Morgunblaðið - 03.01.2019, Side 53

Morgunblaðið - 03.01.2019, Side 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 Mín fyrstu kynni af Sæmundi voru þegar hann kom með dóttur sína, Örnu, í barnapössun til móður minnar á Öldugötu, en þar bjugg- um við þröngt, ásamt barngóðri ömmu minni, heitinni, Halldóru Gunnarsdóttur. Hann kom í lög- reglubúningi og ég varð ofsa- hræddur, enda ekki nema fjög- urra vetra. Sæmundur var með glæsilegustu löggæslumönnum sem starfað hafa í Reykjavík. Há- vaxinn og myndarlegur á velli, einsog heimskvikmyndastjarna. Þær eru góðar vinkonur, Dögg, kona Sæmundar og móðir mín, Nóna, síðan þær voru saman í hjúkrunarfræðinámi. Æskuminn- ingar mínar frá jóla- og heimboð- um til þeirra hjóna, Daggar og Sæmundar, mynda perluminn- ingaband af gleðilegum stundum. Svignandi veisluborð, jóla- og aðrir æskuleikir. Það kom oft fyr- ir að ég og móðir mín sváfum eina jóla- eða áramótanótt á heimili þeirra hjóna, einkum í Glæsibæ, Árbæjarhverfi. Sæmundur kom oftast á Þor- láksmessu til okkar mæðgina með jólapakka – alltaf meðan hann var skipstjóri og einnig í nokkur ár þar á eftir. Það fylgdi honum ætíð birta vináttu – hlý hafgola. Þegar ég meiddist illa í íþrótt- um á háskólaárum bauð Sæ- mundur, skipstjóri, mér í heilsu- Sæmundur Örn Sveinsson ✝ Sæmundur ÖrnSveinsson fæddist 3. júlí 1932. Hann lést 29. nóv- ember 2018. Útför Sæmundar fór fram 10. desem- ber 2018. bótarferð með farmskipi því er hann stýrði. Það er gimsteinn æviminn- inga minna að sigla með honum „vestur um haf innan“ eins- og víkingar nefndu í miðaldasiglinga- fræðum. Hlaut ég af millilandasiglingu mikinn bata. Mín síðasta minn- ing um Sæmund er þegar ég og móðir mín komum í heimsókn í Fossvoginn. Dögg fór þá eina dagstund til öflugrar líkamsrækt- ar, en Sæmundur fræddi okkur um bókmenntir og listasögu þeirra fögru málverka og bóka sem prýða veggi eins hlýjasta fjölskylduheimilis Íslands. Hann var bókmennta- og listafróðleiks- brunnur. Það gleymist oft á tíðum að Ís- land er íshafseyja. Og að það eru ekki bara fiskimenn sem eru hetjur hafsins heldur einnig far- menn á kaupskipum sem hlýða brýningu Fjölnismannsins Jónas- ar Hallgrímssonar. Þegar farm- skipið í víkingaferð okkar forðum sigraði himinháar öldur í stórsjó og úthafsstormi stóð Sæmundur sterkur við stýrið í brúnni. Sæmundur er einn af þessum miklu sægörpum í framtíðar- draumi „Listaskáldsins góða“: „Ísland! farsældafrón og hagsælda hrímhvíta móðir. Þá riðu hetjur um héröð og skrautbúin skip fyrir landi flutu með fríðasta lið, færandi varning- inn heim.“ (Jónas Hallgrímsson) Halldór Eiríkur Sigur- björnsson Jónhildarson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og amma, RAGNHILDUR KRISTJÁNSDÓTTIR, Steinholtsvegi 7, Eskifirði, sem lést föstudaginn 21. desember, verður jarðsungin frá Eskifjarðarkirkju föstudaginn 4. janúar klukkan 14. Árni Halldórsson Kristín Árnadóttir Halldór Árnason Björn Árnason Sigrún Árnadóttir Guðmundur Árnason Auður Sigrúnardóttir EVA ÖRNÓLFSDÓTTIR framhaldsskólakennari, Lundi 92, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans, Hringbraut, að morgni jóladags, 25. desember. Útför hennar verður frá Áskirkju