Morgunblaðið - 14.01.2019, Page 22

Morgunblaðið - 14.01.2019, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 ✝ Tryggvi Ólafs-son fæddist í Neskaupstað 1. júní 1940. Hann lést á Droplaugarstöðum 3. janúar 2019. Foreldrar hans voru Ólafur Magn- ússon skrif- stofumaður, f. 5. jan. 1907, d. 31. okt. 1982, frá Foss- árdal í Berufirði, og Sigríður Bjarnadóttir hús- freyja, f. 25. mars 1905, d. 24. júlí 1957, frá Hraunkoti í Lóni. Bróðir Tryggva var Loftur tannlæknir, f. 24. febrúar 1942, d. 17. nóv. 2005, kvæntur Hrafn- hildi Höskuldsdóttur, f. 29. júlí 1942, d. 20. feb. 2012. Tryggvi kvæntist 29. desem- ber 1962 Gerði Sig- urðardóttur, f. 2. nóvember 1940. Foreldrar hennar voru Sigurður B. Jónsson, loft- skeytamaður í Reykjavík, f. 29. maí 1913, d. 31. okt. 1995, og Guð- ríður Sigurð- ardóttir húsfreyja, f. 13. mars 1913, d. 2. mars 1980. Börn Tryggva og Gerðar eru: 1) Gígja, f. 13. júlí 1964, gift Ara Matthíassyni, þau eiga þrjú börn. 2) Þrándur, f. 1. maí 1979, kvæntur El- ísabetu Halldórsdóttur, þau eiga þrjú börn. Fyrir átti Gerð- ur Stíg Steinþórsson, f. 18. jan. 1960, sem Tryggvi gekk í föð- urstað, í sambúð með Sigur- laugu Arnardóttur og á hann fimm börn. Tryggvi varð stúdent frá MR 1960. Hann lærði við Myndlista- og handíðaskólann árin 1960-61 og síðan við Konunglega listaháskólann í Kaupmanna- höfn árin 1961-66. Tryggvi var í hópi þekktustu og virtustu myndlistarmanna þjóðarinnar og voru verk hans í eigu fjöl- margra listasafna á Íslandi og erlendis og var stíll hans auð- þekkjanlegur. Tryggvi var riddari af Dannebrog, handhafi fálkaorð- unnar og hlaut verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2018. Útför Tryggva fer fram frá Neskirkju í dag, 14. janúar 2019, klukkan 13. Ég veit að sá harmur sem ég ber í brjóstinu eftir fráfall Tryggva tengdaföður míns og vinar í tæplega 35 ár stendur í réttu hlutfalli við ást, hlýju og leiðsögn sem ég fékk frá Tryggva. Það má segja að ég hafi tekið út fyrirfram allt það sem hann gaf mér af óbotnandi örlæti og blíðu. Og ég veit að þær gjafir munu duga mér ævilangt og að þær hafa mótað mig og gert að þeim manni sem ég er. Aldrei bar skugga á og alltaf reyndist hann mér vel, bæði í sorg og meðbyr. Þess vegna eru tár mín þakklæt- istár og Tryggvi mun alltaf verða órjúfanlegur hluti af mér og kannski ekki að undra þótt ég sé svolítið meyr þessa dagana, ja svona eins og góð Tryggvakjöt- bolla í brúnni sósu. En þetta er ekki kveðja því mér dettur ekki í hug að móðga Tryggva látinn enda lifir hann innan í mér og verk hans tala við mig á hverjum degi. Tryggvi skýrði fyrir mér að listin er það sem náttúran er ekki enda segir hún hug listamannsins gagnvart heiminum. Þótt það sé hægt að telja upp það sem er á mynd þá er slík upptalning ekki skýring á hvað hefur gerst þegar hún var sköpuð heldur táknar hún um- fram allt hug listamannsins gagnvart veröldinni, hún segir hug listamannsins gagnvart breytingu heimsins í tímanum. Þess vegna get ég hitt Tryggva aftur í myndum hans og við disk- úterað og ég trúað honum fyrir leyndarmálum og leitað ráða eins og áður og fyrir það mun ég verða þakklátur meðan ég dreg andann. Erfitt gæti reynst að þakka þetta allt eins og verðugt