Morgunblaðið - 14.01.2019, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 14.01.2019, Qupperneq 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 Bara svo því sé nú haldið til haga þá tel ég mig vera allnokkurn bænamann. Fel Guði reglulega og jafnvel oft á dag mig og mína og það sem ég fæst við hverju sinni. Mér finnst gott að biðja. Ég finn fyrir friði og ör- yggi sem ég get ekki tekið mér sjálfur. Ég tek það þó fram að ég kann bara alls ekkert að biðja. Ég kann engar formúlur í þeim efnum. Veit ekkert hvað ég á að segja eða biðja um. Hvernig ég á að snúa mér eða láta, tala upphátt eða í hljóði eða í hvaða stellingum ég á að vera. Hvort ég á að biðja úti í náttúrunni, á gönguferðum eða í bílnum, uppi í rúmi, fyrir framan sjónvarpið, við eldhúsborðið, í sturtunni, á klósett- inu, í kirkju, fyrir framan altari eða hvað. Ég játa það því hér með að ég kann hreinlega bara alls ekki að biðja. Ég veit eiginlega heldur ekki um neinn sem kann það og er bara alveg með þetta. Ég veit eiginlega ekki heldur ná- kvæmlega hvað bænin er og hef varla hugmynd um, þekkingu eða skilning á því hvernig hún virkar. En hitt veit ég fyrir víst af því að ég hef svo margoft og iðulega upplifað það sjálfur að mér finnst gott að hvíla í bæninni og fá að meðtaka friðinn og lausnina sem hún veitir mér. Upplifað dásam- legar bænheyrslur Ég get þó upplýst það að ég bið reglulega. Og það iðulega með fá- tæklegum orðum, lakri einbeitingu og skertri athygli en engu að síð- ur í hjartans einlægni. Í fyllsta trausti og sannfæringu um að ég verði bænheyrður og að sjálfur höfundur og fullkomnari lífsins muni vel fyrir sjá, sama hvað, jafnvel þótt um síðir verði. Sjaldnast er ég þó bænheyrður nákvæmlega með þeim hætti sem ég bað um eða sá fyrir í fyrstu. En ég upplifi reglulega svo fallegar bæn- heyrslur og jafnvel kraftaverk með algjörlega ófyrirséðum hætti sem ég hefði ekki einu sinni svo mikið sem getað gert mér vonir um eða haft hugmyndaflug til að biðja um. Blessanirnar eru allt í kringum mig, jafnvel bara við hvert fótmál og það furðulega er oft á tíðum einmitt í sárustu vonbrigðunum. Ljósið í myrkrinu. Og iðulega verða bænheyrslurnar mun mikilfenglegri og undursam- legri en ég hefði nokkurn tíma getað séð fyrir. Bænin er ekki veruleikafirring Bæn til Guðs er nefnilega ekki einhver veruleikafirring. Bænin er að koma hugðarefnum sínum, áhyggjum, vanmætti út úr sjálfum sér og leggja það sem á okkur hvílir þá stundina á herðar Jesú Krists, frelsara okkar samkvæmt hans boði. Hans sem léttir byrðar og gefur frið sem fæst hvorki keyptur né seldur en er raunverulegur hjartafriður, æðri öllum mannlegum skilningi. Með bæninni gerum við okkur betur grein fyrir ástandi okkar, komum orðum á það og fáum sjálfan höfund lífsins, kærleikans og friðarins í lið með okkur. Hann sem elskar okkur út af lífinu. Þess vegna er svo gott að lifa í bæn. Biðja þess að hvert okkar æð- arslag, andardráttur, hugsun, skref og verk séu í samfelldri bæn til hins upprisna frelsara og eilífa lífgjafa. Hans sem er stóra svarið við lífsgát- unni sjálfri. Dýrð sé Guði föður og syni og heil- ögum anda sem býðst til að anda á okkur hverja stund með mætti sín- um og styrk, kærleika, friði og um- vefjandi lífsins anda. Líka þegar við sjálf getum ekki andað meir. Með einlægri bæna-, kærleiks- og friðarkveðju. Lifi lífið! Hver kann svo sem að biðja? Eftir Sigurbjörn Þorkelsson »Ég get þó upplýst að ég bið reglulega. Og það iðulega með fátæk- legum orðum, skertri athygli en engu að síður í hjartans einlægni og fyllsta trausti. