Morgunblaðið - 14.01.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 14.01.2019, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 ✝ Alda Þorgríms-dóttir fæddist í Hjarðarholti við Hofsós 11. ágúst 1936. Hún lést á sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 4. janúar 2019. Hún er næst- yngsta barn hjónanna Þorgríms Þorleifssonar, f. 1901, og Kristjönu Guðrúnar Tómasdóttur, f. 1908. Systkini Öldu eru: Herdís, f. 1931, d. 2016, Margrét, f. 1932, Pálína, f. 1935, og Tómas Ingi, f. 1939. Alda giftist Garðari Að- alsteinssyni, f. 1931, d. 2011, frá Jórunnarstöðum í Eyjafirði á sumardaginn fyrsta 1956. Hann er sonur hjónanna Aðalsteins Tryggvasonar, f. 1889, og Pál- ínu Frímannsdóttur, f. 1888. Alda og Garðar bjuggu allan sinn búskap á Akureyri. Börn þeirra eru: 1) Ómar, f. 1956, giftur Rannveigu Benediktsdóttur, þeirra dætur eru Alda og Tinna Lóa. 2) Smári, f. 1957, á börnin Sylvíu og Sölva með Arnheiði Tryggvadóttur. 3) Páll Sævar, f. 1959, giftur Sigurði Erni Guðbjörnssyni. 4) Guðrún Eydís, f. 1965, í sambúð með Bjarna Einarssyni, þeirra börn eru Garðar og Bergdís Lind. 5) Viðar, f. 1969, giftur Sigríði Ágústu Viðarsdóttur, þeirra synir eru Kristófer Páll, Jóel Páll og Leon Páll. Barnabörn Öldu og Garðars eru fimm. Alda vann ýmis störf um æv- ina. Lengst vann hún á veitinga- húsinu Bautanum, allt frá opnun þess, og þar lauk hún starfsferli sínum. Alda verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag, 14. jan- úar 2019, klukkan 13.30. Elsku Alda tengdó, eins og ég var vön að kalla hana, er látin. Mig langar til að kveðja hana með fáeinum orðum. Í minningunni var hún ein dug- legasta kona sem ég hef kynnst í gegnum tíðina. Það var nánast al- veg sama hvað hún tók sér fyrir hendur; það virtist allt leika í höndunum á henni, hvort sem það var eldamennska, bakstur eða handavinna. Ég var sextán ára þegar ég kom fyrst inn á heimilið til ykkar og við erum búnar að bralla ým- islegt saman í þessi 45 ár sem við höfum fylgst að. Ég minnist ferðarinnar sem við Ómar fórum með ykkur Garðari á Austfirðina, það var svo notaleg ferð, þar sem við keyrð- um um í góðu veðri og nutum þess að stoppa á hverju einasta kaffihúsi sem við sáum. Þetta er aðeins ein minning af fjölmörgum góðum stundum sem við áttum. Elsku Alda mín, takk fyrir allt. Guð geymi þig. Rannveig Benediktsdóttir. Ég man vel eftir því þegar ég hitti Öldu fyrst. Það var í fyrstu ferð minni norður til Akureyrar með syni hennar, Palla. Við kom- um við í Skipagötunni, bönkuðum upp á í Alþýðubankanum þar sem hún var að vinna við þrif. Og eins og þessi fyrsta mynd af fundi okkar Öldu hefur síðan lifað í huga mér, þá mun síðasta myndin gera það líka. 2. janúar kvaddi ég hana á Sjúkrahúsinu á Akureyri, þar sem hún hafði legið mestan hluta aðventunnar og yfir hátíð- irnar. Sjálfur var ég gestur á heimili hennar þessi jól, líkt og mörg árin á undan. Að þessu sinni var þó allt með öðrum brag, Alda glímdi við erfið veikindi, en þrátt fyrir þrautir var skopskyn hennar samt við sig og eftir að hafa kvatt bætti hún við „ og ætl- arðu ekki að þakka fyrir terturn- ar og veitingarnar “. Og vissulega voru