Morgunblaðið - 03.01.2019, Side 50

Morgunblaðið - 03.01.2019, Side 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 ✝ Erla SigrúnViggosdóttir fæddist í Reykjavík 30. maí 1970. Hún lést eftir snarpa baráttu við krabba- mein á Landspítal- anum við Hring- braut 20. desember 2018. Foreldrar henn- ar eru Viggo Mort- ensen, f. 23. mars 1943, og Bergþóra Þórðardóttir, f. 12. mars 1945. Systkini Erlu eru Gerða Jenný, f. 26. október 1963, og Magni Þór, f. 1. ágúst 1974. Erla Sigrún giftist 26. júní 1993 Braga Valgeirssyni, f. 5. október 1966. Börn þeirra eru Brynhildur Íris og Sandra Björk, f. 6. júní 1999. Áður átti Bragi dótturina Önnu Eir, f. 14. nóvember 1987. Erla ólst upp í Reykjavík, lauk námi í hárgreiðslu frá Iðnskólanum í Reykjavík og námi sem hómópati. Erla starfaði sem gjald- keri hjá Landsbank- anum, hárgreiðslu- kona, við skjalagerð á fast- eignasölu, ræstingar, hómópati og síðustu ár starfaði hún hjá ÍTR sem sundlaugavörður, verk- efnastjóri og forstöðukona sund- laugarinnar í Árbæ. Útför Erlu Sigrúnar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 3. janúar 2018, klukkan 13. Nú legg ég augun aftur ó Guð þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka, þinn engil svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Elsku Erlan okkar. Við stöndum öll sorgmædd eft- ir þessi erfiðu veikindi þín, þar sem margt var reynt, en allt án árangurs. Þú þessi duglega, dug- lega kona, sem vílaðir ekkert fyr- ir þér og fórst í hvert námið á eft- ir öðru, með góðum árangri. Þú vannst í banka, lærðir hár- greiðslu, varst ritari á fasteigna- sölu, lærðir hómópatíu og síðast vannstu hjá ÍTR, byrjaðir í af- greiðslunni og vannst þig upp í að verða í forsvari, en þá komu veik- indin. Þú kvartaðir aldrei og sem betur fer fylgdi ekki mikill sárs- auki. Þú varst bjargvætturinn okkar allra og alltaf svo gott að leita til þín. Vertu kært kvödd, elskan mín, og við biðjum góðan Guð að varð- veita eiginmann þinn, dæturnar og kærastana. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (M. Joh.) Guð geymi þig. Mamma og pabbi. Elsku Erla, þú kvaddir okkur í mesta skammdegi ársins þann 20. desember. En daginn sem þú kvaddir var bjart og fallegt eins og í kveðjuskyni. Eftir að krabba- meinið greindist í haust var allan tímann á brattann að sækja og því miður tapaðist sú barátta. Elsku Erla, þú varst síðust til að kvarta. Þú kunnir líka að njóta lífsins og þess einfalda; kaffibolli og samvera, þannig eru ótal minningar. Jarðbundin og raunsæ en með húmorinn í lagi. Þú miklaðir hlutina ekki fyrir þér og varst flink við svo margt; hár- greiðsla, handavinna, matargerð, saumaskapur, tölvuvinna. Allt lék í höndunum á þér. Þegar við Magni giftum okkur fyrir tíu ár- um var leitað til þín með hár- greiðslu og förðun, þið mæðgur og systur sáuð um kransakökuna af listfengi. Hjá þér var allt leyst af yfirvegun og öryggi. Þú áttir ekki langt að sækja fima fingur í hárgreiðslunni enda unnið þið mæðgur saman í því og í seinni tíð var oft opið á „stofunni“ í Viðarrima, klippt og litað og kaffi og góðgæti með. Strákunum mínum fannst allt- af gaman að fara