væri. Samt væri hægt að byrja til dæmis með orðunum: Ég þakka þér fyrir að sýna mér dýrðina Ekki dýrð heimsins heldur dýrð lífsins. (Sigurður Pálsson) Ari Matthíasson. Eftirvænting lá í loftinu þegar von var á Tryggva í heimsókn. Yfirleitt var hann með fangið fullt af litríkum gjöfum handa krökk- unum og afskorin blóm sem hann hafði með sér alla leið frá Kaup- mannahöfn. Hann var með töskuna fulla af dýrðarinnar ost- um, ostum sem hann hafði gaum- gæfilega pakkað inn í gjafapappír og merkt barnabörnum sínum og þeir sem til þekkja vita að Tryggvi var framúrskarandi inn- pakkari. Gamle Ole komst greið- lega til landsins án þess að nokk- ur tollari yrði hans var. Svo var alltaf Anton Berg handa frúnni. Það gustaði um Tryggva, hann hófst iðulega strax handa við að elda hvítlaukskjúkling, frikadell- ur eða coq au vin, með viska- stykki um sig miðjan, rauðvíns- glas og logandi vindil einhvers staðar í eldhúsinu. Hann spurði út í lífið og hlustaði, hafði brenn- andi áhuga á fólki og sterkar skoðanir á málefnum. Við rædd- um fagurfræði og pólitík. Tryggvi var mikill sósíalisti; sagði mér að hann hefði aldrei þótt prísa list sína nægilega hátt. Sagðist miða við það að sæmilega stór mynd ætti að kosta það sama og grunnlaun kennara. Ef það væri ekki nógu hátt væri eðlileg- ast að berjast fyrir því að hækka kennaralaunin. Tryggvi var í senn heimsmað- ur og höfðingi. Hann lagði sig fram við að kynna fyrir börnun- um liti, form og efni og opna fyrir þeim dyrnar að allri heimsins list. Hann sendi póstkort frá öllum mögulegum stöðum sem hann heimsótti, sagði frá söfnum sem hann skoðaði, myndum sem hann sá eða merkilegum mat sem hann borðaði. Fyrir nokkrum árum var ég að skoða MOMA í New York ásamt Freyju dóttur minni. Hughrif hennar leyndu sér ekki þegar við stóðum fyrir framan Dansinn eft- ir Matisse. „Mamma! Þarna er verkið hans afa, uppáhaldsverkið hans.“ Það er mikil gjöf að hafa fengið að verða samferða Tryggva um stund. Takk elsku Tryggvi fyrir að sýna mér litina í lífinu. Lísa Kristjánsdóttir. Elsku afi Tryggvi, okkur þótti svo óskaplega vænt um þig og við söknum þín alveg skelfilega. Bíl- túrarnir inn í Hvalfjörðinn, Bæj- arins bestu-pylsuferðirnar, Kola- ports- og heimsóknirnar til þín verða ekki fleiri og það sker í hjörtun okkar við tilhugsunina. Það hefur greinilega vantað vandaðan myndlistarmann upp í himininn því þú varst tekinn frá okkur svona skjótt, við munum lesa meira og teikna meira í minningu um þig, elsku afi okkar. Þínir afabossar: Steinar Máni (Benjamín tíundi), Sölvi og Sólbrá Þrándarbörn. In memoriam Árið 1973 héldum við hjóna- kornin til Kaupmannahafnar til náms og starfa og dvöldum þar í þrjú ár. Tveir drengpjakkar, syn- ir okkar, Ari Gísli fimm ára og Valgarður tveggja ára, voru með í för. Við fengum ljómandi íbúð hjá „en bolighaj“ sem átti að sögn 800 íbúðir viða um borgina. Um líkt leyti flutti líka til Kaup- mannahafnar Alfreð Flóki æsku- vinur minn ásamt lífsförunaut sínum Ingibjörgu Alfreðsdóttur og bjuggu þau í næstu götu á Söndshvilervej, sem Flóki nefndi „Sindsygevej“ og átti það við nokkuð að styðjast hjá þeim. Fljótlega eftir flutninginn bauð Flóki okkur að koma með þeim til Tryggva Ólafssonar og