jólin ólík öðrum jólum í þessu sem öðru. Á þeim rúmu þrjátíu árum sem liðu milli þessara mynda er margs að minnast, margt að þakka. Alltaf var gott að koma norður, fyrst á Eyrarveginn og svo í Brekkugötu, með stuttu stoppi í Tjarnartúni. Þar sá ég fljótt að ég átti öruggt athvarf og gerði mér grein fyrir úr hvaða jarðvegi mannkostir sem ég hef kynnst hjá syni þeirra eru sprottnir. Traust, ósérhlífni og fágætt æðruleysi, vissa um að þarna átti ég athvarf sem mér bar að rækta. Oft var ekið um Norð- urland, fram í fjörð, stoppað í Tjarnargerði þar sem fjölskyldan eyddi mörgum sumarstundum. En einnig var ekið um æskuslóðir Öldu í Skagafirði. Þar gengum við eitt sinn að tröppunum á Hjarðarholti við Hofsós sem ein- ar standa eftir af æskuheimili hennar. Þar sagði hún sögur af uppvexti sínum og systkina sinna, lífi þeirra við ystu hafsbrún. Eins var gaman að taka á móti henni í Reykjavík, í heimsóknum hennar til borgarinnar eða á leið í og úr ferðum hennar með Palla, syni sínum, til útlanda. Oft rifjuðu þau upp þessar ferðir og eftir að heilsu Öldu hrakaði og hún hætti sjálf að ferðast hefur hún verið nálæg á ferðalögum okkar Palla og þannig verður það áfram. Úr sömu sveit og Alda er ljóðskáldið Hannes Pétursson sem á liðnu hausti gaf út ljóðabókina Haust- augu og með ljóðlínum úr þeirri bók vil ég kveðja Öldu og þakka fyrir allt sem ónefnt er hér. Hinstu þakkarorð sem ég skrifa þau skrifa ég eingöngu með andardrætti mínum Sigurður Örn Guðbjörnsson. Elsku amma Alda, það er skrítið að hugsa til þess að þú sért ekki meðal okkar lengur. Amma, þú varst engin venju- leg kona heldur sannkallaður dugnaðarforkur sem fórst létt með hlutina. Það var alveg sama hvenær við litum inn, það var allt- af nóg til af brauði og bakkelsi og það fannst okkur systrunum ekki slæmt. Svo við tölum nú ekki um hið eina sanna þorrablót sem þú hélst á heimili þínu fyrir alla fjöl- skylduna ár eftir ár þar sem öllu var til tjaldað. Það var alltaf svo hreint og fínt í kringum þig og þannig leið þér best. Við eigum margar góðar minn- ingar um ykkur afa síðan við vor- um litlar. Það sem stendur upp úr eru allar ferðirnar í Tjarnargerði og heimsókn í sveitina til Dísu frænku á Stapa. Við munum líka eftir öllum ferðunum sem við fór- um í berjamó með ykkur afa þar sem við tíndum ber í fötu og feng- um svo nesti, en það var aðalmál- ið hjá okkur. Í seinni tíð höfðum við skapað okkur skemmtilega hefð, þar sem við systurnar buðum þér í skötu- veislu á Þorláksmessu. Síðasta ferðin er afar eftirminnileg, þar sem við fengum svo agalegt hlát- urskast sem ætlaði engan enda að taka. Elsku amma okkar, takk fyrir allar góðu stundirnar sem við átt- um saman. Við munum sakna þín. Þínar Alda og Tinna Lóa. Alda Þorgrímsdóttirí hans uppáhaldi. Þetta fyrsta ár mitt á Stampesgade var upphaf að góðum tengslum við Tryggva og Gerði. Tryggvi var þá með vinnustofuna í Stampesgade og var gestagangur á heimilinu mik- ill. Á næstu árum kynntist ég mörgum listamönnum, en eftir- minnilegir í þeim hópi eru Flóki og Eyjólfur. Tryggvi hafði sér- stakt álit á Flóka og sagði að þeg- ar Flóki kom á sýningar þar sem landinn var að sýna sín