Morgunblaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 olympium 350Nú bjóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn. 8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu. Einnig mikið úrval aukabúnaða. Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400 Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakk i - 601 Akureyr i Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is maxipodium 500 Hestakerrur frá Fautras maxipodium 500 Veður víða um heim 13.1., kl. 18.00 Reykjavík -3 skýjað Hólar í Dýrafirði -5 alskýjað Akureyri -5 snjókoma Egilsstaðir -7 skýjað Vatnsskarðshólar -2 heiðskírt Nuuk -8 léttskýjað Þórshöfn 0 léttskýjað Ósló -3 heiðskírt Kaupmannahöfn 6 þoka Stokkhólmur -2 snjókoma Helsinki -1 snjókoma Lúxemborg 7 rigning Brussel 9 rigning Dublin 9 skúrir Glasgow 7 rigning London 10 súld París 10 alskýjað Amsterdam 9 skúrir Hamborg 7 skúrir Berlín 8 súld Vín 5 rigning Moskva -4 snjókoma Algarve 16 heiðskírt Madríd 11 heiðskírt Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 14 léttskýjað Róm 10 heiðskírt Aþena 7 skýjað Winnipeg -7 alskýjað Montreal -14 snjókoma New York -2 léttskýjað Chicago -1 skýjað Orlando 22 heiðskírt  14. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:58 16:17 ÍSAFJÖRÐUR 11:30 15:54 SIGLUFJÖRÐUR 11:15 15:36 DJÚPIVOGUR 10:34 15:39 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á þriðjudag Austan og norðaustan 10-18 m/s og víða snjókoma eða él. Dregur úr vindi og ofankomu um kvöldið, fyrst norðantil. Frost 0 til 9 stig, mildast syðst. Gengur í austan 10-18 m/s með snjókomu, fyrst suðvestantil. Dregur úr frosti, slydda eða rign- ing syðra síðdegis. Snýst í suðvestan 8-13 með skúrum eða éljum suðvestantil í kvöld. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Árna B. Stefánssyni, augnlækni og hellakönnuði, voru nýlega afhent þrjú dropsteinabrot sem tekin voru úr Surtshelli/Stefánshelli líklega í kring- um 1920, fyrir um 100 árum. Drop- steinunum var skilað í kjölfar viðtals við Árna í Morgunblaðinu 10. nóv- ember sl. þar sem fólk var hvatt til að skila dropsteinum og dropstráum úr íslenskum hraunhellum. Árni sagði að dropsteinar hefðu ver- ið friðlýstir árið 1958 og hraunhellar séu friðlýstir samkvæmt nátt- úruverndarlögum. Það hafi ekki komið í veg fyrir að dropsteinamyndanir væru fjarlægðar. Hann sagði mikil- vægt að þeim væri ekki fargað heldur skilað. Árni varðveitir dropsteina fyrir Náttúrufræðistofnun Íslands og hefur gert afsteypur af nokkuð mörgum. Einnig hefur hann gert við dropsteina og endurskreytt hella að hluta. Hann lagfærði t.d. stóran dropstein í Vatns- helli, lagaði tvo aðra og setti upp 37 af- steypur í Bárðarstofu í minningu dropsteina sem voru fjarlægðir hand- an keðju í botni Borgarhellis á árunum 1957-2007. Tilgangur friðlýsingar Náttúruverndarráðs á dropsteins- myndunum var einmitt að verja drop- steinsmyndanir Borgarhellis, sem nú hafa nánast allar verið fjarlægðar. „Nokkrir dropsteinar sem ég lag- færði í Leiðarenda 2008 hafa verið fjarlægðir,“ sagði Árni. „Það er engin leið að varðveita þessar viðkvæmu myndanir nema stýra umferð fólks, af- marka gönguleiðir og gera fólki ljóst hvað það má og má ekki.“ Árni og Gunnhildur Stefánsdóttir, eiginkona hans, töldu brotstaði rúm- lega 2.000 dropsteina í nokkrum hraunhellum á árunum 2009-2015 og komust að þeirri niðurstöðu að 2⁄3 hlut- ar þá þekktra dropsteina hefðu verið fjarlægðir. (Náttúrufræðingurinn 86 (3-4) bls. 112-126, 2016). „Vandinn er tregða ráðamanna að gera eitthvað í þessu og verja það sem eftir er,“ sagði Árni. „Það er engin önnur leið að verja þær gersemar sem sumir hellanna eru, en að loka þeim. Eftir það má ákveða aðgengis- takmarkanir, hve margir og á hvaða forsendum þeir fá að heimsækja hell- inn.