konu hans Gerðar Sigurðardóttur, sem bjuggu stórbúi í útjaðri helsta melluhverfis Kaupmannahafnar – á Stampesgade 4. Það var eins og við manninn mælt að ljúfar ástir tókust með okkur og Gerði og Tryggva og hélst það allar götur síðan. M.a.s. skrifaði ég pistil í sýningarskrá hans þegar hann gerði stríðrekstur USA að umfjöllunarefni í Gallerí SÚM á áttunda áratugnum, undir ófar- sælli stjórn Nixons forseta. Ferðir okkar til þeirra sæmd- arhjóna urðu margar og litríkar. Börn voru þeim fædd, Gígja og seinna Þrándur. Veisluborð þeirra voru þung og næringar- mikil og sérlega súpurnar, sem ilmuðu af suðrænum kryddjurt- um. Árin liðu og ég fór á stúfana og auglýsti öðru hverju eftir ís- lenskum munum og málverkum og kom heilmikið út úr því. Þann- ig eignuðumst við málverk eftir Jón Stefansson, Júlíönu, margar eftir Kristínu Jónsdóttur, tvö eft- ir Mugg, nokkrar raderingar e. Salvador Dali, útskorinn kistil eftir Bólu-Hjálmar, útskorinn fálka eftir Stefán Eiríksson myndskera, myndir eftir Kjarval og fleiri. Tryggvi reyndist okkur ráðhollur við innkaupin. Árið 1980 tók ég þátt í alþjóðlegri fornbókasýningu í Heilagsanda- kirkjunni við Strikið í Kaup- mannahöfn. Þá bjó Flóki þar nærri og alla dagana fór ég út að borða með þeim Ingibjörgu og oftast á Café Stephan a Porta við Kongens Nytorv. Stundum buð- um við Gerði og Tryggva og voru þetta skemmilegir fundir. Bóka- sýningin gekk mjög vel og m.a. seldi ég bók Blefkens, níðritið um Ísland, sem Arngrímur lærði andmælti, til bresks kollega sem greiddi fyrir 400 pund með tékka einkabanka Bretadrottningar, „Coutts“. Tímdi ég ekki að inn- leysa hann og á hann einhvers staðar í fórum mínum. Oft fór Nína Björk mín til Kaupmanna- hafnar og vann að skrifum og dvaldi þá í klaustri Heilagrar Liobe. Átti hún jafnan athvarf hjá Gerði og Tryggva. Eftir að þau hjónin fluttu til Íslands, þá bæði löskuð á líkama, hitti ég þau oft og áttum við saman góðar stundir í sús og dús. Fráfall þessa trygga og góða vinar er sorglegt og bið ég Gerði og börnum þeirra allrar blessunar. Þrjá erfingja á sérhver maður: Mennina, mold- ina og sálarinnar meðtakara. Bragi Kristjónsson. Þá er hann farinn félaginn góði; vinur og fóstbróðir í hálfa öld. Heima hjá þeim Gerði í Stampesgade var gott að dvelja og listaverkin hans tæru, með lín- unum sterku og litunum hreinu, voru allt í kring. Djassinn hljóm- aði í stofunni og svínabein á borð- um, löðrandi í Tryggvasósu, og kartöflurnar ómissandi. Milli þess sem djassinn gladdi eyrað sagði hann sögurnar endalausu, kryddaðar eðlislægri fyndni. Þegar leið á nóttu var 10 tommu skífan með Town Hall-tónleikum Louis Armstrongs 1947 spiluð og rispurnar ómissandi á sínum stað. Þegar ég gaf honum nýja útgáfu af tónleikunum seinna var hann lengi að venjast rispu- leysinu. Árið 1971 þurfti Jónína, mág- kona mín, Guðnadóttir að flytja. Tryggvi var í Íslandsheimsókn, Kristján bróðir í Höfn. Við Tryggvi hjálpuðum henni og á eftir bauð ég honum heim. Ég átti Clock Orange-líkjör sem drukkinn var í sódavatni og djassinn hljómaði fram undir morgun. Djassinn, sem skipaði svo stórt hlutverk í vináttu okkar, ekki síður en sameiginlegt við- horf til lífsins, mótað af sósíalism- anum, sem fyrir okkur