Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 54
54 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Hljóðfæri
Gítarinn ehf.
Stórhöfði 27
Sími 552 2125
www.gitarinn.is
Gítarar
í miklu úrvali
Kassagítara
r
á tilboði
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Verslun
Trúlofunar- og giftingarhringar í
úrvali Auk gullhringa eigum við m.a.
titanium og tungstenpör á fínu verði.
Sérsmíði, framleiðsla og viðgerða-
þjónusta. ERNA, Skipholti 3,
s. 5520775, www.erna.is
Fasteignir
Nýbýlavegi 8 Kópavogi
og Austurvegi 4 Selfossi - Sími 527 1717
Frítt verðmat!
Þjónusta
Byggingameistari
getur bætt við sig verkefnum
Viðhald og breytingar
Traust og örugg þjónusta
Áratuga reynsla
Sími 6961803
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bátar Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur,
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Til leigu í 101
Herbergi með húsgögnum, sjónvarpi
og interneti við Lokastíg til leigu í 101
Reykjavík. Sameiginlegt WC og
eldhús. Kr 90.000 á mánuði.
Langtíma leiga sem þýðir 12 mánuðir
eða lengur. Laust strax.
Senda fyrirspurn til
osbotn@gmail.com
Til leigu
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Helgistund Seljakirkju kl. 10.30. Handavinna með leiðbeinanda kl.
12.30-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl.
15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Brids og kanasta kl. 13.
Garðabær Lokað er í Jónshúsi
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10.50 jóga, kl. 13 hreyfi- og jafnvægis-
æfingar.
Gullsmári Handavinna kl. 9. Jóga kl. 9.30. Jóga kl. 17.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, handavinnustofan er
opin frá kl. 9-16, útvarpsleikfimi kl. 9.45, botsía með Elínu kl. 10, jóga
með Ragnheiði kl. 11.10 og hádegismatur kl. 11.30. Jóga með Ragn-
heiði kl. 12.05 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Pútt á Korpúlfsstöðum kl. 10 í dag í umsjón Sverris, allir
velkomnir. Skákhópur Korpúlfa kl. 12.30 í dag í Borgum í umsjón
Hlyns. Spilað botsía kl. 16 í Borgum. Megi nýja árið farnast okkur vel.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik-
fimi kl. 9.45, bókabíllinn kl. 10.30-11, upplestur kl. 11, opin listasmiðja
með leiðbeinanda kl. 9-16, ganga með starfsmanni kl. 14. S. 4112760.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Kaffi og meðlæti er til
sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Félagsstarf eldri borgara
✝ Hrefna SvavaGuðmunds-
dóttir fæddist í
Hafnarfirði 27. maí
1925. Hún lést 17.
desember 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Elísabet
Einarsdóttir, f.
3.11. 1898, d. 14.2.
1989, og Guð-
mundur Ágúst
Jónsson, f. 3.1.
1896, d. 27.2. 1982. Systkini
Hrefnu voru Einar, f. 19.4.
1924, d. 20.12. 2005, Sigríður, f.
19.6. 1926, d. 25.9. 2015, Jó-
hannes, f. 1.7. 1928, d. 6.12.
2002, Guðjón, f. 17.9. 1932, d.
2.12. 2018, og Birgir, f. 29.3.
1936.
Fyrri eiginmaður Hrefnu var
hans er Sesselja Auður Eyjólfs-
dóttir, f. 22.8. 1958, og eiga þau
tvö börn, 2) Ingibjörgu, f.
28.11. 1954, maður hennar er
Hartwig Müller, f. 21.8. 1950,
og eiga þau tvö börn, 3) Pétur,
f. 3.11. 1956, kona hans er Dóra
Kristín Björnsdóttir, f. 28.6.
1962, og eiga þau eina dóttur,
4) Guðrúnu, f. 20.2. 1961, á hún
tvær dætur. Tvíburasystir Guð-
rúnar fæddist andvana.
