Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 46

Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 46
Marta María mm@mbl.is Hringlaga speglar Það var enginn maður með mönnum nema eiga hringlaga spegil. Helst átti spegillinn að vera reyklitaður, bronslitaður eða bleik- ur. Í Módern er hægt að fá hring- laga spegla í nokkrum útgáfum en það er líka hægt að láta sérpanta þá í fyrirtækjum eins og Glerborg. Bastið með kombakk Bast þótti mjög töff á áttunda og níunda áratugnum. Fólk keypti sér baststóla með risabaki, hillur og bastborð. Lengi vel var ekki hægt að nálgast slík húsgögn nema heppnin væri með fólki á nytja- mörkuðum eða antiksölum. Árið 2018 breyttist þetta. Bastið hélt innreið sína og birtist í alls konar myndum. Baststólar, bastljós, basthillur og allt þar á milli naut vinsælda. Basthúsgögn hafa marga góða kosti. Þau eru til dæmis um- hverfisvæn í framleiðslu því efni- viðurinn þarf ekki mikla vökvun. Þeir, sem er annt um umhverfið, velja bastið fram yfir annan efni- við. Flauel Flauel er mjög seventís-legt en árið 2018 varð það mun eftirsótt- ara en oft áður. Bláir flauelssófar fóru að seljast betur. Einnig hafa flauelspullur verið áberandi og flauelspúðar. Sannleikurinn er samt sá að þótt flauelið hafi verið áberandi 2018 mokaðist það ekkert út úr verslunum. Praktíska fólkið kaupir sér nefnilega ekki flauel heldur fer í ullarefni eða leður. Plöntur 2018 var árið þar sem annar hver maður fékk græna fingur. Plöntur úti um allt gera heimilið hlýlegt og auka líka loftgæðin á heimilinu. Það þarf bara að muna að vökva og hugsa um hverja plöntu eins og afkvæmi. Þá blómstar plönturæktin sem aldrei fyrr. Klassísk hönnun Þótt margt nýtt hafi komið fram þá toppar ekkert klassíska hönnun Arnes Jacobsens, Louis Poulsens, Børges Mogensens, Vitra og Min- otti. Vönduð og góð hönnun er góð fjárfesting því hún heldur verðgildi sínu og hana er hægt að selja aftur ef í harðbakkann slær. Fólk virtist vera nokkuð meðvitað um þetta 2018. Þeir sem áttu peninga fjár- festu í klassík. Plaköt viku fyrir alvörulist Fyrir nokkrum árum var mikil plakatatíska á heimilum lands- manna. Þessi tískustraumur fjar- aði út 2018 en þá kaus fólk frekar að eyða peningum í verk eftir alvö- rulistamenn, ekki fjöldaframleidd plaköt. Þetta sýndi sig best á Ás- mundarsafni fyrir jólin þar sem verkin runnu niður af veggjunum jafnóðum og þau voru hengd upp. Marmari gerði allt vitlaust Marmarinn hefur sjaldan verið vinsælli en hann var 2018 og mun hann halda áfram að vera vinsæll. Lengi vel var það bara ljós marm- ari sem átti upp á pallborð hjá fólki en árið 2018 sást meira af gráum, grænum og svörtum marmara í bland við arabískan marmara sem er brúnleitur. Ef fólk splæsti ekki í marmaraborð- plötu festi það kaup á skrautmun- um úr marmara eins og brettum, bökkum og kertastjökum. Veggir í lit 2018 var enginn maður með mönnum nema mála heimilið í hlý- legum lit. Fyrir nokkrum árum byrjaði þetta í gráum tónum en svo fóru litirnir að fara út í vín- rauðan, brúnbleikan, svartan, millibláan, grágrænan og allt þar á milli. Rut Káradóttir sýndi ferska aðferð til að mála á Smartlandi á dögunum þar sem hún málaði loft- in svört og mött. Svona vildi fólk hafa inni hjá sér 2018 Árið 2018 var gott heimilisár. Fólk kepptist við að fegra híbýli sín eins og enginn væri morgundagur- inn. Auðvitað er smekkurinn misjafn en hér eru nokkur atriði sem gerðu allt vitlaust 2018. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson Morgunblaðið/Valli Ljósmynd/Gunnar Sverrisson Marmari Hanna Stína innanhússarkitekt hannaði þetta eldhús. Flauel og brass HAF Studio hannaði Skelfiskmarkaðinn. Flauel, gólfteppi, brass, marmari og speglar setja svip á staðinn. Svört loft Rut Káradóttir málaði loftin heima hjá sér svört og mött. Plöntur Allir vildu eitthvað grænt inn á heimilið. Þessar plöntur eru úr IKEA. Alvörulistaverk Plakatatískan minnkaði mikið 2018. Fólk fjárfesti frekar í verkum listamanna. Morgunblaðið/Hari Bastið gerði allt vitlaust Bastið var mjög áberandi 2018. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ———

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.