Morgunblaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 ✝ Birna JóhannaJónsdóttir fæddist í Reykjavík 5. apríl 1931. Hún lést á Landspít- alanum 1. janúar 2019. Foreldrar henn- ar voru Kristín Júnía Einarsdóttir og Jón Björgvin Jónsson. Systkini hennar voru Óskar Jónsson hálfbróðir, Erna Sigurveig Jónsdóttir og Sigurður Jónsson. Erna er ein eftirlifandi þeirra. Hinn 1. apríl 1961 giftist Birna manni sínum, Haraldi Ólafssyni. Foreldrar hans voru Sesselja Ólafsdóttir og Ólafur Jósúa Guð- mundsson. Birna og Haraldur bjuggu á Patreksfirði, lengst af á Strandgötu 19. Haraldur lést í sjó- slysi 5. júní 1990. Dóttir þeirra er Kristín Viggósdótt- ir og maður hennar er Hilmar Jónsson. Börn þeirra eru Haraldur Kristinn, Bárður og Birna Kristín. Barnabörn- in eru: Aðalbjörg Birna Haralds- dóttir, Jökull Myrkvi Haraldsson, Elsa María Bárðardóttir, Freyja Sif Bárðardóttir, Sara Bárð- ardóttir, Blíða Líf og Bjarmi Þór. Minningarathöfnin fer fram í Hafnarfjarðarkirkju í dag, 14. janúar 2019, klukkan 13. Birna Jóhanna verður jarðsett í Patreksfjarðarkirkjugarði 19. janúar 2019 klukkan 14. Amma kær, ert horfin okkur hér en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau, er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð og allt hið mesta gafst þú hverju sinni. Þinn traustur faðmur okkur opinn stóð og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra, nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá, í hljóðri sorg, og ástarþakkir færa. (Ingibj. Sig.) Þín Sísí og fjölskylda. Jæja, þá er komið að þessu, elsku amma mín. Sama hvernig maður reynir að undirbúa sig fyrir dauðann þá er það bara ekki hægt. Erfiðast var að tilkynna dóttur minni andlátið, eða nöfnu þinni eins og þú kallaðir hana alltaf. Þegar ég tilkynnti henni þetta þá vildi hún endilega hringja í þig, því það gæti verið að hún myndi ná þér áður en þú færir til himna. Heldur var hún ekki sátt með að þú yrðir jörðuð á Patró, því þá gætum við ekki heimsótt þig þeg- ar við vildum. En ég sagði henni að það eina sem amma vildi í þessum heimi væri að láta jarða sig við hliðina á Halla afa. Mikið skil ég það vel að vilja hvíla í kirkjugarð- inum á Patró. Á fallegasta staðn- um og vera með besta mann heimsins sér við hlið. Að alast upp hjá Birnu ömmu voru forréttindi, það var allt gert fyrir mig, sama hvort ég suðaði um pening í bíó eða að baka pönnsur eða klatta nálægt mið- nætti ef þess þurfti. Eftir að afi dó árið 1990 þá varð ég þinn maður í lífinu. Við ferðuðumst saman, fór- um í heimsóknir út um allt land, brunuðum á ættarmót á tveggja ára fresti. Þú varst nú ekki mikið að skipta þér af hvað maður gerði í lífinu, en það voru nokkur atriði samt. Þú lagðir mikla áherlsu á að ég kláraði stúdentspróf. Ég klár- aði það og mikið varstu stolt af mér, ég held að enginn á Íslandi hafi klárað það jafnvel og ég að þínu mati. Svo verð ég nú að minn- ast á allar bílferðirnar þínar. Þau skipti sem þú keyrðir með mann í Reykjavík þá þurfti maður nú iðu- lega að valsa nærbrókina. Eitt skipti vorum við að keyra suður í bæinn og tókum einn puttaling