var grundvöllur allrar siðmenningar. Stampesgade og Jazzhus Montmartre voru oftast helstu áfangastaðir mínir í Höfn og fyrir okkur, félagana í Jazzvakningu, myndskreytti hann diska, ekki síst vinar síns Guðmundar Ing- ólfssonar, og gerði fín plaköt. Stjörnur djassins voru tíð við- fangsefni og ég þori að fullyrða að aldrei hafa verið teiknaðar betri myndir af Louis og Hawk- ins, Duke, Ben og Dexter en þær sem hann dró. Tryggvi var þéttur á velli, skapið mikið og stundum þrár og þver. Það kom sér vel er hann glímdi við lömunina eftir slysið illa á svölunum á Italiensvej 2007. Því tókst honum að fást við list sína að nýju bundinn hjólastól með kreppta fingur. Okkur varð aldrei sundurorða; bæði var sýn okkar á listina og mannfélagið samstiga og svo kunnum við að sveigja listilega framhjá því sem óþarfi var að ræða. Ég flaug oft til Hafnar til fundar við Tryggva, tók við hann viðtöl þegar þurfti og var veislu- stjóri í hinu magnaða sextugsaf- mæli hans á Italiensvej þar sem helstu listamenn hins gamla danska konungdæmis voru sam- ankomnir og íslensk/dönsk djass- sveit lék fyrir gesti. Tíu árum seinna var ég aftur veislustjóri hjá Tryggva. „Þú getur fengið miklu fyndnari veislustjóra en mig,“ sagði ég við hann. „Þarf þess ekki. Þú sérð um að ræður verði fáar og stuttar og gestirnir skemmti sér sem best við spjall og glaum.“ Þetta var fín veisla og meistari Rúnar Georgsson, hel- sjúkur, mætti til að blása til heið- urs Tryggva. Eftir að ástin í lífi hans, Gerð- ur Sigurðardóttir, féll af hjóli og skaddaðist illa varð hann að stjórna heimilishaldi. Einhvern veginn tókst honum að sigla milli skers og báru og undir ævilok var hann heimilisfaðirinn góði sem undi sér vel með börnum og barnabörnum og meira að segja barnabarnabarn hafði bæst í hóp- inn. Hans verður minnst svo lengi sem íslensk myndlist er í heiðri höfð og hafi hann þökk fyr- ir tryggðina og vináttuna og sendum við Anna Bryndís sam- úðarkveðjur til Gerðar, Dánda, Gígju, Stígs og barnabarnanna allra. Vernharður Linnet. Þetta er bara hann Tryggvi! Svona hófust símtöl við Tryggva, þegar hann loksins fór að nýta sér símatæknina, sem var ekki fyrr en seint á áttunda ára- tug síðustu aldar. Honum hugn- aðist betur að hafa samskiptin skrifleg í venjulegu bréfi eða póstkorti enda mjög hugmynda- ríkur og skemmtilegur penni og var ekki fyrir hraða nútíma- tækni. Ég var að fara í gegnum fjöldann allan af skemmtilegum póstkortum, bréfum og minn- ismiðum sem Tryggvi sendi okk- ur. Þetta eru allt svo skemmtileg skrif, sem er dýrmætt að eiga. Tryggva kynntist ég 1983 þeg- ar ég fékk að koma á vinnustof- una hans með kaup á mynd í huga. Þá kom fljótlega í ljós að við áttum ýmislegt sameiginlegt, vorum báðir fyrrverandi tog- arasjómenn, með mjög mikinn áhuga á djasstónlist og myndlist. Þetta var upphafið að góðri vin- áttu okkar og fjölskyldna okkar; margs að minnast sem ber að þakka fyrir. Tryggvi sigldi nokkrar ferðir með mér þegar ég var skipstjóri hjá Eimskip. Þá brást ekki að hann tók pönnukökupönnuna sína með í ferðina til að geta bak- að ljúffengar pönnukökur á heim- leiðinni fyrir alla skipshöfnina. Það má segja að hann hafi bakað sér miklar vinsældir og voru þær ekki minni þegar hann áritaði þrykkin sín fyrir þá sem vildu. Þegar ég hitti þessa fyrrverandi skipsfélaga var ég oft beðinn fyr- ir kveðju til Tryggva. Tryggvi kom oft á heimili okk- ar. Eitt sinn segir hann þegar hann horfir á plötuspilarann: „Það vantar mynd á vegginn fyrir ofan spilarann, hvern viltu fá?