til Erlu, Braga og stelpnanna og fá að prófa allt dótið sem var sótt niður í geymslu og ekki klikkaði súkku- laðikakan sem var til með kaffinu. Þið Bragi voruð samhent og samtaka í að takast á við verkefni lífsins og daglegt amstur. Og komuð dætrum ykkar glæsilega til manns, svo duglegar og ykkur til sóma í því sem þær taka sér fyrir hendur. Bragi stóð sem klettur við hlið þína í þessum veikindum og annaðist þig af um- hyggju allt til síðustu stundar. Til ykkar sem hafið misst ást- kæra eiginkonu, móður, dóttur, systur, frænku – Guð veiti ykkur styrk. „Hönd þín snerti sálu okkar. Fótspor þín liggja um líf okkar allt.“ Erla, þín verður alltaf saknað. Hrefna, Magni bróðir, Baldur Örn og Kári Hrafn. Erla mín, sérstaka dýrmæta perla! Hvað getur maður sagt, hvað getur maður gert. Í gegnum lífið höfum við leitt hvor aðra, mismikið eins og geng- ur, en sterk var taugin á milli okkar. Hjá þér var alltaf til stað- ar væntumþykjan, áhuginn, stuðningurinn og hlýjan. Alltaf tilbúin til að gefa góð ráð og hlýj- an faðm. Ég á þér svo margt að þakka og það er svo margs að sakna. Nærandi samvera við djúpar samræður, lausnamiðaðar álykt- anir í leit að niðurstöðu. Glens og gaman, mikill hlátur og stundum grátur. Við áttum svo góða tíma saman, hópurinn okkar, fimmd- immalimm, útlönd, bústaðir og bara heima hver hjá annarri. Á svo miklum hraða og á svo óvæginn hátt réðst krabbamein á hana Erlu. Elsku stelpan tókst á við veikindi sín á svo ótrúlega yfirvegaðan hátt. Hún kvartaði aldrei, hún var aldrei hrædd. Æðrulaus hélt hún bara áfram, að vera umhugað um aðra. Ég er svo þakklát fyrir allar samverustundirnar okkar í veik- indastríðinu, stundum við tvær en oftar en ekki var Drífa líka. Þó þú værir svo mikið veik gátum við legið saman og spjallað, fíflast og hlegið. Aldrei kom annað til greina en að sigra þennan vágest og standa aftur keik. Síðustu dagarnir þínir í þess- ari jarðvist voru svo erfiðir en á sama tíma svo fallegir. Að fá að koma hvenær sem er og knúsa þig, að sitja með fólkinu þínu og finna kærleikann sem umvafði þig alla er mér ómetanlegt og ég þakka það. Elsku Bragi, hún Erla var sannarlega vel gift, með aðdáun hef ég fylgst með þér leita svara og lausna við veikindum Erlu og skipti þá engu hvort svara var leitað hér á landi eða í Bandaríkj- unum. Ég bið Guð að styrkja þig í þinni djúpu sorg. Elskurnar mín- ar, Brynhildur og Sandra, þið er- uð svo heilar og duglegar, það er svo mikil Erla í ykkur báðum. Guð leiði ykkur í gegnum þennan mikla missi og leiði ykkur áfram veginn. Bergþóra, Viggo, Gerða, Magni og þið öll, megi góðar vættir vaka yfir ykkur á þessum erfiðu tímum. Elsku Erla okkar, eftirfarandi ljóðlínur eru kveðja frá okkur fimm, alltaf fimmdimmalimm. Með söknuði biðjum við, Ásta Pála, Drífa, Elín og Maja, algóð- an Guð að taka vel á móti þér inn í ljósið. Í hjörtum okkar þú alltaf átt stað. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endurgjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson) Elsku Perlan mín, ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera hjá þér og halda í hönd þína við þinn síðasta andardrátt. Guð blessi minningu dásamlegrar konu. Farðu í friði vina mín kær, í hjarta mínu minningu þína geymi. Þín vinkona alltaf, Ásta Pála. Yndislega Erla mín. Í dag fylgi ég þér síðasta spöl- inn. Ég mun ávallt geyma allar stundirnar sem við áttum saman og fallegu minninguna um þig í hjarta mínu. Ég sakna þín svo mikið. Elsku Bragi minn, Sandra, Brynhildur og aðrir aðstandend- ur Erlu, ég bið góðan Guð að vera með ykkur og gefa ykkur styrk. Minning um löngu liðna daga lifir í huga mér. Þótt heimurinn væri helmingi stærri, skyldi hugur minn fylgja þér. Ég finn þegar okkar fundum lýkur verða fátækleg orðin mín. Fólgin í nokkrum fallandi tárum verður fegursta kveðjan til þín. Þín Linda. Nú er sá árstími sem margir staldra við, líta til baka, rifja upp skemmtilega tíma, góðar minn- ingar, horfa fram á veginn og hugsa hvað framtíðin ber í skauti sér með nánustu ættingjum og vinum. En svo grípa örlögin inn í, einn úr hópnum fellur frá. Eftir standa fjölskylda og vinir harmi slegin, ekkert er sjálfgefið í þessu lífi. Fátt virðist geta huggað en góðar minningar verða ekki tekn- ar af okkur og það er dýrmætt að ylja sér við þær á slíkum stund- um. Ég var svo lánsöm að hafa fengið að kynnast Erlu og starfað með henni í nokkur ár en hún var starfandi vaktstjóri í Grafarvogs- laug þegar ég tók við starfi for- stöðumanns þar. Í kjölfar skipu- lagsbreytinga sem gerðar voru á stjórnun sundlauga ÍTR var ákveðið að ráða verkefnastjóra sem kæmi til með að sinna ýms- um miðlægum verkefnum fyrir sundlaugarnar og var Erla ráðin í það starf. Í störfum sínum var Erla með eindæmum ósérhlífin og gekk í þau verk sem vinna þurfti og þar skipti starfslýsing ekki öllu máli. Hvort sem um var að ræða uppgjör, umsýslu S- korta, stundatöflugerð, umsjón með fatamálum, lagfæringu á klórdælu, skrúfa saman húsgögn eða tiltekt í kjallara var ekkert henni óviðkomandi. Hún var hrein og bein, hafði ákveðnar skoðanir og var fylgin sér. Þú komst aldrei að tómum kofunum ef leita þurfti til hennar enda ákaflega lausnamiðuð. Eftir að hún tók við verkefnastjóra- starfinu var hún með aðsetur í Breiðholtslaug og þar deildum við skrifstofu hluta úr viku þar sem ég veitti þeirri laug einnig forstöðu. Það var góður tími, við kynntumst vel og unnum ákaf- lega vel saman. Starfsmenn í Breiðholtslaug fundu fljótt að það var gott að leita til hennar og hún var fljót að setja sig inn í hlutina enda með eindæmum fróðleiksfús. Hún var ákaflega bóngóð og því þurfti að passa að setja ekki of mörg verkefni á hana því hún sagði alltaf „já, ekk- ert mál“. Við vorum duglegar að heyrast eftir að hún færði starfs- stöðina sína í Árbæjarlaug þar sem hún tók síðar við starfi for- stöðumanns en náði ekki að sinna nema í stuttan tíma sökum veik- inda sem lögðust á hana af fullum krafti. Í byrjun ágúst fórum við í eina af þremur utanlandsferðum okk- ar saman en þá var okkur boðið í brúðkaup í Serbíu og fórum við þangað ásamt mökum en þá voru veikindin farin að segja til sín en engin greining komin. Það var yndisleg ferð og þá fékk ég enn betur að kynnast Braga en það duldist engum sem umgengst þau hversu