málverk hefði hann gengið rösklega um sýningarsalinn og ef hann fór strax út var sýningin ekki góð en ef hann tók annan hring og stopp- aði við einhver verkin var sýn- ingin í góðum málum. Að reiða fram góða kjötrétti var nokkuð sem Tryggvi var fær í og var einn þeirra „den sorte gryde“ sem var nautagúllas soðið í sterku kaffi og út í það látið danskt ákavíti. Þessi réttur var í uppáhaldi hjá okkur Eyjólfi. Djass var í sérstöku uppáhaldi Tryggva og sótti hann eitt sinn Tívolí til að hlusta á Louis Arm- strong. Hann sagði mér að þetta hefði verið mikil upplifun, svo ekki sé minnst á það að hafa náð að taka í höndina á Armstrong og þakka fyrir. „Maður var nú ald- eilis ekki að þvo höndina næstu vikurnar,“ sagði hann og hló. Tryggvi er af þjóðinni þekktur sem einn af okkar bestu lista- mönnum enda var hann sæmdur fálkaorðunni af forseta Íslands og Dannebrogsorðunni af Mar- gréti Danadrottningu. Nú hefur Tryggvi kvatt þenn- an heim og ég veit að við í fjöl- skyldunni minni munum sakna hans sárlega. Tryggvi var lán- samur í einkalífi með sína ynd- islegu eiginkonu Gerði, börnin Stíg, Gígju og Þránd og barna- börn. Ég vil þakka honum innilega fyrir hans dýrmætu vináttu í minn garð. Gerði, börnum og fjöl- skyldum þeirra sendum við Dúa okkar hjartanlegustu samúðar- kveðjur. Kristján og Guðrún (Dúa). Minningar leita á hugann. Við erum á leið í Louisiana-safnið á Sjálandi. „Við skulum fara Strandvejen,“ segir Tryggvi Ólafsson. Það sagði hann alltaf þegar við ókum þessa leið. Nán- ast alla leiðina sagði hann sögur af því sem fyrir augu bar. Sögur af fólki, húsunum og landinu. Það var afskaplega gaman að fara með honum að skoða söfn og sýn- ingar. Hann hafði yfirburðaþekk- ingu á listasviðinu. Stundum nut- um við þess að hafa Braga Ásgeirsson með okkur og þá var ferðin fullkomnuð. Þessa tvo fé- laga skorti aldrei umræðuefni. Myndlist, pólitík og þjóðfélags- mál voru hæst á baugi. Þessar ferðir eru ógleymanlegar. Tryggvi Ólafsson var meðal merkustu listmálara íslensku þjóðarinnar. Hann var einn af brautryðjendum popplistar á Ís- landi og stíll hans var auðþekkj- anlegur. Hann var ástsæll lista- maður og verk hans eftirsótt. Hann lét sér fátt um finnast hvað aðrir sögðu. Þótt stefnur og straumar breyttust hélt hann ávallt sínu striki. Tryggvi hélt ótal sýningar á verkum sínum, aðallega hérlendis og í Dan- mörku þar sem hann bjó og starf- aði lungann úr ævinni. Við í Fold nutum þess að hýsa nokkrar sýningar Tryggva og voru þær ávallt meðal best sóttu sýninga í galleríinu. Tryggvi Ólafsson fékk margar viðurkenn- ingar fyrir störf sín og í heimabæ hans, Neskaupstað, hefur verið sett upp myndarlegt safn með verkum hans. Er það nánast eins- dæmi hérlendis að sett hafi verið upp safn með verkum núlifandi listamanns. Tryggvi Ólafsson var afskap- lega vinsæll maður og skemmti- legur. Heimili þeirra Gerðar í Kaupmannahöfn stóð Íslending- um ávallt opið. Þangað komu vin- ir og ættingjar og margir fengu húsaskjól í lengri eða skemmri tíma. Oft mun hafa verið glatt á hjalla og sagði Tryggvi stundum skemmtilegar sögur af gesta- gangi á heimilinu. Þegar þau hjón fluttu heim til Íslands hélt