Morgunblaðið - 14.01.2019, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 14.01.2019, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 Fjarfestu f heilsunni meiri hreyfing betri heiIsa meiri ancEgja Eitt mesta urval landsins af t<Ekjum til lfkamsr<Ektar fyrir heimili, fyrirt<Eki, skip og lfkamsr<Ektarstoovar Synishorn af prekta:kjalfnunni 2018 - 2019 l>rekhj6I .&. NordicTrack VR21 Recumbent Vandao prekhj61 sem tengist snjallsfma eoa spjaldtolvu meo Bluetooth. Moguleiki a iFit tengingu. Pulsm�lir handfongum.. Vero 179.990,- Fjol�jalfi Proform 450 LE ► Frab�r fjolpjalfi meo mjukum hreyfingum og miklum pyngdar­ moguleikum. Vero 139.990,- ◄ l>rekhj6I Proform 210CSX Einfalt og vandao prekhj61 sem hentar vel til heimilisnota. Vero 69.990,- ◄ Hlaupabraut Proform 3001 Frab�r braut fyrir hlaup, gongu og f heimanotkun, samanbrj6tanleg. Vero 149.990,- ... Hlaupabraut Nordictrack T10.0 Mjog oflug braut sem hentar f mikla notkun, hvort sem er heima eoa a vinnustao, samanbrj6tanleg. R6cJravel NordicTrack RX800 ► Stillanleg loftm6tstaoa 20 �fingakerfi Auovelt ao f�ra, a hj61um Vero 129.990,- Vero 299.990,- Meiri hreyfing fyrir al/a fjolskylduna ORNINN,- STOFNAD 1925 Faxafeni 8, Sfmi 588 9890 Gerum tilboa - Eingongu toppmerki - Cybex - Matrix - Nordic Track - Proform Opi8 virka daga 10-18 - Laugard. 11-15 -Visa-og Eurora5g - Netgfr6 -www.orninn.is Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði í viðtali í kvöldfréttum RÚV í gærkvöldi að ríkið yrði að draga úr eignarhaldi sínu á bönkunum. Það fæli í sér að selja Íslandsbanka og halda eftir 35-40% hlut í Landsbankanum. Bjarni gat þess að hann vonaðist til þess að geta hafið söluferli á bönkunum á þessu kjörtímabili. Hann vill að ríkið verði áfram stærsti eignaraðilinn í Landsbank- anum en þó verði að lækka eignar- hlutfall þess töluvert, niður í 35 til 45 prósent. Íslandsbanka, sem er nú alfarið ríkiseign, á að selja með öllu. Stjórnvöld voru hvött til þess að losa um eignarhluti í fjármála- fyrirtækjum í hvítbók um fjármála- kerfið sem kynnt var í desember. Bjarni segir það skipta máli að söluferlið verði opið. „Við erum skammt á veg komin með það, næsta skref er að ræða um hvítbók- ina,“ sagði hann. Skiptir máli að söluferl- ið sé opið  Vill selja bankana á kjörtímabilinu Banki Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra vill ræða um hvítbókina. Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Stóraukin aðsókn er á Ljóðasetur Íslands á Siglufirði, eftir að breska ferðaskrifstofan Super Break hóf að bjóða upp á beint flug frá Bret- landi til Akureyrar á veturna. Fjöl- margir hópar hafa pantað heim- sókn á setrið fram í mars en aukin ásókn ferðamanna hleypir nýju lífi í vetrartímann að sögn Þórarins Hannessonar, stofnanda og for- stöðumanns Ljóðaseturs Íslands, en áður var safnið einungis opið á sumrin. „Þetta hleypir nýju lífi í vetr- artímann og er alveg ný vídd í starfsemina, sem er mjög ánægju- legt. Um leið og byrjað var að áætla þessar flugferðir var rætt við mig um hvort ég væri tilbúinn að taka við hópum, þannig það er hátt í ársundirbúningur að baki,“ segir Þórarinn. Áhugi á íslenskri menningu og íslenskum bókmenntum er helsta aðdráttarafl ferðamannanna. Á Ljóðasetrinu hlýða ferðamennirnir á fyrirlestur um íslenska ljóðlist og mikilvægi hennar í íslenskri menn- ingu. „Ljóðlistin er einn af horn- steinum okkar menningar. Kveð- skapur eins og Eddukvæðin er okk- ar framlag til heimsbókmenntanna. Ferðamenn eru mjög áhugasamir um þetta og íslenska menningu,“ segir Þórarinn og bætir við að hann syngi og kveði fyrir ferðamennina til að lífga upp á heimsóknirnar. Aukin aðsókn á Ljóðasetrið Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Akureyrarflugvöllur Hópur breskra ferðamanna við komuna í síðustu viku.  Beint flug frá Bretlandi til Akureyrar orsökin Pétur G. Markan sagði starfi sínu lausu sem sveit- arstjóri Súðavík- urhrepps á fundi bæjarstjórnar fyrir helgi. Pétur hóf störf fyrir Súðavíkurhrepp árið 2014. Þetta kemur fram í fundargerð sveitarfélagsins. Þar segir Pétur að tíminn hafi liðið „á ljóshraða krefjandi verkefna, ánægjulegra kynna, sigra og stund- um erfiðra tímabila“. „Fram undan eru breytingar hjá fjölskyldunni sem kalla á þessar breytingar á mínum störfum. Það er von mín og vissa að bjart sé yfir framtíð sveitarfélagsins. Mér er efst í huga þakklæti til íbúa Súðavíkur- hrepps fyrir að hafa fengið að stýra sveitarfélaginu,“ segir í fundargerð- inni. Pétur mun vinna þriggja mán- aða uppsagnarfrest sinn. Hættir sem sveitarstjóri á Súðavík Pétur G. Markan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.