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Skilgreining á því hvað teljast nátt- úruauðlindir var sett fram í skýrslu auð- lindastefnunefndar 2000 og endurtekin í skýrslu auðlinda- stefnunefndar 2012. „Auðlind er þannig þau gæði sem efna- hagslegur hagur er af að nýta þannig að nýt- ing skili meiri arði (auði) en sem nemur kostnaði við nýtinguna. Þau náttúrugæði sem efnahagslega er hagkvæmt að nýta teljast þá til náttúruauðlinda.“ Nýrri skilgreining á náttúruauðlindum er hins vegar sú að þær séu einfaldlega: „Uppspretta hverra þeirra aðfanga/gæða í nátt- úrunni sem nýtist manninum (svo sem timbur, orka, fiskur, hreint loft, o.fl.).“ Þetta er nú frekar óljóst. Gera þarf greinarmun annars veg- ar á takmarkaðri auðlind þar sem nýting hefur áhrif á endingu, t.d. ol- íuvinnslu og fiskveiða, og hins vegar á endurnýjanlegri auðlind þar sem nýting hefur ekki áhrif á auðlindina, t.d. vatns- og jarðvarmaorku. Vegna gríðarlegrar stærðar jarðhitageymis í iðrum jarðar er jarðvarmi jafnan talinn endurnýjanleg auðlind. Veiðigjöld útgerða, sem farið er að praktísera hér á landi við blendnar undirtektir, eru vísir að ráðstöfun stjórnvalda til að innheimta auð- lindagjöld, en fiskistofnar eru tak- mörkuð auðlind. Veiðigjöldin ættu því að geta haft þau áhrif að tak- marka aðgang í fiskistofna og með þannig inngripi er talið að þau gætu orðið þáttur í að stjórna stærð fiski- stofna. Hér á eftir er fjallað um einstakar orkuauðlindir og hugsanlega skatt- lagningu þeirra í formi auðlinda- gjalds. Olíuvinnsla Olía er takmörkuð auðlind. Ef upptaka olíu minnkar þá endist bor- hola lengur. Auðlindastýring gæti farið fram í borholum. Eftir upptöku á hráolíu úr borholu er olían hreinsuð, síðan vistuð í olíu- geymum til notkunar þegar þörf krefur. Auðlindagjald er lagt á olíu- vinnslu, en gjaldið er fyrir óendur- kræfa upptöku olíu og er á valdi vinnsluaðila að ákveða nýtingartíma hverrar borholu. Í olíugeymum fer fram birgða- stýring, en birgðastaðan ræður miklu um olíuverð á hverjum tíma. Vatnsorka Við virkjun vatnsorku eru gerðar veitur og vatnsmiðlanir, þaðan sem vatn er sótt til virkjunar eftir því sem þörf krefur. Vatn er sjálfrennandi á upptöku- stað en það hægir ekki á sér þótt vatnstaka vegna virkjunar minnki. Umframvatn rennur þá bara framhjá. Við getum ekki skrúfað fyr- ir vatn á upptökustað eins og hægt er að gera við olíuvinnslu. Í vatnsmiðlunum fer fram birgða- stýring á vatni. Mikilvægasti þátt- urinn er árstíðageymslan þar sem sumarvatn er geymt til notkunar á komandi vetri og fram á næsta vor eða þar til sumarflóð hefjast að nýju. Eins og fyrir olíuvinnslu ræður staða miðlana mestu um vinnslu- kostnað vatnsorku á hverjum tíma. Á Íslandi hefur svonefnt vatns- gildi verið notað til að verðmeta vatn í miðlunum, en það er reiknistærð sem er háð árstíma og stöðu miðl- unar. Eining á vatnsgildi gæti verið USD/MWh. Auðlindagjald breytir engu um rekstur vatnsaflvirkjana og er því um að ræða hreina skattlagningu óháð nýtingu auðlindarinnar. Auð- lindagjald vegna vatnsaflsvirkjana gæti meðal annars farið í að greiða fyrir röskun á náttúruverðmætum vegna byggingar veitna, miðlana og ann- arra virkjunarmann- virkja. Að öðru leyti gæti auðlindagjaldi al- veg eins verið fyrir komið sem hluta af hinu almenna tekjuskatts- kerfi. Nánast allar vatns- aflsvirkjanir eru í eigu ríkis og sveitarfélaga og með auð- lindagjaldi eða öðrum skattalegum ráðstöfunum væri hið opinbera að skattleggja sig sjálft með milli- færslum sem kannski væru óþarfar. Viðamikil skattlagning á rekstri vatnsorkuvera í einkaeigu kynni að hindra nýliðun í greininni. Í því sambandi má nefna nýfram- komið frumvarp