Morgunblaðið - 03.01.2019, Page 44

Morgunblaðið - 03.01.2019, Page 44
44 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < DEKKJASALA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum og varahlutum fyrir ameríska bíla. Almennar bílaviðgerðir fyrir ALLAR tegundir bíla BÍLAVERKSTÆÐI SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Það er vel að nú sé búið að gera við legstein Jóns Magnússonar ráðherra í Hólavallakirkjugarði. Betra seint en aldrei. Ég hygg líka að það séu ekki margir lifandi enn sem á eftir að jarð- setja í þeim garði svo að mér finnst sjálfsagt að alfriða hann til þess að forða honum í tíma frá sömu örlögum og Víkurgarður hefur sætt illu heilli og einhverjir kúltúrsnauðir kump- ánar og fjárplógsspekúlantar fari ekki að taka hann undir sig til bygg- inga og svífast einskis í þeim efnum. Það var svo sem auðvitað að jóla- sveinaliðið í ráðhúsinu vildi ekki ansa neinu um friðun Vík- urgarðs og mótmæli því hástöfum. Hrokinn í tilsvörum borgarlög- manns er æpandi og ríður ekki við ein- teyming. Ég bjóst al- veg við þessu. Og nú skal fara að þinglýsa meira en hundrað ára gömlu plaggi undirrit- uðu af Hannesi Haf- stein til þess að undir- strika vald borgar- innar yfir þessum reit og til að eyðileggja Víkurgarð alveg. Það er grátbroslegt, svo ekki sé meira sagt. Eitt vantar þó upp á þetta og það er spurningin um yfirráð kirkjunnar yfir garð- inum. Hafi Hannes ekki fengið þáverandi biskup til að undirrita þetta plagg og staðfesta með því, að Víkurgarður komi kirkjunni ekkert við, þá stendur það eftir óhagg- að, að kirkjan ræður yfir honum eins og öðrum kirkjugörðum. Hvað sem landsyfirvöldum við- kemur þá hefur þjóð- kirkjan samt aldrei mér vitanlega sleppt hendi sinni af Víkurgarði frek- ar en öðrum kirkjugörðum í borginni eða á landinu, þó að illa hafi verið far- ið með hann gegnum aldirnar og það stendur þá eftir. Það sýnir best fá- kænsku jólasveinanna í ráðhúsinu að þau skilja þetta ekki né gera sér grein fyrir þessu og fara svo að æpa á aðskilnað ríkis og kirkju í þessu sam- bandi, svo sem fleiri gera, án þess að gera sér nokkra grein fyrir hvernig þau mál hafa þróast og kirkjan að sínu leyti tiltölulega sjálfstæð stofn- un, ef út í það er farið. Á sama tíma og þetta jólasveinalið í ráðhúsinu heldur sig einrátt um Vík- urgarð eins og þjóðkirkjan sé ekki til sem sjálfstæð stofnun og þurfi ekki undirskrift biskups til afsals á þeim yfirráðum hvorki fyrr né síðar og kirkjan hafi réttilega þess vegna aldr- ei afsalað sér þessum yfirráðum, hvað sem plaggi Hannesar Hafstein líður, þá er greinilegt, að Dagur og kó ætla að vaða yfir þann yfirráðarétt og sölsa hann undir sig án þess að spyrja kóng eða prest, þó að það gangi eng- an veginn, og noti það jafnvel sem af- sökun, að það sé þegar búið að vinna svo miklar skemmdir á honum, að hann sé ekki lengur friðarins virði. Mér finnst líka of seint í rassinn grip- ið í örvæntingu sinni yfir að missa Víkurgarð úr greipum sér og hætta verði á frekari skemmdarverkum í garðinum og þessari fáránlegu hót- elbyggingu þar, að fara með rúmlega 110 ára gamalt, sögulegt plagg til sýslumanns til að láta þinglýsa því. Þá er því næst að spyrja, hvort það sé hægt? Ég leyfi mér að efast um það, en það er gripið til allra hálmstráa, sem hægt er að finna, til að sölsa und- ir sig yfirráðin, hversu vitlaus og úr- elt sem þau eru. Örlög Víkurgarðs í dag eru líka orðin svo ömurleg og slík hörmung, að ég veigra mér orðið við að ganga þar framhjá á leið minni um bæinn, og forðast að koma nokkurs staðar nálægt honum. Ég vona svo sannarlega að ráð- herra láti ekki hrokann og þessa þinglýsingartilraun á sig fá, heldur friði báða kirkjugarðana, sem hér hafa verið nefndir, og sýni þar með hrokagikkjunum í ráðhúsinu jafnt sem öðrum að Alþingi og ríkis- stjórnin eru borgaryfirvöldum æðri, og fari sínu fram í þessu efni, hvað sem plaggi Hannesar Hafstein líður. Kirkjan hefur líka sinn rétt gagnvart Víkurgarði og hefur hvorki fyrr né síðar afsalað sér þeim rétti, sem áður segir, svo að ég vona, að ráðherra friðlýsi báða kirkjugarðana sem fyrst og forði þeim þar með frá algerri eyðileggingu. Það er meira en komið nóg af frekjunni, hrokanum, yfir- ganginum og vitleysunni, sem úr ráð- húsinu kemur. Mælirinn er orðinn meira en barmafullur. Hingað og ekki