Morgunblaðið - 03.01.2019, Side 45
UMRÆÐAN 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Sundföt
fyrir sólarfríið
Mánudaginn 7. janúar á Grand Hótel
Reykjavik kl. 13:00
Málþingið er í samvinnu við samtökin
Betri byggingar þ.á.m..:
Dr. Ólafur H. Wallevik, forstöðumaður Rb á Nýsköpunar
miðstöð og prófessor við HR, fjallar um hvernig við getum
kveðið niður mygludrauginn.
Dr. Johan Mattsson, líffræðingur og einn af stofnendum
Mycoteam í Noregi 1986, tekur fyrir rakaskemmdir og áhrif
þeirra á innivist.
Dr. María Ingibjörg Gunnbjörnsdóttir, lungna og
ofnæmislæknir, fjallar um mögulegar heilsufarslegar
afleiðingar.
Kristmann Magnússon, sérfræðingur við Rb á
Nýsköpunarmiðstöð, tekur fyrir dæmi um rakaskemmdir
og mygluð hús.
Dr. Björn Marteinsson, arkitekt, verkfræðingur og dósent
við HÍ, kynnir vandamál við hönnun húsa og fyrirbyggjan
di aðgerðir.
Alma D. Ívarsdóttir, frá verkfræðistofunni Mannvit, og
Sylgja D. Sigurjónsdóttir, frá verkfræðistofunni EFLA,
kynna ISIAQ (heimssambandið um loftgæði innanhúss).
Dr. Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri og fyrrum
prófessor í byggingareðlisfræði frá KTH, Stokkhólmi, fjallar
um raka og hvað er sérstakt hér á landi.
Pallborðsumræður með þremur læknum:
Ragnhildur Magnúsdóttir, María Ingibjörg
Gunnbjörnsdóttir og Kristín Sigurðardóttir
Rannsóknastofa byggingariðnaðarins Rb, við
Nýsköpunarmiðstofu Íslands heldur málþing um
ÁHRIF RAKASKEMMDA OG
MYGLU Á INNIVIST OG HEILSU
Fyrirlesarar verða m.a.:
Mánudaginn 17. júlí
2017, skrifaði Guðni
Ágústsson fyrrver-
andi þingmaður og
ráðherra grein í
Morgunblaðið, um að
uppbyggður Kjalveg-
ur með bundnu slitlagi
verði líkt og Hval-
fjarðargöngin, settur í
einkaframkvæmd- og
fjármagnaður með
veggjaldi á hvern bíl,
á örfáum árum. Ótímabært er að
þessi vegur sé boðinn út næstu árin
án veðurfarsmælinga sem skipta
miklu máli, í meira en 700 m hæð. Í
þessari hæð yfir sjávarmáli eiga
heilsársvegir ekki heima. Tilraun
til að fjármagna þar svona sam-
göngumannvirki á örstuttum tíma
með innheimtu veggjalda er von-
laus, þó að fyrrverandi landsbyggð-
arþingmaður vilji án árangurs sýna
fram á, að öll meðalumferðin í
Hvalfjarðargöngum flytjist þaðan
yfir á Kjöl, eða Sprengisand. Hér
horfir Guðni Ágústsson fram hjá
þeirri staðreynd að nú týna fjall-
vegir víða um land, tölunni á ill-
viðrasömum og snjóþungum svæð-
um þegar framfarir á sviði
jarðganga aukast. Þessi fyrrver-
andi landsbyggðarþingmaður lætur
sig það engu varða, að ekki er sjálf-
gefið að talsmenn fjárveitinga-
valdsins, hafi áhuga á því að henda
mörg hundruð milljónum króna í
samfelldan snjómokstur, sem
hleypir upp kostnaðinum og er
óframkvæmanlegur í of mikilli veð-
urhæð, á illviðrasömum- og snjó-
þungum svæðum. Þetta vandamál
eyðileggur allar tilraunir einka-
aðila, sunnan og norðan fjalla til að
fjármagna vel uppbyggðan Kjalveg
á enn skemmri tíma en Hvalfjarð-
argöngin þegar yfirstjórn Vega-
gerðarinnar og talsmenn fjárveit-
ingavaldsins neyðast til að berja í
borðið, með þeim skilaboðum að
engir peningar séu til. Annars geta
erlendir ferðamenn sem koma um
langan veg utan úr, hinum stóra
heimi til að kynnast
veðurfarinu, á Íslandi
alla vetrarmánuðina
sett sig í óþarfa
hættu án þess að
kynna sér vandlega,
íslenskt veðurfar. Til
eru of mörg dæmi um
að starfsmönnum
björgunarsveitanna
hafi gengið erfiðlega
að koma erlendum
ferðamönnum aftur
til byggða, vegna
blindbyls á snjóþung-
um svæðum í meira
en 600 m hæð, yfir sjávarmáli.