um þjóðarsjóð en þar eru ákvæði um stórkostlega fjár- magnsflutninga frá vatnsorkukerfi Landsvirkjunar yfir í fjárfestingar- sjóð í eigu ríkisins. Vandséð er hvernig hægt verði að koma fyrir bæði auðlindagjaldi á Landsvirkjun og framlagsskyldu þeirra í þjóðar- sjóð. Manni dettur í hug öfugmælið að slá sömu fluguna með tveimur höggum. Um vatnsaflsvirkjanir gildir að virkjunaraðili þarf, óháð auðlinda- gjaldi, að ná samkomulagi við um- ráðahafa vatnsréttinda á svæðinu um endurgjald fyrir auðlindina. Ósjaldan er virkjunarsvæði í eigu virkjunaraðila. Auðlindastýring á vatnsafli hefur að undanförnu verið í umræðunni um þriðja orkupakkann, en ekki er ljóst hvað átt er við þegar því er haldið fram að Landsvirkjun sé eini aðilinn sem er fær um að annast þau mál. Það er að mínu mati vafasöm staðhæfing. Jarðvarmi Með virkjun á jarðvarma eru bor- aðar djúpar háhitaholur, sem síðan eru látnar blása áður en tengt er við jarðvarmavirkjun. Gufugeymir er ekki fyrir hendi á leið háhita frá borholu til virkjunar og ef vinnsla í virkjun er minnkuð eða stöðvuð þá er holan oftast látin blása framhjá á meðan, út í loftið. Talið er æskilegt að breyta vinnslu jarðvarmavirkjana sem minnst og starfa þær að jafnaði allt árið á þeim afköstum sem tiltækar borholur bjóða upp á hverju sinni. Auðlindagjald á jarðvarmavirkj- anir breytir því engu um rekstur þeirra og fengi þess vegna sama sess og hjá vatnsaflsvirkjunum, sam- anber það sem rætt er um hér að framan. Orkuvinnsla og auðlindagjald Eftir Skúla Jóhannsson Skúli Jóhannsson » Greinarmunur er gerður á takmark- aðri auðlind þar sem nýting hefur áhrif á endingu og endurnýj- anlegri auðlind þar sem nýting hefur ekki áhrif. Höfundur er verkfræðingur. skuli@veldi.is Það er engu líkara en krónan sé eyðing- arvopn sem öllu rústar í íslensku samfélagi. Það þurfi að koma henni fyrir kattarnef með því að ganga í ESB og taka upp evruna. Hér eru nokkur at- riði sem vert er að hafa í huga í sambandi við upptöku evru. Árið 2000 var Ísland með fjórðu hæstu þjóðartekjur á mann, leið- réttar með kaupmáttarkvarða, þ.e. 29.393 US$ og Noregur hæstu, 36.950 US$. Sautján árum seinna (2017) er Ísland í þriðja sæti með 54.080 US$, Noregur efstur með 61.576 US$ og Bandaríkin í öðru sæti með 59.535 US$ , meðaltal ESB (2017, 28 þjóðir) var 41.136 US$. Ekki svo slæmt. Gini-stuðull á Íslandi er lægri en í flestum löndum sem bendir til að hér sé tekjujöfnuður meiri en víðast ann- ars staðar. Í evrópskum samanburði var Ísland með minnstan ójöfnuð árið 2016 með Gini-stuðul 24,1 en því næst komu Slóvakía með 24,3, þá Slóvenía 24,4, Noregur 25 og Tékkland 25,1. Ekki svo slæmt. Atvinnuleysi er ein mesta ógæfa manna og líklegra en flest annað til að valda viðkomandi efnahags- og andlegum bágindum. Í ágúst 2018 var atvinnuleysi í ESB (28 þjóðir) 6,7% en 2,9% á Íslandi. Í júní 2018 var atvinnuleysi 20,2% í Grikklandi, 15,2% á Spáni, 10,9% á Ítalíu, 9,2 í Frakklandi, 8,2% á Kýpur, 9,2% í ESB (28) og 3,1% á Íslandi. Ekki svo slæmt. Erlend staða þjóðarbúsins var neikvæð um 439.349 milljarða í árslok 2000, eða mínus 61,2% af vergri landsframleiðslu, í árslok 2017 var er- lend staða þjóðarbúsins jákvæð um 136.138 milljarða eða 5,2% af vergri landsframleiðslu. Þessi hagstæða þróun gerir það að verkum að þjóð- arbúið er mun betur búið til að bregð- ast við hvers konar ölduróti. Ekki svo slæmt. Á tímabilinu 2000 til 2017 óx verg landsframleiðsla á föstu verðlag á Ís- landi um 66%, á sama tíma fjölgaði landsmönnum um 22,1% og á mann óx landsframleiðslan um 36%. Ekki svo slæmt. Þrátt fyrir að nefnd atriði séu þeirrar gerð- ar að