Morgunblaðið - 03.01.2019, Page 61
DÆGRADVÖL 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Einhver þér nákominn á bágt með að
skilja þig. Reyndu að útskýra málið. Ekki eyða
púðri í fólk sem er ekkert nema neikvæðnin.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú leggur þitt svo sannarlega af mörk-
um núna og hefur ákveðið að tjalda því sem til
þarf. Ef þú leyfir þér þann munað að slaka á í
dag, þarftu að vinna hratt á morgun.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér er umhugað um stöðu vissrar
manneskju í lífi þínu. Fáðu einhvern til þess að
fara í gegnum málin með þér því þá færðu
betri yfirsýn.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Atburðarásin mun taka öll völd úr
höndum þér ef þú ekki stingur við fótum og
nærð stjórn á hlutunum. Skipulag er númer
eitt, tvö og þrjú hjá þér á næstunni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert gefinn fyrir það að taka áhættu
og nú er eitthvað uppi á teningnum sem hefur
heltekið þig svo ekkert fær þig stöðvað. Fé-
lagsskapur vinnufélaga gerir vinnuna
skemmtilegri.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Leyfðu fræi sem hefur verið sáð að
vaxa í friði. Þér verður hælt á hvert reipi fyrir
frammistöðu þína. Þú átt í vandræðum með
aðdáanda sem eltir þig á röndum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að kanna alla málavöxtu vand-
lega áður en þú myndar þér skoðun á vanda-
sömu máli. Gefðu þér tíma til að njóta feg-
urðar náttúrunnar með þínum nánustu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er mikilvægt að þú haldir
áfram að einfalda hlutina í lífi þínu. Losaðu þig
við óþarfa, taktu til og hleyptu góðu lofti inn.
Vertu þolinmóð/ur, þannig kemst þú að því
sanna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ferðaáætlanir þínar munu hugs-
anlega mæta andstöðu í dag. Eyddu tíma með
sjálfum/sjálfri þér í friði og ró. Einhver sem
þú hélst að þú þekktir er tvöfaldur í roðinu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að einbeita þér betur að
því sem þú ert að gera. Aðstæður eru góðar
fyrir allt sem viðkemur skemmtunum. Ný
manneskja kemur inn í líf þitt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú er kjörið að hugsa um á hvern
máta þú getur bætt tengslin við fjölskylduna.
Góður andi er í vinnunni og þú hlakkar til að
mæta á hverjum degi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að fylgjast vel með heilsu
þinni vegna þeirrar streitu sem þú býrð við.
Leitaðu ráða hjá sérfræðingi um lagaleg at-
riði.
Ég hef verið að skoða skáldskap-inn síðustu viku liðins árs og
er þar margt vel ort og skemmti-
legt. Ég byrja á Leirnum á Ólafi
Stefánssyni:
Stefnir enn að áramótum
enginn nær að spyrna fótum.
Lífið rennur liðugt hjá.
Veðuráttin versnar, batnar,
veltist, hvað sem þenkja skatnar.
Lengist vetur, lifnar þrá.
Upp er skotið ærnu púðri,
endar slíkt í mesta klúðri.
Augnasviði og andnauð megn.
Ósið þennan ætti að banna,
ekki nóg að mæla og kanna.
Þjóð á að vinna þessu gegn.
Góðæri landið gengur yfir,
í glæðum uppgangs ennþá lifir.
Freyðivín skal á fjöldans borð.
Þegar verða drukknar dreggjar,
við dagris, sný ég mér til veggjar.
Sofna og segi ekki orð.
Jón H. Arnljótsson spyr hvort
hægt sé að segja á trúverðugan
hátt að þögn sé skynsamlegur kost-
ur:
Til þess að segja
að trútt sé að þegja,
taka þú verður til máls.
Með þessu er rofin
öll þögnin og lofin
því eru komin til báls.
Á Boðnarmiði orti Gunnar J.
Straumland og sagði: „Þegar árið
er að kveldi komið er gott að
staldra við“:
Óðagot mun ei til neins,
er mitt ráð,
því tíminn alltaf tifar eins
og til var sáð.