“ „Dexter,“ svaraði ég. Tryggvi svaraði: „Já, hún þarf að vera svona tvær spannir!“ Næst þegar ég kom til Kaup- mannahafnar kom hann með bestu mynd af Dexter Gordon sem gerð hefur verið, að mínu mati og fleiri. Það var svo margt sem Tryggvi fræddi mig um og sér- staklega var hann ráðagóður varðandi ferðalög og heimsóknir á listasöfn. Það var mjög gaman að fara með honum í Statens Mu- seum for Kunst og fá hans góðu leiðsögn. Hann var stálminnugur, mikill sögumaður og miðlaði mér oft fróðleik um bæði djass og list og margt fleira, sem við höfðum mikla ánægju af að ræða. Blessuð sé minning Tryggva. Innilegar samúðarkveðjur til Gerðar og fjölskyldu. Matthías og Katrín. Tryggvi var einstakur maður. Glaðvær húmoristi, nægjusamur, lítillátur, vinmargur. Tróð sér hvorki fram né steig á aðra, sögu- maður af Guðs náð. Stjórnmálaskoðanir Tryggva komu ekki á óvart, uppalinn á venjulegu íslensku alþýðuheimili í Neskaupstað á tíma kalda stríðsins. Stóð ætíð með lítil- magnanum, gegn allri kúgun, græðgi og ofríki en virti um leið frelsi einstaklingsins. Frelsi til hugar og handar skipti hann miklu. Ætíð sjálfum sér sam- kvæmur, hreinn og beinn. Sam- hliða unni Tryggvi þjóð sinni og landi og óspilltri náttúru þess. Sagði langar fjarvistir frá Íslandi hafa gert sér auðveldara að þekkja landið, gæti til dæmis teiknað og málað flest fjöll á Austurlandi eftir minni, svo greypt væru þau í minni sitt. Að hitta Tryggva í Kaup- mannahöfn var ætíð tilhlökkun- arefni. Koma á vinnustofuna, skoða myndir og spjalla, fá sér saman smörrebröd, öl og snafs. Rölta síðan um helstu krár borg- arinnar, hlusta á djass og fylgjast kvöldlangt með Tryggva njóta tónanna og reykja sína sterku smávindla. Gönguferðir með Tryggva um borgina voru upplifun, hann þekkti allt; götur, torg, söfn, hús sem þekktir Íslendingar höfðu búið í, byggingarsöguna, síkin, stytturnar, myndir og listaverk. Frásögnin og fróðleikurinn rann fram hik- og hnökralaust. Ógleymanlegt. Tryggvi var í raun nokkurs konar menningarsendiherra Ís- lands í Kaupmannahöfn til margra áratuga, þó að hann gerði sér ekki grein fyrir því. Til hans sótti lista- og menningarfólk, ekki alltaf til þess að þiggja eða njóta aðstoðar eða leiðbeininga, heldur fremur til að hitta víðsýn- an skemmtilegan og listrænan mann, fullan af visku, hugmynd- um og umhyggju. Vini sína ræktaði Tryggvi vel. Hélt sambandi með bréfum, sendi reglulega póstkort með ábendingum og notaði mest sím- ann eftir að heim kom og erfiðara var með skrif. Símhringingar í seinni tíð að lágmarki einu sinni í mánuði, stundum í viku hverri og jafnvel mörgum sinnum í viku þegar mikið lá við, hugmyndir að þróast og verkefni í vinnslu sem gjarnan tengdust Tryggvasafni í Neskaupstað. Skemmtileg sam- töl. Minnisstæðir eru pappahólk- arnir sem komu iðulega um jólin frá Tryggva í Danmörku með hlýlegum kveðjum og grafík- mynd. Tryggvi skapaði sér mjög per- sónulegan