upp í. Þá kemur skyndilega blind- hæð og þú ekur eins og rallýöku- maður yfir eina blindhæðina og gleymdir beygjunni sem var fyrir aftan hana. Við skutumst út í móa með öll dekk fríhjólandi. Afsökun- in fyrir þessu var ekki of mikill hraði á malarvegi, nei, puttaling- urinn talaði svo mikið. Ég hlæ nú alltaf upphátt að því þegar þú varst nærri búin að keyra inn í íbúðina þína á elliheimilinu á Patró. Þrumaðir á handriðið og stórskemmdir bílinn. Afsökunin var að þú hefðir ruglast á bremsu og bensíngjöf. Síðast þegar ég vissi þá er bremsan alltaf í miðj- unni. Svo getur maður ekki skrifað þessa grein án þess að minnast á allar sjómannadagshelgarnar sem þú þurftir að þola mig og alla mína vini. Ætli það hafi ekki verið 2005 þegar við byrjuðum á að hafa fiskisúpu fyrir gesti og gangandi á föstudeginum fyrir sjómannadag. Fyrsta árið voru nú bara nokkrir strákar. Svo fór þetta að spyrjast út og varð alltaf stærra. Endaði að mig minnir 2009 og þá voru eitt- hvað yfir 40 manns. Hljómsveitir og skemmtikraftar sem ætluðu að troða upp á helginni mættu í súp- una. Þetta var hefð sem þú vildir alls ekki missa því félags- skapurinn var yndislegur, mikið hlegið og eflaust drukkið miklu meira en var hlegið. Sama hvaða axarsköft ég og vinir mínir gerð- um á þessum klassísku sumarfyll- eríum þá stóðstu alltaf með okkur og talaðir okkar máli. Enda varstu svo stolt af því að eiga í góðum samskiptum við vini mína. Þú varst ein af okkur, svo komu þess- ir strákar hver á eftir öðrum og spurðu hvort þeir mættu kalla þig ömmu. Þú varst nú ekki maður með mönnum ef þú kallaðir Birnu ekki Birnu ömmu. Elsku besta amma mín, þú fórst aðeins of fljótt fyrir mig og börnin en nú geturðu dansað inn í eilífðina með Halla afa. Næst þeg- ar við hittumst þá sit ég með nikk- una og þið hjónin dansið gömlu dansana. Kv., Hallinn þinn. Haraldur Kristinn Hilmarsson. Meira: mbl. is/andlat Elsku amma okkar, nú ertu far- in frá okkur og eftir sitjum við með minningarnar, en þar er af nægu að taka. Við munum hvað þú varst alltaf elskuleg við okkur og hvað við upplifðum okkur velkom- in til þín og þú kenndir okkur ansi margt. Það skemmtilegasta var að spila yatzy og vera með þér. Svo sagðir þú alltaf við mig að ég héti Birna eftir þér og þú yrðir alltaf í nafninu mínu. Svo sagðir þú við mig og Jökul að við værum uppáhaldsbarnabörnin sín. Þú elskaðir barnabörnin þín og settir þau í fyrsta sæti og þú munt lifa áfram í minningarhuganum okkar. Við fengum ekki að kveðja þig, þó langaði mig að gera það, mér fannst mjög leiðinlegt að þú skyldir deyja. En við kvöddum þig á aðfangadag og þá sagðir þú hvað það var ofboðslega gaman að eyða með okkur þessu skemmtilega kvöldi og svo kysstir þú okkur bless í bílnum. Elsku amma, sama hvað ég geri, þá skil ég ekki dauðann; hvers vegna fólk fer alltaf frá manni þegar maður elskar það. Það er svo mikið eftir og margt ósagt, margt ógert, ótal faðmlög sem aldrei verða aftur. Ég veit hvað verður, elsku amma, og ég veit að þér líður betur þegar ást- vinir þínir fagna komu þinni. Viltu passa ömmu uppi á himni, afi, og