sendi- ráð Íslands í Kaupmannahöfn veglega kveðjuveislu fyrir þau í sendiherrabústaðnum. Þangað komu fjölmargir vinir og kunn- ingjar, bæði Íslendingar og Dan- ir. Margir tóku til máls og kvöddu hjónin með miklum trega og þakklæti. Líf Tryggva var ekki ávallt dans á rósum. Lífsbaráttan fyrstu árin eftir að hann flutti til Kaupmannahafnar var erfið, en þau Gerður voru samhent í bar- áttunni. Það var svo mikið reið- arslag þegar Gerður slasaðist mjög alvarlega. Hún hefur barist við afleiðingar þess alla ævi. Ann- að slys varð svo til þess að Tryggvi skaddaðist illa og notaði hjólastól til æviloka. Hann gafst þó aldrei upp og þótt hann gæti ekki stundað listmálun sína gat hann unnið að grafík og teikning- um. Þá fór hann í nokkrar ferðir til útlanda, aðallega í þeim til- gangi að skoða söfn og sýningar. Áhuginn á myndlistinni var óbil- andi. Nú er komið að leiðarlokum. Í huga okkar eru minningar um skemmtilegan og góðan félaga og þakklæti fyrir alla samveruna. Við sendum hugheilar samúð- arkveðjur til eftirlifandi ættingja Tryggva Ólafssonar. Fólkið í Gallerí Fold; Elínbjört, Tryggvi, Jóhann, Margrét, Sólveig, Margrét (Maddý), Iðunn, Elínborg, Friðrik, Sóley, Hans og Georg. Það var alveg á hreinu að ég ætlaði ekki að láta hann Tryggva sjá að ég væri nú ekkert sérstak- lega hrifin af kjötbollunum hans, laukurinn var alltof gróft skorinn og innst inni langaði mig bara að fá mér pylsu við brautarstöðina. Það var svo ekki fyrr en löngu seinna sem ég uppgötvaði að hann gerði heimsins bestu kjöt- bollur eldaðar af kærleika og takti frá Dexter Gordon eða þess vegna Billie Holiday. Að fá að dvelja á Stampesgötu 4 í ævin- týraborginni Kaupmannahöfn voru forréttindi. Það var eitthvað ævintýralegt við það að dvelja heima hjá Gerði frænku og Tryggva. Maður lærði allt um kúnst, bjórinn átti að vera kjall- arakaldur, það væri mikilvægt að lesa góðar bækur og skoða lista- verk. Ég get dregið upp mynd af okkur öllum gangandi á eftir Tryggva þar sem hann gekk ákveðnum skrefum í flaksandi frakkanum inn á eitthvert safnið til að upplifa og sjá eitthvað sem skiptir máli. Svo sat maður kannski á eftir við borðstofuborð- ið og gat gleymt sér við að horfa á stóru hendurnar hans Tryggva, steinhissa á að hann, með þessar hendur, gæti gert þessi stórkost- legu listaverk. Mér þótti ofur- vænt um Tryggva, helst hefði ég viljað skrifa þetta á fallegt kort og senda honum, svona eins og hann kenndi mér að gera. Í stað- inn sit ég í stofunni minni, Billie raular tregafullan söng og ég sé hann fyrir mér kátan í röndóttu skyrtunni sinni í sveitinni ljúfu í Ræveskifted að heilgrilla lamb með stríðnisglampa í augum og mikla matarlyst. Við Torfi og krakkarnir sendum Gerði, Gígju, Ara, Þrándi, Stíg og öllum sem elskuðu Tryggva kærleiksríkt faðmlag. Við eigum eftir að sakna hans. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir. Tryggvi Ólafsson Ástkær tengdamóðir okkar, amma og langamma, GUÐBJÖRG SIGRÍÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR frá Ási í Laxárdal, lést í faðmi fjölskyldunnar á Hrafnistu í Hafnarfirði 8. janúar. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 17. janúar klukkan 13. Hjálmfríður Hafliðadóttir Sigríður Gunnarsdóttir Guðbjörg, Hulddís, Hermann, Hafrún, Elínborg, Gunnar og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, ÓLÖF HELGA SIGURÐARDÓTTIR BREKKAN, tannlæknir, lést fimmtudaginn 10. janúar sl. Útförin fer fram frá Neskirkju við Hagatorg fimmtudaginn 17. janúar klukkan 13. Friðrik Brekkan Jóhanna Jóhannsdóttir Elísabet Brekkan Þorvaldur Friðriksson Hólmsteinn Brekkan Helga Brekkan Hanna Brekkan barnabörn og barnabarnabörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN SIGURÐSSON svæfingalæknir, sem lést laugardaginn 29. desember, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 15. janúar klukkan 15. Ásdís Magnúsdóttir Sigurður Örn Jónsson Sigríður Oddný Guðjónsdóttir Þorbjörg Jónsdóttir Sæþór Ólafsson Hermann Páll Jónsson Éva Tóth barnabörn og barnabarnabarn ✝ Steinunn Sig-ríður Jón- asdóttir fæddist í Norðurgötu 27, Ak- ureyri, 19. sept- ember 1939. Hún lést á dvalarheim- ilinu Hlíð á Akur- eyri 16. desember 2018. Foreldrar henn- ar voru Fanný Clau- sen, f. 27. febrúar 1915, d. 9. ágúst 1983, og Jónas Stefánsson, f. 9. september 1916, d. 11. júní 1967. Systkini Stein- unnar sem eru á lífi eru Svan- fríður, f. 28. júlí 1937, og Bjarni Fannberg, f. 21. september 1941. Látnir eru Óskar, d. 1945, Hauk- ur, d. 1949, Axel Björn, d. 1985, og Vöggur, d. 2004. Hinn 14. apríl 1960 giftist Steinunn Brynjari Jónssyni, f. 24. desember 1937, d. 28. júní 2013. Foreldrar Brynjars voru Stefán Jón Valdimarsson, f. 9. febrúar 1898, d. 13. febrúar 1986, og María Guðrún Árnadóttir, f. 9. des- ember 1896, d. 8. október 1986. Börn Steinunnar og Brynjars eru: 1) Jó- hann Svan, f. 24. desember 1959. Börn hans eru Brynja, f. 1981, Hjörtur, f. 1985, Bryndís, f. 1991, og Daníel, f. 1993. 2) Fanný María, f. 5. nóvember 1967. Eiginmaður hennar er Birgir Rúnar Davíðsson og eiga þau saman tvo syni, Davíð Stein, f. 2001, og Sigurstein Ými, f. 2007. Sonur Fannýjar úr fyrra sambandi er Magnús Brynjar Orrason, f. 1992. Brynjar og Steinunn hófu bú- skap sinn á Akureyri en fluttu til Hríseyjar árið 1961. Þau fluttu aftur til Akureyrar 1976 og bjuggu þar til æviloka. Útför Steinunnar fór fram frá Akureyrarkirkju 3. janúar 2019. Þú kvaddir okkur rétt fyrir jól- in, en jólin voru þinn uppáhalds- tími. Þú varst búin að gera fallegt í kringum þig og varst ánægð í nýja herberginu á Hlíð. Þú fórst í friði og ert nú komin aftur til Binna þíns, þangað sem þú vildir fara. Heimilið ykkar var alltaf svo fallegt og það var gott fyrir börnin að koma þangað, sérstak- lega í desember, þá var heimilið eins og fallega upplýst ævintýra- land og alltaf eitthvert góðgæti í boði. Síðustu árin voru þér erfið en við vitum að nú hefurðu fundið frið. Nú falla tár. Þér fagnið þá er finnast vinir himnum á og samvist hefst í sælubyggð þá sorg mun gleymd og dauðans hryggð. Svo krjúpið hljóð við kisturnar og kveðjið þá er blunda þar og flytjið kvöldbæn hægt og hljótt. Af hjarta segið: Góða nótt. (Valdimar V. Snævarr) Guð geymi þig. Jóhann Svan, Fanný María, Birgir Rúnar og fjölskyldur. Steinunn Sigríður Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.