föstudaginn 11. janúar klukkan 15. Ragnar Jónasson Jónas Ingi og Guðný Sigrún og Björn Lúðvík Stefa og Rúnar og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, LILJA ARADÓTTIR, Víkurbraut 32, Höfn í Hornafirði, sem lést laugardaginn 22. desember, verður jarðsungin frá Hafnarkirkju laugardaginn 5. janúar klukkan 14. Börn, tengdabörn barnabörn og fjölskyldur Kæru ættingjar og vinir. Okkar bestu þakkir fyrir allan stuðning og hlýhug vegna andláts eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÞORSTEINS JÓNSSONAR, Gerði, Álftanesi. Innilegar kveðjur, Elfa Andrésdóttir synir, tengdadætur og barnabörn Ástkær móðir okkar, amma og langamma, MAGNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR, andaðist aðfaranótt 23. desember. Útförin fer fram frá Hjallakirkju fimmtudaginn 10. janúar klukkan 13. Sérstakar þakkir eru til hjúkrunarheimilisins Eirar fyrir einstaka umönnun. Íris Björk Sigurðardóttir Fróði Hjaltason Elfa Kristín Sigurðardóttir Björgvin Kristjánsson Dóra Berglind Sigurðardóttir Óskar Bragason Alexander Fróðason Tone Dalheim Ýmir Kalman Fróðason Jón Styrmir Fróðason Ólöf Tara Smáradóttir Ólafur Örn Jónsson Þuríður Nótt Björgvinsdóttir Bjarki Fannarsson Daníel Björn Óskarsson Nikulás Óskarsson Alfreð Alexandersson Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, ANNA PÁLA GUÐMUNDSDÓTTIR, sem lést að morgni 24. desember, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 5. janúar klukkan 14. Leifur Ragnarsson Páll Ragnarsson Margrét Steingrímsdóttir Árni Ragnarsson Ásdís Hermannsdóttir Hólmfríður Ragnarsdóttir Ólöf Sigríður Ragnarsdóttir Pétur Heimisson Örn Ragnarsson Margrét Aðalsteinsdóttir Úlfar Ragnarsson Auðbjörg Friðgeirsdóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGRÍMUR ÞÓRHALLSSON, Hafralæk, sem lést að morgni aðfangadags, verður jarðsunginn frá Neskirkju í Aðaldal laugardaginn 5. janúar klukkan 14. Þeim sem vildu minnast hans er bent á að láta Skógarbrekku á Húsavík njóta þess. Fyrir hönd fjölskyldu og vina, Guðrún, Þórhallur, Steingrímur, Jónas og Kristinn Ásgrímsbörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÁLMI STEINAR SIGURBJÖRNSSON, stýrimaður, Sléttuvegi 31, sem lést sunnudaginn 23. desember, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 8. janúar klukkan 13. Ólafía Guðlaug Þórhallsdóttir Halla Bergþóra Pálmadóttir Björn Steinar Pálmason Johanna E. Van Schalkwyk Ariadne Líf, Embla Elizabeth og Harpa Emilía Shelagh Móðir okkar og tengdamóðir, SIGURBJÖRG GEIRSDÓTTIR, Stóru-Reykjum, verður jarðsungin frá Selfosskirkju föstudaginn 4. janúar klukkan 13:30. María I. Hauksdóttir Ólafur Kristjánsson Margrét Hauksdóttir Guðni Ágústsson Gerður Hauksdóttir Gísli Hauksson Jónína Einarsdóttir Vigdís Hauksdóttir Hróðný Hanna Hauksdóttir Hróbjartur Eyjólfsson Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN GUÐMUNDSSON, fyrrverandi slökkviliðsmaður, Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 19. desember. Útför hans fer fram frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 4. janúar klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á Barnaspítala Hringsins. Kristín Kristjánsdóttir Ívar Guðmundsson Guðmundur