vera með henni? Aðalbjörg Birna og Jökull Myrkvi Haraldsbörn. Elsku amma okkar, takk fyrir að vera alltaf svona góð við okkur. Það var alltaf svo gott að koma til þín og fá ömmuknús. Takk fyrir alla sleikjóana sem þú áttir alltaf svo mikið af í vasanum þínum, þú áttir alltaf bleikan fyrir mig. Takk fyrir ljósabangsana sem þú gafst okkur. Takk fyrir öll skemmtilegu spjöllin okkar. Takk fyrir sam- veruna, við söknum þín og elskum þig. Mig langar svo í ömmuknús. Aníta Rún og Bjarki Rúnar. Birna var gift móðurbróður okkar, honum Halla, en þau bjuggu allan okkar uppvöxt á ris- inu hjá afa og ömmu í Krók á Pat- reksfirði. Birna rifjaði oft upp árið 1959 þegar hún flutti frá Reykja- vík til Patreksfjarðar og hóf bú- skap með fallegasta og besta manni í heimi. Birna og Halli voru mjög stór hluti af lífi okkar systk- ina og voru okkur afar góð. Það var gaman að alast upp í návist Birnu. Hún var glaðleg og sóttist eftir að fá okkur í heimsókn og oft fengum við að sofa á milli. Birna var höfuðborgarskvísa. Hún vildi gjarnan vera fín, var glysgjörn og litskrúðug. Hún átti fullt af snyrtivörum, varalitum og naglalökkum og það var ekki ama- legt fyrir litlar stelpur að komast í snyrtibudduna hennar. Svo átti hún líka fullt af háhæluðum skóm sem við stálumst til að fara í. Birna spilaði á gítar og hafði fal- lega söngrödd. Ekki leiddist henni að syngja og spila fyrir okkur krakkana. Birna sagði sögur af uppvexti sínum í Reykjavík og frá starfi sínu á Hreyfli. Hún bjó ætíð að þeirri reynslu og átti aldrei í erfiðleikum með að keyra og rata í Reykjavík. Birna var alltaf mjög gjafmild og þótti gaman að gefa. Margir eiga í sínum fórum muni sem hún annaðhvort perlaði, skar út, mál- aði á, prjónaði eða heklaði. Fyrir síðustu jól málaði hún á 32 jóla- dúka og gaf þeim fjölskyldum sem henni stóðu nærri. Birna ók eins og herforingi á milli Patreksfjarðar og Reykja- víkur á öllum árstímum. En það var henni þungbært þegar hún lagði bílnum eftir að hún flutti til Hafnarfjarðar. Samband okkar við Birnu rofn- aði aldrei. Á tímabilum dvaldi hún hjá okkur systrum þegar hún kom í bæinn. Hún gaf sér alltaf tíma til að kíkja í heimsókn í öllum sínum bæjarferðum. Birna var afar félagslynd, var í raun partíljón, vildi vera innan um fólk og fá að taka þátt í atburðum sem fylgja hefðbundnu fjölskyldu- lífi. Boðum um að koma í heim- sókn, fá snarl að borða og horfa á sjónvarp í félagsskap annarra hafnaði hún aldrei. Hún elskaði að dansa og harmonikkuböllin á Hrafnistu voru stór þáttur í lífi hennar. Þegar henni var sagt að hún gæti ekki búist við því að geta dansað sagði hún að það væri versti hluti veikindanna. En á síð- asta harmonikkuballi fyrir jól náði hún að stíga nokkur dansspor með mömmu okkar. Á Patró stundaði Birna félagsstarf eldri borgara af krafti. Söng með kirkjukórnum og síðan með kórnum á Hrafnistu eftir að hún flutti í bæinn. Birna var pólitísk fram á síðasta dag og sannur sósíalisti. Sérstaklega var hún áhugasöm um samgöngur, vegamál, kjör og aðbúnað aldr- aðra. Birna var mikil barnagæla. Hún var gjarnan með eitthvert