Hrefna var fædd og uppalin
á Linnetsstíg í Hafnarfirði,
beint á móti Fríkirkjunni. Hún
söng í Fríkirkjukórnum, gekk í
Lækjarskóla, vann í saltfiski og
við önnur tilfallandi störf.
Seinna flutti Hrefna til Reykja-
víkur og var hún heimavinn-
andi, enda um stórt heimili að
sjá. Hennar aðaláhugamál voru
ýmiss konar hannyrðir. Hrefna
ferðaðist mikið með manni sín-
um, bæði innanlands og utan.
Útför Hrefnu fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði í
dag, 3. janúar 2019, klukkan
15.
Sveinn Sæmunds-
son, f. 9.4. 1923, d.
26.3. 2017, og eign-
uðust þau þrjú
börn, 1) Guðmund
Ágúst, f. 28.11.
1946, d. 22.9. 1947,
2) Kolbrúnu, f.
10.7. 1948, maður
hennar Ævar
Pálmi Eyjólfsson, f.
21.8. 1946, d. 27.9.
2017, eiga þau þrjú
börn og 3) Erlu, f. 19.3 1950,
maður hennar Pétur J. Eiríks-
son, f. 5.5. 1950, eiga þau tvær
dætur.
Seinni eiginmaður Hrefnu
var Pétur Pétursson, f. 21.8.
1921, d. 27.10. 1996, og eign-
uðust þau fimm börn, 1) Guð-
mund Ágúst, f. 25.4. 1953, kona
Hrefna ólst upp á dæmigerðu
íslensku alþýðuheimili í litlu en
notalegu húsi við Linnetsstíg í
Hafnarfirði. Systkinin voru sex,
sem hvorki þótti margt né fátt
á þeim tíma. Sjálfsagt ekki
fjarri vísitölufjölskyldunni.
Móðirin, Elísabet, var heima-
vinnandi húsmóðir, en faðirinn,
Guðmundur Ágúst, var vörubíl-
stjóri. Tekjur heimilisins sveifl-
uðust, voru ágætar þegar nóg
var að gera í bænum en minni
þegar lægði í atvinnulífinu.
Eldri börnin, að minnsta kosti,
fóru snemma að vinna við það
sem bauðst, en í minningu
Hrefnu stóð ofarlega breiðsla á
saltfiski fyrir sólþurrkun á
Hvaleyrarholtinu á fallegum
sumardögum. Eins og þá var
títt þótti sjálfsagt að bræðurnir
byggju sig undir að verða fyr-
irvinnur sinna framtíðarheimila
með góðri starfsmenntun, á
meðan systurnar tvær horfðu
til síns hlutverks að annast sín
heimili og börn. Þannig var það
víðast hvar á Íslandi á þriðja
áratugnum, enda sagt að nú-
tíminn hafi ekki komið til Ís-
lands fyrr en með seinni heims-
styrjöldinni.
Hrefna lagði metnað sinn í
handavinnu og að mynda fjöl-
skyldu og fallegt heimili með
góðum bónda. Hún fæddi átta
börn en sex komust á legg. Nú
ráku margir upp stór augu
enda komin ný viðmið og nýjar
kröfur velferðarsamfélagsins.
Hrefna leit hins vegar með
stolti til síns hóps og síns hlut-
verks að stýra fjölmennu heim-
ili, hvað sem stefnum og
straumum leið og það gerði hún
vel. Ekki svo að skilja að henni
væri neitt í nöp við nútímann,
þvert á móti stóð hún þétt í
bakvarðasveit þeirrar kynslóð-
ar sem innleiddi nútímann á Ís-
landi.
Seinni maður Hrefnu var
Pétur Pétursson, þingmaður
Alþýðuflokksins og forstjóri
ýmissa ríkisfyrirtækja svo sem
Innkaupastofnunar ríkisins,
Landsmiðjunnar og Álafoss.