Gallinn er sá að hvort sem reynt
er að byggja upp hindrunarlausan
heilsársveg, milli Reykjavíkur og
Akureyrar um Kjöl, Sprengisand,
eða Stórasand verður 10-15 metra
snjódýpt og meira en 75 metra
veðurhæð á sekúndu alltaf stórt
vandamál á þessum leiðum, sem
útilokar alla möguleika á sam-
felldri vetrarþjónustu og hrellir
stuðningsmenn hálendisvegarins
þvert á allar veðurspár.
Það segir ekkert að einkaaðilar í
fámennum sveitarfélögum fyrir
norðan og sunnan, ráði auðveld-
lega við fjármögnun samgöngu-
mannvirkja á hálendinu, með 1000
króna veggjaldi á örfáum árum
þegar yfirstjórn Vegagerðarinnar
í Reykjavík, neitar allri beiðni um
samfellda vetrarþjónustu, á þessu
illviðrasama- og snjóþunga svæði.
Þar geta snöggar veðrabreytingar
þvert á allar veðurspár valdið því,
að þessi þjónusta verði samanlagt
ennþá dýrari en gerð Fáskrúðs-
fjarðarganga, sem voru vel innan
við þrjú ár í vinnslu og kostuðu 3,8
milljarða króna. Fjarstæðukennt
tal um snjóleysi og steikjandi hita
á Sprengisandi, Kili, og Stóra-
sandi alla vetrarmánuðina er á
skjön við raunveruleikann og í
hróplegri mótsögn við góða blaða-
mennsku. Alla, vetrarmánuðina
tekur illviðrið ráðin af stuðnings-
mönnum Kjalvegar, sem sleppur
hvergi við 6-12 metra snjódýpt. Yf-
ir hálendið, verður meðalumferðin
á sólarhring aldrei jafnmikil og í
Hvalfjarðargöngum sem þolir ekki
álagið af 8-9 þúsund ökutækjum á
dag.
Hugmyndinni um uppbyggðan
heilsársveg yfir Kjöl teflir Guðni
Ágústsson gegn fækkun fjallvega á
snjóþungum og illviðrasömum heið-
um í 500-600 m hæð þegar jarð-
göng á landsbyggðinni tryggja enn
betra aðgengi að heilbrigðisþjón-
ustunni, næstu áratugina. Sem arð-
bær framkvæmd er þessi hugmynd
fyrrverandi þingmanns Suður-
kjördæmis um uppbyggðan og
hindrunarlausan Kjalveg á illviðra-
sömu svæði sem stæði um 100-200
metrum hærra en Öxnadalsheiði,
út í bláinn. Kostnaðurinn við að
hafa snjóblásara og veghefil til
taks, alla vetrarmánuðina í upp-
sveitunum fyrir sunnan og norðan
vegna snjóþyngsla á þessum ill-
viðrasömu svæðum fer illa í yfir-
stjórn Vegagerðarinnar og tals-
menn fjárveitingavaldsins sem
neyðast til að segja, hingað og ekki
lengra.
Kjalvegur fær enga
vetrarþjónustu
Eftir Guðmund
Karl Jónsson » Alla vetrarmánuðina
tekur illviðrið ráðin
af stuðningsmönnum
Kjalvegar, sem sleppur
hvergi við 6-12 metra
snjódýpt.
Guðmundur
Karl Jónsson
Höfundur er farandverkamaður.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Allt um sjávarútveg