ástfangin þau voru og gott teymi. Ég var vör við það þegar við unnum saman hversu oft þau töluðu saman og einnig leituðu stelpurnar hennar, Bryn- hildur og Sandra, mikið til henn- ar en þær eiga ekki langt að sækja það hversu heilsteyptar og duglegar þær eru. Erla var klett- urinn og alltaf með lausnirnar. Elsku Bragi, Brynhildur Íris, Sandra Björg, Anna Eir, foreldr- ar, systkini og aðrir ástvinir. Missir ykkar er mikill, þið eruð sterk saman og ég veit þið hjálpið hvert öðru á þessum erfiðu tím- um. Megi minningarnar um frá- bæra konu lifa. Sólveig Valgeirsdóttir. Erla Viggosdóttir er fallin frá eftir stutta en snarpa sjúkdóms- legu. Fyrstu fundum okkar bar saman þegar ég kenndi við Ís- landsdeild College of Practical Homeopathy. Hún var þar nem- andi: sat stundum með prjónana sína og hlustaði, lagði svo prjón- ana frá sér og spurði kennarann vel ígrundaðrar spurningar – sem ekki var alltaf einfalt að svara. Svo tók hún prjónana upp aftur þegar hún var orðin ánægð með svarið. Ég held að á engan sé hallað þó ég segi Erlu eiga metið þegar kemur að félagsstörfum hómó- pata. Enginn hómópati hefur unnið jafn lengi og ötullega fyrir Organon, fagfélag hómópata. Hún sat í stjórn nær óslitið í 13 ár, frá árinu 2005. Hún byrjaði sem nemendafulltrúi og í fram- haldi af því var hún ýmist vara- maður, gjaldkeri, varaformaður eða formaður, þar til síðasta vor að henni þótti loks nóg komið. Einnig sat hún sem fulltrúi Org- anon í stjórn Bandalags íslenskra græðara árin 2010-2012. Eitt er að telja árin, annað að meta gildi starfa Erlu. Í stjórnartíð hennar komu í tvígang heimsþekktir hómópatar til landsins á vegum félagsins, stórskemmtilegar af- mælishátíðir haldnar og ötullega unnið að fagmálum á mjög breiðu sviði. Framlag Erlu vó þar þungt, ekki síst vegna margra þátta í skapgerð hennar sem gerðu hana mjög hæfa til félagsstarfa. Þessir sömu eiginleikar prýða reyndar einnig góða hómópata, þannig að segja má að í tilviki Erlu hafi ver- ið slegnar tvær flugur í einu höggi. Þetta lá ljóst fyrir þar sem leiðir okkar sköruðust ítrekað í félagsstarfi hómópata, en það var ekki fyrr en við vorum með skömmum fyrirvara báðar kall- aðar til starfa í stjórninni, eftir að hafa setið sem varamenn, að ég kynntist Erlu náið. Þá varð mér fyllilega ljóst hve mikið var í hana spunnið. Hún var rökföst og fylgin sér. Hún vissi hvað henni fannst og var óhrædd við að segja sína skoðun en gat gert það á fag- legan hátt. Hún skirrðist ekki við að kafa undir yfirborðið, vopnuð gagnrýni í annarri hendinni og húmor í hinni. Erla gat tekið á málum af skynsemi og yfirvegun og þó aðrir væru henni ekki alltaf sammála erfði hún það ekki við fólk. Hún hafði hæfileika til að taka kergjulaust á málum og leysa hnúta, án þess að básúna það á torgum. Hún var minnug og það mátti fletta upp í henni eins og gagnabanka þegar vant- aði upplýsingar um starfsemi fé- lagsins eða sögu þess. Ég man ennþá svipinn á henni þegar hún lýsti því hve gaman henni þætti að fást við bókhald félagsins – hún og excel voru nefnilega dús. Erla var ekki bara klár, heldur líka fyndin, skemmtileg og sann- ur