Mikil uppbygging var í atvinnu-
lífi með vaxandi iðnaði og út-
flutningi samhliða uppbyggingu
velferðarkerfis. Alþjóðleg sam-
skipti urðu víðtæk með tíðari
komum erlendra stjórnmála-
manna eða fólks í viðskiptum til
Íslands. Þá þótti eðlilegt að
bjóða útlendingum heim eða
taka á annan hátt vel á móti
þeim svo sem að sýna þeim
landið. Þótt Hrefna væri til
baka og lítið gefin fyrir að ber-
ast á í margmenni stóð hún
þessa vakt með prýði og opnaði
heimilið og tók vel á móti gest-
um. Og það var ekki í kot vísað.
Heimilið var látlaust en fallegt
og bar handavinnu Hrefnu fag-
urt vitni. Hér voru allir vel-
komnir.
Þannig var það þegar ég
fyrst hóf komur mínar í Stiga-
hlíðina, sem væntanlegur
tengdasonur. Ég var strax boð-
inn velkominn, eins og allir vinir
systkinanna. Hér var opið hús.
Það vakti strax athygli mína
það frjálslyndi sem ríkti á heim-
ilinu og það var lítið verið að
fetta fingur út í smáatriði. Ef
einhver unglingurinn fór of
geyst í skemmtanalífinu þótti
betra að taka á móti honum með
brosi, ristuðu brauði og spældu
eggi en að fárast yfir orðnum
hlut. Faðmur Hrefnu var stór
og ávallt opinn.
Hrefna var afar glæsileg
kona, há og beinvaxin og gekk
oftast með slegið dumbrautt
hárið. Þessari reisn hélt hún allt
fram undir andlátið.
Pétur J. Eiríksson.
Nú hefur þú fengið hvíldina,
elsku amma mín. Söknuðurinn
er virkilega sár en jafnframt
gleðst ég yfir minningunum um
allar yndislegu samverustund-
irnar okkar. Það var svo gott að
vera ömmustelpan þín, þú gafst
af þér endalausa hlýju, ást og
umhyggju, vinskapurinn okkar
var svo góður og dýrmætur, við
gátum talað um allt. Fyrstu sex
árin mín var ég eina barnabarn-
ið, svo liðu 13 ár þangað til
næsta kom en það eru bræður
mínir. Ég sótti mikið í ykkur
afa Pétur og að fá að gista hjá
ykkur sem ég og gerði þangað
til ég var komin nánast á full-
orðinsár. Ég man Stigahlíðina,
þegar ég sofnaði í ykkar rúmi.
Lyktin af damasksængurverun-
um sem amma Olla hafði strauj-
að, dúnsængurnar, myndirnar á
veggjunum, þetta var best í
heimi. Ég var bara lítil, því ég
man hvað ég hræddist hljóðin
úti og ekkert var eins gott og
þegar þú varst búin að fara með
Faðirvorið og aðrar bænir fyrir
mig og breiða yfir mig.
Elsku amma, allar gæða-
stundirnar þegar ég kom að
klippa þitt fallega rauða hár. Ég
mátti aldrei taka mikið því þú
sagðist vera að safna, enda
vaktir þú allsstaðar athygli fyrir
fegurð, glæsileika, unglegt útlit
og þykka hárið. Þið afi Pétur
voruð svo glæsileg hjón, ástin
og virðingin skein úr augum
hans þegar hann horfði á þig og
talaði til þín. Það var þér mikið
áfall að missa hann.
Þú varst svo ung þegar þú
kynntist sorginni, sorginni sem
fylgdi þér alla tíð, því þú grést í
hvert skipti sem við töluðum um
litla drenginn þinn, frumburð-
inn Guðmund sáluga sem þið afi
Sveinn misstuð þegar hann var
rétt tæplega 10 mánaða. Sama
sólarhring misstu Einar bróðir
þinn og Hanna 19 mánaða son
sinn. Við vorum sammála því að
það væri enginn tilgangur með
svona miklum harmi fyrir unga
foreldra. Þú sagðir mér oft frá
því þegar hann dó, nunnurnar
sendu þig heim til að hvíla þig,
hann lést þá nótt. Ég vona svo
innilega að þið séuð sameinuð á
ný, þú og litli drengurinn þinn.