Kristjánsson Sonja B. Jónsdóttir Sveinbjörn Kristjánsson Kristín Leifsdóttir Björgvin Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn Fyrir hönd fjölskyldunnar þakka ég samúð og vinarhug við andlát og útför konu minnar, KRISTRÚNAR EYMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færi ég Jóni Eyjólfi Jónssyni lækni, starfsfólki Fríðuhúss og starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu Grund. Halldór Blöndal ✝ Erling ÞórÞorsteinsson fæddist í Vest- mannaeyjum 2. nóvember 1940. Hann lést 4. nóv- ember 2018 á heimili sínu, Breiðuvík 31, Reykjavík. Foreldrar hans voru Þorsteinn Gíslason, f. á Akranesi 8. apríl 1914, d. 25. apríl 1975, og Marta Sonja Magnúsdóttir, f. í Vest- mannaeyjum 19. nóvember 1914, d. 13. október 2010. Systkini Erlings eru: Oddgeir Magnús, d. 29. ágúst 2001, Gísli Einarsson, búsettur í Reykjavík, systir, f. 1942, látin sama ár, Þorsteinn, búsettur í Svíþjóð, Halldór og Sonja, bú- sett í Reykjavík. Fyrri kona Erlings var Jó- hanna Sigurðardóttir, saman eignuðust þau dótturina Þór- dísi, hún er búsett í Reykja- nesbæ. Eigin- maður hennar er Jón Valgeirsson. Þau eignuðust fjóra syni: Agnar Mar, sem lést að- eins þriggja ára, Hersi Mar, Alex- ander Örn, hann lést aðeins fimm ára, og Ívar Örn. Seinni kona Er- lings var Ragn- heiður Tómasdóttir, f. 10. febrúar 1947, d. 15. september 1998. Dætur þeirra eru: Elísa- bet Dröfn, búsett á Laugar- vatni. Börn hennar og Jóns H. Ragnarssonar eru Hafsteinn Eyvar, Ragnheiður Olga og Ísabella Eir. Konný Sif, búsett í Reykjavík. Sambýlismaður hennar er Davíð Gunnarsson. Saman eiga þau dótturina Kristu Marín. Útför Erlings Þórs var gerð frá Grafarvogskirkju 12. nóv- ember 2018. Jarðsett var í Grafarvogskirkjugarði. Elskulegur bróðir minn hef- ur kvatt þessa jarðvist. Erling lést aðfaranótt 4. nóv- ember síðastliðins. Kallið kom svo óvænt. Enginn vissi neitt annað en hann væri bara hress, nýbúinn að eiga afmæli, 78 ára. Ekki kvartaði hann og gegndi störf- um sínum fram á síðasta dag af sama áhuga og vandvirkni og vanalega. Alltaf svo vel til fara og snyrtilegur. Hægur, svo rólegur og æðru- laus og alltaf svo kíminn. Aldrei gleymi ég brosinu hans. Mörg undanfarin ár hef ég notið þess að fá mér kaffi og spjall með Erling í kaffistofu á Höfðanum. Fyrir það vil ég þakka hér. Alltaf var svo gott að leita til Erlings, t.d. ef það vantaði ein- hverja aðstoð. Erling var ein- staklega laghentur og greiðvik- inn. Í ár eru liðin 20 ár frá því að Ragnheiður kona Erlings lést, langt fyrir aldur fram. Frá því að Konný dóttir þeirra flutti að heiman og hóf sinn búskap bjó Erling einn í Breiðuvík 31 Reykjavík. Það var að morgni 4. nóvember síð- astliðins að Konný hringdi til pabba síns en fékk ekkert svar. Erling hafði látist um nóttina. Enginn var undir það búinn að komið væri að kveðjustund svo alltof fljótt. En svona hafði Erling einmitt vonast til að fá að deyja, honum varð að ósk sinni. Elsku bróðir, nú hefur þú sameinast þeim sem á undan voru farnir til Sumarlandsins. Guð blessi þig. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Þín systir, Sonja. Erling Þór Þorsteinsson Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.