Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 Með „Harmleiknum umRíkharð þriðja“, eins ogverkið heitir í fyrstuprentunum, steig Willi- am Shakespeare risaskref á þroska- braut sinni sem leikskáld. Í fyrsta sinn heppnast allt næstum fullkom- lega, þó svo aldrei hafi hann teflt jafn djarft þegar hér er komið sögu. Þó óslitinn efnisþráður og stór hluti að- alpersóna tengi það við þríleikinn um Hinrik sjötta og Rósastríðin er him- inn og haf milli formgerðar, efnistaka og skáldskaparflugs. Örlög titilper- sónunnar kallast á við og speglast í ógæfu Englands og örlögum allra sem á vegi Ríkharðs verða. Nútíma- leg persónusköpun sækir aðferðir og staðalmyndir í helgileiki miðalda. Þetta er eitthvað alveg nýtt. Við vit- um núna að sagnfræðin er hæpin, lit- uð af málstað sigurvegaranna, Tud- or-ættarinnar sem er krýnd í leiks- lok. Það truflar engan nema hörð- ustu kverúlanta. Og alls ekki les- endur og áhorfendur utan heimahag- anna, þar sem Ríkharður hefur, einn söguleikjanna, numið lönd svo ein- hverju nemi. Þökk sé hinu iðandi lífi og myrkum kynþokka skrímslisins. Það virðist vera kominn á friður í ríki Englendinga í upphafi verksins, eins og titilpersónan útmálar í frægri upphafsræðu og fyrsta af mörgum trúnaðarsamtölum við meinta banda- menn sína í áhorfendasalnum. Víg- fimi og miskunnarleysi Ríkharðs hef- ur átt sinn þátt í að stríðsgæfan féll á endanum með Jórvíkurmönnum og bróðir hans er sestur í hásætið. En Ríkharður er, eins og hann bendir sjálfur á, enn sá sem hann var. Sá sem stríðið, sem stóð allan hans upp- vöxt, gerði úr honum. „Okkar tíkar- sonur“ gætu Játvarður konungur, Elísabet drottning og allt þeirra fólk kallað hertogann af Glostri eins og Roosevelt sagði um Somosa Níka- ragvaforseta. Fyrst og fremst bara tíkarsonur samt. Með sín eigin mark- mið sem samræmast ekki lengur áætlunum ættarinnar. Somosa er svo sannarlega ekki eini nútímastjórn- málamaðurinn sem kemur upp í hug- ann meðan horft er á þennan fjögur- hundruð ára gamla sálfræðitrylli. Því eitt af því sem opinberast sem aldrei fyrr, í einbeittri og úthugsaðri túlkun og sviðsetningu Brynhildar Guðjónsdóttur og hennar fólks í Borgarleikhúsinu, er hve sorglega brýn þessi gamla harmsaga er. Og það án nokkurrar áreynslu við að staðsetja söguna áþreifanlega í nú- tímanum. Við erum ekki stödd í Sýr- landi. Engir farsímar eða sjónvarps- skjáir. Engar byssur. Bara fólk, texti og yfirveguð og hugvitsamleg beiting á viðteknum verkfærum leikhússins. Minnst nútímalegt er kannski traust leikstjórans á framlagi höfundarins, augljós alúðin við orðin sem skilar sér í afburðameðferð leikhópsins í heild á textanum. Þá kemur líka í ljós að skáldið er, ólíkt Ríkharði sköp- unarverki sínu, traustsins vert og út- koman áhrifaríkasta Shakespeare- uppfærsla sem ég minnist á íslensku sviði og þó víðar væri leitað. Þar kemur margt til og eins gott að byrja á þýðingunni. Einstigið er þröngt milli skáldlegra mælsku- tilþrifa frumtextans og skiljanleika í rauntíma sviðsins, þar sem engin yfirlega er möguleg. Leið Kristjáns Þórðar Hrafnssonar í sinni fyrstu ferð er óvenjuörugg. Eitt af mikil- vægustu vopnum sýningarinnar. Kjarnyrt, skýr og beitt. Næst í keðjunni kemur aðlögunin; styttingar og tilfæringar Brynhildar og Hrafnhildar Hagalín dramatúrgs. Aftur er skýrleiki og hnitmiðun greinilega stefnan og einnig þar heppnast allt. Persónum er róttækt fækkað og góður slatti af textanum í þessu fjórða lengsta leikriti Shake- speares fær að fjúka, eins og nánast undantekningalaust í óþolinmóðu nú- tímaleikhúsinu. Megnið af því sem endar hér á gólfinu er alsiða að strika, annað er óvenjulegra að verða af. Og svo hljóma kaflar í Borgarleik- húsinu sem sjaldan eru hafðir með. Þar kemur til róttækasta ákvörðun aðlagaranna; að bæta persónu í gall- eríið, Elísabetu af Jórvík, og ljá henni línur sem skrifaðar voru fyrir t.d. ættmenn drottningar, börn her- togans af Klarens og sigurvegara verksins, Hinrik Tudor. Þetta heppn- ast ágætlega og verður lykilatriði í þeirri meginstefnu túlkunarinnar að horfa á atburðina frá sjónarhóli kvennanna. Sólbjört Sigurðardóttir fer eins og aðrir af öryggi með text- ann en tjáir sig að mestu í dansi. Glæsilega vitaskuld, en ég er ekki al- veg sannfærður um beitingu dans- listarinnar í sýningunni, finnst hún stinga í stúf og ekki þjóna mark- miðum sínum fyllilega, þó vel væri gert. Að öðru leyti þarf ekki miklar til- færingar til að stilla fókusinn á harma kvennanna í kringum Rík- harð. Það nægir nánast að stilla sig um að strika senurnar þeirra, svo mjög sem safarík samskipti þeirra við