Þegar ég kom síðast til þín,
fjórum dögum fyrir andlát þitt
hafði ég svo mikla þörf fyrir að
knúsa þig, hvíla höfuð mitt á öxl
þinni, strjúka hár þitt og hend-
ur, kyssa þig á kinnina, hendur
og halda utan um þig. Þú varst
svo þreytt en reistir þig við til
að við gætum tekið eina mynd
af okkur saman sem við oft
gerðum. Ég sneri við tvisvar í
dyrunum til að koma og kveðja
þig aftur, ég grét þegar ég fór.
Ég hafði svo sterkan grun um
að lífshlaupi þínu færi að ljúka,
amma mín.
Minningarnar eru dýrmætur
fjársjóður. Ég minnist þín,
elsku amma, með mikilli ást,
söknuði og þakklæti fyrir það
sem þú varst mér og einnig
strákunum mínum þremur. Ég
bið Guð og alla hans góðu engla
að vefja þig örmum. Söknuður-
inn er sár en minningin um
bestu ömmu í heimi lifir að ei-
lífu. Ég elska þig.
Þín
Solveig Pálmadóttir.
Mig langar að kveðja Hrefnu
móðursystur með fáeinum orð-
um. Hún og mamma voru ekki
bara systur, heldur beztu vin-
konur. Á vináttu þeirra bar
aldrei skugga og þær töluðust
við nánast á hverjum degi svo
lengi sem ég man.
Þær fæddust með árs milli-
bili í Hafnarfirði, Hrefna árinu
eldri og í Hafnarfirði ólust þær
upp í hópi sex systkina. Efnin á
heimilinu voru ekki mikil, en
það þurfti heldur ekki mikið til
að vekja gleði og galsa í hópn-
um. Nú er einungis einn bróðir
eftir.
Hrefna og mamma áttu ótrú-
lega margt sameiginlegt. Báðar
eignuðust mörg börn, Hrefna
átta, mamma níu. Báðar hugs-
uðu einstaklega vel um hópinn
sinn, saumuðu á hann, elduðu
ofan í hann og ólu hann upp
með ást og alúð. Báðar komust
í efni og þá ferðuðust þær sam-
an með sínum mönnum og
spilaklúbbnum þeirra. Báðar
urðu ekkjur löngu fyrr en vit
var í. Eftir það flökkuðu þær
innanlands og utan með Einari,
elsta bróður sínum og Hönnu
konu hans, alltaf vinkonur sem
nutu samverunnar.
Hrefna frænka var mikil
hannyrðakona og lopapeysurn-
ar hennar voru hrein listaverk,
sem og útsaumurinn og postu-
lín sem hún málaði. Einhvern
tíma sagði hún mér að það
héldi heilanum við að telja út
mynstrin.
Hrefna var glæsileg kona og
smekkvís. Ég mun þó ekki síst
minnast hennar fyrir þá órofa
tryggð sem hún sýndi mömmu
þegar fór að halla undan fæti
hjá henni. Þá var ég svo heppin
að fá að fara með þær á
bíltúraflakk stöku sinnum. Þá
var ekki langt í hláturinn hjá
Hafnarfjarðarsystrunum. Fyrir
það og svo margt annað þakka
ég Hrefnu frænku.
Börn Hrefnu og fjölskyldur
þeirra sjá á bak ættarstólpa.
Ég sendi þeim samúðarkveðju.
Nú gleðjast þær systur sam-
an hinum megin og gantast við
karlana sína.
Júlía G. Ingvarsdóttir.
Hrefna Svava
Guðmundsdóttir