Eftir liggja ævispor
sem ei við breytum.
Framtíðin er frjósamt vor
með fyrirheitum.
Kötturinn Jósefína Meulengracht
Dietrich veit hvað hún mjálmar:
Á krossgötum kýs ég að sitja
og kveðja er framhjá mér gengur
álfur sem ætlar að flytja.
Hann á varla heima hér lengur.
Helgi Ingólfsson fléttaði hugs-
anir sínar í limru:
Hún Gróa í Ási er löguleg
og ljúf stund með henni er möguleg.
Þó finnst engum rætni
að fara með gætni
því ferilskrá hennar er söguleg.
Helgi Ingólfsson kveður þessa
fallegu áramótakveðju:
Sem héla mitt hvítnaði hárið
og heimskulegt oftast var párið.
Þó farnist vel yður.
Um framtíð sé friður
og farsæld – með þökk fyrir árið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Undir árslok var vel ort
BIRGIR MISSTI BYSSULEYFIÐ. „ég skil aldrei þaÐ sem læknirinn þinn skrifar. HvaÐa einkenni ertu meÐ? ”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera sama um
hvað þú gerir svo lengi
sem það er með henni.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ER Í FRÍI SVO ÉG ER HELMINGI MINNA
SÆTUR EN VENJULEGA
ENN OF
MIKIÐ
ÞÚ VERÐUR AÐ LÁTA AF ÞESSARI
SKEMMDARVERKASTARFSEMI ÞINNI!
EN ILLGERÐUR! BARDAGAR
OG RÁNSFERÐIR ERU
VINNAN MÍN!
ÉG ER AÐ TALA UM
HVAÐ ÞÚ NAGAR MIKIÐ
NEGLURNAR!
Þá eru komin enn ein áramótin.Víkverji er dauðfeginn að sjá á
bak 2018, sem var mjög erfitt fyrir
hann persónulega. Svo leiðinlegt var
árið að Víkverja verður helst hugsað
til fleygra orða Elísabetar II. Eng-
landsdrottningar, sem lýsti árinu
þegar öll börnin hennar skildu og
einn kastalinn brann sem „Annus
Horribilis“.
x x x
Víkverji á reyndar ekki kastala,þannig að líklega var árið hans
ekki svo hræðilegt miðað við þær
raunir sem lagðar voru á drottn-
inguna 1992. Engu að síður vonast
Víkverji til þess að árið 2019 verði
allavega að einhverju leyti gæfu-
ríkara en árið 2018 var. Það lofar
góðu enn sem komið er.
x x x
Víkverja skilst að flugeldasala hafiverið ögn minni í ár en í fyrra,
enda var hún þá í hæstu hæðum.
Það var allavega ekki að sjá á mið-
nætti að einhver munur væri á
sprengingum milli ára. Víkverja
finnst þetta skemmtileg hefð og
væri synd ef flugeldasala yrði alfar-
ið bönnuð.
x x x
Í ár var einnig boðið upp á það að„skjóta rótum“. Víkverji veit um
allavega einn sem gerði slíkt, því
hann vildi styrkja björgunarsveit-
irnar en er lítið um flugelda gefið.
Þetta var því vel til fundið hjá björg-
unarsveitunum.
x x x
Að lokum, áramótaskaupið. Áhverju ári eru skiptar skoðanir
um það og jafnvel hávaðarifrildi á
netinu. Víkverja fannst margt gott
við skaupið í ár, þó að vissulega hafi
verið óþægileg slagsíða á því, eins
og svo oft áður. Stundum mættu
höfundar skaupsins aðeins íhuga að
það eru til önnur sjónarmið en
þeirra, þótt aldrei verði öllum gert
til geðs. Það var hins vegar verra að
ófyndnu atriðin, sem voru nokkur,
voru eiginlega skelfilega slæm. Þá
virðist sem íslenskir grínistar haldi
að því lengri sem atriði eru þeim
mun betri verði þau. Því miður er sú
trú byggð á sandi. vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um
mig mun frelsast og hann mun ganga
inn og út og finna haga.
(Jóh: 10.9)
icewear.is