miskunnarlausan valdafíkilinn og kröftugar raunatölur þeirra setja svip sinn á verkið eins og höfundur skildi við það. Flestar áminningar um fortíð Margrétar ekkjudrottn- ingar, sem var skörulegur stríðs- garpur í undanfaraverkunum með Ríkharðsleg voðaverk á afreka- skránni, eru reyndar fjarlægðar en að öðru leyti birtast atriði kvennanna næsta óstytt í allri sinni umtalsverðu dýrð. Fá líka heldur en ekki glæsta meðferð hjá leikkonunum. Sigrún Edda Björnsdóttir sýndi okkur Sess- elju móður Ríkharðs sem konu sem löngu er búin að brynja sig en auðvit- að hlýtur sú skurn að rofna. Þórunn Arna Kristjánsdóttir er Anna, ekkja eins fórnarlamba Ríkharðs og síðan skammlíf eiginkona eftir eina fræg- ustu bónorðssenu bókmenntanna sem var þrúgandi og sannfærandi hér. Edda Björg Eyjólfsdóttir gerði ferðalagi Elísabetar drottningar frá krúnu til sorgarhyldýpis framúr- skarandi skil. Og þó annað hefði mis- tekist hefði heimsókn í Borgarleik- húsið verið þess virði til að hlýða á refsinornina Margréti af Anjou í meistaralegum meðförum Krist- bjargar Kjeld. Karlarnir eru flottir líka, hvort sem það er ísmeygilegur Bokking- ham Vals Freys Einarssonar, inn- gróinn en glórulaus kerfiskallinn Hastings hjá Jóhanni Sigurðarsyni, skoplega einfaldir konungur og bisk- up Halldórs Gylfasonar, langþrúg- aður Katsbý Hilmars Guðjónssonar, lánlaus Rivers Davíðs Þórs Katrínar- sonar eða samviskubugaður barna- morðingi Arnars Dan Kristjáns- sonar. Þegar upp er staðið er þetta samt verk titilpersónunnar. Túlkun og frammistaða Hjartar Jóhanns Jóns- sonar í hlutverki Ríkharðs er hennar stærsti sigur, og er þá allnokkuð sagt. Krafturinn, húmorinn, grimmd- in, slægðin, ósvífnin og umkomuleys- ið; allt er þetta þarna og skín í gegn- um skelina til skiptis eins og kvika- silfur. Það er heldur ekki hægt annað en að nefna þá líkamlegu þrekraun sem Hjörtur undirgengst hér og stenst með glans. Sambandið við áhorfendur í forgrunni eins og vera ber, frábærlega útfært og viðhaldið. Sérstaklega undir lokin þegar við skynjum að Ríkharður veit að hann hefur fyrirgert samúð okkar en held- ur samt áfram að vinka og brosa. Öll umgjörð er vel heppnuð og stundum rúmlega það. Búningar Fil- ippíu Elísdóttur gera allt sem þeir eiga að gera, gervi Elínar S. Gísla- dóttur fyrir Ríkharð er glæsilegt, tengir hann í mínum huga við Alien- myndirnar og snýr þannig veikleika fötlunar upp í styrk hins ómennska. Leikmynd Ilmar Stefánsdóttur hár- réttur vettvangur með fjölbreyttum möguleikum og lýsing Björns Berg- sveins Guðmundssonar náði mögn- uðum áhrifum hvað eftir annað. Það sama má segja um tónlist Daníels Bjarnasonar. Skruðningar og ískur hljóðmyndarinnar sköpuðu stemm- inguna og sönglögin tvö frábær hug- mynd og flottar smíðar. Sérstaklega örvæntingararía Elísabetar drottn- ingar sem lyfti þjáningu hennar og sendi hana síðan út í heiminn þegar kórinn tók við. Við verðum öll að vera Anna, Margrét, Sesselja og Elísabet- arnar. Bera harminum vitni, eigi nokkur von að vera til þess að Rík- harðar heimsins liggi í valnum og ljósið fái möguleika til að blakta og jafnvel skína líkt og í leikslok. Það segir þessi fjögurhundruð ára texti mesta skálds heimsins sem hér er komið til skila af virðingu, krafti og sannri list. Ljósmynd/Grímur Bjarnason Borgarleikhúsið Ríkharður III bbbbb Eftir William Shakespeare. Íslensk þýð- ing: Kristján Þórður Hrafnsson. Aðlög- un: Brynhildur Guðjónsdóttir og Hrafn- hildur Hagalín. Leikstjórn: Brynhildur Guðjónsdóttir. Leikmynd: Ilmur Stef- ánsdóttir. Búningar: Filippía I. Elísdóttir. Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmunds- son. Tónlist: Daníel Bjarnason. Dansar: Valgerður Rúnarsdóttir. Leikgervi: Elín S. Gísladóttir. Leikarar: Arnar Dan Krist- jánsson, Davíð Þór Katrínarson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Halldór Gylfason, Hilmar Guðjónsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Jóhann Sigurðarson, Krist- björg Kjeld, Sigrún Edda Björnsdóttir, Sólbjört Sigurðardóttir, Valur Freyr Ein- arsson og Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Frumsýning á stóra sviði Borgarleik- hússins 29. desember 2018. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Okkar tíkarsonur Kraftur „Þegar upp er staðið er þetta samt verk titilpersónunnar. Túlkun og frammistaða Hjartar Jóhanns Jónssonar í hlutverki Ríkharðs er hennar stærsti sigur, og er þá allnokkuð sagt,“ skrifar gagnrýnandi um Ríkharð III. WWW.S IGN . I S Fornubúðum 12 · Hafnar f i rð i · s ign@s ign . i s · S : 555 0800 G U LL O G D EM A N TA R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.