góðgæti í veskinu sem hún gauk- aði að hverju barni sem hún hitti. Það voru fleiri en hennar eigin barnabörn sem kölluðu hana ömmu. Best þótti henni að vera í návist barnabarna og langömmu- barna. Í hvert sinn sem við kvöddum Birnu lét hún í ljós væntumþykju sína og þau orð hlýja. Við erum þakklátar fyrir allar samveru- stundir okkar og fjölskyldna okk- ar með Birnu og góðvild hennar í okkar garð. Þær minningar lifa. Sesselja og Kristjana. Nokkuð óvænt var nafna mín kölluð á brott úr þessum heimi. Þó svo að líkaminn hafi verið farinn að gefa sig var aðdáunarvert hvað hún var með á nótunum varðandi allt sem var að gerast hjá fólkinu í kringum hana. Birna ólst upp í Reykjavík og bjó þar þangað til hún fluttist vestur á Patreksfjörð sem ung kona. Þar lágu saman leiðir Birnu og Haraldar, eða Halla eins og hann var alltaf kallaður, móður- bróður míns. Þau giftu sig og bjuggu öll sín hjúskaparár á Pat- reksfirði. Halli lést í sjóslysi árið 1990 og var þetta slys Birnu mikið áfall. Þeim hjónum varð ekki barna auðið en þau tóku að sér stúlku, Kristínu sem þau ólu upp. Kristín var þeirra stoð og stytta meðan þau lifðu. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að vera skírð í höfuðið á Birnu og yngri bróðir minn var svo skírður í höfuðið á Halla frænda. Ef mér varð það á í mess- unni að segjast vera skírð eftir henni var hún fljót að leiðrétta mig og segja að ég væri skírð í höfuðið á henni, hún væri nú ekki dauð ennþá. Þau hjónin Birna og Halli kölluðu okkur systkin oft litlu hjónin, sem mér fannst alltaf svo skemmtilegt. Þau voru ætíð góð við okkur nöfnu og nafna. Komu þau alltaf færandi hendi á afmælum okkar og jólum. Eftir- minnilegasta gjöfin var gömul Moskvich-bifreið sem við litlu hjónin fengum mörgum árum áð- ur en við höfðum aldur til að keyra bíl. Mér fannst það ekkert smá flott að eiga bíl. Birna hugsaði vel um útlitið og var ávallt vel til höfð og flott í tauinu. Hún átti á sínum yngri ár- um mörg háhæluð skópör sem ekki var leiðinlegt að fá að plampa í sem stelpa. Ég var ekki orðin svo gömul þegar ég óx upp úr skó- númerinu hennar en hún var með mjög nettan fót og þar með var skóævintýrinu mínu lokið. Birna var mikið fyrir skartgripi og var oft það fyrsta sem hún tók eftir ef einhver var með fallegan hring eða hálsmen. Þá þurfti hún að fá að snerta og skoða nánar. Þannig var hún allt til enda, vel snyrt, naglalökkuð og fín. Síðustu árin dvaldi Birna á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þar líkaði henni vel og var virk í öllu fé- lagslífi fram á síðasta dag. Hún missti helst ekki af föstudagsböll- unum, þar sem hún reyndi eftir fremsta megni að dansa við harm- ónikkutóna, sem hún elskaði. Einnig tók hún þátt í söngstund- um enda hafði hún prýðilega söng- rödd og hafði m.a. verið í kirkju- kórnum á Patreksfirði. Birna var einstaklega lagin í höndunum og eftir hana liggja margir fallegir munir sem hún prjónaði, perlaði eða málaði. Ég minnist nöfnu minnar sem sterkrar og ákveðinnar konu sem ekki lét vaða yfir sig. Hún hafði sínar skoðanir á ótrúlegustu hlut- um. Birna