“ Tveggja milljarða tekjur á ári Árni áætlar að brúttótekjur af ferð- um í hraunhella hafi slagað hátt í tvo milljarða í fyrra. Í því sambandi nefndi hann Raufarhólshelli, Vatnshelli, Leið- arenda, Þríhnúkagíg, Víðgelmi og Silfru sem er sprunguhellir. „Það eru allir tilbúnir að hafa tekjur af þessum mikilfenglegu myndunum en hvorki rekstraraðilar eða opinberir aðilar leggja neitt til hellanna í formi vernd- araðgerða, aðgengisstýringar, rann- sókna eða fræðistarfa að 3H Travel undanskildu,“ sagði Árni. Honum er spurn hvar skyldur samfélagsins gagnvart hraunhellunum og viðkvæm- ustu náttúrumyndunum Íslands, drop- steinsmyndunum, liggi. Morgunblaðið/Hari Dropsteinar Brotin voru líklega tekin úr Surtshelli/Stefánshelli. Þau gengu í arf á milli ættliða í sömu fjölskyldu. Skilað Árni fékk brotin eftir að grein um brottnám dropsteina birtist. Þremur dropsteinabrotum skilað  Líklega tekin fyrir um 100 árum  Mikilvægt að varðveita dropsteina Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Vel á annað þúsund Íslendingar leit- uðu sér læknismeðferðar erlendis árið 2018 og fengu kostnaðinn nið- urgreiddan af Sjúkratryggingum Ís- lands. Sókn Íslendinga í læknismeð- ferðir ytra hefur aukist mjög milli ára, til að mynda vegna tannlækn- inga. Samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands sóttu alls 1.268 Íslendingar sér læknismeðferð ytra í fyrra, samanborið við 781 árið 2017. Mestur fjöldi var vegna svo- kallaðra tilskipunarmála, en sam- kvæmt tilskipun Evrópusambands- ins (ESB) um heilbrigðisþjónustu yfir landamæri, svokallaðri landa- mæratilskipun sem tók gildi 1. júní 2016, á fólk innan aðildarríkja EES rétt á að sækja sér heilbrigðisþjón- ustu til annarra aðildarríkja og fá endurgreiddan útlagðan kostnað sem samsvarar því að þjónusta hefði verið veitt í heimalandi þess. Árið 2018 sóttu 816 einstaklingar um samkvæmt þeirri tilskipun og fengu greiddan meðferðarkostnað eins og hann væri á Íslandi. Námu útgjöld SÍ vegna þessa um 55 milljónum króna. Árið áður sóttu 243 um sam- kvæmt tilskipuninni og greiddar voru út um 28 milljónir. Halla Björk Erlendsdóttir, deildarstjóri í al- þjóðadeild Sjúkratrygginga Íslands, upplýsti að þessi mikla aukning væri fyrst og fremst til komin vegna tann- lækninga. Eins og fjallað hefur verið um í Morgunblaðinu sækja sífellt fleiri sér tannlækningar til landa á borð við Ungverjaland. Milljarður í kostnað Af þessum 816 umsóknum falla 114 undir svokölluð biðtímamál þar sem greiddur er uppihalds- og ferða- kostnaður, alls 44 milljónir króna í fyrra. Í því tilviki er um að ræða þjónustu sem er í boði á Íslandi en fólk kýs að fá hana erlendis, oft vegna langra biðlista. Læknismeð- ferðir eru greiddar að fullu af SÍ ef beðið hefur verið lengur en í 90 daga eftir aðgerð hér heima og einstakl- ingurinn velur að bíða ekki lengur og sækja sér læknisþjónustuna erlend- is. Liðskiptaaðgerðir hafa verið al- gengastar í þessum flokki síðustu ár, en umsóknum fjölgaði mjög milli ára. Árið 2017 voru þær 49 svo um- sækjendur voru meira en tvöfalt fleiri í fyrra. Kostnaðurinn það ár nam 26 milljónum króna. Árið 2016 fóru einungis fimm einstaklingar í slíkar biðtímaaðgerðir erlendis. Enn liggja ekki fyrir endanlegar tölur um mál sem falla undir svokall- aða siglinganefnd, en það er þegar sótt er um vegna meðferðar sem er nauðsynleg en er ekki í boði á Ís- landi, ekki er hægt að veita þessa þjónustu á Íslandi og hún verður að vera gagnreynd, þ.e verður að vera viðurkennd meðferð en ekki til- raunameðferð. Fram til 1. október í fyrra höfðu 338 sótt um slíka með- ferð en þá er greiddur uppihalds- og ferðakostnaður. Allt árið 2017 komu 489 slík mál inn á borð SÍ og heildar- greiðslur námu tæpum 1,5 milljörð- um. Fram til 1. október hafði tæpur milljarður verið greiddur út í þess- um flokki. Sífellt fleiri leita lækninga ytra  Mikil ásókn í tannlækningar skýrir hluta aukningar  1.268 á faraldsfæti vegna læknismeðferða Mikil aukning » Alls sóttu 1.268 Íslendingar sér læknismeðferð ytra í fyrra en 781 árið 2017. » 816 sóttu um samkvæmt svokallaðri tilskipun og fengu greiddan meðferðarkostnað eins og hann væri á Íslandi. Árið áður voru 243 slíkar umsóknir. „Dropasteinarnir komu líklega frá Kristínu Þorkelsdóttur ömmusystur minni á Kols- stöðum í Hvítársíðu,“ sagði Þór- dís Kristjánsdóttir. „Þórdís amma mín í Skógsnesi í Flóa- hreppi fékk steinana. Hún flutti frá Skógsnesi að Gaulverjabæ og tók steinana með sér. Móðir mín, Guðný Magnúsdóttir Öfjörð, fékk steinana úr búi ömmu og afa og fór með þá aft- ur að Skógsnesi. Ég var með steinana og sá greinina í Morg- unblaðinu og ákvað að færa Árna þá.“ Þrjár kynslóðir ÆTTARGRIPIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.