vinur. Hún sendi mér gjarnan fundarboð í tölvupósti þar sem hún boðaði sjálfa sig og fleiri til þings heima hjá mér þegar henni – og auðvitað einnig hinum – hentaði. Þegar hún mætti spilaði hún kankvís fram súkkulaði og jarðarberjum og gaf þannig tón- inn fyrir vinafund sem gjarnan stóð fram á rauða nótt. Stórt skarð er nú höggvið í raðir okkar. Missir fjölskyldunnar er þó mestur og ég votta aðstandend- um mína dýpstu samúð og þakka þeim fyrir að hafa af rausn sinni deilt þessari dásamlegu perlu með okkur öllum. Birna Imsland. Fallin er frá langt fyrir aldur fram Erla Sigrún Viggósdóttir, starfsmaður Íþrótta- og tóm- stundasviðs Reykjavíkurborgar til margra ára. Erla Sigrún kom til starfa hjá ÍTR árið 2011, fyrst sem starfs- maður í Grafarvogslaug, síðar vaktstjóri og verkefnastjóri sundlauganna. Það var fljótt ljóst að Erla hafði mikið til brunns að bera og ávann sér fljótt virðingu fyrir störf sín hjá ÍTR. Hún hafði ekki starfað lengi þegar henni voru falin ýmis miðlæg verkefni jafnt hjá ÍTR sem og verkefni á vegum Reykjavíkurborgar. Erla var í allnokkurn tíma fulltrúi ÍTR í Stafsmannafélagi Reykjavíkur- borgar. Í ágúst síðastliðnum tók Erla við sem forstöðumaður í Ár- bæjarlaug og hafði gríðarlegar væntingar til að takast á við það verkefni, en hafði aðeins starfað í skamman tíma þegar veikindin herjuðu á hana. Hvar sem Erla kom vann hún sér fljótt trúnað og traust starfs- manna sinna, samstarfsmanna og yfirmanna. Hag ÍTR og borgar- innar hafði hún einnig alla tíð að leiðarljósi í sínum störfum. Fyrir hönd samstarfsmanna og vina þökkum við frábær kynni. Minning um góða vinkonu og samstarfsfélaga mun lifa meðal okkar. Fjölskyldu Erlu færum við innilegar samúðarkveðjur. Steinþór Einarsson, Ómar Einarsson. Með þakklæti í hjarta kveðjum við kæra bekkjarsystur. Hvern hefði grunað að skemmtilegi hittingurinn í vor væri okkar síðasti í bili. Elsku Erla. Megi eilífðar sól á þig skína. Kærleikur umlykja. Og þitt innra ljós þér lýsa. Áfram þinn veg. Við vottum ástvinum öllum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Fyrir hönd 9. ÁG, Fellaskóla, Íris Eiríksdóttir. Erla Sigrún Viggosdóttir Systir mín, SIGRÍÐUR INGIBJÖRG ÞORGEIRSDÓTTIR, kennari, Hæringsstöðum, Árborg, lést 28. desember á Ljósheimum, Selfossi. Fyrir hönd vandamanna, Sólveig Antonía Þorgeirsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, THEODÓRA STEFFENSEN, Dídó, andaðist á heimili sínu fimmtudaginn 27. desember. Björn Finnbjörnsson Sigríður Aradóttir Finnbjörn Finnbjörnsson Kathia Rovelli Þorvaldur Finnbjörnsson Anna Árnadóttir Sigríður Finnbjörnsdóttir Halldór G. Hilmarsson Gunnar Þór Finnbjörnsson Eyrún Magnúsdóttir Halldóra Svala Finnbjörnsd. Úlfar Finnbjörnsson Sigrún Hafsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ELÍAS HÓLMGEIR GUÐMUNDSSON, Bolungarvík, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Bergi 1. janúar. Útför hans verður frá Hólskirkju laugardaginn 12. janúar klukkan 14. Árný Elíasdóttir Hafliði Elíasson Jóna Magnúsdóttir Hólmfríður Elíasdóttir Kristinn Elíasson Vilborg Andrésdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.