varð að fá kaffið sitt blandað í réttri röð, mjólkina átti að setja fyrst í bollann og svo mátti hella kaffinu saman við, punktur. Almesta B-manneskja sem ég hef kynnst var nafna mín enda varð ég steinhissa um daginn þegar hún sagðist undanfarnar vikur hafa vaknað klukkan sjö á morgnana. Einnig mun ég muna eftir nöfnu minni sem gjafmildri, glaðværri og hláturmildri mann- eskju sem elskaði að dansa og syngja. Kæra Kristín og fjölskylda. Ég votta ykkur mína innilegustu sam- úð. Birna Jóhanna Ólafsdóttir. Birna amma var ekki amma mín í hefðbundnum skilningi en ávallt kölluð Birna amma af minni fjölskyldu. Þegar við bjuggum á Patreksfirði á sínum tíma var stutt í húsið hennar Birnu og við bræðurnir þar tíðir gestir með foreldrum okkar. Sveinn bróðir kallaði víst allar eldri konur ömm- ur sínar og Birna, sem þótti þetta yndislegt, sagðist svo sannarlega geta verið amma hans líka. Eftir að við fluttum svo til Reykjavíkur voru ávallt pakkar undir jólatrénu frá Birnu ömmu og samgangurinn alltaf eins mikill og kostur var á. Það var svo á unglingsaldri þegar ég vandi komur mínar til Patreksfjarðar á sumrin til að vinna að ég lærði virkilega að meta alla þá ást og umhyggju sem hún Birna bar til okkar bræðra og hversu sterkt samband var milli hennar og foreldra minna og þá sérstaklega mömmu minnar, Sig- ríðar. Smám saman urðum við Birna perluvinir og eftir að ég kynntist konu minni, Sigurðu, tókst einnig með þeim mikill vinskapur. Birna hefur reynst mér, konu minni og börnum ákaflega vel í gegnum tíð- ina og svo sannarlega stutt okkur með ráðum og dáð. Hún heklaði heimferðaföt barna minna og var þeim ómetanlega góð alla tíð. Hún hýsti mig í heila fimm mánuði meðan ég vann upp sveinstíma í rafvirkjun á Patró en þá bjuggum við fjölskyldan á Ísafirði og ég keyrði heim um helgar þegar hægt var. Þau voru ófá kvöldin sem við sátum saman í stofunni talandi um það sem helst lá okkur á hjarta hverju sinni. Birna var sérlega hjartahlý kona og voru ansi margir úr vina- hóp barnabarns hennar, Harald- ar, sem vöndu sig á að kalla hana ömmu. Henni varð tíðrætt um hversu vænt henni þætti um það og hversu gaman henni þætti að elda kjötsúpu ofan í liðið á sjó- mannadögunum meðan hún treysti sér til. Hennar verður vafalaust minnst af mörgum með þeirri hlýju sem hún hafði sjálf svo gott lag á að gefa. Ástvinum sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Pétur Þór Erlingsson. Birna Jóhanna Jónsdóttir ✝ MagnhildurMagnúsdóttir fæddist 10. desem- ber 1940. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 23. desember 2018. Magnhildur ólst upp í Fagurhlíð í Landbroti og for- eldrar hennar voru Magnús Dagbjarts- son, f. 5.1. 1906, d. 10.1. 1986, og Jónína Kristín Sigurðardóttir, f. 7.10. 1912, d. 19.2. 1989. Systkini Magnhildar eru Gunnheiður Magnúsdóttir, f. 11.3. 1935, d. 18.12. 2010, Gísli Magnússon, f. 8.3. 1938, Ólafía Magnúsdóttir, f. 21.1. 1942, Sig- rún Magnúsdóttir, f. 22.2. 1944, Guðlaug Magnúsdóttir, f. 8.4. 1946, Gunnar Magnússon, f. Dalheim, sonur þeirra er Alfreð Alexandersson.Ýmir Kalman Fróðason, f. 16.11. 