fagna beri þeim er það ekki þar með sagt að ekki megi gera betur við þá sem kröppust hafa kjörin en um það þarf að nást skyn- samleg niðurstaða með víðtækri samfélagslegri sátt. Þjóðartekjur á mann eru hér háar og lágur Gini- stuðull ætti að gera það tiltölulega létt verk að koma á launa- og tekju- tilfærslukerfi til hagsbóta fyrir þá verr settu. Hvort og hversu miklar aðgerðir til aukins jafnaðar yrðu er augljóslega álitamál og engin nið- urstaða sannanlega sú eina rétta, slíkur samfélagssáttmáli yrði óhjá- kvæmilega málamiðlun milli ólíkra sjónarmiða. Vísitala launa hækkaði um 237% frá júní 2000 til júní 2018, neysluvís- talan hækkaði um 121%, á sama tíma hækkaði verð á dollara um 36,2% og verð á evru 69,2%. Af þessum tölum er erfitt að draga þá ályktun að krón- an (gengi hennar) hafi verið hinn mikli skað- og hörmungavaldur í ís- lensku efnahagslífi og alla samfélags- lega óáran megi rekja til hennar. Raunar er krónan ekki sjálfstætt afl í samhengi hlutanna, eingöngu mælir. Það liggur í augum uppi að séu launahækkanir umfram framleiðni- aukningu hérlendis, nema til komi er- lend verðbólga til jafns við mismun- inn á launahækkunum og framleiðni, þá leiða þær til þess að samkeppn- isstaða bæði útflutnings og inn- lendrar starfsemi sem keppir við inn- flutning versnar sem aftur þrýstir á gengislækkun eigi að forðast sam- drátt og atvinnuleysi. Hefðum við búið við fast gengi (segjum evru) nefnt tímabil er ljóst að staða ýmissa fyrirtækja væri enn verri en hún er í dag vegna þess að ekki hefði verið hægt að lækka geng- ið til eyða áhrifum of mikilla launa- hækkana, í stað þess hefði þurft að koma til innri gengisfelling, lækkun launa og verðlags, til að halda upp þolanlegu atvinnustigi og skaplegri stöðu viðskiptajafnaðar. Hins vegar er ekki gefið að slík innri gengisfell- ing hefði gengið eftir og afleiðingin orðið aukið atvinnuleysi og fjárhags- legar þrengingar margra. Ef við tökum tölvuþjónustufyr- irtæki í útflutningi sem dæmi og gef- um okkur að tekin hafi verið upp evra árið 2000 en breyting launa og verð- bólga hafi verið eins og vikið hefur verið að hér að ofan að því viðbættu að verðbólga í ESB á sama tímabili hafi verið 40% (þ.e. 2% á ári Euro- stat) kemur í ljós að í hinu dæmi- gerða fyrirtæki hefði hagnaður farið úr 10% af eigin fé í tap sem næmi 114% af eigin fé. Hagnaður hefði farið úr 20 í tap upp á 106. Dæmið hér að ofan, þar sem gert er ráð fyrir að verðbólga erlendis gæfi rúm til hækkunar útflutnings- verðs um sömu prósentu, er vísbend- ing um þær ógöngur sem við mögu- lega lentum í við upptöku evru, vegna þess að við höfum þrengt að þeim hagstjórnarkostum sem tiltækir yrðu til að tryggja fulla atvinnu og innra og ytra jafnvægi. Nú er það svo að þeir sem aðhyll- ast upptöku evru verða að gera grein fyrir því hvert eigi að vera skiptihlut- fallið við upptöku evru. Hver er ásættanleg staða útflutnings og inn- lendrar starfsemi sem keppir við inn- flutning við upphaf upptöku evru? Við hvað miðast slík stöðutaka? Arð- semi sem hlutfall af eigin fé skal vera hver? Með hvaða hætti ætla talsmenn niðurlagningar krónunnar að tryggja að launahækkanir og verðbólga hér- lendis verði ekki meira en erlendis? Tryggja að hér haldist því sem næst full atvinna? Takist það ekki er ver af stað farið en heima setið. Eftir Þorbjörn Guðjónsson » Verði ekki gripið til ráðstafana til að minnka bilið milli þeirra verr settu og hinna sem hærri hafa launin munu óánægjan og flokka- drættir magnast. Þorbjörn Guðjónsson Höfundur er cand. oecon. Krónan og hælbítar hennar Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.