myndlistarstíl. Fram- an af þóttu sumar myndir hans pólitískar, sérstaklega á tíma Ví- etnamstríðsins, sem sumir vildu kenna við popplist. Frá þeirri braut hvarf hann, fékkst í staðinn við margskonar form, tákn og liti, stundum ef til vill með ósjálfráðri tilvísun í Matisse og Lichten- stein, sem hann unni. Þá teiknaði hann og málaði átrúnaðargoðin, Armstrong, Miles Davis o.fl. Í mörgum myndum Tryggva má glöggt sjá lífsviðhorf hans, víðáttuna, frelsið, himininn, sjó- inn, fjöllin, sjávardýr og fugla, báta, skip og flugvélar, goðsagna- kennt fólk, andlit, hendur, fætur. Gleðin og birtan í marglitum myndfleti en inn á milli dökkar áminningar, myrkur, drungi og hætturnar sem til staðar eru í líf- inu, grímur, eggvopn, hnífar, sverð, spjóts- og örvaroddar, ax- ir, hauskúpur, bein. Þannig verð- ur myndefnið margbreytilegt og stundum órætt. Allt gerir þetta myndirnar einstakar og óvenju- legar og Tryggva sérstakan og ólíkan öðrum íslenskum listmál- urum. Hugheilar samúðarkveðjur til Gerðar og fjölskyldunnar allrar. Þakka fyrir þau forréttindi að hafa fengið að kynnast Tryggva og vináttu hans í rúmlega 30 ár. Jón Sveinsson. Það er alltaf sérstakur blær yf- ir kynnum íslenskra námsmanna erlendis, þegar ungt fólk flyst tímabundið til annars lands, sog- ar í sig útlenda menningu og aðra tungu, jafnvel þótt ekki sé farið lengra en til hinnar gömlu höf- uðborgar Íslendinga við Eyrar- sund. Við Tryggvi kynntumst á námsárunum okkar í Kaup- mannahöfn, þar sem við vorum bæði við nám í hinum virðulega skóla með langa nafninu sem í daglegu tali var kallaður Kúnst- akademíið og var í hjarta borg- arinnar við Kóngsins nýjatorg. Við vorum bæði að búa okkur undir lífið hvort á sinn hátt. Þeg- ar Gerður kom út til hans bættist það við að við vorum með syni á sama aldri svo að samgangur varð meiri því að Tryggvi var mikill fjölskyldumaður. Þegar heim var komið var það óhugsandi að fara í gegnum Kaupmannahöfn án þess að koma við hjá Tryggva og Gerði í Stampesgade. Þau voru höfðingj- ar heim að sækja, þar var gest- kvæmt og einhvern vegin var þar alltaf veisla, andleg eða veraldleg eftir því hvernig á stóð. Tryggvi var alla tíð trúr uppruna sínum og skoðunum hvort sem það var Neskaupstaður, málaralistin, pólitíkin eða djassinn. Í list sinni tók Tryggvi breyt- ingum og þroska með sínu lagi en elti hvorki tískubólur né „isma“. Af eigin reynslu á mínu heimili þekki ég hvað gott er að búa með listaverkum hans áratugum sam- an. Tryggvi tók list sína alvarlega og var alla tíð mjög vinnusamur. Hann var líka heimsborgari, sem naut meiri velgengni erlendis en flestir aðrir íslenskir listamenn. Allt til hins síðasta vann hann að list sinni, þrátt fyrir að hann gæti vart haldið á blýanti, hvað þá pensli, og hélt áfram að búa til grafíkmyndir með tækni sem hann réð við, grafíkmyndir sem hafa fallið Íslendingum vel í geð. Að leiðarlokum vil ég þakka Tryggva langan vinskap um leið og við Ólafur vottum Gerði og fjölskyldunni allri innilega samúð okkar. Albína Thordarson. Tryggvi. Dökkklæddur og oft- ast í velktum skóm. Þykkar hend- ur, stór og boldangsmikill. Eins og ímynd bátsmanns á gömlum Tryggvi Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.