1991, Jón Styrmir Fróðason, f. 26.4. 1993. Elfa Kristín Sigurðardóttir, f. 19.3. 1963, eiginmaður Björgvin Kristjánsson, f. 13.9. 1969, þeirra börn eru Ólöf Tara Smáradóttir, f. 23.10. 1985, sam- býlismaður Ólafur Örn Jónsson, Þuríður Nótt Björgvinsdóttir, f. 24.5. 1998, sambýlismaður Bjarki Fannarsson. Dóra Berg- lind Sigurðardóttir, f. 12.9. 1964, eiginmaður Óskar Krist- inn Bragason, f. 29.4. 1961, þeirra börn eru Daníel Björn Óskarsson, f. 4.2. 1992, Nikulás Óskarsson, f. 19.11. 1995. Stúlka Sigurðardóttir, f. 27.7. 1965, d. 7.8. 1967. Útför Magnhildar fór fram frá Hjallakirkju 10. janúar 2019. 31.5. 1948, Helgi Magnússon, f. 18.8. 1959, Einar Sig- urður Magnússon, f. 27.5. 1953, Ólafur Magnússon, f. 16.12. 1954, og Kjartan Magnússon, f. 25.6. 1957. Fyrrverandi sam- býlismaður Magn- hildar var Sigurður Jónas Jónasson, f. 22.3. 1937, d. 14.12. 2011. Eig- inmaður Magnhildar var Magn- ús Hjörtur Ásgeirsson, f. 19.4. 1947, d. 24.3. 2013. Börn Magnhildar og Sigurðar eru Íris Björk Sigurðardóttir, f. 21.3. 1962, eiginmaður Fróði Hjaltason, f. 25.1. 1954, börn þeirra eru Alexander Fróðason, f. 9.6. 1985, í sambúð með Tone Mamma var mikið náttúrubarn og ferðaðist mikið um Ísland og þekkti hvern stokk og stein. Hún og Maggi voru á fjöllum, jöklum, í dölum og úti um allt. Ferðamátinn var ekki eingöngu á jeppum held- ur einnig á skíðum, hjólum og hún á hestum. Saman fórum við mamma og Böggi ríðandi um Þórsmörk og er sú ferð dýrmæt í minningabankanum. Hún var lífsglöð og alltaf bros- andi, elskaði að dansa og dillaði sér við húsverkin eftir tónlist í út- varpinu og eru margar minningar tengdar óskalögum sjúklinga og óskalögum sjómanna þegar hún söng með og dansaði um húsið með tuskuna á lofti. Hún var lestr- arormur og las allt sem hún náði í, hvað sem það var, og oft sátum við á morgnana saman, ég, hún og Maggi, í eldhúsinu í Furuhjalla og lásum yfir fréttirnar og höfðum skoðanir á öllu. Á hverjum morgni fóru þau hjónin í gönguferð um dalinn í Kópavogi og eftir að Maggi hvarf yfir móðuna miklu tókum við tvær alltaf morgun- göngu saman þegar ég kom suður. Alltaf var jafn gaman og ynd- islegt að fá þau austur í heimsókn og við mamma spjölluðum yfir kaffi og prjónum og fórum í gönguferðir um fallegt umhverfi Egilsstaða og Fellabæjar, hún tíndi upp í sig berin við hvert tæki- færi ef við rákumst á berjalyng. Þú hvarfst þér sjálfum og okkur hvarfst inn í höfuð þitt dyr eftir dyr luktust og gátu ei opnast á ný þú leiðst hægt á brott gegnum opnar bakdyr bústaður sálarinnar er hér enn en stendur auður sál þín er frjáls líkami þinn hlekkjaður við líf sem ekki er hægt að lifa þú horfðir framhjá mér tómum augum engin fortíð engin framtíð engin nútíð við fengum aldrei að kveðjast. (Tove Findal Bengtsson – þýð. Reynir Gunnlaugsson) Í hjarta mínu trúi ég að ferð þín, elsku mamma, sé hafin á vit stóru ástarinnar í líf þínu, Magga, og saman fljúgið þið á vængjum vindsins, ferðist um alheima, til vetrarbrauta, tungla og stjarna. Hvíl saman í faðmi Guðs. Elfa. Magnhildur Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.