
vitnanna til þess að koma til Íslands og
segja sína sögu. Úr hefur orðið að
Leyla Imret, sem hrakin var úr emb-
ætti bæjarstjóra vegna andófs gegn
ríkisstjórn Erdogans og flúði síðan
land í kjölfar ofbeldis og fangelsana, og
Faysal Sariyildiz, blaðamaður og þing-
maður, sem sat árum saman í fangelsi
og hefur kynnst hrikalegum mannrétt-
indabrotum af eigin raun, koma til
landsins í vikunni og munu segja frá
sinni reynslu í máli og myndum í
Safnahúsinu að Hverfisgötu klukkan
tólf næstkomandi laugardag. Þarna
verður einnig til svara Fayik Yagizay,
einn helsti talsmaður Kúrda í Evrópu.
Fundurinn stendur í aðeins hálfan
annan tíma að hámarki. Eina sem
þetta fólk biður um er að við hlustum á
hvað þau hafa að segja og eru allir vel-
komnir.
Ein óværan tekur við af annarri
Spenna ríkir nú í Kúrdabyggðum
Tyrklands en þó meira sunnan tyrk-
nesku landamæranna að Sýrlandi. Í
Kúrdabyggðum Sýrlands er nú óttast
að tyrkneskur innrásarher muni enn
láta sverfa að Kúrdum sem nú eru í
þann veginn að hrekja ISIS-óværuna
af höndum sér.
Í febrúar hertóku Tyrkir Afrin í
norðvestri með tilheyrandi ofbeldi og
manndrápum.
Reynslan af Tyrkjaher í ofbeldis-
ham er ekki góð. Í Safnahúsinu á
laugardag verður það sýnt í máli og
myndum.
Eftir Ögmund
Jónasson » Fólkið sem verið hafði
fullt bjartsýni þrem-
ur árum áður var nú dap-
urt og beygt en þó ekki
bugað.
Ögmundur Jónasson
Höfundur er fyrrverandi dómsmála- og
mannréttindaráðherra.
Kúrdarnir koma