lengra. Eftir Guðbjörgu Snót Jónsdóttur Guðbjörg Snót Jónsdóttir » Örlög Víkurgarðs í dag eru líka orðin svo ömurleg og slík hörmung, að ég veigra mér orðið við að ganga þar framhjá. Höfundur er guðfræðingur og fræðimaður. Friðum kirkjugarðana Ekki er ég nú vanur að setja mér einhver ákveðin markmið við áramót eða að strengja formleg áramótaheit önnur en þau að reyna jafnvel að verða ögn skárri maður en í fyrra. Ég bið þess gjarnan einnig við ára- mót líkt og daglega að mér auðnist að fá að vera farvegur kærleika Guðs, náðar hans og miskunnar, fyrirgefningar, friðar, fagnaðarerindis og vonar. En um þessi áramót er ein stutt útgáfa af bæn minni að gefnu tilefni eitthvað á þessa leið þar sem mér tekst oft eitthvað svo skelfing illa að lifa lífinu og fylgja hugsjónum mín- um og köllun eftir. Því allt of oft geri ég ekki hið góða sem ég vildi hafa gert og framkvæmi frekar og segi eitthvað miður sem ég hefði alls ekki viljað gera eða segja. Þeir taki undir bæn mína sem finna sig í því. Almáttugi eilífi Guð, höfundur lífs- ins, kærleikans, friðarins og von- arinnar. Þú sem sendir okkur son þinn Jesú Krist til að hughreysta okkur, minna okkur á, hvetja okkur til góðra verka og til að standa með okkur í tímans straumi, miskunna þú mér er ég hrópa á þig af öllum mætti en veikburða rómi, í hálfum hljóðum, vertu mér syndugum náðugur og líknsamur. Hjálpaðu mér nú Guð minn til að líta að- eins inn á við og hugsa minn gang. Hjálpaðu mér að koma fram við samferðamenn mína af virðingu og tillitssemi. Baktala ekki og segja ekkert um einhvern sem ég get ekki sagt við viðkomandi. Minntu mig á að hrokast ekki upp, vera ekki að töffarast eitthvað áfram og leika eitthvað annað en ég er. Veittu mér heldur náð þína til þess að lifa og umgangast fólk og verkefni af auðmýkt og í kærleika. Með því að sjá og hlusta með hjartanu. Sýna skilning á stöðu náungans og um- hverfi og reyna að verða að liði eins og mér frekast er unnt hverju sinni. Þú sem elskar mig og vilt mér allt hið besta, viltu gefa mér heilsu, styrk og þrek til að takast á við dag- ana og verkefni þeirra. Gef að ég geti orðið þér til dýrðar, fólki til blessunar og þannig sjálfum mér til heilla. Blessaðu öll þau sem hallað er á með einum eða öðrum hætti. Vitj- aðu þeirra með þinni líknandi, lækn- andi og lífgefandi umvefjandi kær- leiksríku hendi og tak okkur öll þér í faðm og berðu okkur yfir erfiðu hjallana, skaflana og torfærurnar þegar við virðumst ekki geta meir sem er hreinlega svo oft og iðulega. Blessaðu þau sem mér eru kær- ust, eiginkonu, börn, tengdabörn og barnabörn. Vilt þú vaka yfir lífi þeirra og velferð. Vilt þú umvefja þau hlýju þinni og nálægð og fylgja þeim eftir hvert fótmál. Gefðu að líf okkar allt mætti verða samfelld bæn til þín í lofgjörð og þakklæti. Hvert æðarslag, hver andardráttur, hugs- un og skref. Hjálpaðu okkur öllum að gangast við mistökum okkar. Vera fús til að biðjast fyrirgefningar á verkum okk- ar, orðum og athöfnum. Hjálpaðu okkur einnig að vera ekki langrækin. Heldur tilbúin til sátta og vera reiðubúin að leggja okkar af mörk- um í þeim efnum. Fylltu okkur af fyrirgefandi hugarfari og því að vilja leitast við að vilja standa saman, leggja okkar af mörkum og eiga frumkvæði í því að leitast við að vilja lifa í kærleika, í friði og sátt við alla menn. Já, takk Jesús fyrir lífið. Það ert þú sem gerir það þess virði að vilja halda í það. Þú sem ert fullkomnari lífsins. Þú sem tókst syndir okkar mannanna, brot heimsins og mis- gjörðir á þig og dóst í okkar stað. Reist síðan upp frá dauðum, lifir í dag og tileinkaðir okkur veikum og smáum sigurinn með þér svo við fengjum lifað um eilífð í himneskri dýrð kærleikans þegar líf okkar verður um síðir leyst undan veik- indum, hrörnandi líkama og meng- aðri og sýktri veröld. Minntu okkur daglega á það, lif- andi frelsari. Í Jesú nafni. Amen. Já, dýrð sé Guði föður og syni og heilögum anda svo sem var, er og verður um aldir og að eilífu. Með kærleiks- og friðarkveðju. Lifi lífið! Eftir Sigurbjörn Þorkelsson »Hjálpaðu mér að koma fram við sam- ferðamenn mína af virð- ingu og tillitssemi. Bak- tala ekki og segja ekkert um einhvern sem ég get ekki sagt við hann. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Bæn við upphaf nýs árs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.